Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 1

Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 1
182. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Svissneskir bankar og samtök gyðinga semja um bótagreiðslur Gyðingar óttast innbyrðis deilur Jerúsalem, Zíirich. Reuters. SAMTÖK gyðinga fógnuðu í gær sögulegu samkomulagi við sviss- neska banka um sem svarar tæplega níutíu milljarða króna bótagreiðslum fyrir eignir sem nasistastjórnin í Þýskalandi gerði upptækar og kom til gejnnslu í svissneskum bönkum. „Þetta er skref í rétta átt,“ sagði Efraim Zuroff, framkvæmdastjóri Simon Wiesenthal-stofnunarinnar í Israel, en benti jafnframt á að ekki væri Ijóst hvernig fjármununum yrði útdeilt. Tveir stórir svissneskir bankar, UBS og Credit Suisse, eru aðilar að samkomulaginu, auk svissneska rík- isins og svissneska seðlabankans, sem keypti milljarða króna virði af stolnu gulli af nasistum á stríðsárun- um. Bætur verða greiddar á þriggja ára tímabili, en ekki hefur verið ákveðið hvernig greiðslur munu fara fram. Hafa frammámenn meðal gyð- inga látið í ljósi áhyggjur af því að þetta geti leitt til innbyrðis deilna meðal gyðinga. Með samkomulaginu er komið í veg fyrir að um tuttugu ríki í Banda- i-íkjunum grípi til refsiaðgerða gegn svissneskum bönkum. Einnig verður fallið frá hópmálsókn tugþúsunda fórnarlamba gyðingaofsókna nasista, sem höfðu krafist allt að 1.500 millj- arða í bætur. Almenningur á báðum áttum Almenningur í Sviss virtist á báð- um áttum um hvort samkomulagið væri af hinu góða eða ekki. Sumir þeirra sem fréttastofa Reuters ræddi við töldu gott að málinu væri lokið, margir létu í ljós undrun yfír því að upphæðin væri tvisvai- sinnum hærri en sú sem bankarnir buðu upphaf- lega. Enn aði-ir töldu samkomulagið verða landi og þjóð til skammar. Brot úr Titanic af hafsbotni VÍSINDAMENN hafa náð hluta skipsskrokks Titanic af hafsbotni í fyrsta sinn frá því að skipið sökk árið 1912. Þeir hyggjast halda áfram rannsókn sinni á glæsiskipinu fræga, þó margir hafi orðið til að gagnrýna fram- takið, og sýna afraksturinn á sýningu í Boston. A minni mynd- inni, sem var tekin með fjar- stýrðri myndavél, má sjá stefni Titanic á tæplega tveggja og hálfs km dýpi undan ströndum St. Johns á Nýfundnalandi. Stafn skemmtiferðaskipsins kemur kvikmyndaunnendum vafalítið kunnuglega fyrir sjónir. Hvatt til ættbálka- drápa í útvarpi Lundúnum. Reuters. UPPREISNIN í Lýðveldinu Kongó hefur leyst úr læðingi ættbálkahatur andstæðinganna. Hvorir tveggju, stjórnarhermenn og uppreisnar- menn, hafa verið sakaðir um dráp á almennum borgurum. BBC segir út- varpsstöð í Norðaustur-Kongó hvetja almenning til þess að grípa til vopna svo drepa megi tútsa með öllum til- tækum drápstólum. Utvarpssending- arnar minna á tilkynningar sem lesn- ar voru í útvarpsstöðvum í Rúanda í helfórinni gegn tútsum árið 1994. Hermenn Kabilas fara um Kins- hasa og taka höndum hvem þann sem lítur út fyrir að vera tútsi eða er grunaður um að styðja uppreisnar- menn. Sjónarvottar segja hermenn hafa tekið fólk af lífi án dóms og laga á götum úti. I Austur-Kongó eru uppreisnarmenn af ættbálki Banyamulenge-tútsa sagðir drepa fólk af öðram ættflokkum, m.a. katangesa, en Kabila forseti er katangesi. Innanríkisráðherra Kongós sagði að hermenn hnepptu tútsa í varðhald til þess að koma í veg fyrir að þeim væri unnið mein. Uppreisnarmenn lýstu því yfír í gær að þeir hefðu náð raforkuvirkj- un, sem sér höfuðborginni fyrir raf- magni, á sitt vald. Herferð gegn aldursfordómum Lundúnum. Reuters. STJÓRN Bretlands hefur ákveðið að efna til áróðursherferðar gegn aldursfordómum á vinnumarkaði. Áróðri verður sérstaklega beint að atvinnurekendum. Atvinnu- málaráðherrann, Andrew Smith, segist í haust munu leggja fram leiðbeinandi siðareglur fyrir at- vinnurekendur. I þeim er kveðið skýrt á um að fólk eigi