Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.08.1998, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BJÖRG SIGRÍÐUR SÆBY HELGADÓTTIR + Björg Sigríður Sæby Helga- dóttir fæddist í Reykjavík 10. maí 1929. Hún lést á heimili sínu, Faxa- túni 3 í Garðabæ, 7. ágúst síðastliðinn. Foreldrar: Helgi Einarsson, fæddur á Eyrarbakka 16.7. 1903, d. 13.1. 1995 og Kristín Andrea Sæby Friðriksdótt- ir, fædd á Siglufirði 29.12. 1906. Systur Bjargar eru Oddný, maki Kristján Sigurðsson og Erla, maki hennar er Haraldur Eyjólfsosn. Björg giftist Sigurgeiri 01- sen, f. 2.1. 1926, d. 1.7. 1995. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Kristín, f. 4.10. 1947, d. 7.10. 1969, barn hennar er Odd- ný Ágústsdóttir, f. 8.5. 1965, sambýlismaður hennar er Karsten Jensen. 2) Helgi, f. 14.5. 1951, maki hans er Sæ- björg Einarsdóttir, f. 7.11. 1955. Börn þeirra eru: 1) Kristín Björg, sambýlismaður hennar er Kristinn, og þeirra barn heit- ir Nadia Eir. 2) Einar Sigur- geir, hans sambýliskona er Margrét og barn þeirra heitir Sæbjörg. Björg giftist 29.12.1956 Árna Jóhannssyni, vélsljóra, f. 21.2. Kvödd er nú og guði falin ástkær systir og yndisleg mágkona, Björg Sigríður Sæby Helgadóttir. Hún andaðist hinn 7. ágúst síðastliðinn á heimili sínu, Faxatúni 3, Garða- bæ, á sjötugasta aldursári úr ólæknandi sjúkdómi. Enda þótt við trúum því, sem við finnum svo glöggt, að skilnaður ástvina er aldrei alger, er söknuð- urinn sár, þegar leiðir skilur um sinn. Þá vaknar krafan um að tjá þakklæti fyrir samferðina, sem þá er að baki. Um leið rifjast upp minningamar mörgu. Flestar geymast þær í huganum, eins og perlur í djásni, svo persónulegar, að þær verða ekki tjáðar öðrum. Björg Helgadóttir var eins og klettur, sem þyngstu öldur brotn- uðu á, en jafnframt miðlaði hún 1926, d. 21.6. 1984. Foreldrar Árna voru Jóhann Bjarni Loftsson, f. á Eyrar- bakka 24.1. 1892, d. 26.10. 1977 og Jónína Hannesdótt- ir, f. í Sandvíkur- hreppi, 8.8. 1895, d. 19.6. 1942. Börn þeirra: 1) Margrét Björg, f. 4.2. 1956, maki Jón Gunnar Gíslason, f. 8.4. 1956. Þeirra böm em Árný, Björg Elva og Jón Arnar. 2) Markús Már, f. 5.10. 1957, maki Karen Haraldsdóttir, f. 15.11. 1957. Þeirra börn eru Katharína, sambýlismaður Har- aldur, barn þeirra Birta Karen; Árni Már og ívar Már. 3) Haf- steinn Viðar, f. 2.6. 1959, maki Guðmunda Valdimarsdóttir, f. 26.9. 1960. Þeirra börn em Huld, Hlynur og Jóhann. 4) Auður, f. 7.6. 1961, maki Har- aldur Ámason, f. 8.3. 1962. Þeirra börn eru Freyja og Ámi Freyr. Björg tók gagnfræðapróf frá Ingimarsskóla. Eftir skóla- göngu vann Björg ýmis störf en mestan hluta ævi sinnar var Björg heimavinnandi húsmóðir. títför Bjargar fer fram frá Garðakirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 15. ríkulega af örlæti hjartans, ekki síst þeim, sem urðu á brattann að sækja í lífinu. Fyrri maður Bjargar var Sigur- geir Olsen, bifreiðastjóri, sem látinn er. Þau slitu samvistir. Böm þeira voru Kristín, sem lést af slysfórum í október 1969, og Helgi. Seinni mað- ur Bjargar var Ami Jóhannsson, vélstjóri, kennari við Vélskóla Is- lands. Hann lést í júm' 1984. Þau eignuðust fjögur böm: Margréti, Markús, Hafstein og Auði. Öll em þau búandi dugnaðar- og mann- kostafólk sem og Helgi sonur Bjargar af fyrra hjónabandi. Falleg og einlæg fjölskyldubönd vora æv- inlega milli Bjargar og tengdabam- anna og fjölskyldna þeirra. Þegar Kristín, elsta dóttir Bjargar, lést af slyföram, sem fyrr t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI GUÐMUNDSSON fyrrv. lögreglumaður, Skúlagötu 40, Reykjavík. verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag, föstudaginn 14. ágúst, kl. 13.30. Elín Helga Þórarinsdóttir, Þórarinn