Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
fslandsbanki gerir átta milljarða kr. kauptilboð í hlutabréf Búnaðarbankans
Fjármagna á kaupin
með útgáfu hlutafjár
Tilboðið gildir til 15. september - stefnt að sameiningu bankanna um áramót
Islandsbanki og Samanburður
Búnaðarbanki 1997 á afkomu
Heimild: Islandsbanki y'
Vaxtatekjur, milljónir kr. 7.997 5.684
Vaxtagjöld 4.671 3.003
Hreinar Vaxtatekjur 3.326 2.681
AÐRAR REKSTRARTEKJUR:
Tekjur af hlutabréfum o.fl. og öðrum eignarhl. 60 66
Þóknunartekjur o.fl. 1.596 1.144
Þóknunargjöld -182 -141
Gengishagn./-tap af annarri fjármálastarfsemi 487 326
Aðrar rekstrartekjur 154 64
Samtals 2.115 1.459
Hreinar rekstrartekjur 5.441 4.140
ÖNNUR REKSTRARGJOLD:
Laun og launatengd gjöld 1.910 1.526
Annar rekstrarkostnaður 1.459 1.196
Afskriftir 205 203
Ýmis rekstrargjöld 48 30
Samtals 3.622 2.955
Framlag á afskriftarreikning -760 -399
Hagnaður fyrir skatta og óreglulega liði 1.059 786
Tekjuskattur 0 -209
Eignaskattur -12 -37
Óreglulegir liðir 0 -403
Hagnaður 1.047 137
KENNITÖLUR:
Heildareignir 31.12.97 89.458 67.367
Meðalstaða heildarfjármagns 1997 84.132 60.772
Eigið fé 1.1.97 5.386 4.184
Hlutafé 3.877 3.500
Greiddur arður 310 0
Eigiðfó 31.12.97 6.231 4.407
Eiginfjárhlutfall (CAD) 10% 8,7%
Arðsemi eigin fjár 21,1% 3,6%
Arðsemi eigin fjár fyrir skatta og óreglul. liði 21,3% 19,1%
Hlutfall kostnaðar af tekjum 67% 71%
Hlutfall kostnaðar af tekjum (án gengismunar) 73% 77%
Vaxtamunur 4,0% 4,4%
Rekstrartekjur/heildarfjármagn 2,5% 2,4%
Rekstrargjöld/heildarfjármagn 4,3% 4,9%
Framlag í afskriftareikning/heildarfjármagn -0,9% -0,7%
Meðalstöðugildi við bankastörf 710 579
Fjöldi útibúa 33 35
BANKARÁÐ íslandsbanka hf.
ákvað á fundi sínum í gær að gera
ríkisstjóminni kauptilboð í öll hluta-
bréf ríkissjóðs í Búnaðarbanka Is-
lands hf. Var tilboðið kynnt við-
skiptaráðherra á fundi kl. 14.30 í
gær. Kauptilboðið hljóðar upp á átta
milljarða króna, en nafnvirði bréf-
anna er 3,5 milljarðar kr.
Stjómendur bankans hyggjast
fjármagna hlutafjárkaupin með út-
gáfu nýs hlutafjár á innlendum
markaði. Tilgangur bankans með
kaupunum er að sameina rekstur
þessara tveggja banka í einn og telja
stjómendur bankans að með slíkri
sameiningu megi lækka heildar-
rekstrarkostnað um allt að 15%, eða
um nær einn milljarð króna.
Vilja að af sameiningu
geti orðið um næstu áramót
Forsvarsmenn íslandsbanka
kynntu tilboðið á fréttamannafundi
síðdegis. Telja þeir mikilvægt að
sameining íslandsbanka og Búnað-
arbankans geti átt sér stað um
næstu áramót og leggja því til að við-
ræðum verði hraðað og þeim lokið
fyrir 15. september nk., en þá fellur
kauptilboðið úr gildi. Aðspurður um
viðbrögð viðskiptaráðherra sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
bankaráðs íslandsbanka: „Viðskipta-
ráðherra tjáði okkur að hann myndi
nú þegar skipa viðræðufulltrúa til
þess að tala við okkur um þetta.“
Kauptilboð íslandsbanka miðast
við að notaður sé margfoldunarstuð-
ullinn 1,82 á bókfært eigið fé Búnað-
arbankans eins og það var í byrjun
ársins. í fréttatilkynningu íslands-
banka segir að til hliðsjónar megi
hafa fréttir af mati erlendra sér-
fræðinga á markaðsvirði Lands-
bankans, sem sé undir þessari við-
miðun. Einnig megi hafa í huga að
gengi hlutabréfa Islandsbanka, sem
sé eina fjármálafyrirtæki landsins,
sem skráð er á Verðbréfaþingi, hafí
að meðaltali á þessu ári gefið marg-
földunarstuðulinn 2,09, þótt siðustu
daga hafí hann verið hærri.
