Morgunblaðið - 14.08.1998, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
BUmmimaaa Uí Úr milliuppgjöri, rnamiaconi. 1^1« «98
' ' Ján.-júní Jan.-jung
| Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 1.458,1 1.392,5 1.474,8 1.397,4 ■1,1% -0,4%
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði 65,6 77,4 ■15,2%
Fjármunatekjur og (-gjöld) 3,1 (3,6) -
Hagnaður af reglulegri starfsemi Tekju- og eignarskattar 68,7 (20,7) 73,8 (28.4) ■6,9% -27,4%
Niðurstaða fyrir áhrif hlutdeildarfélaga Áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga 48,0 9,4 45,3 3,4 +6,0% +176,5%
Hagnaður tímabilsins 57,4 48,7 +17,9%
Efnahagsreikningur 30/6 '98 31/12'97 Breyting
| Eignir: \ Milliónir króna
Fastafjármunir 870,7 675,4 +28,9%
Veltufjármunir 1.034,0 952,0 +8,6%
Eignir samtals 1.904,7 1.627,4 +17,0%
| Skuldir og eigid fé: \ Eigið fé 946,9 876,6 +8,0%
Langtímaskuldir 354,2 292,9 +20,9%
Skammtímaskuldir 603,5 457,9 +31,8%
Skuldir og eigið fé samtals 1.904.6 1.627,4 +17.0%
Sjóðstreymi 1/1-30/6 1998 1997 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 86,8 97,2 ■10,7%
57 milljóna króna hagnaður Pharmaco
I samræmi við
áætlanir
Hagnaður Opinna kerfa nam 66 milljónum á fyrri árshelmingi
Véltaxi jókst um þriðj-
ung á milli ára
OPIN KERFI hf. (Móðurfélag)
Ur milliuppgjöri 1998 JAN.-JÚNÍ JAN.-JÚNÍ
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 793,1 592,4 +33,9%
Rekstrargjöld 740,2 558,4 +32,5%
Rekstrarh. f. fjárm.liði 52,9 33,9 5+6,1%
Fjármunatekjur (Fjármagnsgjöld) (2,6) (0,5) +463,2%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 34,2 21,6 +58,5%
Söluhagnaður eigna 16,6
Hlutur í hagn. dótturf. og hlutd.f. 14,9 2,6 +477,2%
Hagnaður tímabilsins 65,7 24,2 +172,1%
Efnahagsreikningur 1998 1997 Breyting
i Eignir: | Milliónir króna 30.6.98 31.12.97
Fastafjármunir 345,7 279,4 +23,8%
Veltufjármunir 456,7 379,9 +20,2%
Eignir samtals 802,4 659,2 +21,7%
| Skuldir og eigið fé: | Milliónir króna
Hlutafé 38,0 32,0 +18,8%
Eigið fé 307,6 240,3 +28,0%
Langtímaskuldir 121,3 131,3 ■7,6%
Skammtímaskuldir 373,6 287,7 +29,9%
Skuldir og eigið fé samtals 802,4 659,2 +21,7%
Kennitölur 1997 1996
Veltuf járhlutfall 1,22 1,32
Eiginfjárhlutfall 38,0% 36,0%
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 36,0 24,1 +49,0%
HAGNAÐUR Pharmaco hf. á
fyrstu sex mánuðum ársins nam
57,4 milljónum króna en var við
48,7 milljónir á sama tíma í fyrra.
Rekstrartekjur félagsins á fyrri
árshelmingi voru 1.458 m.kr.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 68,7 m.kr. sem er rúmum 5
m.kr. minna en á síðasta ári. Eigið
fé Pharmaeo er nú 1.904 milljónir
og hefur aukist um 277 m.kr. frá
því í fyrra. Eiginfjárhlutfall er
49,7% á móti 53,8% á síðasta ári.
Veltufjárhlutfall er 1,85 en var í
fyrra 2,3.
Sindri Sindrason, framkvæmda-
stjóri Pharmaco, segist vera sáttur
við milliuppgjörið, enda útkoman
nokkum veginn í samræmi við það
sem menn bjuggust við: „Reyndar
má sjá nokkum sölusamdrátt á
milli ára sem skýrist af sameiningu
svissnesku lyfjafyrirtækjanna
Sandoz, sem var á okkar vegum, og
Ciba, sem Thorarensen lyf hf. hafði
umboð fyrir hér á landi. Þessi fyr-
irtæki sameinuðust í fyrra í eitt fé-
lag, Novartis, og em nú í samvinnu
við Thorarensen lyf hf. Á móti
kemur hins vegar að önnur sala
Pharmaco jókst um 6%, þannig að
rýrnun á veltu nemur einungis 1%.
Við gerðum ráð fyrir um 3 millj-
arða króna veltu á þessu ári og
hagnaði upp á 100 milljónir króna.
