Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 11 stjórnarflokkanna og í fjármálalíf- inu taka undir þessi sjónarmið. Skv. heimildum blaðsins mun það ekki heldur mælast vel fyrir innan Landsbankans hvernig þessar við- ræður við SE-bankann bar að. Er litið svo á að þær beri svipmót yfir- töku á Landsbankanum en ekki samstarfs. Samningsgrundvöllurinn hafi í raun falið í sér yfirtöku SE- bankans á Landsbankanum og sé því ekki fýsilegur kostur. Skv. upplýsingum Morgunblaðs- ins er ágreiningur innan þingflokks Framsóknarflokksins vegna Lands- bankamálsins en innan raða hans eru nokkrir þingmenn sem vilja halda sig við upphaflega stefnu, fara hægt í sakimar og standa við upp- hafleg fyrirheit um breytingar á bönkunum gagnvart starfsfólki og stjórnendum þeirra. Ymsir gagnrýna stjórnvöld harð- íega fyrir að gefa SE-bankanum kost á viðræðum um kaup á ráðandi hlut í Landsbankanum án undan- gengins útboðs, slíkt sé bæði óeðli- legt og ófaglegt, eins og einn heim- ildarmaður orðaði það. Þetta mál hafi farið af stað með allt of háan mögulegan eignarhlut þeirra inni í myndinni. Skv. heimildum blaðsins hafa sumir sem þekkja vel til þess- ara viðræðna komist að þeirri nið- urstöðu að þessi samningsgrund- vöilur væri útilokaður. Auk þessara gagnrýnisatriða er bent á að sú ákvörðun viðskipta- ráðuneytisins að leyfa sendinefnd SE-bankans að safna gögnum og upplýsingum í Landsbankanum hljóti að leiða til þess að allir aðrir aðilar sem lýsa áhuga á að kaupa Uppstokkun bankakerfisins og sala ríkisbanka Upphafleg stefnumörkun: LANDSBANKINN: Heimild til að auka hlutafé bankans um 35%, en sölu bankans frestað í 4 ár. BÚNAÐARBANKINN: Heimilt að auka hlutafé bankans um 35%, en bíða með sölu bankans í fjögur ár. FJÁRFESTINGARBANKINN: Lagaheimild til sölu á 49% eignarhlut á þessu ári. Staðan í dag: 1. Könnunarviðræður við SE-bankann um kaup á 33% hlut í Landsbankanum. 2. Landsbankinn nýtir, m/Afi' sér kauprétt á 50% í VÍS.NSÍffiÉr Hugmyndir eru um að 'r Landsbankinn eignist allt hlutafé VIS qegn því að meðeicjendur bankans í VÍS fái 20% eignarhlut í bankanum. 3. Landsbankinn býður út 15% nýtt hlutafé í í r “ ; september í dreifðri sölu ' j - . ' og stefnir m.a. að samstarfi við erlendar fjármálastofnanir. Staðan í dag: 1. íslandsbanki býður 8 milljarða í 100% eignarhlut í Búnaðarbankanum. 2. Búnaðarbankinn óskar eftir að sam- einast Fjárfestingar- bankanum. m ími 3. Stefnt að útboði á 12-15% í nýju hlutafé í haust. Staðan í dag: 1. Sparisjóðirnir óska eftir að kaupa 100% eignar- SST hlut ríkisins í Fjárfestinqar- bankanum. Ætla að selja aftur stóran hlut, þar af hugsanlega 15% til erlendra aðila. 2. Fjárfestingarbankinn undirbýr sölu á 49% eignarhlut í bankanum. Rætt er um að 30% verði seld fyrir áramót. Áhugi á að bjóða hluta bréfanna á erlendum markaði. Talið er að ef endurskipulagningu og sölu verði frestað yrði það nánast álitshnekkir á erlendum fjármálamörkuðum því að óska formlega eftir því við viðskiptaráðuneytið að fá að kaupa FBA og sameina þessar tvær stofn- anir. Allar ákvarðanir þar að lút- andi eru á valdi ríldsstjómarinnar en bankastjóm og bankaráð Búnað- arbankans hafa ekki verið höfð með í ráðum um fyrirhugaða endur- skipulagningu í bankakerfinu. Stjómendur Búnaðarbanka styðjast hins vegar við yfírlýsingar Halldórs Ásgrímssonar um að æskilegt sé að sameina Búnaðarbankann og FBA áður en til sölu kemur til að auka verðmæti