„Eðlilegt er að margföldunarstuð-
ullinn sé hærri hjá banka, sem þegar
hefur gengið í gegnum miklar hag-
ræðingaraðgerðir á undanfórnum
árum og er því með hlutfallslega
lægri kostnað. Að auki er íslands-
banki með viðurkennt erlent láns-
hæfismat,“ segir í tilkynningunni.
Forystumenn bankans sögðu á
fréttamannafundinum að tilboðið
gerði ráð fyrir að kaupverð hluta-
bréfanna yrði greitt á mjög stuttum
tíma. Kaupin yrðu fjármögnuð með
útgáfu nýs hlutafjár á innlendum
markaði fyrir 1,9 milljarða kr. að
nafnverði, eða alls um hálfan sjöunda
milljarð kr., að þeim forsendum
gefnum að viðmiðunargengi hluta-
bréfa í Islandsbanka sé 3,5.
Valur Valsson, bankastjóri Is-
landsbanka, tók þó fram að taka yrði
tillit til þess að þegar að hlutafjárút-
boði kæmi kynni gengi bréfanna að
hafa breyst frá þessu og því sé
ótímabært að nefna ákveðnar tölur í
þessu sambandi.
Ríkisstjórnin virðist
vilja hraða áformum um sölu
í fréttatilkynningu íslandsbanka,
þar sem forsendur tilboðsins eru
skýrðar, segir m.a.: „íslandsbanki
hf. hefur undanfarin misseri ítrekað
lýst áhuga sínum á því að taka þátt í
endurskipulagningu bankakerfisins
á íslandi.
Bent hefur verið á að þrátt fyrir
nokkra hagræðingu í bönkunum
undanfarin ár, fyrst og fremst hjá
íslandsbanka, er tilkostnaður við
bankastarfsemi á íslandi of hár.
Samanburður við erlenda keppi-
nauta er óhagstæður. Sem dæmi má
nefna fjölda afgreiðslustaða. Á Is-
landi eru 1.500 íbúar á hvem af-
greiðslustað, í Danmörku 2.200, í
Noregi 2.800, í Finnlandi 2.900, í Sví-
þjóð 3.500 og í Bandaríkjunum eru
3.800 íbúar á hvem afgreiðslustað.
Mestu hagræðingarmöguleikar
bankakerfísins á íslandi felast í sam-
einingu dreifikerfa.
íslandsbanki hefur verið opinn
fyrir öllum möguleikum, sem leitt
gætu til hagræðingar, en eins og
fram hefur komið í máli formanns
bankaráðs á undanfórnum aðalfund-
um bankans, hefur athyglin fyrst og
fremst beinst að sameiningu ís-
landsbanka og Búnaðarbanka. I við-
ræðum við ráðuneytið og ráðherra
hefur til þessa aðallega verið rædd-
ur sá kostur að sameiningin færi
fram með mati á báðum bönkunum
og hlutabréfaskiptum í kjölfar þess.
Nú hefur ríkisstjórnin hins vegar
ákveðið að fara í viðræður við SE-
bankann og Samband sparisjóða um
beina sölu á hlutabréfum í Lands-
bankanum og Fjárfestingarbankan-
um. Ríkisstjómin virðist því vilja
hraða áformum um sölu fjármálafyr-
irtækja sinna. E>ví telur bankaráð ís-
landsbanka tímabært að setja fram
formlegt tilboð um kaup á hlutabréf-
unum í Búnaðarbanka Islands hf.“
Fram kom í máli forystumanna ís-
landsbanka í gær að tilboðið er háð
samþykki hluthafafundar og Ijóst sé
að ríkisstjórnin þurfi að afla sam-
þykkis Alþingis fyrir sölu hlutabréfa
í ríkisviðskiptabönkunum. „Við erum
að vona að okkur takist með þessu
tilboði að fá skýrari línur og afstöðu
til málsins vegna þess að þetta er
augljóslega mjög hagkvæmur kostur
fyrir íslandsbanka, fyrir Búnaðar-
bankann, fyrir ríkissjóð sem eiganda
og fyrir viðskiptavini íslandsbanka,“
sagði Kristján Ragnarsson.
