Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 19
________ERLENT______
Suu Kyi situr
enn í bíl sínum
Rangoon, London. Reuters.
HERSTJÓRNIN í Burma neitaði í
gær að taka á móti sérlegum sendi-
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna sem
Kofí Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, hugðist senda til að ræða at-
burði síðustu daga í landinu en í
gær sat Aung San Suu Kyi, leiðtogi
lýðræðishreyfíngarinnar í landinu,
enn í bifreið sinni ásamt þremur
stuðningsmanna sinna á lítilli við-
arbrú nærri Anyarsu-borg, sem er
norður af höfuðborginni Rangoon.
Er markmið Suu Kyi að vekja at-
hygli umheimsins á baráttunni fyr-
ir lýðræði og mannréttindum í
Burma. Hermenn stöðvuðu för Suu
Kyi í fyrradag þegar hún hugðist
halda til borgarinnar Pathein til að
hitta fylgismenn sína.
Talsmaður herforingjastjómar-
innar í landinu sagði að Suu Kyi
hefði ekki rætt við neinn og að rúð-
ur bifreiðarinnar væru skrúfaðar
upp. Segjast stjómvöld hafa lækna
og hjúkrunarfólk í nágrenninu „ef
svo kynni að fara að Suu Kyi og
fylgismenn hennar tækju þá
ákvörðun að dvelja lengi í vegar-
kantinum“. HeimOdir herma að
Suu Kyi sé að þessu sinni vel búin
af matvöm og vatni og svo virðist
því sem mótmælin hafi verið þaul-
skipulögð.
Bretar gagnrýndu í gær Burma-
stjórn fyrir að hefta ferðafrelsi Suu
Kyi og sögðu aðgerðirnar „alger-
lega óviðunandi." Talsmaður jap-
anska utanríkisráðuneytisins sagð-
ist fyrr um daginn óttast að harka
gæti hlaupið í deilu Suu Kyi og
stjórnvalda. Sagði hann Japani
fylgjast vel með framgangi mála í
Burma og að sérstaklega væri haft
auga með meðferð Burma-stjórnar
á Suu Kyi, sem árið 1991 hlaut frið-
arverðlaun Nóbels.
Líkamsleifar
um borð í Gaul
London. The Daily Telegraph.
TALIÐ er nær fullvíst að myndir
sem teknar hafa verið af flaki
breska togarans Gaul sýni m.a. lík-
amsleifar nokkuma skipverja. Gaul
fórst undan Noregsströndum fyrir
24 áram og með honum 36 manns.
Björgunarmenn segjast ekki vilja
fullyrða að um lík sjómannanna sé
að ræða fyrr en meinafræðingar
hafi skoðað myndimar. Þá hafa
bresk stjórnvöld varað við því að
dregnar veri ótímabærar ályktanir
af myndunum um ástæðu þess að
Gaul sökk en getgátur hafa m.a.
verið um að hann hafí stundað
njósnir um Rússa.
Flak Gaul liggur um 70 sjómílur
undan ströndum Noregs og gekk í
fyrstu erfiðlega að koma fjarstýrð-
um upptökuvélum inn í flakið. Það
tókst síðdegis á miðvikudag.
Nokkrir ættingjar skipverjanna
fylgdust með um borð í björgunar-
skipi er myndir birtust á sjónvarps-
skjá, sem virtust sýna mannabein í
þremur klefum. I norska blaðinu
Noi'dlys segir að tilkynnt hafi verið
um fundinn í breska útvarpinu áður
en aðrir aðstandendur mannanna
vora látnir vita.
„Verði staðfest að líkamsleifar
ástvina ykkar séu í flakinu vona ég
að þeir fái nú að hvíla í friði í sam-
ræmi við þá hefð að líta á hafið sem
virðulega gröf,“ sagði John Pres-
cott, aðstoðarforsætisráðherra
Bretlands, og beindi orðum sínum
til ættingja skipverjanna.
Afsanna kenningu
um handtöku
Myndir af flakinu hafa enn ekki
leitt neitt í ljós um hver hafi verið
orsök þess að Gaul fórst en þær
era þó sagðar afsanna þá kenningu
að Sovétmenn hafi ráðist um borð í
skipið, handtekið áhöfnina, og flutt
til Sovétríkjanna þar sem hún hafi
horfið sporlaust í sovéskum fang-
elsum.
Bresk stjói-nvöld segja enn ekki
tímabært að ræða hvort reynt
verði að lyfta flaki Gaul af hafs-
botni.
Zhírínovskí tapar meiðyrðamáli
Reif harkalega
í hár þing’konu
Moskvu. The Daily Telegraph.
RÚSSNESKI öfgasinninn og
þingmaðurinn Vladimír Zhírínov-
skí var á miðvikudag dæmdur til
að greiða fyrr-
verandi fulltrúa
á rússneska
þinginu um tvö
hundruð og
fjöratíu þúsund
ísl. kr. í skaða-
bætur fyrir
meiðyrði.
Birtust um-
mælin um þing-
konuna Jevgeníu Tishkovskaju í
málgagni F rjálslyndra demó-
krata, stjómmálaflokks Zhírínov-
skís, nokkru eftir að Zhírínovskí
reif harkalega í hár Tishkovskaju
er hún leitaðist við að stöðva
handalögmál á þingfundi í
Moskvu. Var hún í málgagninu
kölluð „ljóshærður umrenningur"
og „pilsklæddur djöfull", auk þess
sem hún var sökuð um að hafa
„sólundað fjármunum Rússlands."
Eftir að óskum Tishkovskaju
um að Zhírínovskí yrði sviptur
þinghelgi var hafnað varð útilok-
að fyrir hana að höfða sákamál á
hendur stjórnmálamanninum um-
deilda vegna fantabragðanna og
átti hún þá þann kost einan að
höfða meiðyrðamál á hendur hon-
um fyrir borgaralegum dómstóli.
Zhírínovskí virtist hins vegar
ekki láta úrskurðinn í meiðyrða-
málinu mikið á sig fá á frétta-
mannafundi í fyrradag og fór
mikinn eins og venjulega. Kallaði
hann Madeleine Álbright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, „ill-
gjarna gamla konu“ á fundinum
og sagði að Bill Clinton, Banda-
ríkjaforseti, hefði týnt nærbuxum
sínum eftir að hafa sofið hjá
„einkaritara sínum“ Monicu
Lewinsky sem um leið sannaði að
„alger úrkynjun" réði ríkjum í
Washington.
Zhírínovskí.
fyrir athafnamanninn
Fyrir bæði ameríska og evrópska kerfið
Þyngd með rafhlöðu 192g
3.5 klst. í tali og 80 klst. biðtími
Graffskur skjár
Hleðslutæki fyrir 110V og 220V
fyrir þann sem er
alltaf á vakt
Þyngd með rafhlöðu 175g
3 klst. f tali og 60 klst. biðtími
Stærð 105x49x23 mm
SMS skilaboð
Fáanlegur blár, grænn og grár
fyrir iðnaðarmanninn
Þyngd með rafhlöðu 500g
Stærð 140x50x21
Skammvalsminni fyrir 99 númer
Stillanleg hringing og tímamæling
BT • Skeifan 11 • S: 550-4444
Opid: laugadaga 10:00-16:00
sunnudaga 13:00-17:00
www.mbl.is