Morgunblaðið - 14.08.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 11
FRÉTTIR
Saga Film í samstarfí við evrópskt auglýsingafyrirtæki
Auglýsing gerð
gegn barnavændi
SAGA Film í samstarfi við stórt
evrópskt augiýsingafyrirtæki,
Euro Rscg, vinnur nú að gerð
auglýsingar gegn barnavændi
sem sýnd verður í flugvélum á
leið til Austurlanda frá Evrópu.
Auglýsingin, sem hlotið hefur
nafnið Eftirlitsmyndavélin, fjallar
um karlmann sem er um borð í
þotu og er að segja sessunautum
sínum frá upplifun sinni á barna-
vændi og fellur það þeim misvel í
geð.
Það eru samtökin „Terre des
hommes“ sem eru kaupendur
auglýsingarinnar en þau samtök
hafa barist gegn barnavændi og
fyrir réttindum barna um langt
árabii. Auglýsingunni er ætlað að
upplýsa farþega um það vanda-
mál sem tengist barnavændi og
stundað er af aðilum sem heim-
sækja fjarlæga staði í þeim eina
tilgangi en verkefnið er styrkt af
Evrópusambandinu sem greiðir
60% kostnaðar.
Sýnd hjá Air France
Auglýsingin verður einnar mín-
útu löng og er tekin upp í flug-
vélalíkani sem Saga Film hefur
látið reisa í iðnaðarhúsnæði í Ár-
bæ. Að sögn Arnars Knútssonar
framleiðslustjóra koma um 65
manns að verkinu, þar af 5 ís-
lenskir leikarar auk fjölda ann-
arra í smærri hlutverkum. Aðal-
hlutverk eru í höndum Magnúsar
Ragnarssonar, Hjalta Rögnvalds-
sonar og Jóns Bjarna Guðmunds-
sonar en Gísli Snær Erlingsson
sér um leikstjórn auk þess sem
hann kom að handritsvinnslu.
Leikið er á ensku en síðar verður
bætt inn í tali þeirra þjóðlanda
sem flogið er frá.
Áætlað er að tökur taki tvo
daga en öll eftirvinnsla fer fram
hér á landi og er búist við að
þeirri vinnu verði lokið í næstu
viku. Nú þegar hefur flugfélagið
Air France ákveðið að sýna aug-
Iýsinguna í eitt ár og þá eru
samningaviðræður við Lufthansa
langt komnar en öllum evrópsk-
um flugfélögum verður boðin hún
til sýnis.
Mikilvægt samstarf
Ástæður þess að auglýsingin er
gerð hér á laudi segir Arnar vera
sameiginlegan viðskiptavin Euro
Rscg og Saga Film en auk þess sé
BÚIÐ hefur verið til eftirlíking af farþegarými í þotu en tökur fara
fram í gegnum eftirlitsmyndavél sem er fyrir ofan farþegana. Um 65
manns koma að verkinu en leiksljórn er í höndum Gisla Snæs Erl-
ingssonar. Ásamt honum á myndinni eru Lísa Kristjánsdóttir, Jón
Sæmundur Auðarson og að baki honum er Svanberg Sigurðsson.
kynningarátak liðins árs að skila
sér. Þá hafí þeir getað boðið hag-
stætt verð sem skipti einnig
miklu máli þegar verkefni eru
unnin á fjarlægum stað. Arnar
segir þetta samstarf skipta miklu
máli þar sem Euro Rscg sé eitt
stærsta auglýsingafyrirtæki í
Evrópu með stórfyrirtæki eins og
Philips, Citroen, Peugeot, Proct-
er and Gamble og Intel á sínum
snærum.
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
P.H. VIKING lá við bryggju í Þorlákshöfn í gær og var búið að setja
spjöld í stað framrúðunnar sem brotnaði.
Hnútur kom a
farþegabát og
braut
FRAMRÚÐA á farþegabátnum
P.H. Viking í Vestmannaeyjum
brotnaði og sjór komst inn í
farþegarými þegar hnútur kom á
bátinn austan við Þorlákshöfn á
þriðjudagskvöld. Verið var að flytja
farþega frá Vestmannaeyjum til
Þorlákshafnar en að sögn áhafnar
var engin hætta á ferðum.
Einar Ágústsson vélstjóri sagði
að ferðin hefði verið farin vegna
þess að þýskir ferðamenn, sem
þurftu að ná flugvél frá landinu á
miðvikudagsmorgun, komust ekki
frá Eyjum með öðrum hætti. I
ruðu
ferðinni voru einnig Islendingar.
Einar sagði að ekki hefði verið
sérlega vont í sjó en talsverð kvika
sé jafnan austur af Þorlákshöfn og
þar hafi hnúturinn komið á bátinn.
