Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 10

Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dömsmálaráðherra Sljórn Krabbameinsfélagsins hefur ekki tekið afstöðu til gagnagrunnsins Ný lög um Tölvunefnd NÝTT lagafrumvarp er í undirbún- ingi um starfsemi Tölvunefndar í samræmi við reglur sem gilda á evrópska efnahagssvæðinu. Að sögn Þorsteins Pálssonar dóms- og kii-kjumálaráðherra, er þess að vænta að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi fyrir árslok. Þorsteinn sagði að mjög vel hefði verið haldið á málum á vegum Tölvunefndar og að kostnaður við eftirlit hafi verið í lágmarki. „Hitt er annað að á allra síðustu misser- um hafa verið að koma upp ný verkefni bæði stærri og viðameiri en áður, sem kalla á endurmat á þessu starfi og við höfum gert ráð fyrir að í tengslum við nýtt laga- frumvarp liggi fyrir mat á því hvaða aðstöðu nefndin þarf bæði í húsnæði og starfskrafti til þess að sinna nýjum verkefnum og full- nægja nýrri löggjöf,“ sagði hann. „Ég vænti þess að frumvarpið og þetta mat verði tilbúið fyrir lok þessa árs.“ Læknar ekki krafðir um gögn um sjiíklinga sína AÐ sögn Sigurðar Björnssonar læknis og for- manns stjórnar Krabbameinsfélags íslands hef- ur stjórn félagsins ekki tekið formlega ákvörð- um um hvort upplýsingar félagsins verði sendar í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Sig- urður segist efast um að sú ákvörðun verði tekin nema tilmæli þess efnis berist stjóminni. Sigurður segir stjóm Krabbameinssfélagsins hafa fjallað um Islenska erfðagreiningu og feng- ið Kára Stefánsson á sinn fund. Sigurður segist ekki geta spáð hvaða afstaða verði tekin komi þetta mál upp hjá stjóminni. „Umræðan er að hefjast, menn eiga eftir að mynda sér skoðanir og framvarpið á kannski eftir að breytast í með- föram þingsins.“ í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Helgu Ögmundsdóttur, yfirlækni rannsóknarstofu í sameinda- og framulíffræði hjá Krabbameinsfé- lagi íslands, að gögn sem hennar rannsóknar- stofa hefur yfir að ráða komi aldrei til með að fara í gagnagranninn. Sigurður segist ekki geta séð fyrir sér að þær aðstæður komi upp að stjórn Krabbameinsfélagsins mynda krefjast þess af yfirlæknum rannsóknastofa að láta upp- lýsingar af hendi. „Það er skoðun Helgu og vilji að upplýsingar sem hún hefur og hefur fengið með einum eða öðrum hætti fari ekki í gagnagrunninn og ég get ekki séð það að við eigum eftir að segja læknum að brjóta trúnað við sjúklinga sem hafa veitt þeim aðgang að gögnurn," sagði Sig- urður. í drögum gagnagrannsframvarpsins segir að heilbrigðisstofnanir taki ákvai-ðanir um hvort gögn þeirra verði send í gagnagrann eður ei. Þórir Haraldsson aðstoðarmaður heilbrigðisráð- herra segir að þær séu hins vegar svo mismun- andi að það hljóti að verða misjafnt hvernig ákvörðun verður tekin. „í framvarpinu er ekki tekið á því hverjir taka þessa ákvörðun, aðallega vegna þess hversu ólíkar stofnanir er um að ræða. Þetta var rætt þannig að stofnanirnar væra samn- ingsaðilarnir og þær verða þá að gera það upp við sig hvemig það verður gert,“ segir Þórir. Þórir segir að þessi ákvörðun hljóti að verða tekin í samvinnu stjórna stofnananna og ann- arra stjómenda eins og t.d. yfirlækna. „Það þarf auðvitað að ná samvinnu við lækna og þeir koma til með að ráða talsvert miklu. I framkvæmd er þetta ekki hægt öðruvísi en með þeirra sam- vinnu og ég tel að enginn myndi vilja reka gagnagrann í fjandskap við þessa lækna,“ segir Þórir. MANFRED Jaschke og eiginkona hans, Xion-Rong Su. Hún var frænka síðasta kínverska keisarans og var hún stödd í Kína ásamt ársgömlum syni þeirra er slysið varð á mánudag. Ekkja Manfreds Jaschkes til Berlínar AÐ SÖGN þýska dagblaðsins Berliner Kurier var von á eig- inkonu og syni Manfreds Jaschkes, sem lést í flugslys- inu á mánudag, til Berlínar í gaer, en hún og eins árs sonur þeirra voru í Kína þegar slysið átti sér stað. Einnig segir að hún komi til með að fylgjast með flutningi líkanna þriggja til Þýskalands. Að sögn Gísia Pálssonar formanns kennslanefndar mun starf nefndarinnar taka viku til tíu daga, trúlega verði beðið um gögn frá Þýskalandi til að hægt verða að staðfesta með óyggjandi hætti hverjir voru í vélinni. í Beriiner Kurier segir einnig frá síðustu