Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913
189. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fundinn
sekur eft-
ir 30 ár
Hattiesburg í Mississippi. Reuters.
KU KLUX KLANleiðtogi sem
uppnefndur var „mesta illmenn-
ið í Mississippi" hefur verið
fundinn sekur um að hafa fyrir
32 árum myrt kaupmann sem
vildi leggja
sitt af mörk-
um svo
svertingjar
gætu tekið
þátt í kosn-
ingum.
Kviðdóm-
ur í Banda-
ríkjunum,
skipaður sex
hvítum
mönnum, fimm svörtum og ein-
um af asískum uppruna, fann
Sam Bowers, fyrrverandi höfð-
ingja hinna Hvítu riddara Ku
Klux Klan, sekan um morðið á
Vemon Dahmer, héraðsstjóra
Landssamtaka um réttindabar-
áttu litaðra (NAACP), árið 1966.
Það ár hafði Vemon kallað yf-
ir sig reiði Klan-samtakanna,
sem berjast fyrir yfirráðum
hvítra, með því að leyfa svert-
ingjum að greiða atkvæðisskatt,
svonefndan, í verslun sinni.
Skatturinn var settur á í Miss-
issippi í þeim tilgangi að koma í
veg fyrir að svertingjar gætu
neytt atkvæðisréttar, en Hæsti-
réttur Bandaríkjanna úrskurð-
aði hann ólöglegan.
Dahmer vai' myrtur eftir að
Klansmenn hentu eldsprengju
inn í hús hans, þar sem fjöl-
skyldan var sofandi. Eftir að
hafa hjálpað fjölskyldu sinni út
úr húsinu skiptist Dahmer á
skotum við Klan-mennina.
Lífstíðarfangelsi
Bowers er 73 ára kaupsýslu-
maður og hefur áður verið
dæmdur sekur í tengslum við
morð á þrem mannréttindasinn-
um 1964. Hann hafði fjórum
sinnum áður verið dreginn fyrir
dómstóla vegna ákæra um aðild
að íkveikjunni í húsi Dahmers. í
öll skiptin var kviðdómurinn að-
eins skipaður hvítum mönnum
og komst ekki að niðurstöðu.
Samkvæmt lögum í Miss-
issippi hlýtur Bowers sjálfkrafa
lífstíðarfangelsisdóm. Verjandi
hans sagði að úrskurðinum yrði
áfrýjað. Ekkja Dahmers, Ellie,
grét þegar úrskurðurinn lá fyr-
ir og sagði: „Þetta er gleðistund
fyrir [fjölskyldunaj. Við höfum
beðið hennar í 30 ár.“
Kosningaloforð sænsku flokkanna
Reuters
Auknar bæt-
ur og skatta-
lækkanir
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ENDURFUNDIR við kunnugleg
kosningamál blasa við Svíum nú
þegar tveir stærstu flokkamir,
Jafnaðarmannaflokkurinn og
Hægriflokkurinn, hafa lagt fram
stefnuskrár sínar fyrir kosningarn-
ar 20. september nk.
I heimi jafnaðarmanna er krepp-
an gengin yfir og þvi hægt að út-
deila bótum og upjpbótum á ný til
útvalinna hópa. I heimi hægri-
manna eiga lækkaðir skattar að
koma öllum til góða og betri for-
sendur fyrirtækja eiga að auka at-
vinnu. Skoðanakannanir nýlega
sýna mikla fylgisaukningu Vinstri-
flokksins, sem neyðir jafnaðarmenn
til að huga að því hvemig ná megi
til þeirra kjósenda.
Jafnaðarmenn ætla sér ekki að
nota betri efnahagsstöðu til að
lækka skatta heldur deila út til út-
valinna hópa því sem handbært er.
Þessir hópar era barnafjölskyldur
og ellilífeyrisþegar. Þeim fyrr-
nefndu er lofað hærri barnabótum
og ódýrari bamagæslu, en þeim síð-
amefndu hærri lífeyri og hærri
húsaleigustyrk.
