Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 29
og miðlun verðbréfa heyra undir
Arna Odd.
Hann segir íslenska verðbréfa-
markaðinn kominn „nokkuð langt, en
hann á líka ýmislegt eftir ólært. Mik-
ið hefur gerst á síðustu fimm árum
og næstu fímm verða álíka viðburða-
rík; við eigum eftir að taka mörg
skref fram á við á þeim tíma og nálg-
ast ástandið eins og það er erlendis.“
Árni Oddur segur að það fólk sem
starfi á markaðnum í dag hafi ekki
upplifað „margar dýfur,“ eins og
hann orðar það. „Lækkun kom fram
á markaðnum til loka árs 1993, en
síðan var samfelld hækkun fram á
mitt síðasta ár. Þá fengum við að sjá
fyrstu dýfuna í fjölda ára og segja
má að þá hafi einhverjir stórsnilling-
arnir helst úr lestinni og orðið að
minni spámönnum; ef farið er yfir
það sem komið hefur frá verðbréfa-
fyrirtækjum síðustu árin sést hverjir
hafa unnið heimavinnuna sína og
hverjir ekki.“
Arni Oddur segir mikilvægast á
vettvangi markaðarins að viðskipta-
vinir finni strax íyrir heiðarleika og
trúverðugleika starfsmanna. „Til að
svo verði þarf þekking starfsmanna
að vera fyrir hendi og það er varð-
andi þetta atriði sem hin mikla vinna
skapast; það er hin sífellda greining-
arvinna á markaði sem teygir sig
fram á kvöld. Það er hún sem skilar
árangri því í henni liggur þekkingin."
En hvaða hæfileika telur Arni
Oddur menn þurfa að hafa til að bera
til að ná árangri á markaðnum: „Al-
mennt á verðbréfamarkaði skiptir
tölulegur skilningur venilegu máli
og að geta séð hlutina í víðara ljósi;
hvaða tækifæri eru framundan og
hvaða hættur. í því ljósi er mjög
mikilvægt að láta stundarhrifningu
ekld bera heilbrigða skynsemi ofur-
liði, heldur reyna ávallt að greina at-
burði á markaði sem utanaðkomandi
aðili.“ Ámi Oddur segir kröfu mark-
aðarins um arðsemi fyrirtækja eiga
eftir að aukast mjög á næstu árum.
„Það mun ekki líðast að fyrirtæki
skili ekki viðunandi arðsemi í þrjú til
fjögur ár samfleytt. Slíkt mun ekki
sjást þegar hlutabréfamarkaðurinn
styrkist. Þess vegna eru stjórnendur
fyrirtækja nú að tipla á tánum og
reyna að hagræða og við höfúm séð
skemmtilega breytingu víða í þá
átt.“
Hann segir menn þurfa að sökkva
sér í vinnu fyrstu tvö árin, „en það
heyrist strax hvort menn eru að
byrja eða ekki. Það er vel þekkt á
markaðnum að þegar menn hittast
segja þeir nýjustu alltaf hetjusögur
af sjálfum sér, skiljanlega. Það er því
alltaf hægt að dæma um hvort verð-
bréfamiðlari er nýr í starfi eða ekki.
Ef hann kann að ræða aðrar hliðar
lífsins en verðbréfamarkaðinn, þá er
hann kominn lengra...“
Agnor Ágústsson
Ekki óhætt
að fara
lengi frá
„VIÐSKIPTIN munu aukast gríðar-
lega í framtíðinni. Verðbréfaþing
verður vettvangurinn og ég er viss
um að fyrirtæki
munu sjá enn
betur kosti þess
að vera skráð á
verðbréfaþing-
inu. Síðan verða
miklar breyting-
ar með samein-
ingu, stærri fyrir-
tæki verða til,
sem gerir að
verkum að framkvæmdaaðilar eiga
auðveldara með að fjármagna hug-
myndir sínar; íslenskar fjármála-
stofnanir verða því stærri og sterkari
og allt ýtir þetta undir að íslenskt
efnahagslíf verði sterkara. Ég sé fyr-
ir mér að samkeppni eigi eftir að
aukast, viðskipti líka og að innlendir
aðilar eigi eftir að fjárfesta miklu
meira erlendis, bæði fyrirtæki og ein-
staldingar,“ segir Agnar Ágústsson,
35 ára verðbréfamiðlari hjá Handsali.
