Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 29
HESTAR
Mikil hvatnmg og reynsla að
keppa með íslenska liðinu
segja nýliðarnir Reymr Orn Pálmason
og Sigurður H. Óskarsson
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ÞEIR félagar Sigurður Heiðar Óskarsson og Reynir Örn Pálmason
voru vel sáttir við sinn hlut að lokinni töltkeppni og kváðust staðráðn-
ir í að banka á dyr landsliðsins á næsta ári. Vel fer á með fær-
leikum þeirra, Þræði og Kát, sem stinga saman nefjum.
HESTAR
Hedeland f Daiunörku
NORÐURLANDAMÓTí
HESTAÍÞRÓTTUM
„ÞETTA hefur verið mikilvæg og
góð reynsla fyrir mig að fá að taka
þátt í Norðurlandamótinu og fá
sæti í íslenska landsliðinu," sagði
Reynir Örn Pálmason þegar blaða-
maður ræddi við hann að loknum
úrslitum í tölti á mótinu og undir
þetta tók félagi hans Sigurður
Heiðar Óskarsson, en báðir eiga
þeir það sameiginlegt að vera nýlið-
ar í íslensku landsliði í hesta-
mennsku. Eins eru þeir báðir með
öllu óþekktir hér á landi og því með
réttu hægt að segja að þeir hafi í
einu örskoti öðlast frægð í heimi
hestamennskunnar á Islandi.
Auðvitað á toppinn
Reynir sagði þessa daga á
Hedeland hafa verið góðan skóla
fyrir sig auk þess að þátttakan í
mótinu hafi verið stórskemmtileg
og Sigurður samsinnir og bætir við:
„Eg er ánægður með hversu góða
stjórn Sigurður Sæmundsson lið-
stjóri hefur á hlutunum auk þess að
hafa hjálpað okkur að komast í
gegnum þetta mót. Þá eram við
mjög ánægðir með andann í liðinu.“
Hann brosir og þagnar augnablik
þegar spurt er hverjar væntingarn-
ar hafi verið fyrir keppnina en segir
síðan að eins og í allri keppni sé að-
almarkmiðið að ná því besta út úr
hestinum sem mögulegt er hverju
sinni en þegar gengið er enn frekar
á hann viðurkennir hann að hafa
gert sér vonir um að komast í A-úr-
slit í bæði tölti og fjórgangi en segir
svo meira við sjálfan sig en blaða-
mann: „Auvitað stefnir maður alltaf
á toppinn þótt maður hafi nú ekki
hátt um það.“
EINN glæsilegasti hestur Norð-
urlandamótsins, Kjarni frá Kálf-
holti, færði knapa sínum, Hregg-
viði Eyvindssyni, Norðurlanda-
meistaratitil í tölti á mótinu í
Hedeland. Kjarni er stórmyndar-
legur töltari með mikið fas, prúð-
ur á fax og tagl og vel að sigrin-
um kominn. Hann er undan Við-
ari frá Viðvík og Laufu frá Kálfs-
Þeir félagar voru sammála um að
vera þeirra í landsliðinu væri þeim
góð hvatning til að halda áfram á
sömu braut og báðir setja þeir
stefnuna á að komast í landslið á
næsta ári fyrir heimsmeistaramót-
ið. Aðspurðir hvaða hesta þeir
myndu stefna með á HM sögðu þeir
allt opið í þeim efnum. Reynir
kvaðst hafa augastað á einum
fimmgangshesti sem hann vildi
ekki nafngreina því ekki væri allt
frágengið með klárinn. Sigurður
sagðist ekki vera með ákveðinn
hest í huga en vissulega kæmi Kát-
ur frá Störtal til greina. Sigurður
sagði þetta vera hálfgerða fíkn að
komast í landsliðið og nú væri hann
kominn á bragðið og langar í meira.
Bæði Reynir og Sigurður hafa
náð sínum þroska og frama sem
reiðmenn í keppni erlendis. Sigurð-
ur, sem er Reykvíkingur, fór íyrir
fjóram árum, þá átján ára gamall,
til að vinna við hesta í Þýskalandi.
Hann hafði verið í Gusti í Kópavogi
en fékk vinnu hjá Jóhanni G. Jó-
hannssyni í Störtal en fór síðar að
vinna hjá Herberti Ólasyni. Þegar
Jóhann hætti í Störtal tók Sigurður
við honum þar og er nú bústjóri hjá
eigandanum Gúnther Jönk þar sem
era 120 hross.
Sigurður byrjaði fljótlega að
keppa eftir að hann fór út og hefur
meðal annars orðið unglingameist-
ari í 150 metra skeiði og Norður-
Þýskalandsmeistari í fimmgangi.
