Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 21

Morgunblaðið - 14.08.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 21 ( > w > h > I k W > > k > I I I I ► ERLENT MQI ftVÉHUEl Reuters BANDARISKIR alríkislögreglumenn ganga fram hjá braki á vettvangi í Nairóbí í gær. Hryðjuverkin í Kenýa og Tansaníu Vísbendinga leitað í sprengjurústunum Dar es Salaam, Nairóbí, Washington. Reuters. LEIT var haldið áfram í gær að vís- bendingum og sönnunargögnum við sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og Tansaníu. Fimm manns eru í haldi kenýsku lögreglunnar og aMkislögreglu Banda- ríkjanna (FBI) grunaðir um aðild að sprengitilræðinu í Nairóbí sl. fóstudag. Viðamikil rannsókn á tilræðunum í Kenýa og Tansaníu er hafin en lög- reglan í Tansaníu hefur þegar hand- tekið þrettán útlendinga grunaða um aðild að sprengingunni í Dar es Salaam. Bandaríska alríkislögregl- an stjómar rannsóknum á vettvangi í Dar es Salaam og Nairóbí. í höfuð- borg Tansaníu var gripið til þess ráðs í gær að stækka sprengjugíginn sem myndaðist, svo betur mætti finna vís- bendingar og sönnunargögn. I lok síðasta árs benti Prudence Bushnell, sendiherra í Kenýa, utan- ríkisráðuneytinu á að öryggi væri ekki tryggt í sendiráðinu í Nairóbí og æskti þess að nýtt sendiráð yrði byggt. Ekki var hægt að verða við ósk sendiherrans vegna fjárskorts. Bill Clinton hefur fyrirskipað embættismönnum að gera úttekt á öryggismálum bandarískra sendi- ráða og skila honum skýrslu áður en hann biður þingið um fé til þess að efla öryggi þeirra. Dönsk sjúkrahús orðin yfírfull I aðgerð erlendis vegna biðlista Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. BIÐLISTAR í aðgerðir á dönskum sjúkrahúsum eru orðnir svo langir að gripið verður til þess ráðs að senda sjúklinga í aðgerð erlendis til að stytta bið þeirra. Hér er einkum um að ræða aðgerðir vegna alvarlegra sjúkdóma eins og krabbameins. I Þýskalandi er geta til að taka við sjúk- lingum og fyrst um sinn verður tekið upp samstarf við sjúkrahús í Norð- ur-Þýskalandi, skammt frá dönsku landamærunum. Einnig er áhugi á að ná sama samstarfi við sænsk sjúkrahús, en þar virðast biðlistar hins veg- ar vera svipað vandamál og í Danmörku. Það eru einkum niðurstöður at- hugana, sem sýna að danskar kon- ur með brjóstakrabba eigi sér minni lífslíkur en kynsystur á öðr- um Norðurlöndum, sem ýta undir þessar aðgerðir nú. Konur, sem gangast eiga undir skoðun vegna gruns um krabbamein, þurfa að öllu jöfnu að bíða í tvær vikur eftir að komast í nákvæma skoðun til að fá skorið úr um hvort um krabba sé að ræða. Eftir það tekur enn við bið eftir að komast í aðgerð, þó að heilbrigð- isráðherra hafi ákveðið í febrúar að sjúklingar ættu ekki að þurfa að bíða í meira en tvær vikur eftir að komast í meðhöndlun eða aðgerð, þegar um krabbameinsaðgerðir og - meðhöndlun væri að ræða. Hvatt til forgangsröðunar Carsten Koch heilbrigðisráð- herra mun brátt birta svipaða til- skipun um aðra hættulega sjúk- dóma, en undirstrikar þó að ekki verði um að ræða tryggingu ríkisins fyrir að biðin eigi ekki að vera lengri. Ráðherrann hvetur einnig til að tekin verði upp forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu, þannig að mikil- væg meðferð og aðgerðir sem varða líf og dauða hafi forgang fram yfir minniháttar aðgerðir. Hallalaust fjárlaga- frumvarp Helsingfors. Morgunblaðið. FINNSKA