Jafnframt er stefnt að því að
greiða niður ríkisskuldirnar, sem
nema 1.400 milljörðum sænskra
króna, „yfirþyrmandi baggi á kom-
andi kynslóðir, sem þær ættu ekki
að þurfa að greiða fyrir okkur“,
sagði Göran Persson, leiðtogi Jafn-
aðai-mannaflokksins og forsætisráð-
herra, er hann kynnti stefnuskrána.
Meira fé verður einnig varið til
skóla og menntunar og til náttúru-
verndar.
Carl Bildt, leiðtogi Hægriflokks-
ins, lagði áherslu á að Svíar þyrftu
að ná aftur fyrri stöðu sem leiðandi
Evrópuríki, er hann kynnti stefnu-
skrá síns flokks. Kveðja ætti bóta-
veldi jafnaðarmanna og fara aðrar
leiðir, lækka skatta og búa í haginn
fyrir atvinnusköpun og ný fyrir-
tæki.
Markmiðið er 30% tekjuskattur,
en 50% jaðarskattur. í stað aukinn-
ar niðurgreiðslu á bamagæslu kjósa
hægrimenn skattafrádrátt til bai-na-
fjölskyldna, sem nýtist þá öllum
barnafjölskyldum, ekki aðeins þeim
sem hafi böm á barnaheimilum.
Stefnt er að því að skuldir ríkis-
ins verði komnar niður í 60% þjóð-
arframleiðslu eftir fjögur ár, sem er
ein af forsendum Evrópska mynt-
bandalagsins, EMU, en takmarkið
er 50%. Aukin Evrópuumsvif eru
hjartans mál hægrimanna, en í
stefnuskrá jafnaðarmanna fer lítið
fyrir Evrópumálum.
Nýlegar skoðanakannanir benda
til að fylgi jafnaðarmanna sé um
37%, hægrimanna um 26% og
Vinstriflokksins ellefu prósent.
Minningarat-
höfn í Omagh
YFIR 40 þúsund manns komu sam-
an í miðbæ Omagh á Norður-ír-
landi í gær þar sem þess var
minnst að vika var liðin síðan
sprengja varð 28 manns að bana
og slasaði rúmlega tvö hundruð í
bænum. Hinn sanni írski lýðveldis-
her, klofningshópur úr Irska lýð-
veldishernum, IRA, hefur lýst til-
ræðinu á hendur sér. Það er hið
mannskæðasta í sögu átakanna á
Norður-Irlandi.
Annar klofningshópur úr IRA,
írski þjóðfrelsisherinn, lýsti yfir
vopnahléi frá og með hádegi í gær,
en líkt og IRA berst þjóðfrelsisher-
inn fyrir endalokum breskra yfir-
ráða á N-Irlandi.
Segja tvær þotur
skotnar niður
Goma í Kongó. Reuters.
UPPREISNARMENN er berjast
gegn forráðum Laurents Kabilas,
forseta Lýðveldisins Kongós, kváð-
ust í gær hafa skotið niður tvær
zimbabvískar orrustuþotur „á vest-
urvígstöðvunum", að því er einn
leiðtoga uppreisnarmannanna
sagði á fréttamannafundi í Goma,
skammt frá landamærunum að Rú-
anda.
„Þetta er bara viðvörun," sagði
leiðtoginn, Bizima Karaha, fyrr-
verandi utanríkisráðherra í stjórn
Kabilas. „Þeir verða að skilja að
fólk í Kongó lætur ekki bjóða sér
erlenda árás. Málgagn stjórn-
valda í Zimbabve greindi frá því í
gær að sendur hefði verið her til
Kinshasha, höfuðborgar Lýðveld-
isins Kongós, til að aðstoða her-
sveitir Kabilas. Haft var eftir
stjórnarerindrekum að um 600
hermenn og fjórar orrustuþotur
kunni að hafa verið fluttar til
Kinshasha.
Uppreisnarmenn sögðu enn-
fremur í gær að sókn þeirra til
höfuðborgarinnar héldi áfram og
að þeir vspru nú komnir í útjaðar
hennar. Þeir ættu aðeins um 30
kílómetra ófarna. Á föstudag
kváðust þeir vera í 100 km fjar-
lægð.
10
Öll spjót
standa á
ríkisstjórninni
FJÁRHIRÐAR
FRAMTÍÐAR