kveðju Jaschke til starfsmanna sinna, en þeim barst póstkort frá hon- um í fyrradag. I því segist hann hlakka til að hitta sam- starfsfólk sitt og segir blaðið að starfsfólk hafi þurft að beij- ast við tárin við lestur kortsins. Kortið var skrifað á Hjaltlandseyjum, áður en Man- fred Jaschke og synir hans héldu til Islands. KORTIÐ frá Jaschke. Dregið úr bj örgunarþj ónustu fyrir íslensku skipin í Smugunni Fylgst með framvindu mála á næstu dögum ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút- vegsráherra, segir það verða skoðað á næstu dögum eða vikum hvort sent verði varðskip með lækni til aðstoðar íslensku skipunum sem nú eru að veiðum í Smugunni í Barentshafi. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hefur dregið úr björgunarþjónustu norsku strandgæslunnar fyrir sjómenn í Barentshafi eftir að Sea-King-þyi'la hersins hætti að fljúga á svæðum þar sem ekki er hægt að halda uppi fjarskiptum. Nú era 11 íslensk skip að veiðum í Smugunni og 3 á leiðinni þangað og því má ætla að um 350 íslenskir sjómenn verði þar við störf þegar skipin eru öll að veiðum. Ekki var ráðgert að senda skip í Smuguna á þessu ári en Þorsteinn segir það verða endurskoðað í ljósi framvindu mála á svæðinu á næstunni. Hann segir alltaf hafa verið gert ráð fyrir að ef eitthvað sérstakt kæmi upp á yrði skoðað hvort ástæða þætti til að senda aðstoðarskip í Smuguna. Mikil þörf fyrir aðstoðarskip Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útgerð- armanna, segir að þess hafi ekki verið farið á leit við yfirvöld að sent verði aðstoðarskip í Smuguna, en fylgst verði með framvindu mála á næstu dögum og vikum. „Á síðasta ári flaut undan þessu fljótt þannig að ekki þótti ástæða til að senda varðskip þangað norður eftir. Við höfum fengið ákveðna öryggisþjón- ustu frá Norðmönnum sem við fáum ekki lengur og getum vitanlega ekki gert kröfu til þess. Varðskip eða öllu heldur aðstoð- arskip hefur komið sjómönnum í Smugunni að miklu gagni og lækn- arnir sem þar hafa verið hafa því miður haft meira en nóg að gera. Reynslan kennir mönnum vonandi að fara varlega svo það verði engin slys. Við höfum alltaf farið þess á leit við yfirvöld að senda skip i Smuguna þegar þar hefur verið fjöldi skipa við veiðar og ef þróunin verður þannig að skipum fjölgar þá munum við endurskoða afstöðu okk- ar,“ segir Kristján. Uppskeruhátíð skólagarðanna í Laugardal Morgunblaðið/Jim Smart ÞEIR Jón Davíð Davíðsson, Ástþór Magnús Þórhallsson og Aron Heið- ar Guðmundsson hlusta af athygli á það sem Sverrir Sigmundarson verkstjóri hefur að segja, enda ekki slæmt að geta glatt foreldra sína með heilli uppskeru af fersku grænmeti. Að rækta garðinn sinn KRAKKARNIR sem stundað hafa skólagarðana í Laugardal í sumar héldu uppskeruhátíð í gær. Glatt var á hjalla og gæddu börnin sér á margvíslegu góð- gæti sem þau höfðu sjálf komið með í veisluna. Hátíðin var hald- in til að veita krökkunum viður- kenningu fyrir að hafa ræktað garðana í sumar, og veitt voru verðlaun fyrir bestu garðana. Afhent voru einkunnarspjöld fyrir hvern garð og síðan var farið í leiki. Spínat, steinselja og blóm til að fegra Sverrir Sigmundarson verk- sljóri garðanna í Laugardal segir að þá hafi sótt tæplega 160 krakkar í sumar. Þau mæta einu sinni til tvisvar í viku en Sverrir segir aðsóknina vera misjafna, hún fari eftir tíma sumarsins og einstaklingum. Hann segir að skólagarðarnir fái samkeppni víða að, enda sé mikið framboð af námskeiðum og afþreyingu fyrir börn á þessum aldri yfir sumar- tímann. Að hans sögn koma mörg bamanna ár eftir ár í skólagarð- ana, svo þau virðist hafa mjög gaman af garðræktinni. Hann segir börnin dugleg að taka eftir og þau þekki vel allt grænmetið og hvemig eigi að bera sig að í görðunum. Systkynin Snorri og Svava Arnarbörn, sem stundað hafa garðana í sumar, sögðust hafa sett niður margar tegundir grænmetis og nefndu þau radís- ur, rófur, kál, spínat, timian og steinselju auk að sjálfsögðu lit- fagurra blóma til að fegra garð- ana. Þau sögðu að uppskeran væri það mikil að hún gæti jafn- vel nýst fjölskyldunni langt fram á vetur. Af þessu að dæma virð- ist sem börnin í Laugardalnum séu ekki síður dugleg en hinir fullorðnu að draga björg í bú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.