rOdsstjórnin hefur lagt fram hallalaust fjárlagafrumvarp fyrir 1999. Er þetta fyrsta fjárlaga- friimvarpið í átta ár sem er án halla. Telst það merkilegt, ekki síst í Ijósi þess að kosningar eru á næstunni og vanalega hækka útgjöld verulega í síðasta fjárlagafrumvarpi á hverju kjörtímabili. Paavo Lipponen forsætisráðheiTa viðurkenndi á kynningu frumvarps- ins að jákvæð niðurstaða ríkisfjár- mála væri bókfærsluatriði að hluta. En hann ítrekaði að engum óleyfi- legum brellum hefði verið beitt. Sagði Lipponen að nú væri komin upp sú staða að ríkið geti hætt að taka ný lán. Samt væru engar tíma- sprengjur í frumvarpinu sem gætu reynst þeirri ríkisstjórn, sem tekur við á næsta vori, erfíðar. Reiknað er með að hagvöxtur á ár- inu 1999 verði um 4% og spáð er að atvinnuleysi lækki í 9% en það var nærri 20% þegar ríkisstjórn Lipponens tók við fyrir rúmum þremur árum. Hillary sakar Starr um fordóma Washington. The Daily Telegraph. Reuters. HILLARY Rodham Clinton, for- setafrú í Bandaríkjunum, hefur sakað sérstakan saksóknara, Kenn- eth StaiT, um hatur í garð forset- ans, því Bill Clinton sé ættaður frá Arkansas. Starr á rætur að rekja til Texas. „Ég held að þetta sé að miklu leyti fordómar í garð heima- ríkis okkar,“ sagði Hillary. Starr fer með rannsókn á meintu misferli forsetans og mun Clinton bera vitni frammi fyrir rannsóknar- kviðdómi, sem Starr hefur kallað saman, nk. mánudag. Beinist rann- sókn kviðdómsins að því hvort grundvöllur sé fyrir ákæru á hendm- forsetanum vegna embættisafglapa. Orðum forsetafrúarinnar hefur verið svarað á þá leið, að Starr hafi verið búsettur í Arkansas löngu áð- ur en Hillary fluttist þangað. Starr seldi biblíur í bænum Searcy til þess að borga fyrir skólagöngu sína. Álitsgjafar hafa látið í veðri vaka að Hillary sé „mjög tauga- óstyrk" vegna væntanlegs vitnis- burðar Clintons. Clinton mun svara öllum spurningum Talsmaður forsetaembættisins, Joe Lockhart, sagði á miðvikudag að ekkert væri hæft í vangaveltum um að Clinton myndi neita að svava sumum spurningum Starrs á mánu- dag. Lockhart sagði að forsetinn myndi standa við það loforð að gefa „fullkominn og sannferðugan“ vitn- isburð. Kvaðst Lockart telja að skilja mætti þetta sem svo að Clint- on ætlaði að svara öllum spurning- um. Rcutcra Eymd MUN ég nokkurn tíma vaxa upp úr eymdinni? stóð á spjald- inu sem þessi stúlka hélt á í Nýju Delhí á Indlandi í gær. Hópur barna er vinna erfiðis- vinnu á Norður-Indlandi hélt á fund forseta landsins í gær og skoraði á hann að binda enda á erfiðisvinnu barna og skylda þau til skólagöngu. Samtök sem beijast fyrir frelsi ánauð- ugra verkamanna fylgdu hópn- um, 51 barni, einu fyrir hvert ár sem Indland hefur verið sjálfstætt ríki, til Nýju Delhí. Fulltrúar samtakanna segja að á Indlandi séu um 65 milljónir barna neyddar til að vinna erf- iðisvinnu. i. / Flymo 460 Pro Jf Bensínknúiö ý m vélorf fyrir .ú sumarbústaði j og heimagarða. J7 32.5ccmótor. J' 6,1 kg. /7 Sláttuhaus / ogdiskur ./ fyigja. / — — MTD 3.5 hp mótor. Sláttubreidd 51 sm meö stál ^ sláttudekki. <3| §U KRAFTMESTA A MARKAÐNUM! MTD White 5 hp Briggs & Stratton mótor. W 50 lítra grassafnari. Sláttubreidd 53 sm. Fyrir sumarbústaði, stærri garöa, húsfélög ofl. Sláttuvélar - Hekkklippur - Sláttuorf * Garðtætarar - Keðjusagir - Jarðborar UTSAVA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.