Einar sagði að farþegunum hefði
eðlilega brugðið við þegar rúðan
brotnaði en þeir hafí róast þegar í
ljós kom að engin hætta var á
ferðum. Hleri var settur í
gluggaopið og báturinn hélt áfram
en um klukkutíma sigling var eftir
til Þorlákshafnar þegar þetta
gerðist. Setja átti nýja rúðu í bátinn
í Þorlákshöfn í gær.
Aukið fylgi
sameiginlegs
framboðs
SAMKVÆMT skoðanakönnun
Gallups eykst fýlgi sameiginlegs
framboðs félagshyggjuflokkanna um
tæplega 6% miðað við könnunina í
síðasta mánuði og fengi sameigin-
legt framboð tæplega 16% fylgi væri
gengið til kosninga nú. Rúmlega
67% svarenda telja líklegt að AI-
þýðubandalag, Alþýðuflokkur og
Kvennalisti bjóði fram saman en
tæplega 28% telja það ólíklegt.
Fylgi Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalista minnkar
lítillega miðað við síðustu könnun.
Alþýðuflokkur fengi um 9% og AI-
þýðubandalag rúmlega 7% fylgi.
Kvennalisti mælist með um 2% fýlgi.
Samanlagt fylgi Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks, Kvennalista og sam-
eiginlegs framboðs er 34,3% en
flokkarnir þrír og Þjóðvaki fengu
samanlagt 37,8% fylgi í síðustu
kosningum.
I könnun Gallup var einnig spurt
hver ætti að veita sameiginlegu
framboði forystu. Meira en helming-
ur svarenda er óákveðinn. Margrét
Frímannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalagsins, nýtur hins vegar lang-
mests stuðnings þeirra sem eru
nefndir, en 25% svarenda telja að
hún eigi að veita sameiginlegu fram-
boði forystu. Næst er Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, borgarstjóri
Reykjavíkur, 8,9% svarenda nefna
hana. Þriðji er Sighvatur Björgvins-
son en 3,2% telja að hann eigi að
leiða sameiginlegt framboð.
Hlutfall óákveðinna er hærra
meðal yngri svarenda en eldri. í
hópi 18-24 segjast 69% ekki vita
hver sé hæfastur til að leiða sameig-
inlegt framboð en tæplega 45% í
hópi 55-75 ára.
Sameiginlegt fýlgi stjórnarflokk-
anna er um 57% og ríkisstjórnin
héldi því velli væri gengið til kosn-
inga nú. Stjórnarflokkarnir tapa
hins vegar báðir fylgi. Sjálfstæðis-
flokkur fengi tæplega 43% fylgi ef
kosið væri nú en hafði tæplega 47% í
síðasta mánuði. Framsóknarflokkur
fengi rúmlega 14% væri gengið til
kosninga nú en hafði 18,5% í síðasta
mánuði. Rúmlega 62% svarenda eru
hlynnt ríkisstjórninni sem hefur
haft yfir 60% fylgi frá kosningunum
1995.
Framboð Sveiris Hermannssonar
mælist með rúmlega 5% fylgi en
hafði um 3% í síðasta mánuði.
Tæplega 20% voru óákveðin eða
neituðu að svara og rúmlega 6%
myndu ekki kjósa eða skila auðu ef
kosið væri nú. Skekkjumörk könn-
unarinnar eru á bilinu 1—4%.
Vandi sjúkrahúsa í
Reykjavík
Beðið eftir
tillögum
faghóps
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
segir að beðið sé tillagna faghóps
um lausn á vanda sjúkrahúsanna í
Reykjavík og að þær tillögur verði
síðan lagðar fyrir ríkisstjórn í októ-
ber.
I bókun stjórnar Sjúkrahúss
Reykjavíkur, sem borgarráð tók
undir í vikunni, kom fram að
ákvörðun um 100 millj. króna auka-
fjárveitingu til spítalans væri ekki í
samræmi við fýrri yfirlýsingar Al-
þingis og leysti engan veginn fjár-
hagsvanda spítalans.
Ingibjörg sagðist hafa fengið
bókun stjórnar Sjúkrahúss Reykja-
víkur boðsenda í fýrrakvöld eftir að
hafa lesið um hana í Morgunblaðinu
um morguninn. „Það kom skýrt
fram við úthlutun á aukafjárveiting-
um til sjúkrahúsanna, sem að sjálf-
sögðu léttir þeim reksturinn, að
málefni stóru sjúkrahúsanna eru
ekki leyst með þessum úthlutun-
um,“ sagði hún.
Benti ráðherra á að við úthlutun-
ina hafí einnig komið fram að fag-
hópurinn sem vinnur að lausn mála
í samvinnu við stjómendur sjúkra-
húsanna hafi ekki lokið störfum
varðandi stóru sjúkrahúsin í
Reykjavík.