Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 9
FRÉTTIR
Lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs hækkar
um 22 milljarða króna á tveimur árum
Utgjöld LSR hækka
um 800 millj. milli ára
Lífeyrisskuldbindingar ríkissj óðs
vaxa hröðum skrefum og eru meginskýr-
ingin á að það stefnir í 7,5 milljarða rekstr-
arhalla ríkissjóðs í ár í stað lítilsháttar
✓
rekstrarafgangs. I samantekt Hjálmars
Jónssonar kemur fram að skuldbindingar
ríkissjóðs gætu enn vaxið um 9 milljarða
króna á næsta ári vegna hækkunar dag-
vinnulauna ríkisstarfsmanna.
UTLIT er fyrir að heildar-
útgjöld Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins
vegna eftirlauna um sjö
þúsund ríkisstarfsmanna vaxi úr 3,7
milljörðum króna á síðasta ári í 4,5
milljarða króna í ár eða um 800 millj-
ónir króna. Hækkunin milli ára er
tæp 22% og er að hluta tilkomin
vegna fjölgunar lífeyrisþega milli
ára, en að stærstum hluta vegna
hækkunai’ efth'launa í kjölfar kjara-
samninga við ríkisstarfsmenn.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær stefnir nú í 7,5 milljarða kr.
rekstrarhalla á ríkissjóði í ár í stað
lítilsháttar rekstrarafgangs eins og
reiknað var með í fjárlögum, þrátt
fyi-ir að tekjur ríkissjóðs á fyiTÍhluta
þessa árs séu 5,4 milljörðum króna
hærri en áætlanir gerðu ráð fyrh'.
Meginskýringin á þessum verri
rekstrarhorfum en reiknað var með
er mikil hækkun á lífeyi'isskuldbind-
ingum ríkisstarfsmanna vegna A-
hluta ríkissjóðs frá því sem gert var
ráð fyrir í fjáriögum eða sem nemur
13-14 milljörðum ki'óna í stað 4
milljarða sem fjárlög gerðu ráð fyrir.
Hækkunin er 9-10 milljarðar
króna og stafar einkum af svonefnd-
um aðlögunarsamningum áem gerðir
hafa verið við ríkisstarfsmenn að
undanfórnu á grundvelli kjarasamn-
inga síðasta árs. Þeir samningar fólu
í sér uppstokkun á launakerfinu,
meðal annars á þann veg að færa
ýmsar aukagreiðslur inn í dagvinnu-
laun. Þar sem eftirlaun ríkisstarfs-
manna miðast við dagvinnulaun eft-
h'manns í starfi eða meðalhækkun
dagvinnulauna ríkisstarfsmanna
þýðir þessi breyting hækkun eftir-
launa þeirra sem þegar hafa hafið
töku þeirra og auknar skuldbinding-
ar í framtíðinni vegna þeiiTa sem
enn eru í stai'fi og ávinna sér lífeyris-
rétt í framtíðinni. Þá koma einnig til
hækkanir sem orðið hafa í samning-
um undanfarið, eins og hvað varðar
samninga við hjúkrunarfræðinga um
mitt ár, og loks koma einnig til áhrif
af úrskurðum kjaradóms og kjara-
nefndar, en nýlega hefur til dæmis
prófessorum verið úrskurðuð veru-
leg hækkun dagvinnulauna.
Steingrímur Ari Arason, aðstoðai'-
maður fjái'málaráðherra, sagði að
upphaflega hefði verið gert ráð fyrir
að gerð aðlögunarsamninganna yrði
lokið fyi'ir áramót, en reyndin hafi
orðið sú að niðurstaða í þeim efnum
hafi ekki legið fyrir fyrr en á fyrri-
hluta þessa árs. Því hafi við gerð
fjárlaga ái'sins ekki verið fyrirséð
hvað skuldbindingarnai' myndu vaxa
mikið, en áætlaðh' 4 milljarðir ki'óna
vegna þess.