að ráða til starfa vegna verðleika en ekki vegna aldurs. Ríkisstjórnin hefur sérstakar áhyggjur af fólki sem náð hefur fimmtíu ára aldri, en sá hópur launþega stækkar ört. „Árið 2006 verður meira en fjórðungur launþega 50 ára og eldri,“ sagði ráðherrann. „Hvorki atvinnurekendur né samfélagið hafa efni á að mismuna fólki vegna aldurs." Smith vonar að siðreglurnar verði virtar og hafðar til hiðsjónar þegar launþegar sækja rétt sinn. „Við höfum samt ekki útilokað að leggja fram frumvarp til laga um reglur sem þessar," bætti ráð- herrann við. Ráðuneyti atvinnumála hefur lýst því yfir að aldursfordómar færist í vöxt á atvinnulífinu. Fólk á öllum aldri finni fyrir þeim en þó sérstaklega þeir sem komnir eru af léttasta skeiði. Hrun á fjármála- mörkuðum í Moskvu Moskvu, Lundúnum. Reuters. HRUN varð á hlutabréfamörkuðum í Moskvu í gær, en seðlabanki Rúss- lands lét ekki undan þi-ýstingi um að fella gengi rúblunnar. Sjónvarpsstöðvar í Rússlandi töl- uðu í gær um „svartan fimmtudag“ á fjármálmörkuðum, eftir að Interfax- hlutabréfavísitalan lækkaði um 6,5%, niður í 101,17 stig, en hún hefur ekki verið lægri í tvö ár. Gengi rúblunnar lækkaði jafnframt nokkuð gagnvart dollar, og bandaríska matsfyrirtækið Moody’s Investors Service lækkaði Reuters FJÖLSKYLDA syrgir ættingja, sem fórst í Nairóbí. lánshæfismat nokkurra rússneskra banka úr D+ í E+. Hlutabréfamarkaðurinn í Rúss- landi er lítill á heimsmælikvarða og fjárhæðirnar ekki miklar í saman- burði við markaði í Bandaríkjunum, Vestur-Evrópu og Japan. Hrunið gef- ur engu að síður til kynna minnkandi trú á að umbótaáætlun ríkisstjómar- innar í efnahagsmálum muni skila ár- angri. Sergei Kíríjenkó, forsætisráðherra Rússlands, sagði við fréttamenn í gær Andrews-herflugvellinum. Reuters. MEÐ tár á hvarmi kvaddi Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sendiráðsstarfsmennina sem týndu lífi í sprengjutilræðinu í Kenýu við minningarathöfn í Bandaríkjunum í gær. Clinton hét því aftur að finna hina seku og draga fyrir rétt. Hann varaði um leið við því að Banda- ríkjamenn sofnuðu á verðinum. Hryðjuverkamenn geti reitt til höggs á ný „vegna þess að Banda- ríkin eru holdgerving frelsis, málsvari friðar og lýðræðis," sagði forsetinn. Áður en athöfnin hófst hittu Bill Clinton og Hillary Rodham Clinton fjölskyldur þeirra sem fórust í til- ræðinu í einrúmi. ■ Vísbendinga leitað/21 að fjármálahrunið ætti sér ekki efna- hagslegar ástæður, heldur sálfræði- legar, þar sem efnahagsástand í land- inu hefði batnað undanfarnar vikur vegna aukinnar skattheimtu og láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hann lagði áherslu á að ríídssjóður gæti fyllilega staðið við allar skuldbinding- ar sínar. Kínj'enkó óskar eftir aukafundi Kíríjenkó átti í gær fund með stjómarandstöðuleiðtoganum Genna- dy Sjúganov, til að æskja stuðnings hans við að þing verði kallað saman til aukafundar í næstu viku til að ræða frumvarp ríkisstjórnarinnar um efna- hagsumbætur. Boris Jeltsín Rúss- landsforseti sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann segir afai- að- kallandi að þingið samþykki frum- vörpin. Sjúganov vildi ekki útiloka að Dúman kæmi saman til fundar í næstu viku, en sagði að ekki yrði tek- in ákvörðun um það fyrr en á mánu- dag hvort kalia ætti þingmenn úr sumarfríi. ínterfax-fréttastofan hafði í gær eftir forseta Dúmunnar, Genna- dy Selesníov, að hann væri andsnúinn því að boðað yi-ði til aukafundai- fyrr en búið væri að greiða milljónum verkamanna vangoldin laun. Dúman samþykkti hluta af um- bótatillögum ríkisstjómarinnar áður en þinghlé hófst í síðasta mánuði, en ekki náðist sátt um að afgreiða ýmis frumvörp sem þykja nauðsynleg for- senda þess að takast megi að minnka fjárlagahallann. Clinton varar við frekari hryðjuverkum F órnarlamba minnst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.