Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNB LAÐIÐ Kosovo-Albanir hvetja Serba til að ganga til samninga Friðarumleitanir þokast áfram Pristina. Reuters. Helförin í Þýskalandi Tekist á um minn- ismerki Bonn. Reuters. KLAUS Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, lýsti því yfir í gær að hann teldi að ekki mætti fara of geyst í þvi að taka ákvörðun um minnismerki um þá gyðinga sem létu lífíð í heimsstyrjöldinni síðari. Þetta er þvert á yfirlýsingar Helmuts Kohls kanslara, sem hef- ur lagt áherslu á að tekin verði lokaákvörðun um minnismerkið í þessum mánuði. Kohl hefur lengi barist fyrir gerð minnismerkisins Kanslarinn hefur um árabil barist fyrir því að minnismerkið rísi í Berlín en það hefur dregist mjög vegna deilna um hönnun þess. I samtali við Hannoversche Allgemeine segist Kinkel ekki telja við hæfi að taka málið upp nú þeg- ar baráttan fyrir þingkosningamar í næsta mánuði sé komin á fullan skrið. „Það er of viðkvæmt,“ segir Kinkel. Fyrr í sumar gáfu þýskir jafnað- armenn til kynna að þeir væru andvígir því að reistur yrði minnis- varði um þær sex milljónir gyðinga sem létu lífíð í helför nasista, og að flokkurinn myndi stöðva gerð þess, kæmist hann til valda í haust. Kin- kel leggur áherslu á að hann sé ekki andvígur því að minnismerkið rísi en óskar eftir því að málið verði rætt frekar, m.a. á þingi og á meðal gyðinga. Borgarstjóri Berlínar andvígur Teikningar að fyrirhuguðu minn- ismerki hafa m.a. verið gagnrýndar fyrir að draga ekki nægilega fram þann hrylling sem helförin var. Sumir telja að hin raunverulegu minnismerki um helförina séu út- rýmingarbúðimar sem enn standa og borgarstjórinn í Berlín, Eber- hard Diepken, hefur lýst sig and- vígan minnisverkinu, þar sem hann óttist að Berlín sé að verða borg minnismerkja og iðrunar. UMLEITANIR til að binda enda á átökin í Kosovo-héraði báru nokkurn árangur í gær, þegar Kosovo-Albanir tilnefndu samn- inganefnd til að taka þátt í fýrirhug- uðum friðarviðræðum, og hvöttu yf- irvöld í Serbíu til að setjast við samningaborðið. Fregnir bárust áfram af bardögum í vesturhluta héraðsins. Leiðtogi aðskilnaðarsinnaðra Kosovo-Albana, Ibrahim Rugova, tilnefndi formenn fimm helstu stjómmálaflokka héraðsins til setu í samninganefndinni, en hann mun ekki taka sæti í henni sjálfur. Enn hefur ekki tekist að fá fulltrúa Frelsishers Kosovo til að taka þátt í friðarviðræðum. Rugova sagði á blaðamannafundi í gær að ástandið í héraðinu væri mjög alvarlegt og að nauðsynlegt væri að hefja samn- ingaviðræður hið fyrsta. Hann sagði að samninganefndin myndi í dag eiga fund með bandarískum emb- ættismönnum til að útfæra hug- myndir um friðsamlega lausn deil- unnar. Óttast um afdrif flóttamanna Bardagar héldu áfram í vestur- hluta Kosovo í gær. Serbar neituðu fregnum þess efnis að höfuðvígi skæruliða Frelsishers Kosovo í Junik hefði fallið í þeirra hendur, en öryggissveitir hafa setið um bæinn í nær tvær vikur. Haft var eftir serbneskum heimildamönnum að áfram væri barist í grennd bæjarins Glodjane, sem öryggissveitir náðu á sitt vald á