Nú væru aðlögunarsamningarnir
hins vegar að mestu frá og sam-
kvæmt bráðabh'gðamati yxu skuld-
bindingar ríkissjóðs vegna þeirra um
13-14 milljarða kr. í ár og væntan-
lega um 9 milljarða króna á næsta
ári. Langt væri þó frá því að öll kurl
væru komin til grafar í þessum efn-
um og því gæti þetta mat átt eftir að
breytast síðar.
Aðspurður hvernig þessi aukning
skuldbindinga skiptist á milli Lífeyi'-
issjóðs starfsmanna ríkisins og Líf-
eyrissjóðs hjúki'unarfræðinga sagði
hann að 11,7 milljarðar kr. væru
áætlaðir vegna LSR og 1,1 milljai'ð-
ur vegna Lífeyrissjóðs hjúkrunar-
fræðinga á þessu ári og það sem á
vantaði væru skuldbindingar vegna
smæm aðila.
95 milljarða skuldbinding
Samkvæmt ríkisreikningi fyrh' ár-
ið 1997 námu lífeyrisskuldbindingar
ríkissjóðs í árslok, umfram það sem
lagt hefur verið til hliðar með fram-
lagi í sjóðina, tæpum 95 milljörðum
króna. Þar af voru skuldbindingar í
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
tæpur 81 milljarður króna og skuld-
bindingar vegna Lífeyrissjóðs hjúki'-
unarfræðinga rúmh' 8,3 milljai'ðar
kr.
Reglum um lífeyi'isréttindi ríkis-
starfsmanna var nýlega breytt á
þann veg sem yfirleitt gildh- á al-
mennum vinnumarkaði, þ.e. að ið-
gjald standi undir skuldbindingum.
Starfar sjóðurinn síðan í tveimur
deildum og fara allir nýir starfsmenn
í A-deildina, en þai' er iðgjald 15,5%
af heildai-launum, lífeyrisréttindi
tiyggð miðað við hækkanir á vísitölu
neysluverðs og iðgjaldinu ætlað að
standa undir þeim réttindum sem
lofað er. Fram til 1. desember á síð-
asta ári gátu ríkisstarfsmenn valið
hvort þeir færu í þessa nýju deild
eða héldu áfram í þeirri eldri, þar
sem iðgjald er 10% af dagvinnulaun-
um og réttindi miðast við launa-
breytingar en ekki hækkanh' vísitölu
neysluverðs. Þar hafa iðgjöld aldrei
staðið undir réttindum og því mynd-
ast tuga milljarða skuldbinding sem
ríkissjóður er í ábyrgð fyrir og fellur
til greiðslu jafnóðum og lífeyristaka
hefst.
Um 5 þúsund ríkisstarfsmenn
völdu að fara í nýju deildina, en gátu
ekki flutt með sér réttindi sem þeir
voru búnir að ávinna sér samkvæmt
eldra kei'finu. Mikill meirihluti eða
um 12 þúsund manns ákvað að
ávinna sér réttindi áfram samkvæmt
eldra kerfinu, en alls eiga um 40 þús-
und einstaklingar einhver réttindi í
sjóðnum. Þau eru auðvitað mjög mis-
munandi mikil og fai'a eftir þvi hve
viðkomandi hefur starfað lengi hjá
sjóðnum og á hvaða launum hann er
þegai’ lífeyristaka hefst.
Aukning skuldbindinga nú endur-
speglar í raun hækkun á réttindum
þeirra sem einhvern tíma hafa greitt
til sjóðsins á liðnum árum, en tekur
að engu leyti til nýju deildarinnar
sem stendur alfarið undir sér sjálf.
6.700 lífeyrisþegar
Haukur Hafsteinsson, forstöðu-
maður Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins, sagði að lífeyrisþegar LSR
á síðasta ári hefðu verið um 6.700
talsins og hefðu lífeyrisgreiðslur til
þeh-ra numið um 3,7 milljörðum
ki'óna á árinu. Lífeyrisgreiðslurnar
hefðu hækkað það sem af væri þessu
ári vegna hækkunar dagvinnulauna,
en hækkanh- væru þó ekki að öllu
leyti komnai' fram ennþá.
