Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 18

Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 18
18 SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Tónleikar í tónleikaröðinni sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju Orgelsinfónía á ágústkvöldi Morgunblaðið/Þorkell ORGANISTI Hallgrímskirkju, Hörður Áskelsson, leikur fjögur verk á stóra Klais-orgelið, sem er í bakgrunni. TÓNLEIKAR í tónieikaröðinni „Sumarkvöid við orgelið" verða í Hallgrímskirkju í kvöld, sunnu- dagskvöld, og heijast kl. 20.30. Organisti Haligrímskirkju, Hörð- ur Áskeisson, sem gegnt hefur því starfi frá árinu 1982, Ieikur fjögnr verk á stóra Klais-orgelið sem vígt var árið 1992. Orgeltónleikamir í tónleikaröð- inni eru þeir áttundu að þessu sinni en þetta er 6. sumarið sem þeir eru haldnir. Tónleikaröðin stendur yfir í júlí og ágúst. Að jafnaði eru haldnir þrennir tón- leikar í hverri viku. Þar af er ókeypis aðgangur að hádegistón- leikum á fimmtudögum og laugar- dögum en þriðju tónleikamir era haldnir sunnudagskvöld. Hörður segir aðsóknina hafa verið góða frá upphafi og vaxandi síðustu sumur. Meirihluti áheyranda sé erlendir ferðamenn. Telst forráðamönnum tónleikanna til að samtals um 6000 manns sæki tónleikahaldið þá tvo mánuði sem það stendur. Ljóst er að tilkoma stóra Klais- KVIKMYIVPIR Regnboginn GÖNG TÍMANS („COULOIRS DU TEMPS: LES VISITEURS 2) ★ Leikstjóri Jean-Marie Poiré. Handrit Poiré og Christian Cla- vier. Tónlist Eric Levi. Kvik- myndatökustjóri Christophe Beaucarne. Aðalleikendur Christi- an Clavier, Jean Reno, Muriel Robin, Marie-Anne Chazel. 118 mín. Frönsk. Gaumont. 1998 . FYRIR nokkrum árum setti Les Visiteurs, gamamynd um ferðalangana, aðalsmanninn Godefrey (Jean Reno) og skósvein hans, Jacquoille (Christian Cla- vier), allt á annan endann í Frans. Þetta voru í hæsta máta óvenju- legir túristar, komnir fyrir galdur aftan úr miðöldum inní mitt Frakkland nútímans. Tímaflakks- myndir eru svosem ekkert nýtt fyrirbrigði, t.d. gerðu Monty Pyt- hon grallaramir Terry Gilliam og Michael Palin forkostulega mynd um þetta fyrirbrigði, Time Bandits, og Robert Zemeckis gerði um það bráðfyndinn, þriggja orgelsins hefur verið mikil lyfti- stöng í tónlistarlífi kirkjunnar. Hróður þessarar 70 radda (5272 pípur) listasmíðar hefur borist víða og er mikil ásókn meðal erlendra organista að fá að leika á það. Dagskrá sunnudagskvöldsins er að sögn Harðar fjölbreytt. Um- fangsmesta verkið á efnisskránni er verkið „Sinfonia Arctandriae“ eftir norska tónskáldið Kjell Mork Karlsen sem er orgelsinfónía í fjórum þáttum. Sinfóníuna vann hann í framhaldi af verkinu „Tví- söngur" en fyrir það hlaut hann 1. verðlaun í alþjóðlegri orgeltón- verkakeppni sem haldin var 1992 í tilefni af vígslu Klais-orgelsins í Hallgrímskirkju. „Þetta verk fiutti ég í fyrsta sinn í heild sinnj á Listahátíð í Bergen í vor. Ég var búinn að leika einstaka þætti áður en aldrei fundið mér tækifæri til að flytja það í heild en það var mjög viðeigandi að gera það í Noregi,“ segir Hörður. Tónleikamir byrja á verki sem Þorkell Sigurbjörasson samdi árið 1992 vegna vígslu Klais-orgelsins. mynda bálk. Maðurinn á bak við þessar frönsku gamanmyndir er hinsvegar leikarinn Christian Cla- vier, sem einnig semur handritið og framleiðir. Hann er enginn M.P. maður. Fyrri myndin var dá- góð, en því miður dugar púðrið ekki í framlengingu. Göng tímans hefur ekkert nýtt fram að færa, er spunnin í kring- um nauðsynlega fór félaganna aft- ur til framtíðarinnar til að sækja ómetanlegan vemdargrip og skart, og er ekkert annað en döpur end- urtekning á aðstæðum og uppá- komum fyrri myndarinnar. Að við- bættri aulafyndni fyrir þá sem hafa smekk fyrir prump-, piss- og kúadeliubröndurum. Hún á að vera ferlega fyndin frá upphafi til enda; stanslaus fíflagangur, sem því miður virkar ekki, verður sjald- an meira en broslegur. Clavier er í sjálfu sér nokkuð skondinn náungi og Jean Reno bjargar því sem bjargað verður. Þessi ábúðarmikli þumbari vex og vex með hverri mynd og á hér skárstu augnablik- in. Hann kemur því miður lítið við sögu. Aðrir leikarar, einsog