Morgunblaðið - 23.08.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.08.1998, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Spenna og óvissa er ríkjandi vegna þeirrar stöðu sem upp er komin um sölu ríkisbankanna og endurskipulagningu fjármálamarkaðarins MIKIL óvissa og spenna ríkir á íslenskum fjár- málamarkaði vegna þeirrar nýju stöðu sem upp er komin varðandi áform stjórnvalda um einkavæðingu ríkisbankanna, Landsbanka íslands hf., Búnaðar- banka íslands hf. og Fjárfestingar- banka atvinnulífsins hf. (FBA). Könnunarviðræður eru i gangi um kaup sænska SE-bankans á ráð- andi hlut í Landsbankanum, spari- sjóðirnir sækjast eftir kaupum á Fjárfestingarbankanum, íslands- banki hf. gerir kauptilboð í Búnað- arbankann og Búnaðarbankinn vill kaupa FBA. Stjórnendur FBA vilja hins vegar halda sjálfstæði bank- ans og bjóða út hlutabréf á mark- aði. Ljóst er af samtölum við stjórnarliða að umtalsverður ágreiningur er innan ríkisstjómar- flokkanna um hvaða leiðir beri að fara við sölu á eignarhlut ríkisins, hversu hratt eigi að ganga fram við sölu bankanna og hvaða aðferðir verði viðhafðar. „Vandinn er sá að ríkisstjórnin hefur ekki myndað sér skoðun á því hvað þeir vilja gera. Mér fínnst sjálfum ákaflega ruglingslegt að heyra alla þessa umræðu og það er orðið brýnt að ríkisstjórnin taki af skarið og taki einhverja forystu í því hvernig menn ætla að vinna úr þessu. I dag tala menn út og suð- ur,“ sagði háttsettur viðmælandi blaðsins innan bankakerfisins. Stefnubreytíng Upphafleg stefnumörkun stjóm- valda við hlutafélagavæðingu ríkis- bankanna og stofnun FBA fól í sér að seld verði 49% hlutafjár í FBA á þessu ári, heimilt yrði að auka hlutafé ríkisviðskiptabánkanna um 35% en sölu bankans var frestað í allt að fjögur ár. Nefnd fjögurra ráðherra um einkavæðingu hefur í sumar rætt um tillögur viðskipta- ráðherra um endurskipulagningu á fjármálamarkaði og að nauðsynlegt sé að ráðast sem fyrst í eignasölu og flýta einkavæðingu ríkisbank- anna. Selja þurfi eignir fyrir 10-11 milljarða kr. sem myndi skila ríkis- sjóði 3-4 milljörðum í söluhagnað umfram bókfært verð. Tillögumar vom kynntar í þingflokkum stjórn- arinnar í lok júlí. Yfirlýsing Halldórs Ásgrímsson- ar utanríkisráðherra í Morgunblað- inu 30. júlí um þær hugmyndir að erlendur eignaraðili komi inn í Landsbankann og að viðræður hafi farið fram við erlenda banka um kaup á eignarhlut í Landsbankan- um vakti mikla athygli. Kom síðar á daginn að um var að ræða SE- bankann. Halldór lýsti jafnframt yfir að æskilegt væri að sameina Búnaðarbankann og FBA. Þessar yfirlýsingar áttu stærstan þátt í að skriða kauptilboða og viðræðna um sameiningu banka fór af stað, að mati heimildarmanna sem rætt var við við vinnslu greinarinnar. ís- landsbanki og sparisjóðirnir hafi viljað skapa sér stöðu í þeirri upp- stokkun sem stæði fyrir dyrum. „Þegar gefinn var kostur á viðræð- um við SE-bankann var allt í einu breytt um stefnu,“ segir stjórnar- þingmaður í samtali við Morgun- blaðið. Ekki var greint frá viðræðunum við SE-bankann á þingflokksfund- um stjómarflokkanna. Sjálfstæðis- þingmaður segir að þingmenn hafi fyrst séð þetta í fréttum og komið mjög á óvart. „Sala ríkisbankanna er svo stórt og vandmeðfarið verk- efni að það er gjörsamlega óviðun- andi að þingmenn stjómarflokk- anna fái þær fregnir með þessum hætti,“ sagði hann. Annar sjálfstæð- ismaður sagði í samtali við blaðið að útspil Halldórs Ásgrímssonar um sameiningu Búnaðarbankans og FBA hefði aldrei verið rætt í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins. komulag náist á viðskiptalegum forsendum um verð sem hægt sé að byggja á. 14 manna sendinefnd frá Svíþjóð var hér á landi alla seinustu viku við að afla sér gagna og kynna sér starfsemi í hinum ýmsu deildum Landsbankans. Voru flestir þeirra famir af landi brott nú um helgina en í framhaldi af þessari gagnaöflun verða teknar ákvarðanir um hvort samningaviðræður verða teknar upp. Flestir em þeirrar skoðunar að mikil alvara sé í þessum viðræð- um af hálfu SE-bankans Samhliða þessum hræringum hafa stjórnendur Landsbankans lokið undirbúningi vegna útboðs á 15% viðbótarhlutafé í bankanum og stendur til að það verði boðið út í byrjun september. Starfsmönnum Mikill spenna er innan banka- kerfisins og titringur í stjórnar- flokkunum vegna hinnar hröðu atburðarásar síðustu vikna varð- andi fyrirhugaða einkavæðingu Landsbankans, Búnaðarbankans og Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins. Forsvarsmenn fjármála- stofnana og þingmenn í báðum stjórnarflokkunum segja að öll spjót standi nú á ríkisstjórninni