Morgunblaðið - 14.08.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.08.1998, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR „HERÐUBREIÐ" 1998. Ásdís sýnir í Stöðlakoti ÁSDÍS Guðjónsdóttir opnar málverkasýningu í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg laugardaginn 15. ágúst. Ásdís stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands frá 1980-1985 og lauk námi frá textíldeild 1984. Hún lauk kennsluréttindanámi frá Háskóla íslands 1992. Ásdís hefur einnig sótt framhaldsnámskeið í grafík, leirkerasmíði og listmeðferð og tekið þátt í uppsetningu nokkurra leiksýninga, en þetta er hennar fyrsta einkasýning. Verkin eru öll unnin á þessu ári. Sýningin verður opin alla daga nema mánudaga og lýkur 30. ágúst. SJÓSÓKN fyrri tfma, ein af ljósmyndunum úr safni þeirra Herdísar og Guðbjartar sem nú eru til sýnis í Hafnarfirði. Aldarminning í ljósmyndum í Hafnarflrði Sýningu lýkur Nýlistasafnið SAMSÝNINGUNNI „Leitin að Snarkinum" í Nýlistasafninu lýkur nú á sunnudag. Þar sýna þrettán listamenn frá Berlín og Reykjavík. NÚ STENDUR yfír ljósmynda- sýning í sýningarsal Halla rakara við Strandgötu 39 í Hafnarfirði. Þar eru sýndar Ijósmyndir úr safni þeirra hjóna Herdísar Guð- mundsdóttur og Guðbjartar Ás- geirssonar, sem kölluð voru Dísa og Bjartur í Kassahúsinu sökum þess að hús þeirra undir Hamrin- um var lengi framan af án hefð- bundins valmaþaks. „Ljósmyndirnar eru frá fyrri hluta þessarar aldar og eru frá atvinnulífinu til sjós og lands sem og frá Hafnarfirði, myndir sem bæjarbúar hafa haft gaman af að Ljóðadag’skrá í Norræna húsinu Morgunblaðið/Arnaldur SKÁLDKONURNAR sem lesa upp. Á myndina vantar Steinunni Sigurðardóttur og Eiísabetu Kristínu Jökulsdóttur. skoða með tilliti til þeirra breyt- inga sem orðið hafa í Firðinum. Efnt er til sýningarinnar nú í tilefni þess að f sumar er liðin öld frá fæðingu Herdísar, en Guð- bjartur var áratugnum eldri. Upphaf ljósmyndunar þeirra var tómstundagaman Guðbjartar sem síðar leiddi til þess að þau hjónin opnuðu í Kassahúsinu fyrstu ljósmyndaþjónustuna í Hafnarfirði. Guðbjartur var matsveinn til sjós og var afkastamikill mynda- smiður bæði til sjós og lands. Þegar svo Kristján X konungur íslands og Danmerkur kom hing- að til lands í opinbera heimsókn áræddi Herdís að reyna fyrir sér með myndavélina líka. Eftir það mátti sjá þessa virðulegu frú í peysufötum með myndavélina við margvíslegustu tækifæri,“ segir í kynningu. Auk ljósmynda þeirra Guð- bjartar og Herdísar má einnig sjá á sýningunni sýnishorn af myndum sem Herdís gerði úr vindlahringjum. Sýningunni lýkur 25. ágúst. GUÐBJARTUR og Herdfs ásamt þrem af börnum sfnum. „Dýpsta sæla og sorgin þunga“ VERK 12 íslenskra Ijóðskálda verða kynnt á dagskrá í Nor- ræna húsinu laugardaginn 15. ágúst kl. 16. Ljóðskáldin eru: Ingibjörg Haraldsdóttir, Gerður Kristný, Steinunn Sigurðardóttir, Þóra Jónsdóttir, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Hallfríður Ingi- mundardóttir, Vilborg Dag- bjartsdóttir og Linda Vilhjálms- dóttir, sem verða allar við- staddar og lesa ljóð sín. Einnig verða lesin ljóð eftír Kristinu Ómarsdóttur, Nínu Björk Ámadóttur, Þuríði Guðmunds- dóttur og Jóhönnu Sveinsdóttur. Elísabet Brekkan les þýðingar á sænsku á nokkrum ljóðum. Ingibjörg Haraldsdóttir verður kynnir og hefur hún haft umsjón með dagskránni. Aðgangur er 700 kr. og gildir einnig að sýn- ingunni Þeirra mál ei talar tunga í sýningarsölum Norræna hússins. KVIKMYNÐIR Stjörnubfó, Laugarásbfó „SLIDING DOORS“ ★% Leikstjóri og handrit Peter Howitt. Tónlist David Hirschfelder. Kvik- myndatökustjóri Remi Adrifarasin. Aðalleikendur Gwyneth Paltrow, John Hannah, John Lynch, Jeanne Tripplehorn, Douglas McFerran, Zara Turner. 