Muriel Robin í hlutverki þjófóttrar dræsu, líða meira fyrir afspymulélegar línur en eigið getuleysi. Sæbjörn Valdimarsson „Þetta skemmtilega verk flyt ég sérstaklega núna til heiðurs Þor- keli sem átti stórafmæli í júlí. Það verður reyndar haldið sérstaklega upp á það með mikilli tónlistar- veislu í október." Til mótvægis þessum nýju verk- um em tvö barokkverk á efnis- skránni. Annað verkið er svítan „Veni creator spiritus“ eftir Nicolas de Grigny (1672-1703) en hitt er Passacaclia í c-moll eftir Bach sem er eitt af vinsælustu verkum meistarans. MYNDLISTARMAÐURINN Karl Jóhann Jónsson sýnir málverk í versluninni 12 tónar sem er á homi Grettisgötu og Barónsstígs. Karl Jóhann er fæddur árið 1968 og lauk námi úr Myndlista- og hand- íðaskóla íslands árið 1993. Hann hef- ur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Hörður leggur áherslu á að nú- tímaverkin tvö séu aðgengileg. „Menn ganga oft út frá því að nú- tímaverk séu flókin og tormelt en bæði þessi verk em mjög skýr og auðvelt að nálgast þau. „Snertur“ er t.a.m. skemmtilegt og nafnið lýsir léttleika verksins. En verkið er eins og verk Karlsens aðgengi- legt og rennur mjög ljúft. í því er hann eins og Karlsen að vinna úr íslensrki kirkj utónlistarhefð því hann notar á einum stað í verkinu gamalt Passíusálmalag." Að þessu sinni sýnir Karl Jóhann að- allega portrett af einhverju eða ein- hverjum sem fæstir þekkja, segir í fréttatilkynningu. Sýningin stendur fram í miðjan september. 12 tónar er sérverslun með klassískar hljómplötur og á að verða framhald á sýningum af þessu tagi í versluninni. Svend Asmussen og- kvartett í Bolungarvík SVEND Asmussen og kvartett hans halda tónleika í Víkurbæ í Bolungarvík á mánudagskvöld. Þetta er fjórða heimsókn Svend hingað til lands og með honum spila Jacob Fischer, gítarleikari, Jesper Lund- gaard, bassaleikari og Aage Tanggaard, trommuleikari. Á efnisskránni er jafnt nýtt eftii sem klassískt svíng, brasil- ískar sömbur og norræn þjóð- lög. I kvöld,sunnudagskvöld, leika þeir félagar á Akureyri, en hingað eru þeir komnir í tilefni af afmælishátíð Nor- ræna hússins og þar var leik- ur þeirra á dagskrá í gær- kvöldi. Sjö ljósmyndar- ar sýna loka- verkefni LOKAVERKEFNI sjö ljós- myndara eru til sýnis í sýning- arrými Gallerís Foldar og Kringlunnar á 2. hæð í Kringl- unni. Ljósmyndaramir stund- uðu nám í Ljósmyndaskóla Sissu og Hannesar í sumar og eru Friðrik Tryggvason, Inga Heiða Heimisdóttir, Ingibjörg Böðvarsdóttir, Jón Hjörtur Hjartarson, Dúfa Markan, Ragnar Leósson og Védís Sig- urjónsdóttir. Sýningin heitir Vatn og lýk- ur henni nú á þriðjudaginn. Valsson/ Oieroset spila í Neskirkju DÚETTINN Valsson/Oieroset skipa Hjörleifur Valsson fiðlu- leikari og Hávard 0ieroset gít- arleikari. Þeir hafa vakið at- hygli víða á íslandi í sumar og nú halda þeir sína allra sein- ustu tónleika hér á landi í Nes- kirkju í dag, sunnudaginn 23. ágúst kl.16.00. Á dagskrá eru verk frá öllum heimshornum og öllum tímum, í sérstökum og líflegum útsetningum þeirra félaga. Silla sýnir í Galleríi Sölva Helgasonar SIGRÍÐUR S. Pálsdóttir (Silla) hefur opnað sýningu á olíumálverkum sínum í Galleríi Sölva Helgasonar í Lónkoti. Sýningunni lýkur 30. sept- ember. Enn og aftur til framtíðar Einar Sebastian í Galleríi Horninu EINAR Sebast- ian hefur opnað Ijósmyndasýn- ingu í Gallerí Horninu, Hafn- ar+stræti 15. Þetta er fyrsta einka- sýning Einars, en hann stund- aði ljósmynda- nám árin 1988-1992 við Academie voor Bieldende Kunste í Den Haag, Hollandi og 1992-1994 hjá LJÓSMYND af Einari Sebasti- an eftir Spessa. Grími Bjarna- syni og útskrifaðist Einar sem ljósmyndari árið 1995. Einar hefur tekið þátt í samsýnuing- um, m.a. í Den Haag, Óháðu lista- hátíðinni í Reykja- vík 1993 og 1994 og í Gullkistunni, Laugarvatni árið 1995. Sýng Einars í Gallerí Hominu er opin alla daga kl. 11-24 og stendur til miðvikudagsins 9. september. Hún ber yfírskriftina Birting og er til- einkuð Þuríði Elínu Bjamadóttur. Karl Jóhann sýnir 112 tónum 90 FLOSKUR AF MNU ElfilN VINI FYTtlR AOEINS 9.990 KR.I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.