Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 15

Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 15 land var eitt Eystrasaltsríkjanna þriggja til að ná því. Sérfræðingar ESB mátu það svo, að Lettland ætti of langt í land á of mörgum sviðum til að hægt væri að byrja strax á að ræða um aðild þess. Var í því sam- bandi einkum tilgreindur hinn óleysti vandi ríkisfangslausra íbúa landsins, og hvernig miðaði í efnahags- og kerfisumbótum að ýmsu öðru leyti. Jákvæð teikn En þótt Lettum miði hægar á um- bótabrautinni en vonir þeirra sjálfra stóðu til eru ýmis jákvæð teikn á lofti. Islenzk fyrirtæki hafa ekki látið sitt eftir liggja og lagt í töluverðar fjárfestingar í Eystrasaltslöndunum, ekki sízt í Lettlandi og Litháen. Að sögn forráðamanna þessara íslenzku fyrirtækja - svo sem BYKO, sem hefur breytt fyrrverandi kúa- samyrkjubúi í Lettlandi í heila timb- urverksmiðju með vaxandi umsvif - voru vandamálin óteljandi í upphafi, en með tímanum hafi hlutimir kom- ist í allgott lag, og nýundirritaðir samningar Islands og Lettlands um gagnkvæma vemd fjárfestinga hjálpa til við að bæta aðstæður til fyrirtækjarekstrar og viðskipta í Lettlandi. En þar sem reglur markaðsbú- skaparins hafa ekki verið í heiðri hafðar í meira en hálfa öld er að finna marga ævintýramenn sem vilja freista gæfunnar í von um skjótfeng- inn gróða. Þetta vandamál er öllum fyrrverandi austantjaldslöndum sam- eiginlegt, en er sérstaklega áberandi í miklum viðskiptaborgum á borð við Riga. Mafían heimtar „verndargjöld" að ítalskri fyrirmynd af þeim sem stunda hvers konar sjálfstæðan rekstur í borginni, svo sem á veit- ingahúsum, og lögreglan fær lítið að gert. Áberandi mikill munur er á tekjum fólks, og spilling af ýmsu tagi er enn alláberandi. Fleiri vandamál þessu tengd mætti nefna, en það er einmitt von þeirra sem bera hag þessara þjóðfélaga fyrir brjósti að aðild að vestrænum stofh- unum hjálpi til við að ráða bug á þess- um vandamálum, enda styðja íslenzk stjómvöld þess vegna eindregið um- sóknir allra Eystrasaltslandanna um aðild að bæði NATO og ESB. Litháen - á góðri leið en mörg mistök gerð I Litháen, hinu fjölmennasta Eystrasaltslandanna þriggja, hefur umbótaþróun sfðustu sjö ára verið nokkuð rykkjótt, en vandamálin að mörgu leyti svipuð og þau sem við er að etja í Lettlandi og Eistlandi, með nokkium mikilvægum undantekning- um þó. Litháen komst ekki í hóp „for- gangsrfkja" í aðildarviðræður við Evr- ópusambandið á svipuðum forsendum og Lettland, en aðalmunurinn er sá að í Litháen er rússneskumælandi minni- hlutinn lítill og skapar þvi ekki nánd- amærri eins mikinn vanda og Rúss- arnir í Lettlandi. Þetta er meginá- stæðan fyrir því að nú em samskipti hins sjálfstæða Litháen við Rússland betri en Lettar og Eistar eiga að fagna. Skyndiheimsókn Jevgeníjs Prímokovs, utanríkisráðherra Rúss- lands, til Vilnius, sama dag og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, hóf opinbera heimsókn sína til Litháens, er ein nýleg staðfesting þessa. Meginmeinið, sem stjórnmála- skýrendur segja standa Litháen fyrir þrifum, er að skömmu eftir að landið endurheimti sjálfstæðið komst flokk- ur fyrrverandi kommúnista, undir forystu Algirdas Brazauskas, tii valda. Það þýddi að gæðingum gamla Sovétkerfísins tókst að nýta sér einkavæðingarátakið sem ráðizt var í í Litháen rétt eins og í öðrum fyrr- verandi austantjaldsríkjum, sér og sínum