Hesturinn sem Sigurður var með á
Hedeland heitir Kátur frá Störtal, 7
vetra gamall. Hann er leirljós al-
hiða gæðingur þótt Sigurður hafi
keppt á honum sem fjórgangshesti.
Kátur hefur verið sýndur í kyn-
bótadómi í Þýskalandi og hlotið
meðal annars 8,0 fyrir skeið, 9,35
fyrir tölt og 8,53 fyrir hæfileika.
Sigurður byrjaði að þjálfa Kát í vet-
ur og keppti fyrst á honum á Istölti
Huldu Gústafsdóttur og Hinriks
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
stöðum. Hreggviður keppti nú
sem oft áður fyrir hönd Svíþjóð-
ar á mótinu enda búinn að vera
búsettur í Svíþjóð um árabil.
Þykir Jiað alltaf illskárri kostur
fyrir Islendinga þegar eftirsóttir
titlar tapast í hendur annarra
þjóða að það sé þó Islendingur
sem vinni verkið fyrir útlending-
ana eins og í þessu tilfelli.
Bragasonar þar sem hann sigraði
og síðan fóra þeir á stóðhestasýn-
ingu þar sem þeir kepptu í tölti og
náðu 7,44 í einkunn og komust þar
með í A-klassa, sem er flokkur
hinna fremstu í Þýskalandi. Kátur,
sem er stórbrotinn gæðingur, að
sögn Sigurðar, er undan Kolskeggi
frá Ásmundarstöðum og Ninu frá
Störtal og þar með að þremur
fjórðu bróðir gæðingshryssunnar
kunnu Lokku frá Störtal því Nína
er móðursystir Lokku.
Þráður ekki í sínu besta formi
Reynir útskrifaðist 1995 frá Hól-
um og fór skömmu síðar utan til
Svíþjóðar þar sem hann réð sig í
vinnu hjá Svíanum kunna Göran
Montan. Segist Reynir vera þar í
góðu yfirlæti með afbragðsgóða
hesta og veran á Margaretehof hafi
verið honum góður skóli. Hestur
Reynis, Þráður frá Hvítárholti, er
undan Leisti frá Álftagerði og
Heklu frá Hvítárholti, grár að lit og
mikill og góður reiðhestur að sögn
Reynis. Sérstaklega er hann með
góða yfirferð. „Þetta er svona
MÓTSBRAGURINN á Norður-
landamótinu á Hedeland var hinn
ágætasti þessa daga sem mótið
stóð. Dagskráin var mjög rýmileg,
það er góð hlé milli atriða og tíma-
setningar stóðust í hvívetna. Þótti
sumum reyndar nóg um þessi löngu
hlé og spurning hvort ekki hefði
mátt stytta mótið um einn dag. En
Danir unnu vel á mótinu og voru
allir helstu þættir í góðu lagi. Að-
staðan á Hedeland er allþokkaleg,
vellir svona sæmilegir en tilfinnan-
lega vantar meiri bindingu í efnið í
völlunum. Til að vega þann skort
upp var brautin slóðadregin og ví-
bravöltuð hvenær sem færi gafst,
en með því tókst að halda í horfinu.
Veðrið setti nokkurt strik í móts-
braginn en þó var mjög gott veður
tvo daga af fimm og einstök blíða
síðasta daginn, sem var að sjálf-
sögðu mest um vert. Á laugardegin-
um rigndi linnulítið allan daginn og
var mórallinn farinn að daprast
heldur þegar komið var undir kvöld.
Dönsku þulirnfr eru hreint frá-
bærir og sérstök ástæða til að
hrósa Martin Krarap Nielsen, sem
auk þess að hafa hlýja og góða rödd
er talandi á mörgum tungum og þar
á meðal íslensku. Var hann þulur á
síðasta HM og má mikið vera ef
hann verður ekki fenginn á næsta
HM í Þýskalandi. Systir hans Signe
var einnig þulur og gaf hún bróður
sínum lítið eftir þótt ekki talaði hún
íslensku.
Þá er sérstök ástæða til að minn-
hörku yfirferðarhestur sem gefur
aldrei eftir. Hann var að visu ekki í
sínu allra besta formi nú því þátt-
töku mína í mótinu bar svolítið
brátt að og hann því bara í léttu út-
reiðarformi þegar Ijóst var að ég
keppti hér fyrir Islands hönd,“
sagði Reynir.
„Þráður er mjög sterkur per-
sónuleiki og frekur í allri umgengni
og þarf hann mikinn aga ef hann á
ekki að vaða yfir mann,“ segir
Reynir þegar talið berst að Þræði.
Þetta mun í fyrsta skipti sem klár-
inn keppir í fjórgangi og annað
skiptið sem hann keppir í hefð-
bundna töltinu, fram til þessa hefur
hann verið í slaktaumatölti.
