Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 1 7
JARÐBO MMBffl Ór milliuppgjöri 19S RANIR HF. >8
JAN.-JÚNl JAN.-JÚNÍ
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur 264,5 216,8 +22,0%
Rekstrargjöld 227.5 186.3 +22.1%
Rekstrarhagnaður án fjármagnsliða 37,0 30,5 +21,3%
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 2,4 2,2 +9,1%
Hagnaður fyrir skatta 39.4 32.7 +20.5%
Hagnaður ársins 33,6 30,6 +9,8%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/6 '98 31/12 '97 Breytíng
I Eiartir: | Veltufjármunir 282,1 295,6 ■4,6%
Fastafjármunir 374,7 347,7 +7,8%
Eignir samtals 656,8 643,3 +2,1%
I Skuidir oo eioið fé: I Skammtímaskuldir 63,8 119,8 -46,7%
Eigið fé 588,9 523,5 +12,5%
Þar af hlutafé 259,0 236.0 +9.8%
Skuldir og eigið fé samtais 656,8 643,3 +2,1%
Kennitölur og sjóðstreymi 1997 1996
Eiginfjárhlutfall 89,7% 81,4%
Veltufjárhlutfall 4,4 2,5
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 57,1 49,3 +15,8%
22% veltuaukning Jarðborana á milli ára
Hagnaðurinn
nam 34 milljón-
um króna
HAGNAÐUR Jarðborana hf. nam
33,7 milljónum króna á fyrstu sex
mánuðum ársins, samanborið við
30,6 milljónir árið áður, og nemur
aukningin því 10% á milli ára.
Hagnaðurinn nemur 12,7% af heild-
artekjum fyrirtækisins. Heildar-
velta fyrstu sex mánuðina var 264,5
milljónir og jókst um 22% frá sama
tíma í fyrra. Rekstrargjöld án af-
skrifta voru 227,5 milljónir á fyrri
árshelmingi, borið saman við 186,3
milljónir á sama tíma í fyrra, og
jukust því um 22% á milli ára.
Fjárhagur félagsins er afar
traustur og nam eigið fé þess 589
milljónum króna í lok tímabilsins.
Eiginfjárhlutfall var 89,7% og veltu-
fjárhlutfall 4,4. Veltufé frá rekstri
var 57,1 milljón á fyrri árshelmingi,
samanborið við 49,3 milljónir á
sama tímabili í fyrra.
Bent Einarsson, framkvæmda-
stjóri Jarðborana, segist vera sáttur
við afkomuna enda hafi áætlanir fé-
lagsins gengið eftir og ytri skilyrði
verið því hagstæð. Hann segir að
veltuaukningin spegli vaxandi
áhuga á virkjun jarðhita á háhita-
svæðum landsins til raforkufram-
leiðslu.
Verkefnastaða félagsins er góð
um þessar mundir og útlit fyrir
veltuaukningu á árinu. Helstu verk-
efni ársins eru borun eftir gufu fyrir
Orkuver Hitaveitu Suðumesja í
Svartsengi og framkvæmdir við
Kröflu fyrir Landsvirkjun vegna
stækkunar Kröfluvirkjunar.
Nýr bor keyptur fyrir
120 milljónir
Bent telur að aukin samkeppni
helstu orkufyrirtækja hérlendis um
að tryggja sér rétt yfír helstu há-
hitasvæðum landsins mun skila sér í
auknum verkefnum fyrir Jarðbor-
anh-. Fyrirtækið er nú þátttakandi í
einu slíku verki en það er sam-
starfsverkeíni nokkurra aðila um
rannsóknir á jarðhitasvæðinu í Öx-
arfírði. Samstarfshópurinn hefur nú
þegar tryggt sér rétt til borunar,
rannsókna og hagnýtingar á orku
eða öðrum verðmætum er þar
kunna að fínnast. Jarðboranir
stefna að því að taka þátt í frekari
verkefnum á þessu sviði enda er það
í samræmi við stefnumið þess um
nýtingu auðlinda í jörðu.
Á fyrri árshelmingi fjárfesti fyr-
irtækið í varanlegum rekstrarfjár-
munum fyrir 43,7 milljónir króna.
Síðar á árinu er von á til landsins
nýjum og fullkomnum jarðbor sem
félagið hefur fest kaup á. Er bom-
um ætlað að þjóna síbreytilegum og
vaxandi kröfum viðskiptavina og er
kaupverð hans um 120 milljónir
króna.
Uppbygging Atlanta í Englandi staðfest
Viðhaldsstarfsemi
flutt á einn stað
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta mun
flytja meginhluta af viðhaldsstarf-
semi til Kent-flugvallar á Englandi
á næstu misserum. Beðið var eftir
að kauptilboð í flugvöllinn yrðu opn-
uð en það var gert í síðustu viku og
var Wiggings Group-fjármögnunar-
fyrirtækið með hæsta tilboð. Atl-
anta hafði áður gert samning um
leigu á aðstöðu við flugvöllinn við
það. Flugvöllurinn var áður í eigu
breska flughersins en á síðustu ár-
um hefur hann verið opnaður fyrir
viðhaldsstarfsemi, leiguflug og
fragtflug.
Ekki hefur verið gengið frá end-
anlegum samningi en að sögn Haf-
þórs Hafsteinssonar flugrekstrar-
stjóra verður það gert á næstunni.
Með aðstöðunni í Kent getur Atl-
anta séð strax um minna viðhald á
vélum sínum en það hafa þeir þurft
að kaupa af öðrum flugfélögum.
Ráðgert er að félagið fái afhenta
viðhaldsaðstöðu sem áður tilheyrði
breska flughernum eftir 10 mánuði
en að auki er áformað að byggja
stórt flugskýli sem getur hýst
Boeing 747- og Locheed Tristar-
flugvélar félagsins samtímis.
A L C ▲ T E L °r ",u,h
GSEl’
fyrir námsmanninn
S!1lHH
''tv
!Ar
Þyngd með rafhlöðu 215g
3,5 klst. t tali og 83 klst. biðtími
Stærð 130x49x23 mm
Hægt að skipta um framplötu
SMS skilaboð
GSíirr
fyrir dömuna
ERICSSON 2! CF768
Þyngd með rafhlöðu 135g
3 klst. I tali og 60 klst. biðtími
Stærð 105x49x23
Númerabirting og SMS skilaboð
Geymir 10 sfðustu númer
BT • Skeifan 11 • S: 550-4444
Opið: laugadaga 10:00-16:00
sunnudaga 13:00-17:00
IU.II. \l3kV
GSffl
svala
nn
Þyngd með rafhlöðu 160g
Rafhlaða endist 3 klst. i tali
120 klst. ending i bið
Númerabirting og SMS skilaboð
Fáanlegur í öllum regnbogans litum
www.mbl.is
mmmmmemmmmmmm
mmMmmmmmmemmmM