miðvikudag. Yfirvöld í Albaníu fullyrtu í gær að serbneskir hermenn, sem átt hefðu í bardögum við skæruliða ná- lægt landamærunum, hefðu varpað sprengjum inn á albanskt landsvæði á miðvikudag. í yfirlýsingu frá al- banska innanríkisráðuneytinu segir að sex hundruð manna hafi flúið yfir til Albaníu í gær, en það mun vera mesti fjöldi flóttamanna á einum degi síðan átökin hófust íyrir hálfu ári. Hjálparstofnanir hafa varað við því að neyðarástand geti skapast, verði þúsundum flóttamanna ekki gert kleyft að snúa til heimila sinna áður en kólna fer í veðri. Einnig er óttast að bera fari á matvælaskorti, þar sem landbúnaðarframleiðsla hefur raskast verulega í héraðinu vegna átakanna. Fetað í fótspor Díönu og Dodis París. Reuters. HÓTEL í París býr sig nú undir að bjóða gestum sínum upp á „Díönu-túr“ þar sem síðustu stundir í lífi Díönu verða rifjaðar upp í tilefni þess að bráðum er eitt ár liðið frá bílslysinu sem olli dauða Díönu. Verður viðskiptavinum Odeon- hótelsins, sem stendur á vinstri bakka Signu, frá og með morg- undeginum boðið upp á ökuferð í svartri Mereedes-bifreið líkri þeirri sem Díana var farþegi í nóttina örlagaríku og verður leit- ast við að veita ógnvekjandi og raunsanna innsýn í síðustu stundir Díönu. „Fólk getur gagn- rýnt þetta uppátæki," sagði Emile Cacciari, framkvæmda- stjóri Odeon-hótelsins, „en stað- reyndin er sú að eftirspumin eft- ir þessu er afar mikil.“ Ókuferðin mun kosta 150 franska franka, eða rúmlega 1.500 ísl. kr., og verður ekið sem leið liggur frá Ritz-hótelinu, þar sem Díana og Dodi Al-Fayed snæddu sína hinstu máltíð, til Alma-ganganna þar sem Merc- edes-bifreið þeirra skall á vegg með þeim afleiðingum að Díana og Dodi létust, ásamt bflstjóran- Á slysstað við Alma-torg. um Henri Paul. Verður þaðan haldið áleiðis til Pitie-Salpetriere sjúkrahússins þar sem Díana lést nokkrum stundum eftir slysið. Að sögn Cacciaris verða ferðir þessar í boði fram til 31. ágúst, en þá verður eitt ár liðið frá dauða Díönu, og er gert ráð fyrir að allur ágóði renni til líknar- stofnana. Hundruð ferðamanna heim- sækja Alma-torgið á bakka Signu á degi hverjum til að líta augum vettvang bflslyssins örlagaríka. „Gestir okkar spyrja ávallt tveggja spuminga," sagði Cacci- ari. „Hvar er Eiffel-tuminn og hvar er Alma-torg?“ Sérstæður legsteinn SHLOMI Akrish horfir á far- símalagaðan legsteininn á leiði bróður síns heitins, Guy, í kirkjugarðinum í bænum As- hkelon í suðurhluta ísraels. Steinninn er höggvinn í svartan marmara. Guy lést í bílslysi fyr- ir mánuði og ákvað fjölskyldan að reisa honum þennan óvei\ju- lega legstein „vegna þess að honum fannst svo gaman að tala í símann“, að því er Diana, syst- ir hans, tjáði Reuters. Á „skjá“ símans er grafskriftin: Halló, þetta er Guy, hvað seg- irðu gott? Læknar án landamæra krefjast aðgerða í Suður-Súdan Stórkostleg neyð blasir við HJÁLPARSAMTÖKIN, Læknar án landamæra, segja stórkostlega neyð blasa við hungruðu fólki í Suð- ur-Súdan því að rúmur helmingur íbúa sé alvarlega vannærður, að því er Aftenposten greindi frá. Börn yngri en fimm ára eru í mestri