Gíslason, Bryndís Benediktsdóttir, Guðný Gísladóttir, Sigurgeir Guðmundsson, Guðmundur Ingi Gíslason, Vigdís A. Gunnlaugsdóttir, Hrafnkell V. Gíslason Björg Eysteinsdóttir, Brynhildur Ósk Gísladóttir og barnabörn. t Móðir mín, amma okkar og langamma, SIGURDÍS JÓHANNESDÓTTIR frá Svalhöfða, Valdasteinsstöðum, Hrútafirði, verður jarðsungin frá Hjarðarholtskirkju á morgun, laugardaginn 15. ágúst, kl. 11.00 árdegis. Elsa Gísladóttir, dótturdætur og fjölskyldur þeirra. greinir, hafði ún eignast dótturina Oddnýju Ágústsdóttur. Gengu þau Björg og Árni henni í foreldrastað af miklum kærleik. Oddný Helgadóttir, Kristján Sigurðsson. Elsku hjartans amma, Það er erfitt hjá okkur öllum þegar við fengum þær fréttir í janúar sl. að þú værir orðin lasin. Afi dó úr krabbameini og við áttum erfitt með að sætta okkur við að þú hefð- ir líka fengið þennan sjúkdóm. En nú er þrautinni lokið og þú ert horfin frá okkur. Nú ertu komin til afa og hann passar þig fyrir okkur. En minningin um þig er ljúf og góð. Það er gott að geta hugsað til baka til allra þeirra stunda sem við áttum saman. í Faxatúnið var gott að koma, þar var alltaf svo fínt hjá þér og bónað út úr dyrarn. Og alltaf til kaka, Faxatúnskakan. Húsmóðir varstu af lífi og sál. Glæsileg varstu sjálf, alltaf svo vel til höfð og fín. Þú vildir að öllum gengi vel og hafði áhyggjur ef eitthvað var að hjá okkur. Þú varst tilbúin til að hjálpa okkur og aðstoða. Ef það var ferm- ing eða veislu varst þú á heimavelli því þú varst meistarakokkur. Þegar við gistum hjá þér í afabóli fórstu ávallt með bænimar með okkur og ein bæn situr föst eftir í minni okk- ar: Vertu nú yfir og allt um kring. Þú tókst líka þátt í áhugamálum okkar, sem voru íþróttir, og varst stolt af okkur. Við minnumst einnig góðra tíma sem við áttum saman í húsi ykkar afa í Danmörku, þar sem okkur öllum leið svo vel, um- kringd ást þinni og hlýju. Elsku amma, okkur langar til að þakka þér fyrir þann tíma sem við fengum að eiga með þér og alla þá ást, hlýju og hjálp sem þú gafst okkur. Minning þín lifir. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Katharína, Árni Már og Ivar Már. Elsku amma. Stundum er lífið svo ósanngjamt að erfitt er að trúa því. Að þú, amma, skyldir veikjast af þessum hræðilega sjúkdómi. Allt gerðist svo hratt. Þú veiktist, persónan sem við þekktum hvarf bak við þjáningamar og nú ertu farin. Sárt er að hugsa til þess að eiga aldrei aftur jafngóðar stundir með þér og við áttum saman. Mér fannst svo gott að fá þig og Oddnýju til okkar á gamlárskvöld. Þegar flugeldarnir fóra að springa skýldi ég mér undir pelsinum þín- um og við horfðum saman á ljósa- dýrðina, þér þóttu flugeldar svo fallegir. Eitt sinn þegar ég gisti hjá þér, og átti erfitt með að sofna, sagðir þú sögu frá því þegar þú varst lítil í búleik. Það sem mér fannst mest spennandi var að þú hafðir gamalt vöfflujám í búinu og bjóst til vöffl- ur úr gorkúlum. Það var svo gott að koma til þín í notalegheitin, fá volga, brúna köku og ískalda mjólk. Mér fannst líka alltaf svo notalegt að koma inn í góðu lyktina hjá þér sem ég kalla „ömmulykt“. Það er svo sárt að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að koma til þín, elsku amma. En eins og sagt er í Spámanninum: „Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Elsku amma mín, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkm- systkinin. