Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 37 I I ! < < I I ( ( i i i i < i i 3 hjá okkur á daginn og hjálpuðu okk- ur við undirbúning heimilisins; hjálpuðu til við að mála og bera það sem þurfti. Þeir fengu súpu í hádeg- inu og voru einu sinni á dag í grúppu hjá Bjama, sem núna er dagskrárstjóri Virkisins." I dag eru sjö krakkar í meðferð í Virkinu og biðlistinn lengist dag frá degi. En hvers vegna eru ekki plássin fjórtán fullnýtt? „Við tökum bara inn einn skjól- stæðing í viku, þangað til fyllist. Við erum með nýja starfssemi og erum öll að sjóast í starfmu. Við vinnum ekki eftir neinni bók og ákváðum að fara svona að... Imyndaðu þér ef við hefðum tekið fjórtán fíkla inn á fyrsta degi. Það hefði orðið borgarastyrjöld í hverf- inu. Rökin á bak við einn í viku voru helst þau að hver einstaklingur sem kemur til okkar fái tíma til að aðlag- ast, þeir sem fyrir eru aðlagist hon- um og starfsaðilar tengist honum. Þetta er reynd aðferð víða um heim og reynslan sýnir að árangurinn af þessu kerfi er 70% - sem er rosa- lega gott og auðvitað vonumst við til þess að ná svipuðum árangri." Þið töluðuð áðan um gagnkvæma virðingu og að taka krökkunum á jafnréttisgrundvelli. Hvað áttuð þið við? „Þetta er húmanísk meðferð. Við tökum ekkert af krökkunum. Þau fá að hafa sína tónlist, klæðaburð og hár. Við virðum þeirra unglinga- menningu. Þau fá að vera unglingar í friði. Ein ástæðan fyrir því að önn- ur meðferðarúrræði hafa ekki virk- að fyrir þennan hóp, er að þau koma inn á meðferðarstofnun, unglingar, og það er ætlast til þess að þau fari ailt í einu að hugsa, tala og hegða sér eins og þau séu orðin fertug. Það þýðir einfaldlega ekki að bjóða ungu fólki að sitja allan daginn og tala og hlusta." Hvað látið þið þau gera? „Dagskráin hjá okkur byggir á því að fyrir hádegi sinnum við and- legum málum. Þá eru viðtöl, grúpp- ur, húsfundir og fleira í þeim dúr. Eftir hádegi er iðja og framkvæmd- ir fjórum sinnum í viku. Þá gera þau allt mögulegt sem okkur dettur í hug. Vinna blað á tölvur, stunda ýmis handverk og vinna að ein- hverri iðn. Þegar ég segi að þau geri allt mögulegt sem okkur dettur í hug, þá vil ég að það komi fram að við erum að tala um samfélagslega viðurkennt handverk. Allt sem get- ur kynnt lífið fyrir þessu unga fólki. Einu sinni í viku fáum við fyrir- lesara í heimsókn. Það getur til dæmis verið fyrrverandi fangi sem segir frá sínum reynsluheimi og á eftir eru umræður. Þú verður að at- huga að skjólstæðingar okkar eru unglingar sem hafa byrjað að feta sig út á afbrotabrautina og það er lærdómsríkt fyrir þau að hlusta á og ræða við fólk sem hefur unnið sig út úr þeim harða heimi. Nú, tvo eftirmiðdaga í viku, á föstudögum og laugardögum, höf- um við það sem við köllum „ak- sjóndaga". Þá förum við á vélsleða, í hestaferðir, fallhlífarstökk - eitt- hvað sem krefst spennu. Þá er kom- in helgi og það þarf að losa um spennuna. Helst vildi ég gera fall- hlífarstökk að skyldu í meðferð fíkla. Á fímmtudagskvöldum förum við í bíó, eða leikhús. Síðan eru tólf spora fundir þrjú til fjögur kvöld í viku. Á laugardögum er pizzu- og videokvöld. Sunnudagar eru frjáls- ir. Sumir unglinganna hafa sama- stað til að hverfa til og við reynum að stefna fjölskyldu og skjólstæð- ingum saman - eftir fyrsta meðferð- armánuðinn - og enim með fjöl- skylduráðgjöf. En það hafa ekki all- ir fjölskyldu og þá finnum við ein- hverja góða leið til að fylla upp í sunnudaginn hjá þeim.“ Götuvændi Þið talið um að þessir unglingar séu famir að stunda afbrot og það er kunn staðreynd að þau stunda innbrot og þjófnaði til að fjármagna neyslu sína. En hvað með vændi? „Jú, það er líka stundað, en ekki skipulagt vændi. Það er tilfallandi leið til að ná sér í peninga eða vímu- efni. Það er lítill hópur sem hefur leiðst út í þetta - en nógu stór samt og strákar í meirihluta. Þeir krakkar sem eru í vændi eru með „kontaktaðila“.