100 mín. Bresk. Paramount/Miramax 1998. LÍFIÐ ræðst ekki einvörðungu af yfirveguðum ákvörðunum, heldur engu síður af einskærum tilviljun- um. Við köllum þær örlög, óhöpp, gæfu, eftir því hvernig þær breyta okkur. Peter Howitt, breskur nýliði í leikstjóra/handritshöfundastétt, leikur sér skemmtilega að þessum möguleikum; hvað gæti gerst ef við gætum breytt gangi hlutanna. Aðalpersónan er Helen (Gwyneth Paltrow), snjöll og sæt stúlka í góðu starfi í London, sem fær pokann sinn hjá karlrembustjórum fyrir- tækisins í upphafi myndarinnar. Það sem á eftir kemur fáum við að sjá frá tveimur sjónarhornum. I öðru heldur Helen beint heim, sár og niðurbrotin, og einsog það hálfa væri ekki nóg, kemur hún að Gerry (John Lynch), kærastanum sínum, í bólinu hjá Lydiu (Jeanne Tripp- lehorn), gamalli vinkonu hans. Helen slítur sambandinu, kynnist James (John Hannah), afar þægi- legum og aðlaðandi náunga, og áður en langt um líður hefur hún aldrei haft það betra. Hitt homið er ekki eins huggulegt. Þá missir okkar kona af neðanjarðarlestinni, er rænd, lendir á slysavarðstofunni og kemst loks heim þegar Gerry og Lydia hafa lokið sér af og hún ný- skriðin út. En Helen fer að gruna margt, það eru tvö koníaksglös á borðinu. Annað eftir því. Hún fær vonda vinnu, Gerry er bannsettur skíthæll sem heldur ótrauður fram- hjá henni og tilveran ósköp grá fram að lokauppgjörinu. Howitt segir þessar sögur sam- hliða og gerir það á margan hátt vel, Sliding Doors er besta skemmtun, yfirhöfuð vel leikin, á köflum skemmtilega skrifuð með mörgum fyndnum tilsvörum. Brugðið er upp viðhorfum sem maður veltir oft fyrir sér í daglega lífinu; hvað hefði nú getað gerst, ef... Hins vegar teygir Howitt ful- lengi lopann, teymir okkur inn í full margar hliðarsögur og á í nokkrum vandræðum með að ljúka hugleið; ingum sínum á viðunandi hátt. I báðum útgáfunum fær þó þrjótur- inn makleg málagjöld og söguhetj- an stendur uppi sem sigurvegari kringumstæðnanna. Howitt er með smálega tilburði í þá veru að gera undirtón Sliding Doorsögn alvar- legan, það fer fyrir ofan garð og neðan, eftir stendur prýðileg, róm- antísk gamanmynd, punktum og basta. Maður hefur á tilfinningunni að Howitt hafí ekki tekist ærlunar- verk sitt fullkomlega, það vantar meiri alvöru í verkið til að það veki mann til teljandi umhugsunar um viðfangsefnið. Paltrow er mistæk leikkona, hér er hún í essinu sínu, einkum sem hin lánsama Helen, armæða og mót- læti er eiginlega utan hennar tján- ingarsviðs. Og enski framburðurinn gleymist á stöku stað. Tripplehorn gerir Lydiu hins vegar að alltof mikilli tæfu, hún verður heldur óspennandi valkostur fyrir Gerry, sem John Lynch leikur ágætlega, gerir þó þennan lúða alltof viðkunn- anlegan. Líkt og Lynch, þá er John Hannah, hinn aðalkarlleikarinn, lítt þekktur, þeir hafa til þessa aðeins komið fram í lítilvægum myndum og sjónvarpsefni. Hannah gæti þó orðið nýr Hugh Grant, eða eitthvað þaðan af verra, ef hann gætir sín ekki. Hann kemst leikara best frá myndinni, afar sjarmerandi og væn- legur. Tekur bitið úr ætlunarverki höfundar. Sæbjörn Valdimarsson Marta Guðrún •• og Orn á síðustu tðn- leikunum SÍÐUSTU tónleikar í sumar- tónleikaröð Stykkishólms- kirkju verða haldnir á sunnu- daginn, 16. ágúst, kl. 17.00. Tónleikarnir verða jafnframt síðasti dagskrárliðurinn í há- tíðahöldum á Stykkishólmi er nefnast Danskir dagar. Að þessu sinni munu koma fram tónlistarmennimir Marta Guð- rún Halldórsdóttir sópran- söngkona og Öm Magnússon píanóleikari. Á efnisskrá verða íslensk þjóðlög og norræn í útsetningu Sveinbjöms Sveinbjömssonar og Ferdinads Rauters. Auk þess verða lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Edvard Grieg, Carl Nielsen og Jean Siebelius. Marta og Öm hófu samstarf árið 1990. Þau hafa haldið fjölda tónleika með nýrri og eldri tónlist. Nú fyrir skemmstu fluttu þau íslensk þjóðlög á tónleik- um Ríkisútvarpsins sem út- varpað verður um alla Evrópu í september næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.