„Kaup innlendra aðila erlendis
hafa verið 1.400 milljónir króna á
mánuði síðustu 13 mánuði; þar með
hafa 18 milljarðar farið út. Það er
mikið í sögulegu samhengi, því þetta
fór hægt af stað eftir að fúllt frelsi til
fjármagnsflutninga var veitt og þar
tO í fyrra voru þetta 2-3 milljarðar á
ári. En nú eru einstaklingar og fyrir-
tæki að átta sig á kostum þess að
fjárfesta erlendis, áhættudreifmgin
er kostur og erlendi markaðurinn
ekki svo langt í burtu.“
Agnar segir oft töluvert í húfi í
þessum viðskiptum. „Við eigum við-
skipti fyrir viðskiptavini og félagið
sjálft. Oft er mikið í húfi og menn
verða að hafa hugann vel við þetta.
Kannski ástandið hér fari að verða
eins og erlendis að menn þori lítið að
fara frá skjánum því breytingarnar
eru svo örar. Fari þeir hálftima eða
klukkutíma frá gætu þeir misst af
góðu tækifæri."
Sigurður Atli Jónsson
Gaman að
taka þátt í
þróuninni
SIGURÐUR Atli Jónsson hóf störf
hjá Landsbréfum um áramótin 1994-
95, þegar hann kom heim frá meist-
aranámi í hag-
fræði í Kanada.
Hann er þrítug-
ur.
Sigurður Atli
segir starfíð
mjög spennandi,
„Það er gaman
að taka þátt í
þróun markaðar-
ins. Hann er enn
mjög ungur og því var ekki til stétt
sem þekkti beinlínis til. Fyrirtæki
hafa því verið að ráða unga menn og
þeir þróast með markaðnum. Auðvit-
að voru ýmsir sjóðir fyrir hendi, líf-
eyrissjóðir og sjóðir á vegum hins
opinbera, en þetta er í fyrsta skipti
sem raunverulegur og virkur verð-
bréfamarkaður myndar það um-
hverfi sem menn vinna í. Svo er auð-
vitað ekki langt síðan fjármagns-
markaður þróaðist þannig að mögu-
legt var að vextir væru frjálsir og
fjármagnsflutningar frjálsir milli
landa.“
Þegar talið berst að miklu vinnuá-
lagi segir Sigurður Atli það að hluta
til stafa af því hve markaðurinn sé
ungur og vaxi hratt. „Talsvert af
mínu starfi fer í alls konar þróunar-
vinnu. Vinnudagurinn er því oft
langur og margar helgar nýttar að
einhverju leyti í vinnu. Þetta er líka
starf sem ekki er skilið eftir á skrif-
stofunni; ég tek vinnuna með mér
heim, bæði í andlegum skilningi og
líka gögn til að vinna. Svo eru menn
oft með vinnustöðvar heima.“
Talsverð spurn er eftir fólki til
starfa hjá umræddum fjármálastofn-
unum. „Markaðurinn vex hratt og
það skapar mörg atvinnutækifæri,“
segir hann og bendir á að fólk með
mjög ólíka menntun ráðist til starfa.
Hvemig skyldi Sigurður Atli sjá
framtíðina á verðbréfamarkaðnum?
„Þróunin mun halda áfram; við-
skiptin halda áfram að aukast. þ.e.
velta á verðbréfaþingi og velta sjóð-
anna sem við vinnum fyrir. Sparnað-
ur í verðbréfasjóðum er ekki tiltölu-
lega mikill miðað við aðrar þjóðir en
ég hef trú á að hann vaxi. Spamaður
í landinu almennt á eftir að vaxa og
beinast inn á verðbréfamarkaðinn og
við verðum þá að reyna að ávaxta
peninga fólks eins vel og við getum.