“ Sem er hvað? „í miðborginni um helgar eru karlar og konur sem eru í því að veiða drukkna og dópaða krakka til kynlífsnotkunar. Þetta er oft mið- aldra fólk og eldra, sem býður krökkunum í partý, frítt að drekka, jafnvel fíkniefni til að „hösla“, það er að segja selja sig.“ Hverjum? „Hverjum sem er, til dæmis er- lendum sjómönnum. Þetta er ekki stórt vandamál hér, en þekkt. Þetta er ískaldur raunveruleikinn sem við þekkjum af götunum hér í Reykja- vík. Það hefur verið reynt að vekja athygli borgaryfirvalda á þessu máli en þau svör fást að þetta sé ekki nógu stór hópur til að eitthvað sé gert í málinu." „Einn er alveg nógu stór hópur fyrir mig,“ segir Mummi, „en ég veit ekki hvað þarf marga til að vel- ferðarkerfið taki við sér.“ Ódýrasta úrræðið hér á landi Þau Mummi og Marsibil segja rekstur Virkisins kosta tuttugu milljónir króna á ári. „Þetta er ódýrasta úrræði sem til er hér á landi. Við höfum sjálf lagt allt undir og skuldum tíu milljónir. Auðvitað höfum við oft hugsað; við erum brjáluð. En við höfum þessi ungmenni fyrir augunum og allar efasemdir hverfa. Við vitum að við getum þetta.“ Mummi er for- stöðumaður Virkisins og Marsibil framkvæmdastjóri, en hvaða annað starfsfólk kemur að meðferðar- heimilinu? „Við erum með frábært samsarfs- fólk og hefðum aldrei getað þetta án þess. Við höfum með okkur dag- skrárstjóra, sem er ráðgjafamennt- aður frá Spectrum, húmanískri meðferðarmiðstöð í London. Síðan starfar hjá okkur sálfræðingur með full réttindi og fjölskylduráðgjafí. Síðan höfum við aðgang að trúnað- arlækni og geðlækni. Þeir eru ekki fastir starfsmenn en við höfum samning við þá í sambandi við allt sem viðkemur læknisfræði og lyfja- málum. Þeir sjá til dæmis um allar blóðprufur og allir sem til okkar koma verða að gangast undir lækn- isrannsókn, þar með talið í alnæm- ispróf. Sumir fíklar sprauta sig og eru því í áhættuhópi. Sem betur fer er enginn sem komið hefur til okkar HlV-smitaður. Við erum líka með sex starfs- menn á vöktum sem sjá um matar- gerð og heimilishald með krökkun- um og að lokum aðstoðarforstöðu- mann sem skipuleggur alla „ak- sjón“. Það var mjög erfitt að finna starfsmenn og fagaðila fyrir starf- semina. Við gerum kröfu um að starfsfólkið tengist skjólstæðingun- um persónulega. Við veljum fyrst og fremst manneskjuna og reynslu í vinnu. Diplóma getur hjálpað en er ekkert endilega lausnin. Fólk sem er ekki tilbúið til að tengjast krökkunum brennur út mjög hratt vegna þess að það er að ganga á forða sem það hefur ekki.“ Ein líkamsárás í miðbænum get- ur kostað tuttugu milljónir Hafið þið fengið einhverja opin- bera styrki?' „Já, við fengum 500.000 úr for- varnarsjóði nýlega og erum að und- irbúa umsóknir fyrir næsta ár. Við vonum auðvitað að hið opinbera átti sig á því hvað við erum að spara mikla peninga með þessu. Við erum með árangursríkt heimili sem er ódýrt í rekstri. Sá sparnaður sem felst í hverjum unglingi sem nær sér á strik er margföld sú upphæð sem kostar að reka heimilið á ári. Þú sérð að ein líkamsárás í mið- bænum getur kostað tuttugu millj- ónir. Sólarhringurinn fyrir einn ein- stakling á Litla-Hrauni kostar sautján þúsund. Svo er það löggæsl- an, dómskerfíð, sjúkrahúsvist fyrir fórnarlömbin, kostnaður fyrir tryggingarfélög, til dæmis vegna innbrota. Þessi upphæð er ekki lengi að koma. En þetta árið munum við reka heimilið á framlögum frá einstak- lingum og fyrirtækjum og við vilj- um nota þetta tækifæri til að færa þeim þúsund þakkir sem hafa lagt fé af mörkum og hjálpað okkur að hjálpa þessum unglingum. Þessi þjóð er einstök þegar bregðast þarf við vanda af þessu tagi. Við getum hins vegar ekki sótt í vasa hennar endalaust. Ef við fáum ekki stuðn- ing frá hinu opinbera á næsta ári, komumst við ekki langt. Þá fer ég bara á togara og Marsibil að vinna í frystihúsi þangað til skuldir okkar eru greiddar," segir Mummi. En hvers vegna byrjuðuð þið ekki á að sækja um styrki? „I fyrsta lagi, var þörfín of brýn. Það var of mikið af ungmennum sem þurftu að fá úrræði strax. í öðru lagi þýðir ekkert að byrja á því að sitja yfir pappírum og umsókn- um. Við urðum að fara af stað í þeirri von að ráðamenn sjái árangur af starfí okkar. Þeir kunna að reikna og geta verið fljótir að sjá hvaða sparnaður er fyrir þjóðfélagið í þessu úrræði.