eignarhluta ríkisins. Útboð á nýju hlutafé Búnaðar- bankans stendur fýrir dyrum líkt og í Landsbankanum. Rætt er um að seld verði 12-15% í dreifðri sölu innan skamms. Búnaðarbankamenn hafa lagst gegn sölu bankans til íslandsbanka en telja að sameining við FBA hafi þá kosti fýrir ríkið sem eiganda bankans, að með því móti megi spara verulegar fjárhæðir við upp- byggingu FBA. í því sambandi hafi Búnaðarbankinn fram að færa er- lend viðskipti, útibúanet bankans, verðbréfasvið sem byggt hafi verið upp í bankanum, auk þess að hafa heimild til að taka við innlánum. Sumir stjómarþingmanna innan beggja stjómarflokka em þeirrar skoðunar að ýmsir kostir felist í sammna FBA og Búnaðarbankans. Mikilvægt sé að bankamir tveir verði gerðir að álitlegri söluvöra með sameiningu áður en eignarhlut- ur í þeim yrði seldur. Fleiri sem rætt var við lögðust hins vegar gegn sameiningu þessara stofnana, m.a. með þeim rökum að fráleitt sé sparisjóðanna ræða við fulltrúa iðnaðarráðuneytisins og sjávarútvegsráðuneytisins um möguleg kaup sparisjóðanna á Fjárfestingar- banka atvinnulífsins. Sænski bankinn gerði kröfu um að kaupa 33,3% eignarhlut í Landsbankanum og vildi að jafnframt yrðu skapaðir möguleikar á að bankinn gæti eignast 51% hlut hlut í ríkisbönkunum eigi samskon- ar rétt svo jafnræðis sé gætt. Sparisjóðirnir vilja kaupa FBA Könnunarviðræður hófust í sein- ustu viku milli forsvarsmanna Sam- bands sparisjóða og fulltrúa iðnað- ar- og sjávarútvegsráðuneytisins um hugsanleg kaup sparisjóðanna á eignarhlut ríkisins í FBA. Sam- þykki Alþingis þarf til að selja meira en 49% í bankanum en spari- sjóðirnir sækja fast að fá keyptan allan hlut ríkisins. Hugmyndir fulltrúa sparisjóð- anna 26 ganga út á að sameina FBA og Kaupþing, sem er í eigu spari- sjóðanna, byggja hinn sameinaða fjárfestingarbanka upp og selja svo aftur stóran hlut á markaði. Sam- kvæmt heimildum blaðsins hafa for- svarsmenn sparisjóðanna nú þegar í höndum yfirlýsingu frá erlendum fjármálastofnunum sem hafa áhuga á að kaupa hlut í sameinuðum fjár- festingarbanka Kaupþings og FBA, ef þau viðskipti ganga eftir. Þar gæti verið um að ræða 15-20% hlut til hinna erlendu aðila skv. upplýs- ingum blaðsins. Að áliti forsvarsmanna sparisjóð- anna næst fram mikil hagræðing með samrana Kaupþings og FBA. FBA hafi verið að byggja upp starf- semi á sviði þar sem Kaupþing er þegar öflugt varðandi hvers konar miðlun og dreifinet. Kaupþing er einnig að byggja mjög hratt upp sinn efnahagsreikning, sem hefur vaxið um 70% frá áramótum. Með því að renna þessu tvennu saman myndi sparast mikill kostnaður hjá hvorum aðila um sig og flýta þeirri hagræðingu sem báðir stefni að. Telja þeir unnt að spara 2-300 millj- ónir kr. á ári í rekstrarkostnað með samruna fyrirtækjanna. Mun þá ekki vera horft sérstaklega á niður- skurð í starfsmannahaldi heldur verði sparnaði náð með sameigin- legum stoðdeilum, tölvu- og upplýs- ingadeildum og bókhaldi. Einnig næðist hagræðing í meginstarfsemi þar sem sviðin skarast s.s. verð- bréfamiðlun, fýi-irtækjaþjónustu og gjaldeyrisviðskiptum. Meginmálið sé hins vegar hagræðing á tekjuhlið og aukning vaxtatekna. Ætla megi að við sameiningu muni lánskjörin batna veralega. Tveir viðræðufundir fóra fram í síðustu viku. Skv. heimildum Morg- unblaðsins hafa fulltrúar sparisjóð- anna boðist til að leggja fram beint kauptilboð í eignarhlut ríkisins í FBÁ en stjórnvöld hafa hins vegar óskað