Fram kom í máli Arnar Friðriks-
sonar bankaráðsmanns að íslands-
banki hefði ítrekað kynnt ráða-
mönnum áhuga bankans á að kaupa
Búnaðarbankann á undanfórnum
mánuðum en ekki fengið nein skýr
svör.
Áhersla á hagræðingu og
dreifða eignaraðild
í fréttatilkynningu íslandsbanka
segir að bankaráð bankans telji að
með sameiningu bankanna megi ná
öllum meginmarkmiðum ríkis-
stjórnarinnar um einkavæðingu,
þar sem ríkið fái hátt verð fyrir hlut
sinn, samkeppni sé tryggð, eignar-
aðild sé dreifð, umtalsverð hagræð-
ing náist og íslenska bankakerfið
styrkist í samkeppni við erlenda
banka.
„Sameining Islandsbanka og
Búnaðarbanka mun einnig leiða til
jafnari samkeppni á innlendum
fjármálamarkaði. í lok árs 1997 var
sameiginlegur hlutur þessara
banka um 39% heildareigna banka
og sparisjóða. Á sama tíma var
hlutur Landsbankans 31%. Er þá
ekki tekið tillit til hugsanlegs sam-
rekstrar Landsbankans og VIS.
Hlutdeild sparisjóðanna er um 17%
og Fjárfestingarbankans um 13%.
Að auki eru erlendir bankar mjög
virkir á innlenda lánamarkaðinum
og eiga nú útistandandi lán hjá Is-
lendingum sem nema hærri upp-
hæð en samanlögðum umsvifum ís-
lenska bankakerfisins. Sameining
íslandsbanka og Búnaðarbanka
mun því ekki draga úr samkeppni
heldur þvert á móti jafna stöðuna
og þar með jafnvel auka samkeppn-
ina.
Kaup á hlutabréfum í Búnaðar-
banka mun íslandsbanki fjármagna
með útgáfu nýs hlutafjár á innlend-
um markaði. Slíkt útboð vinnur
gegn þenslu í þjóðfélaginu og er því
í samræmi við stefnu ríkisstjórnar-
innar í efnahagsmálum. íslands-
banki er næst stærsta almennings-
hlutafélagið á íslandi. Hluthafar eru
nú um 6.300, þar af 5.900 einstak-
lingar.
I aðalatriðum skiptist hlutaféð
þannig að 37% er í eigu einstaklinga,
32% í eigu lífeyrissjóða og 31% í eigu
fyrirtækja, verðbréfasjóða og ann-
arra stærri fjárfesta. Tveir stærstu
hluthafamir eiga um 10% hlut hvor.
Þar er um að ræða lífeyrissjóði með
60 þúsund virka sjóðfélaga. Eignar-
aðild að bankanum er því nú þegar
afar dreifð, en áhugi er á að auka
dreifinguna enn meira við útboð nýs
hlutafjár. Þá er áhugi á því að gefa
starfsfólki beggja bankanna tæki-
færi á að eignast hlut. Stefnt yrði að
fjölgun hluthafa um nokkur þúsund,“
segir ennfremur í fréttatilkynning-
unni.
Hyggjast ekki beita
hópuppsögnum
Kristján Ragnarsson sagði að
miklir hagræðingarmöguleikar væru
til staðar í útibúaneti bankanna
tveggja með sameiningu útibúa þar
sem báðir bankamir störfuðu. „Við
höfum reynslu af því þegar samein-
aðir vora fjórir bankar að engum
hópuppsögnum var beitt og við
hyggjumst ekki gera það, heldur
keyra þetta saman með jákvæðum
hætti og vonandi með jákvæðu hug-
arfari starfsfólksins, sem við geram
fastlega ráð fyrir, miðað við fym
reynslu," sagði Kristján.
Ráðherra segir að farið verði 1 viðræður um framtíðarskipan og þróun á fjármagnsmarkaði
Tilboðið staðfesting á
umbrotum á markaðnum
FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð-
herra segir að hann hafi svarað
bankaráði íslandsbanka því til, þegar
þeir kynntu honum kauptilboð bank-
ans á öllum hlut ríkisins í Búnaðar-
banka íslands, að hann væri tilbúinn
að fara í þessar viðræður eins og þeir
óskuðu eftir. Kauptilboð íslands-
banka gildir til 15. september og seg-
ist Finnur telja að ríkisstjómin geti
tekið ákvörðun fyrir þann tíma um
hvað hún vilji gera. „Ég vonast til
þess að við getum svarað þessu til-
boði fyrir þann tíma,“ segir Finnur.