“ Enginn ætlar sér að verða fíkill „Þetta er samfélagslegt vanda- mál og kemur okkur öllum við. Það er alltaf verið að ráðast á fólk í mið- bænum. Þú getur alveg eins orðið fórnarlamb eins og ég, bíllinn þinn eyðilagður eins og minn. Það er enginn öruggur á meðan þetta ástand ríkir. Þar fyrir utan eru þetta íslensk börn - bömin okkar - og enginn ætlar sér að verða fíkill.“ En vegna þess að við erum að tala um fjár- mögnun vil ég að það komi fram að hún fer fram í gegnum Styrktarfé- lag Virkisins, sem er sjálfstætt líkn- arfélag, og í því eiga sæti sex aðilar; Edda Björgvinsdóttir, leikkona, Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Sveinn Guðmundsson, lögfræðingur, Vil- borg Arinbjarnar, móðir og að- standandi, og Snæfríður Jensdóttir, verslunareigandi. Þetta félag starfar sem fjárhalds- aðili á allt fjármagn sem safnast í styrkjum til heimilisins. Núna eyð- um við kvöldunum í að safna styrkt- araðilum, hringjum í fólk og biðjum það að leggja fram 500-1.000 la-ón- ur á mánuði og við höfum fengið mjög góðar viðtökur, margir sem við höfum haft samband við leggja fram 3.000 krónur á mánuði og við erum ákaflega þakklát fyrir allan þennan stuðning." Er Virkið einkarekið heimili? „Já og það er af sparnaðarástæð- um, auk þess sem það tryggir að grasrótin haldi sér og við töpum ekki hugsjóninni. Þetta er samfé- lagshjálp og við viljum ekki rukka krakkana í anddyrinu til að þau fái lausn á sínum málum." Hvað eigið þið við með sparnað- arástæðum? „Við getum rekið Virkið á ódýrari hátt en ef kerfið ræki það. Það hef- ur nefnilega tilhneigingu til að of- hlaða sig áður en það drepur í sér. Það sem gerist með einkarekið heimili, er að það er styttra milli gólfsins og toppsins. Það eru bein samskipti á milli. Við sem stjómum þessu, erum alltaf á gólfínu með skjólstæðingum okkar og setjum okkur ekki upp fyrir þau; við eldum með þeim og hugsum um heimilið. Ef við gerum þetta að opnu félagi eða opinberri stofnun, er þetta orðið að pólitík og menn fara að berjast um formennsku og stjómarsetu. Þá þarf ekki nema einn stjómarfund til að rústa starfinu." Hefur meðferðarheimili af þessu tagi verið reynt áður? „Ekki hér á Islandi en það hefur verið reynt um allan heim til margra ára, meira að segja í Rúss- landi. Þetta á að vera einkarekið og það er þegar í samþykktum að Virkið það greiðir ekld arð. Allir peningar sem koma inn, fara í starf- semina. Ef svo ólíklega vildi til að einhvem tímann yrði hagnaður, fer hann beint til Virldsins. Það má aldrei neinn annar hagnast á þessu staifi. Peningar og völd hafa nefnilega alltaf verið vísasta leiðin til að splundra góðu samstarfi. Þá deyr hugsjónin.“ Ikea-stofnandinn Kamprad leysir frá skjóðunni Stofnandi IKEA Ingvar Kamprad hef- ur löngum haft orð á sér fyrir að vera fælinn við sviðsljósið. Sigrún Davíðs- dóttir segir hér frá nýrri bók þar sem ýmsar óvæntar upplýsingar um einka- hagi Kapmrad koma fram. