Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 49

Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 49 BRÉF TIL BLAÐSINS Lokun Bólstaðarhlíðar fyrir bifreiðaumferð Frá Hjálmaii Hafliðasyni: NÚ SKORUM við á Reykjavíkur- borg og umferðaryfirvöld að aflétta þessari lokunarplágu, sem ekki er heO brú í og til vansa þeim aðilum sem að henni hafa staðið. Lokunin átti sem tilraun að standa í eitt ár, en hefur nú staðið í sextán mánuði og virðist ekkert fararsnið á grjótinu af götunni. Að börn héma við Bólstaðarhlíð séu í meiri hættu af bílaumferð hérna en á Háaleitisbraut þar sem strætis- vagnamir fara nú tvisvar á klukkustund fram og aftur, er svo mikil fásinna að engu tali tekur. Háteigsvegur er þröng gata að vísu með tveimur hraðahindrun- um, það hefði líka mátt setja hraðahindranir á Bólstaðarhlíðina. Á Háteigsvegi er strætisvagna- skýli aðeins að norðanverðu við götuna; þeir farþegar sem ætla í hina áttina geta beðið þeim megin berskjaldaðir fyrh- veðrum, þó lof- að hafi verið að bæta úr þessu með skýli. Á þessari biðstöð, rétt fyrir framan útgöngudyr bamanna úr skólanum era heldur engin máluð hvít gangbrautarstrik, hvað þá lýs- ing, þó gatan sé dimm á vetram. Ennfremur var af hendi borgar- innar lofað að leggja hitarör í gangstéttina frá húsunum við Ból- staðarhlíðina að Háteigsvegi svo hægt væri að komast óbrotinn leiðar sinnar í næstu verslun því venjulega er öllum snjónum ýtt upp á gangbrautirnar. En að setja grjótbákn á Bólstaðarhlíðina til að fyiirbyggja alla umferð um hverf- ið, það er hið versta mál, sem við fyrirgefum ekki nema að það verði fjarlægt í sumar og hraðahindran- ir settar í staðinn. Slys geta víðast hvar orðið en slys af völdum strætisvagna era sem betur fer fátíð, það keyrir enginn á hraðakstri yfir hindranir á erfiðum leiðum. Þessi lokun á Bólstaðarhlíðinni er illa staðsett á götunni. Hindranin var ekki sett við gatnamót, heldur við lokaða beygju. Margir bflar hafa orðið að snúa við, menn í áríðandi björgun- arverkum: læknar sem þurftu að sinna dauðveikum hjartasjúklingi hafa orðið að snúa við, taka lengri leiðina, og einnig branaliðsmenn að slökkva eld í íbúð, þeir hafa orð- ið að fara lengri leið en áður. Ókunnugt fólk í þessum tilfellum veit ekki af þessum ráðstöfunum hjá Umferðarráði. Þær virðast vera gerðar í hálfgerðum feluleik, langt frá gatnamótum. Hér gæti verið stórhættuleg slysagildra, ef stórslys yrði í hverf- inu, vegna umferðarþrengsla. Þess vegna skora ég á Umferðarráð og alla ráðamenn og konur þessarar borgar að fjarlægja steinblokkirn- ar og setja hraðahindranir í stað- inn - upphækkanir, en ekld loka götunni. HJÁLMAR HAFLIÐASON, form. Félags aldraðra, Bólstaðarhlíð. Leitin endalausa Frá Gylfa Pálssyni: í MORGUNBLAÐINU 14. ágúst fjallaði Bragi Ásgeirsson um myndlistarsýningu í Nýlistasafninu undir yfirskriftinni Leitin enda- lausa. Sýningin bar hins vegar heitið Leitin að Snarkinum. Mig langar að koma eftirfarandi vitneskju á framfæri. Breski stærðfræðingurinn Charles Lutwidge Dodgson, sem þekktari er sem rithöfundurinn Lewis Carroll, samdi árið 1876 kvæðabálkinn The Hunting of the Snark. Þar er Snark kynjadýr sett saman úr snake=snákur og shark=hákarl og mætti þýða Sná- karl. Nafn kvæðisins á íslensku og þar með yfirskrift sýningarinnar gæti því verið Leitin að Snákarlin- um. Bandaríski rithöfundurinn Jack London (1876-1916) lét smíða sér lystisnekkju sem hann nefndi The Snark eftir fyrrnefndu kynjadýri. London skrifaði um ferðir sínar á þessum farkosti (1907-1909). Frásagnir hans af ferðalaginu vora gefnar út undir heitinu The Craise of the Snark. Bókin var gefin út í íslenskri þýðingu árið 1921 og valið heitið Á Blossa. Árið 1963 kom bókin út í nýrri þýðingu og var þá nefnd í langferð á Neistanum en hefði samkvæmt framansögðu mátt heita Ferðin á Snákarlinum. GYLFI PÁLSSON Hagamel 16,107 Reykjavík. Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar Námsstyrkir í verkfræði og raunvísindum Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir styrkumsóknum vegna náms á skólaárinu 1998-99. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og raunvísindagreinum og hafa þeir einkum verið veittir nemendum í framhaldsnámi. Umsóknareyðublöð fást hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Neshaga 16, og ber að skila umsóknum þangað. Með umsókn skal fylgja staðfesting á skólavist og námsárangri, ítarleg fjárhagsáætlun, meðmæli, ritverk og önnur þau gögn, sem umsækjandi telur að komið geti að gagni við mat umsóknar. Umsóknarfrestur er til 30. september. Stefnt erað því að tilkynna úthlutun í nóvember. Skemmtilegt og Skapandi Nýtt á íslandi - pantið ókeypis eintak Atelier Margarethe var stofnað fyrir 40 árum og hefur með tímanum orðið stærsta póstverslunin á Norðurlöndum á sviði handavinnu. Nú gefst þér tækifæri á að panta upp úr þessum vinsæla póstlista. Það eina sem þú þarft að gera er að hringja í síma 533 5444 og þú færð listann sendann heim þér að kostnaðarlausu. Vörulistinn hefur að geyma handavinnu í miklu úrvali og við allra hæfi, bæði fyrir byrjendur og fagfólk. “Án hannyrðana get ég ekki verið” Margir kunningjar mínir höfðu verslað við Atelier Margarethe og þótti þeim bæði handavinnan og þjónustan framúrskarandi. Það var því engin tilviijun að Margaretha varð fyrir vaiinu þegar ég byijaði að sauma út. Ég hef alltaf verið ánægð með bæði vörumar og þjónustu þeirra. Inger Larsson &<■ □ Svarseðill já takk! Sendið mér póstlistann - mér að KOSTNAÐARLAUSU! Nafn____________________________________________________ Heimilisfang____________________________________________ Póstnúmer_______________________________________________ Margaretha, Kringlunni 7,103 Reykjavík S. 533 5444

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.