eftir að það verði ekki gert að svo komnu máli. Eigið fé FBA er um 8,5 milljarðar og eigið fé Kaup- þings er nálægt 700 milljónum kr. Skv. heimildum blaðsins hefur kaupverð FBA verið metið á bilinu 8-10 milljarðar. Hlutafjárútboð FBA talið trufla áform sparisjóðanna Hugmyndir um kaup sparisjóð- anna á FBA mælast misjafnlega fyrir af ýmsum ástæðum. Mikil um- ræða hefur orðið um eignarfýrir- komulag sparisjóðanna. Sumir við- mælendur halda því fram að spari- sjóðimir hljóti að eiga í erfiðleikum með að fjármagna sínar fjárfesting- ar þar sem þeir geti ekki gefið út hlutabréf. Forsvarsmenn sparisjóð- anna mótmæla þessu og segja sparisjóðina hafa bolmagn til að kaupa FBA. Hluti yrði fjármagnað- ur með eiginfjárframlagi sparisjóð- anna og hluti með lánsfé. Gagnrýni á eignarhald sparisjóðanna segja þeir byggjast á misskilningi. Spari- sjóðirnir séu sameignarfélög og eignarhaldið skýrt. Sparisjóðirnir vilji þó gjarnan opna möguleika á að hægt sé að kaupa bréf í sjóðunum og segjast vera að skoða ýmsa möguleika á því sviði. Innan skamms muni þeir að öllum líkind- um koma með fullmótaðar hug- myndir til viðskiptaráðherra um breytingar á þessu skipulagi, skv. upplýsingum blaðsins. Ráðherrar hafa lýst yfir að við- ræðumar við sparisjóðina séu liður í undirbúningi á sölu hlutafjár í FBA og hefur Framkvæmdanefnd um einkavæðingu verið falið að ann- ast undirbúning hlutafjársölunnar. Ráðherrar hafa jafnframt greint frá þvi að ekki sé víst hvort 49% eignar- hluturinn verður allur seldur á þessu ári. Skv. upplýsingum blaðs- ins er nú m.a. til skoðunar að selja 30% á þessu ári. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins er hins vegar Ijóst af viðbrögðum forsvarsmanna sparisjóðanna að ef ríkið heldur sínu striki varðandi dreifða sölu á hlutabréfum í FBA á markaði muni það trufla mjög áform sparisjóð- anna um kaup á FBA. Ekki er þó ljóst hvort það yrði til þess að spari- sjóðimir misstu áhugann. Búnaðarbankinn vill kaupa Fjárfestingarbankann Þegar fréttir bárust af viðræðum sparisjóðanna og ríkisins brást bankaráð Búnaðarbankans við með að sameina FBA ríkisviðskipta- banka aðeins nokkrum mánuðum eftir stofnun hans. Forsvarsmenn í íslensku fjármálalífi gagnrýna einnig þessar hugmyndir. Því er haldið fram að lítil sem engin hag- ræðing eða spamaður fylgi sam- rana Búnaðarbanka og FBA, lítil sköran sé á greiðslumiðlunarkerfi og dreifineti þeirra. „Þetta er mjög furðulegt útspil hjá framsókarmönnum. Þegar framvarpið um stofnun Fjárfesting- arbankans var til umræðu lagði við- skiptaráðherra höfuðkapp á að nauðsynlegt væri að stofna sjálf- stæðan fjárfestingarbanka þvi óskynsamlegt væri að blanda sam- an heildsölubanka og viðskipta- bankastarfsemi. Þau rök eru jafn- gild í dag. Nú á svo allt í einu að fara að blanda þessu saman. Við- snúningurinn er því alger,“ sagði einn heimildarmanna blaðsins. íslandsbanki sækir stíft að kaupa Búnaðarbankann Stjórnendur íslandsbanka sátu ekki auðum höndum í þessari at- burðarás og 13. ágúst lögðu þeir fram beint kauptilboð upp á 8 millj- arða kr. í öll hlutabréf ríkisins í Búnaðarbankanum. Könnunarvið- ræður hófust svo sl. fostudag þegar stjórnendur bankans og fulltrúar viðskiptaráðuneytisins komu saman til fýrsta fundarins. Ákveðið var að halda næsta fund eftir að ríkis- stjómin hefur tilkynnt til hvaða ráð- stafana verður gripið í bankamálun- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.