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Eg sakna þín sárt. Þín Huld. Elsku amma mín, ég bað Guð um að gefa þér meiri styrk svo að þér liði betur og gætir verið hjá okkur lengur á meðan þú varst veik. En nú hefur Guð komið friði yfir þig eftir erfið veikindi og þú hvílir i friði og ró hjá afa. Það var svo gott að koma til þín, mæta brosi þínu og faðmlagi. Mér leið alltaf svo vel hjá þér. Þú sýndir mér og öllum alltaf svo mikla ást og umhyggju og vild- ir allt fyrir mann gera. Þú kenndir mér svo margt, að vera ánægð með lífið og vera þakklát fyrir það sem maður á og fær. Eg veit núna hvað ég er lánsöm að hafa átt þig að og ég geymi minningarnar okkar vel í hjarta mínu. Elsku amma mín, ég veit að þú vilt að maður sé sterkur en það er svo erfitt þegar söknuðurinn er svona mikill. Eg ætla að kveðja þig + Við þökkum innilega þann hlýhug og samúð til okkar við andlát og útför okkar ástkæru, SVANHVI'TAR JÓNSDÓTTUR, Eyrarholti 2. Jón Hlífar Aðalsteinsson, Júlíus Júlíusson, Pétur Jónsson, Einar Aðalsteinn Jónsson, Þorbjörg Ó. Jónsdóttir, Sigurður F. Jónsson, Björg Ó. Helgadóttir. Kristín B. Jónsdóttir, Ólafur Júlíusson, Arna Hreinsdóttir, Eyrún Jóhannesdóttir, Karl R. Róbertsson, t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR JÓNSSON. Fyrir hönd barna, systkina, foreldra og annarra ástvina, Páll H. Þormóðsson. með erindi úr Hávamálum til minn- ingar um þig. Guð geymi þig, elsku amma mín. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Björg Elva. Elsku amma mín, núna er ég í framandi landi langt í burtu frá Is- landi. Ég get einungis verið við- stödd í huganum þegar þú verður kvödd í hinsta sinn. En við vissum báðar þegar við kvöddumst að það væri í hinsta sinn. Þú hélst í höndina á mér og sagðir að ég yrði að vera dugleg og að svona væri lífið. En það er bara svo erfitt að sætta sig við að ég fái ekki að sjá þig aftur, elsku amma mín, þú sem hefur alltaf verið svo stór hluti af lífi mínu. Þú kenndir mér svo margt og hafðir alltaf svo mikla trú á mér og okkur öllum. Og þú hvattir mig áfram í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Þú kenndir mér að bara virðingu fyrir öllu fólki og vera alltaf góð við aðra því að það sem þú vilt að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra. Elsku amma mín, ég bað til Guðs á hverju kvöldi síðan þú veiktist að þú þyrftir ekki að líða svona miklar kvalir og að hann myndi vaka yfir þér. Ég veit að núna ertu hjá afa á fallegum stað þar sem þér líður vel. Þú og afi munuð alltaf eiga afar sérstakan stað í hjarta mínu. Elsku fjölskylda, megi Guð veita ykkur styrk í sorginni. Elsku amma, það verður erfitt að lýsa því með orðum hversu sárt við eigum eftir að sakna þín. Það er alltaf erfitt að horfa á eftir þeim sem manni þykir vænt um. Mikið skarð hefur myndast í lífi okkar en við verðum að reyna að brosa í gegnum tárin og fylla upp í það með góðum minningum um þig og alla hlutina sem við gerðum saman. Það var alltaf svo gaman að koma til þín í Faxatúnið því við máttum næstum gera allt sem okk- ur langaði til, brúnkakan þín gleymist seint með góða súkkulaði- kreminu og pönnukökurnar. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur í gegnum súrt og sætt því þú elskað- ir okkur svo mikið. En góðar minn- ingar era gulls ígildi á svona tímum og verða óspart rifjaðar upp um ókomin ár. Það er erfitt að vera svona langt í burtu frá þér núna, við hefðum svo gjaman viljað geta gengið með þér síðasta spölinn elsku amma, en við vitum að afi mun taka vel á móti þér á öðrum og betri stað. Þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Égvarlítið bam og spurði móður mína hver munur væri á gleði og sorg. Móðir mín strauk yfir hár mitt og svaraði: Sá maður sem aldrei kennir sorgar í hjarta sínu getur ekki glaðst því hann þekkir ekki sorgina. (Þórunn Magnea.) Þín Freyja og Árni Freyr. • Fleiri minningargreinar um Björgu Sigríði Sæby Helgadóttur bíða birtingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.