Miðað við milliuppgjörið nú og þær
forsendur sem fyrir liggja, þá sýn-
ist mér að rekstraráætlanir okkar
muni standast og jafnvel skila ríf-
lega því sem reiknað var með,“
segir Sindri.
HAGNAÐUR Opinna kerfa hf.
nam 66 milljónum króna á fyrstu
sex mánuðum ársins, samanborið
við 24 milljónir á sama tímabili árið
áður, og nemur aukningin því 170%
á milli ára. Heildarvelta félagsins
jókst um 34% á milli ára, var 793
milljónir króna, samanborið við 592
milljónir fyrstu sex mánuðina í
fyrra. Af heildarhagnaði nemur
söluhagnaður eigna tæpum sautján
milljónum, en hann myndaðist
vegna sölu hlutabréfa í Skímu-Mið-
heimum.
Rekstur Opinna kerfa hf. gekk
vonum framar á fyrri árshelmingi
að sögn Frosta Bergssonar fram-
kvæmdastjóra félagsins. „Fyrir-
tækið hefur aukið hlutdeild sína á
tölvumarkaði og arðsemi rekstrar-
ins hefur aukist verulega. Mest
aukning hefur verið í sölu á UNIX-
vélum, NT-netþjónum og PC-tölv-
um frá Hewlett-Packard og víð-
netsbúnaði frá Cisco Systems. Auk
þess hafa verið gerðir margir
rekstrarþjónustusamningar þar
sem þjónustudeild okkar tekur að
sér rekstur tölvukerfa fyrir við-
skiptavini að hluta til eða öllu leyti.
Til að mæta auknum umsvifum og
viðhalda góðu þjónustustigi hefur
starfsfólki verið fjölgað auk þess
sem bætt hefur verið við húsnæði
félagsins."
Tölvubúnaður úreldist hratt og
því er áhersla lögð á góða birgða-
stýringu í rekstrinum, að sögn
Frosta. Segist hann vera sáttur
með aldursgreiningu sölubirgða
sem og viðskiptakrafna.
Áætlaður hagnaður ársins
70 milljónir króna
Afkoma dótturfélags og hlut-
deildarfélaga var í samræmi við
áætlanir á fyrri árshelmingi en
vegna mikilla fjárfestinga í öðrum
félögum að undanfómu ber félagið
nú vaxtakostnað að fjárhæð 7,5
milljónir króna. Frosti segir að
stjórn félagsins sé viss um að fjár-
festingar í öðrum félögum á sviði
upplýsingatækni muni skila Opn-
um kerfum og hluthöfum góðri arð-
semi þegar til lengri tíma sé litið.
Hann segir ekki ástæðu til að
endurskoða rekstraráætlanir fé-
lagsins fyrir árið í heild, en sam-
kvæmt þeim er gert ráð fyrir 1.500
milljóna króna heildarveltu á þessu
ári og að hagnaður muni nema um
70 milljónum.
Bjart fram undan
Frosti segir að búast megi við
áframhaldandi vexti í starfsemi fé-
lagsins, ekki síst þar sem upplýs-
ingaiðnaðurinn sé í örum vexti.
„Um 60% hagnaðar okkar hefur
myndast á fyrstu sex mánuðum
hvers árs og við reiknum með að
hið sama verði upp á teningnum
nú. Ljóst er að áhrifa dóttur- og
hlutdeildarfélaga á afkomu móðm’-
félagsins mun gæta í auknum
mæli, en gert er ráð fyrir að velta
samstæðunnar verði um 2.600
milljónir króna á árinu. I bígerð er
að stofna sérstakt eignarhaldsfélag
til að annast samskipti við þessi fé-
lög.“
Um áramót var gengi hlutabréfa
í Opnum kerfum hf. 33,7 á Verð-
bréfaþingi íslands að teknu tilliti
til jöfnunar. Lokaverð í gær var 51
og hefur gengið því hækkað um
51,3% frá áramótum.
Afkoma Skýrr batnaði um 35%
Stóraukin umsvif fyrirtækisins á flestum sviðum þjónustunnar
HAGNAÐUR Skýrr hf. nam 31 millj-
ón króna fyrstu sex mánuði ársins,
var 23 milljónir á sama tíma i fyrra,
og nemur aukningin því 35%. Rekstr-
artekjur jukust um 15% á milli ára,
námu nú 527 milijónum fyrstu sex
mánuði ársins en voru 459 milljónir á
sama tímabili í fyrra. Rekstrargjöld
jukust um 19%, námu nú 431 milljón
en 363 milljónum í fyrra.
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, er sáttur við árangurinn og
segist þakka hann hæfu starfsfólki.