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÓTÆPILEG áfengisnotkun um áratugaskeið og hrifning af fas- isma á æskuámm er tvennt af því, sem Ingvar Kamprad stofn- andi og eigandi Ikea-keðjunnar er hreinskilinn um í bók um hann, sem kynnt var í Svíþjóð í vikunni. Kamprad, sem er 72 ára og sænskur, býr í Sviss og heldur sig venjulega langt í burtu frá sviðsljósinu en gerði undantekningu þar á og hitti blaðamenn er bókin var kynnt. Hún er skrifuð af Bertil Tore- kull fyrrum aðalritstjóra Svenska Dagbladet, sem hefur fylgt Kamprad eftir í ár og segist ekki hafa get- að varist því að hrífast af viðfangsefni sínu. Á blaðamannafundinum staðfesti Kamprad þá ímynd sína að hann Ufí fábrotnu lífí er hann dró upp strætómiða. Hann keyrir um Stokkhólm í strætisvagni, ekki í límúsínu. Þegar það komst í há- mæli fyrir nokkrum ár- um að Kamprad hefði verið hallur undir fas- isma kaus hann að vera fámáll um æsku sína, en segist nú hafa verið sár yfir að þessi tilhneiging hans hefði verið tengd Ikea. Skoðanir hans þá væru Ikea alveg óvið- komandi. Hann segir nú að hann hafí verið undir áhrifum hugmyndafræði fasista á 5. áratugnum, en verið hrifnari af Mus- solini en „hinum náung- anum“. Hann hafi verið ungur og áhrifagjam eins og fleiri og ekki síst hlustað á frænku sína frá Súdetahéruðunum, sem hafi haft þessar skoðanir. Felur ekki áfengismisnotkun Kamprad byrjaði starfsemina á Skáni og hóf fljótt að láta fram- leiða húsgögn fyrir fyrirtækið í Póllandi, sem átti þátt í þvi lága verði er einkenndi Ikea. En þeg- ar hann fór að venja komur sínar til Póllands kynntist hann vodka- drykkju, sem var næstum skylda í samskiptunum við innfædda. Síðan hefur misnotkun áfengis sett svip á líf hans, þó afköstin hafi verið mikil. Þessu vill hann gjarnan segja frá, því í Svíþjóð séu svo margir, sem eigi við sama vanda að stríða. Núna fer hann að læknisráði í 4-5 vikna bindindi þrisvar á ári. Þó Kamprad kæmi inn á einkalíf sitt var það þó fyrst og fremst viðskiptahliðin, sem hon- um lá á hjarta og í bókinni segir hann frá hvernig fyrirtækið hef- ur þróast. Ikea er nú stærsta húsgagnakeðja heims. Á fyrsta helmingi þessa árs fór salan í fyrsta skipti yfir 50 milljarða sænskra króna og allt bendir til að hún slái öll met í ár. Afkoman er þökkuð framleiðslu í láglauna- löndum, sem í vaxandi mæli er á höndum keðjunnar sjálfrar, og hagkvæmu innkaupa- og dreif- ingarkerfi. Þrískipt og Qárhagslega traust Fyrirtækið er þrískipt. Höfuð- stöðvar húsgagnakeðjunnar eru í Danmörku og í bókinni er einmitt rakið hvemig stóð á flutningi þangað frá Svíþjóð. Þó mestur hluti hagnaðarins sé end- urfjárfestur í rekstrinum er hluta þó safnað í sjóð, sem er í Lúxemborg, Inter Ikea, annar hluti Ikea-veldisins og fjárfest: ingarsjóður fjölskyldunnar. í honum era nú tíu milljarðar sænskra króna, sem um leið er nokkurs konar kjölfesta fyrir- tækisins ef harðnar á dalnum, og þaðan er veldinu stjómað. Sjóð- urinn er einnig notaður til að efla eignarhaldsfélagið Ikano, þriðja og nýjasta hluta fyrirtækisins, sem rekur einnig banka. Þegar 1974 hafði Kamprad hugsað fyrir framtíð fjölskyldu- fyrirtækisins Ikea og skipulagt fyrirtækið þanig að það kæmist tryggilega í gegnum kynslóða- skipti, sem nú eru í augsýn. Kamprad hyggst draga sig í hlé eftir þrjú ár þegar hann verður 75 ára. Hann á þrjá syni, sem all- ir eru í yfirmannsstöðum hjá fyr- irtækinu, en segir þá ekki geta reiknað með því að færast sjálf- krafa í forstjórastólinn. Lfidegra er talið að einhver af þeim sem starfa næst Kamprad taki við. Eins og er eru umsvifin mest í Póllandi, þar sem Ikea stefnir í að fjölga búðum úr fimm í tíu eða tólf. En Rússland er einnig með í myndinni, þar hefur þegar verið fjárfest fyrir milljarða sænskra króna og þar er búist við að fyrsta Ikea búðin verði opnuð á næsta ári í Sankti Pétursborg. Kamprad er áhugasamari að ræða framtíðarhorfur en for- stjórastarfið og bendir á að Rússar búi þröngt, en muni með vaxandi velmegun einbeita sér að híbýlum sínum. Það muni taka Rússa aldarfjórðung að hús- gagnavæðast. Því geti Ikea ein- beitt sér að.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.