til framdráttar. Embættis- mannakerfið hélzt meira eða minna óbreytt, svo að tregða í kerfinu tafði fyrir umbótum og spilling olli t.d. mikilli sóun í bankakerfinu. Víst er að vaxandi óánægja al- mennings í Litháen með þessa þróun mála átti sinn þátt í því að sá maður, sem Brazauskas studdi í kosningun- um um eftirmann sinn í þjóðhöfð- ingjaembættið um síðustu ái'amót, skyldi lúta í lægra haldi fyrir banda- rískum ríkisborgara á eftirlaunum, Valdas Adamkus. í samtali við Morg- unblaðið dró Adamkus heldur ekki dul á það, að hann vonaðist til að sér yrði unnt að beita áhrifum sínum til að úthýsa spillingu úr stjómkerfinu og mjaka umbótum nógu vel áleiðis til að leiðin verði greið fyrir landið inn í NATO og Evrópusambandið. Framtíðarhorfur Stjórnmálamenn allra Eystrasalts- landanna þriggja hafa bundið vonir við að lönd þeirra geti sem fyrst eftir tíu ára afinæli endurreists sjálfstæðis fagnað inngöngu í Evrópusambandið og NATO. Óhætt er að segja að þessi bjartsýni sé of mikil. Þar sem Eist- land komst í „forgangshóp" þeirra Mið- og Austur-Evrópuríkja, sem sækjast eftir aðiid að ESB, má gera ráð fyrir að það fái inngöngu fyrr en nágrannaríkin tvö, þó ekki fyrr en um miðjan næsta áratug. Hvernig viðleitni ríkjanna til að fá inngönu í NATO lyktar er enn óijósara, en telja má víst að verði nokkurn tímann af henni þá verði það ekki fyrr en enn síðar og að því tilskildu að núverandi aðildarríkjum NATO takizt að sann- færa Rússa um að NATO-aðiId Eystrasaltsríkjanna sé öllum í hag. Hvort þær leiðir sem stjómvöld ríkjanna þriggja hafa valið til að reyna að nálgast sett markmið skili tilætluðum árangri á næstu ámm veltur á ýmsu, ekki sízt þó því hvort takast muni að ná tökum á spilltum öflum í efnahagslífi og stjómkerfí landanna og hvort jafnvægi og sátt náist um stöðu rússneskumælandi fólks á svæðinu. Víst er, að ísland og hin Norðurlöndin geta leikið mikil- vægt hlutverk við að hjálpa þessum vinveittu nágrannaþjóðum á hinni grýttu leið frá helsisarfleifð Sovét- ríkjanna til öryggis og velmegunar í bandalagi vestrænna lýðræðisþjóða. gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi. Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili. Hlægílegt TELSON TCP980 • 900 Mhz. • Þyngd talfæris 240 g. • Ending rafhlöðu í biðstöðu 60 klst., í notkun 12 klst. • Dregur 600 metra utanhúss. • Hægt að bæta við 3 aukasímtólum. • íslenskur leiðarvísir ^^taðgreitt: 9.900,- PHIUPS Onis • Stafrænn sími. • Þyngd símtóls 159 g. • 40 númera nafnvalsminni. • Ending rafhlöðu allt að 8 dagar í biðstöðu, í notkun allt að 14 klst. • Dregur 100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • Ekkert suð, kristaltær hljómur. • íslenskur leiðarvísir. ^Staflgreitt: 1 6b 900 •Onis Memo: 22.900,-|2Í^* Onis með stafrænum símsvara og hátalara í símtóli. PHILIPS hvergi ódýrara PHILIPS Aloris • 900 Mhz. • Þyngd símtóls 170 g. • Dregur allt að 100 metra innanhúss. • Dregur allt að 300 metra utanhúss. • íslenskur leiðarvísir. ^^a^ratt: 12.900,- DeTeWe TWINNV MAGIC • Stafrænn sími. • Þyngd talfæris 158 g. • 20 númera nafnvalsminni • Ending rafhl. meira en 40 kist. í biðstöðu, í notkun 4 klst. • Dregur 50-100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • íslenskur leiðarvísir. ^^aðgreitt: 12.900 • Aukasímtól: 7.900,- Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is Umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.