og mjög brýnt sé að hún ákveði næstu skref við endurskipulagningu bankakerfisins og skeri úr um hvort strax verður ráðist í sölu á eignarhlut ríkisins í bönkun- um. Margir óttast að hlutirnir hafi gerst allt of hratt og stjórnvöld hafi ekki full tök á málinu. Afleiðingin geti orðið sú, að einkavæð- ingu bankanna og hagræðingu á fjármálamarkaði verði frestað. Ómar Friðriksson fjallar um hræringarnar í bankamálunum. Svigrúm til að fóta sig á markaðinum Landsbankanum og Búnaðar- bankanum var breytt í hlutafélög frá og með seinustu áramótum skv. lögum frá Alþingi. Er óheimilt að selja eignarhluti ríkissjóðs í bönkunum nema með samþykki Alþingis. Stefna stjórnvalda um sölu bankanna var sett fram í greinargerð með lagafrumvarpinu þar sem sagði m.a.: „Það er stefna ríkisstjórnarinnar að hinum nýju hlutafélagsbönkum verði gefið nokkurt svigrúm til að fóta sig á markaðinum. Þau sjónarmið hafa komið fram að óvissa um eignar- hald hlutafélagsbankanna geti leitt til þess að þeir eigi erfiðara með að ná hagstæðum kjörum í lánasamn- ingum við erlenda lánveitendur. Til að tryggja festu í rekstri hluta- félagabankanna er miðað við að ríkissjóður selji ekki hlutabréf sín í þeim fyrstu fjögur rekstrarár þeirra. Hins vegar er gert ráð fyr- ir að ráðherra geti heimilað útboð á nýju hlutafé í hlutafélagsbönkun- um.“ Útboði á hlutafé voru þau tak- mörk sett að samanlagður eignar- hlutur annarra aðila en ríkissjóðs mætti ekki vera hærri en 35% af heildarfjárhæð hlutafjár í hvorum bankanna um sig. „Þegar til sölu á hlutabréfum í hlutafélagsbönkunum kemur er það mat ríkisstjórnarinn- ar að allir aðilar í landinu eigi að hafa rétt til að eignast eignarhlut í bönkunum. Jafnframt beri að stefna að dreifðri eignaraðild," sagði þar ennfremur. Áhugi á samtvinnun bankaþjónustu og trygginga Atburðarásin hefur verið hröð síðustu vikur. Könnunarviðræður hófust fyrr í sumar á milli SE-bank- ans og viðskiptaráðuneytisins um möguleika á sölu á ráðandi hlut í Landsbankanum. Utanríkisráð- herra sagði viðræðurnar fara fram að frumkvæði SE-bankans. í júlí lá fyrir að sænski bankinn gerði kröfu um að kaupa 33,3% eignarhlut í íslandsbanka hófu könnunarviðræður við fulltrúa við- skiptaráðuneytisins, vegna tilboðs bankans í Búnaðarbankann, síðastliðinn föstudag. bankanna mun standa til boða að kaupa 5% hlut á innra virði en af- gangurinn fer í dreifða sölu á al- mennum markaði með áskriftarfyr- irkomulagi. Stjómendur bankans hafa um skeið talið brýnt að styrkja eigið fé bankans með því að bjóða út nýtt hlutafé og skrá bankann á verðbréfamarkaði. Áframhaldandi kaup bankans á 50% eignarhlutan- um í VÍS þrýstu á um að svo yrði gert og lýsti Halldór J. Kristjáns- son bankastjóri því yfir í vor að brýnt væri að ganga frá þessum málum fyrir mitt þetta ár. Halldór hefur einnig ítrekað lýst áhuga á að styrkja Landsbankann með sam- starfí við erlendar fjármálastofnan- ir. Kröfur SE-bankans taldar fela í sér yfirtöku Landsbankans í umræðunni að undanfömu hafa forystumenn Framsóknarflokksins fyrst og fremst verið málsvarar við- ræðnanna við SE-bankann en for- ystumenn Sjálfstæðisflokksins vilj- að fara varlega í sakirnar. Berlega hefur komið í ljós ágreiningur um hvemig staðið hefur verið að við- ræðunum við SE-bankann. Björn Bjarnason menntamálaráðherra segir í umfjöllun um þessi mál á heimasíðu sinni á Netinu 15. ágúst sl.: „Hugmyndin um, að einn er- lendur banki fái úrslitaáhrif í Landsbanka íslands, hefur almennt mælst illa fyrir og spillt fyrir áform- um um sölu ríkisbankanna; orðið vatn á myllu þeirra, sem ekki vilja selja.“ Ymsir viðmælendur innan Landsbankanum og vildi að jafn- framt gæfust möguleikar á að bank- inn gæti eignast 51% hlut, skv. heimildum Morgunblaðsins. Talsmenn SE-bankans hafa lýst áhuga á samtvinnun bankaþjónustu og tryggingastarfsemi en SE-bank- inn hefur nýlega tekið yfir Trygg- Hansa-tryggingafélagið og er í dag annað stærsta fjármála- og sjóða- stjórnunarfyrirtæki Norðurlanda. Samhliða þessum könnunarviðræð- um hafa verið uppi hugmyndir um að Landsbankin eignist þann helm- ingseignarhlut í VIS sem bankinn á ekki í dag gegn því að núverandi meðeigendur í VÍS fái um 20% eignarhlut í bankanum. Skv. upp- lýsingum Morgunblaðsins eru þess- ar hugmyndir hluti af þeim viðræð- um sem farið hafa fram við SE- bankann. Engar ákvarðanir hafi þó verið teknar og engin bein tilboð liggi fyrir. Áhugi sé á að ná í þau sóknarfæri og aukin samlegðará- hrif sem felist í því að samræma að fullu tryggingafélög og banka. Af þessU verði þó ekki nema sam-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.