hættu. Niðurstöður rannsóknar, sem samtökin gerðu í héraðinu Ba- hr el Ghazal, sýna að 30% barna líða mjög alvarlegan næringarskort. Daglega deyja 133 börn á dag af hverjum 10.000. Læknar án landamæra halda því fram að dánartíðni barna í Suður- Súdan sé sú hæsta sem þeir hafi séð í sínum störfum. Hún sé hærri en í hungursneyðinni í Eþíópíu 1984 og í Sómalíu 1992. Verði ekk- ert að gert muni öll börn undir fimm ára aldri í þorpinu Aijep, í Bahr el Ghazal, vera dáin úr hungri í vetrarbyrjun, að sögn Mortens Rostrups læknis. Hjálparsamtökin vilja að öllum tiltækum ráðum verði beitt til þess að koma nauðstöddum til hjálpar í Bahr el Ghazal og hermenn Sa- meinuðu þjóðanna jafnvel kallaðir til, svo að tryggja megi réttláta dreifingu matvæla til þeirra sem minnst mega sín. m Auknar rigningar MIKLAR rigningar í Bangla- desh í gær juku enn á eymdina sem vatnavextir og flóð hafa valdið í landinu og sögðu stjómarerindrekar að 326 væru látnir. Vonast hafði verið til þess að hið versta væri yfir- staðið þegar flóð tóku að réna fyrr í vikunni en þegar hóf að rigna á nýjan leik með meira offorsi en fyrr versnaði jafnvel ástandið á sumum stöðum. Gingrich hittir Ahern NEWT Gingrich, forseti full- trúadeildar Bandaríkjaþings, hittir í dag Bertie Ahem, for- sætisráðherra Irlands, í Du- blin og munu þeir m.a. ræða stöðu mála á N- Irlandi og sam- skipti Ira og Bandaríkja- manna. Ging- rich, sem er í átta daga heimsókn til Irlands, var í Belfast fyrr í vikunni en í ferðinni leitar hann einnig heim- ilda um forfeður sína sem taldir eru hafa komið frá Donegal. Mikil mengun í Ósló VEGNA þess hve loftmegnun er mikil í Ösló og Bergen, bend- ir flest til þess nú að frá 1. des- ember nk. verði hámarkshraði í miðborgum þeirra lækkaður niður í 30 km á klukkustund og takmarkanir verði settar við akstri þá daga sem mengun er mest. Hins vegar hefur verið fallið frá fyrri áætlunum um að banna nagladekk vegna þess að minni notkun þeirra hefur ekki dregið úr mengun. Hungursneyð yfirvofandi GÓÐGERÐARSAMTÖKIN ActionAid sögðu í gær að við blasti kólerufaraldur og hung- ursneyð í þeim sex héraða Af- ríkuríkisins Úganda sem orðið hefðu fyrir barðinu á miklum vatnavöxtum í ánni Níl. Ríkis- stjórn landsins var í gær gagn- rýnd af fulltrúum á þjóðþing- inu fyrir að bregðast seint og illa við flóðunum. Filippus gagnrýndur FYRRUM Bítillinn Paul McC- artney sakaði í gær Filippus prins, eiginmann Elísabetar Englandsdrottningar, um hræsni fyrir að gegna embætti forseta Alþjóðanáttúruvernd- arsjóðsins þótt hann stundaði reglulega fashanaveiðar. McC- artney lofaði að vera jafn ötull talsmaður náttúruverndar og Linda eiginkona hans, sem lést fyrr á árinu. Stórabeltis- brú er traust ENGAR áhyggjur þarf að hafa af sprungum í Stórabeltis- brúnni, sem tengir Sjáland og Fjón, að sögn talsmanna fyrir- tækisins sem reisti brúna. Segja þeir slíkar sprungur al- vanalegar en nýlega höfðu ýmsir aðilar vakið athygli á sprungunum sem eru í austur- hluta brúai-innar og jafnvel tal- að um mistök við brúargerðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.