Hann segist ekki vilja leggja mat á
það hvort um sanngjamt kauptilboð
sé að ræða. „Menn hafa auðvitað
mismunandi skoðun eða sýn á því
hvað er sanngjamt verð. Það er ekki
rétt af mér að kveða upp úr um það á
þessari stundu hvort eða hvemig
þetta verð er. Það hlýtur að vera
hluti af þeim viðræðum sem farið
verður í,“ segir viðskiptaráðherra.
Að sögn Finns mun það liggja fyr-
ir eftir helgina hverjir fara í við-
ræðunefnd að hálfu ríkisins.
Stóraukin samkeppni
á síðustu mánuðum
„Þetta kauptilboð í dag er í raun
staðfesting á þeim umbrotum sem
eiga sér stað á íslenskum fjármagns-
markaði. Á markaðnum hefur sam-
keppni stórlega verið að aukast á und-
anfomum mánuðum, m.a. með til-
komu Fjárfestingarbanka atvinnulíf-
ins. Það þýðir að þessi fyrirtæki sem á
markaðnum starfa þurfa að leita eftir
aukinni hagræðingu og hagræðingin
felst meðal annars í auknu samstarfi,
hugsanlegri sameiningu og þar fram
eftir götunum. Því þau þurfa að mæta
þessari vaxandi samkeppni með því að
geta lækkað verð á sinni þjónustu.
Ríkið má auðvitað ekki vera drag-
bítur á það að slík hagræðing geti átt
sér stað þannig að fólk og fyrirtæki í
landinu geti búið við lægri vexti en í
dag. Krafan hefur verið sú að við
væram með sambærilega vexti hér á
íslandi og löndin hér í kringum okk-
ur. Til þess að geta gert það þurfum
við að ná fram hagræðingu á mark-
aðnum. Það byggist meðal annars á
auknu samstarfi stofnana, breyttri
greiðslumiðlun, sjálfvirkari greiðslu-
miðlun en boðin er í dag meðal ann-
ars með því að draga hér inn erlenda
fjárfesta í íslenska bankakerfið.
Markaðurinn er að svara þeim kröf-
um sem uppi era og við megum
passa okkur á því að vera ekki drag-
bítur í þeim efnurn," segir Finnur.
Aðspurður segir Finnur að ekkert
hafi verið ákveðið hvort erlendir aðil-
ar komi inn á markaðinn eða ekki.
„Við eram, eins og fram hefur komið, í
viðræðum við SE-bankann um hugs-
anleg kaup bankans á einhverjum
hluta í Landsbankanum. Þær viðræð-
ur era á könnunarstigi og ekkert
hægt að segja til um það til hvers þær
muni leiða, en það er alveg víst að það
mun verða hér í framtíðinni vaxandi
samkeppni á íslenskum ijármagns-
markaði og fyrirtæki þurfa að mæta
þeirri samkeppni, hvort sem hún er
erlendis frá þá með samstarfi hugsan-
lega við erlenda aðila, eða hér innan-
lands með því þá að sfyrkja fyrirtæki
sem á markaðnum starfa. Það eru
margar myndir sem hægt er að draga
upp í þeim efnum,“ segir Finnur.
Tvö erindi um kaup á Fjár-
festingarbankanum
Að sögn Finns Ingólfssonar hafa
honum borist tvö erindi um kaup á
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Annað frá Búnaðarbanka íslands og
hitt frá sparisjóðunum.
í byrjun vikunnar kom erindi frá
Búnaðarbankanum um kaup á Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins og fyr-
ir helgina kom erindi frá sparisjóð-
unum um kaup á honum auk kauptil-
boðs íslandsbanka í öll hlutabréf rík-
isins í Búnaðarbankann.
„Farið verður í viðræður við alla
þessa aðila og spurst fyrir um hverj-
ar þeirra hugmyndir séu um fram-
tíðarskipan og framtíðarþróun á
fjármagnsmarkaðnum með tilliti til
þessara hluta. Og hvort sú framtíð-
arsýn fer saman við það sem við er-
um með hugmyndir um,“ segir við-
skiptaráðherra.