En þeir vora þreyttir og sveittir í
hitanum ungu strákarnir frá ís-
landi eftir átökin í töltinu en mjög
glaðir með árangurinn og tækifær-
ið sem þeim var gefið til að keppa
fyrir Island og verður fróðlegt að
sjá hvernig þeim mun ganga í hinni
hörðu samkeppni um sæti í íslenska
landsliðinu að ári.
Valdimar Kristinsson
ast á tónlistarflutning á mótinu,
sem að mestu var mjög góður en
kannski gengið fulllangt í flutningi
tölvuhljóðáhrifa. En þau lög eða
lagabútar sem leikin voru náðu vel
að magna stemmninguna upp.
Einnig er full ástæða til að minn-
ast á mótskrána, sem var fyrir
margra hluta sakir einstök. I það
minnsta frá sjónarhorni okkar ís-
lendinga. í upplýsingum um hesta
og knapa era íslenskir stafir notað-
ir og ekki um að ræða afkáralegar
afbakanir á nöfnum hesta eða bæj-
arnöfnum eins og algengt er á mót-
um erlendis þar sem íslenskir hest-
ar koma við sögu. Ritstjóri danska
blaðsins Tölt upplýsti að blaðið
hefði í fórum sínum forrit með ís-
lenku letri og hefur það vafalítið
verið notað við gerð skrárinnar. Þá
er í skránni stutt ágrip af sögu
Norðurlandamótanna eftir Marit
Jónsson og ýmiss konar tölulegar
upplýsingar um hesta þátttakenda.
Fyrir skránni era skráð áðurnefnd-
m- Martin, Susan Christensen og
Bente Nordbjerg Nielsen og eiga
þau lof skilið.
Á Hedeland ríkti notalegur og
góður andi, mun betri en náðst hef-
ur til dæmis á mótum í Vilhelms-
burg, og má segja að þarna hafi
ríkt þessi eina og sanna danska
stemmning sem Islendingar sækja
í þegar þeir sækja frændur vora
Dani heim.
Valdimar Kristinsson
Kolbrá 21
vetra gömul
í FRÁSÖGN af hestamóti Loga í
Hrísholti í hestaþætti Morgunblaðs-
ins var sagt að Kolbrá frá Kjarn-
holtum hefði komið þar fram og far-
ið sinn síðasta opinbera skeiðsprett
átján vetra gömul. Aldurinn var
ekki alveg réttur því hún mun vera
21 vetra gömul, nánar tiltekið fædd
15. júní 1977 klukkan fjögur síðdeg-
is eins og Magnús Einarsson í
Kjarnholtum orðaði það þegar aldur
hennar barst í tal við blaðamann.
Þess má einnig geta að Kolbrá
vann Kolbrárbikarinn, sem veittur
er því innanfélagshrossi sem best-
um tíma nær í 150 metra skeiði.
Magnús gaf þennan bikar á sínum
tíma eftir að Kolbrá hafði sett vall-
armet í Hrísholti, sem var 14,4 sek.
Og enn má halda áfram því Hraði
frá Sauðárkróki og Logi Laxdal
slógu þetta gamla vallarmet Kol-
brár á umræddu móti og fóru þá á
13,9 sek. eins og fram kom í umfjöll-
un um mótið.
----------------
Enn og aftur
mót á Skagan-
um og bikarmót
fyrir norðan
ÚTHALDIÐ er gott hjá Skaga-
mönnum því þótt þeir hafi haldið
eitt „smá“ íslandsmót fyrir tæpum
mánuði hefði mátt ætla að þeir
teldu gott komið af mótahaldi að
sinni. En svo er nú aldeilis ekki því
um helgina halda þeir sitt árlega ís-
landsbankamót.
Nú sem fyrr verður keppt í öllum
greinum sem næg þátttaka verður í
og um miðja vikuna var þátttaka
orðin all þokkaleg. Era þar margir
góðir hestar og knapar komnir á
blað og má því ætla að mótið nú
verði enginn eftirbátur fyrri ís-
landsbankamóta.
Þá verða norðlenskir hestamenn
með bikarmót Norðurlands á
Króksstaðamelum í Vestur Húna-
vatnssýslu um helgina. Keppnin er
bæði keppni félaganna fyrir norðan
og eins keppni einstaklinganna sem
skipa liðin. Forkeppnin fer fram á
laugardag og úrslit verða á sunnu-
dag.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
MARTIN KRARUP Nielsen hef-
ur skipað sér í frenistu röð þula
á mótum þar sem íslenskir hest-
ar koma við sögu, en auk þess
var hann ritstjóri mótsskrár-
innar, sem er afar vel lukkuð.
Svarta perlan
sigraði í tölti
„Dejligt“ hjá Dönunum