„Umsvif hafa vaxið á flestum sviðum
þjónustunnar og umfang verkefna
hefur aukist. Framlegð hugbúnaðar-
deildar hefur aukist og er það afar
ánægjulegt. Reksturinn í heild skilar
meiru, eins og aukið veltufé frá
rekstri sýnir.“
Veltufé frá rekstri nam 85,6 millj-
ónum, sem er 30 milljón króna
hækkun frá árinu áður. Eigið fé fé-
lagsins nam 223 milljónum króna 30.
júní síðastliðinn og var eiginfjárhlut-
fallið 32%.
Skýrr vinnur nú að ýmsum verk-
efnum og má nefna verk við að búa
helstu tölvukerfí hins opinbera undir
árið 2000 og margvísleg þróunar-
verkefni, sem nýta tækni alnetsins
og er ætlað að gera viðskiptavinum
kleift að nýta fjárfestingar sínar bet-
ur með ýmsum hugbúnaði, t.d.
DCOM, ASP, iXPress, NaturalX o.fl.
Þá sinnir Skýrr einnig ýmsum verk-
um fyrir samstarfsaðila í Danmörku.
Á árinu hefur Skýrr haldið áfram
fjárfestingum sínum í skyldum fyrir-
tækjum og að sögn Hreins er til-
gangurinn sá að styrkja stöðu þess á
markaðinum og þjóna viðskiptavin-
um enn betur en áður. „Á árinu
keypti Skýrr meirihluta hlutabréfa í
Kuggi ehf., sem starfar á sviði hug-
búnaðargerðar, og nú nýlega öll
hlutabréf í Breytu ehf., sem starfar á
sviði vöruhússgagna. Einnig hefur
verið fjárfest töluvert í tölvubúnaði
og nú standa yfir gagngerar breyt-
ingar og endurbætur á húsnæði fé-
lagsins í Ái-múla.“
Góð verkefnastaða
Verkefnastaða Skýrr er mjög góð
um þessar mundir að sögn Hreins og
er unnið að stórum og umfangsmikl-
um verkefnum í kjölfar viðskipta-
samninga sem nýlega hafa verið
undirritaðir. „í júlí gengum við t.d.
frá samningi um sölu á Agresso-hug-
búnaði til Kaupþings. Nokkrum dög-
um síðar var samið við stjórn Kvóta-
þings um hönnun og smíði á kerfí til
að annast tilboðsmarkað um afla-
mark og hins vegar rekstrarsamning
til tveggja ára um rekstur á kerfínu.
í rekstraráætlun gerum við ráð fyrir
að hagnaður fyrir árið í heild nemi
rúmlega 50 milljónum króna og velt-
an verði um 1.100 milljónir," segir
Hreinn.
_ Ur milliuppgjöri
ihf 30. júní 1998
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1/1-30/6 98 1/1-30/6 97 Breyting
Rekstrartekjur 527,3 458,6 +15%
Rekstrargjöld 431.1 363.4 +19%
Hagnaður fyrir afskriftir 96,2 95,2 +1%
Afskriftir 52,1 31,7 +64%
Fjármagnsgjöld 8,3 10,8 ■23%
Afkoma af reglul. starfsemi 35,8 52,7 ■32%
Áhrif dótturfélags/óregluleg gjöld -4,7 -29,6 -84%
Hagnaður tímabilsins 31,1 23,1 +35%
Efnahagsreikningur 30.júní: 1998 1997 Breyting
I Eigntr: \ Milljónir króna
Veltufjármunir 384,2 220,7 +58%
Fastafjármunir 358,0 409,0 -12%
Eignir samtals 706,2 629,7 +12%
| Skuldir og eigið fé: \ Skammtímaskuldir 191,3 158,9 +20%
Langtímaskuldir 292,3 294,0 ■1%
Eigiö fé 222,6 176,8 +26%
Skuldir og eigið fé samtals 706,2 629,7 +12%
Kennitölur og sjóðstreymi 1998 1997 Breyting
Eiginfjárhlutfall 32% 28% +12%
Veltufjárhlutfail 1,82 1,39 +31%
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 85,6 55,7 +54%
Verðbréfaþing
Islands
Mest við-
skipti á
peninga-
markaði
VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi í
gær námu rúmum 2 milljörðum
króna. Mest voru viðskipti á
peningamarkaði, alls 1.663 mkr.
með ríkis- og bankavíxla.
Markaðsávöxtun óverð-
tryggðra bréfa lækkaði nokkuð
í gær, eða um 7-15 punkta á
ríkisbréfum og 10-21 punkt á
ríkisvíxlum, en hækkaði um 1-2
punkta á markflokkum hús-
bréfa.
Mest viðskipti með
Eimskipsbréf
Viðskipti á hlutabréfamark-
aði námu 68 mkr. Mest var
verslað með bréf Eimskipafé-
lagsins 10 mkr., Síldarvinnsl-
unnar 9 mkr. og Stálsmiðjunn-
ar 8 mkr. Verð bréfa Skeljungs
lækkaði um 4,7% en Skeljungur
birti milliuppgjör sitt í gær.
Úrvalsvísitala Aðallista
hækkaði um 0,43%.