Áætlað væri að lífeyrisgreiðslur
sjóðsins yrðu um 4,5 milljarðar á ár-
inu öllu eða um 800 milljónum króna
hæm en í fyrra, sem væri um 20%
hækkun milli ára, en þess bæri að
gæta að um talsverða fjölgun lífeyi'-
isþega væri að ræða. Þeir gætu orðið
um sjö þúsund í ár. Sem dæmi hefðu
Iífeyrisgreiðslur í júní í ár numið 363
milljónum króna en í júní í fyrra
hefðu þær numið 302 milljónum kr.
Haukur sagði að um síðustu ára-
mót hefðu skuldbindingar LSR
numið um 140 milljörðum króna
miðað við 2% ávöxtun eigna umfram
launabreytingar. Verðbréfaeign
sjóðsins hefði á sama tíma numið um
34 milljörðum króna, þannig að
skuldbindingar launagreiðenda
gagnvart sjóðnum umfram verð-
bréfaeign hefðu verið 106 milljarðar
króna. Sú skuldbinding félli þó ekki
eingöngu á ríkissjóð, því auk hans
væri greitt af starfsmönnum stofn-
ana í eigu ríkisins til sjóðsins, auk
þess sem sjóðurinn tæki við iðgjöld-
um frá starfsmönnum sumra sveit-
arfélaga og nokkurra sjálfstæðra að-
ila.
Laun hækkuð með
afturvirkum hætti
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, sagði að vinnuveit-
endur hefðu þráfaldlega varað ríkis-
valdið við því að það kerfí sem gilt
hefði um lífeyrisréttindi ríkisstarfs-
manna hlyti annaðhvort að halda aft-
ur af eðlilegri þróun á dagvinnuhluta
launa eða að það myndi hafa í fór
með sér óstjórnleg útgjöld í lífeyris-
málum og þar með afturvirka launa-
hækkun til handa opinberum starfs-
mönnum, eins og nú hefði orðið
raunin á.
„Það er ekki hægt að horfa á þess-
ar breytingar núna þar sem er verið
að taka alls konar sposlur inn í dag-
vinnugrunninn öðruvísi en það sé
verið að hækka með afturvirkum
hætti launagreiðslur opinberra
starfsmanna undangengna áratugi,"
sagði Þórarinn.
Hann sagði að með þessu væri
verið að auka réttindi allra starfs-
manna ríkisins, hvort sem þeir væru
ennþá í starfi eða farnir að taka eft-
irlaun. Um mjög stóran hóp væri að
ræða og út af fyrir sig væri áhuga-
vert að vita hve mikið dagvinnu-
grunnurinn hefði hækkað í prósent-
um og hvað um væri að ræða mikla
hækkun umfram almenna launaþró-
un.
jSíðir svnrtir kjólnr með
og ao ermn
Opið virka daga frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
TESS
r
Neðst vlð Dunhaga, sími 562 2230.
haust- og vetrarlistinn er kominn!
Einnig So bin ich listinn (stærðir 40-58)
Ármúli 17A - Sími 588 1980 - Fax 588 1985
Opnunartími: kl. 11 -17 mán. - fös.
ottolisti(a)heimsnet.is
Ný sending
af glæsilegum
haustfatnaði
hJá-Q^ufhhildi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Síðbuxur
Ný sending
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Opið iaugardag, 10-14
Gullpottar í Háspennu
06. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 2.419.526 kr.
07. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 2.137.214 kr.
Silfurpottar í Háspennu
dagana 01. til 12. ágúst 1998
Dags. Staður Upphæð
01. ágúst Háspenna, Laugavegi 649.803 kr.
03. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 68.285 kr.
05. ágúst Háspenna, Laugavegi 57.742 kr.
06. ágúst Háspenna, Laugavegi 198.957 kr.
07. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 61.538 kr.
07. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 124.526 kr.
10. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 128.560 kr.
10. ágúst Háspenna, Hafnarstræti 81.047 kr.
Laugavegi 118 Hafnarstræti 3 Kringlunni 8