Fjölbreytni sjóðanna mun aukast og
farið verður að vinna í meira alþjóð-
legu umhverfi."
Rognar Þórisson
Kampavín
á Kaffi-
vagninum?
RAGNAR Þórisson hefur verið verð-
bréfamiðlari hjá Verðbréfastofunni í
eitt og hálft ár. Hann er 27 ára og
hefur BA próf í
markaðs- og við-
skiptafræði frá
Bandaríkjunum.
„Fólk kaupir
hlutabréf með
von um ágóða og
miðlarar þurfa
því að hafa góða
innsýn; geta séð
vel fram í tímann og verða að fylgj-
ast vel með. Minnsta málið er að sjá
um kaupin og sölumar, allir geta
gert það, aðalmálið er að hafa innsýn
í hvað er á uppleið og hvað á niður-
leið og velja rétta fyrirtækið eða fyr-
irtækin innan þess iðnaðar. Dæmi: í
dag er verð sjávarafurða að hækka
verulega og sjávarútvegurinn því á
mikilli uppleið. En ekki munu allir í
sjávarútveginum græða á því. T.d.
munu IS og SH lenda í basli þar sem
hráefnisverð hækkar til verksmiðja
þeirra í Evrópu og Bandaríkjunum
en þau hafa langtíma sölusamninga í
þessum löndum. Þess vegna ráðlegg
ég viðskiptavinum mínum að selja
bréf í þessum fyrirtækjum og kaupa
í fyrirtækjum sem eiga kvóta, t.d.
HB, ÚA, Granda og Samherja. Og
ég efast ekki um að farið verði að
selja Dom Pernignon kampavín á
Kaffivagninum bráðlega(I); trillu-
karlamir græða á tá og fingri þessa
dagana.“
Varðandi fjárfestingar í íslenskum
fyrirtækjum nefnir Ragnar að það sé
vandamál að hlutabréf íslenskra fyr-
irtækja skuli skráð í íslenskum krón-
um. „Eina leiðin, að mínu mati, til
þess að fá erlenda fjárfesta til að
fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum er
að skrá svokallaðar hlutabréfaávis-
anir [Ameriean Depositary Receiptsj
t.d. á NASDAQ hlutabréfamarkaðn-
um. Þá geta t.d. bandarískir fjárfest-
ar keypt í íslenskum fyrirtækjum á
sínum markaði í sínum gjaldmiðli og
í gegnum sinn verðbréfamiðlara.
Þetta hafa fyrirtæki á Norðurlönd-
um verið að gera með góðum ár-
angri.“
Hann segir björtustu von Islands
„að sjálfsögðu“ íslenska erfðagrein-
ingu hf. „Það gæti orðið fyrsta ís-
lenska fyrirtækið sem kemst aOa
leið. Það gæti orðið stolt okkar ís-
lendinga eins og Nokia er stolt
Finna.“
Hann nefnir líka OZ. „Ég sé líka
fyrir mér að OZ geti farið alla leið og
það er reyndar komið mjög langt þó
það hafi verið lengur í burðarliðnum.
OZ-menn eru að gera mjög góða
hluti og ég hef mikla trú á þeim.
Þessi tvö fyrirtæki gætu orðið okkar
stjörnur; annað í líftækni og hitt í
hátækni. Það er heldur ekki pláss
fyrir meira hér, held ég. Það er ekki
til nóg af starfsfólki."
Albert Jónsson
Heimurinn
orðinn ein
heild
ALBERT Jónsson er nýbyrjaður
sem forstöðumaður verðbréfamiðl-
unar Fjárvangs en var áður hjá Við-
sldptastofu
Landsbankans,
átta ár hjá
Landsbréfum og
þar áður um tíma
hjá kaupleigufyr-
irtækinu Glitni.
Hann er 36 ára,
viðskiptafræð-
ingur og löggilt-
ur verðbréfa-
miðlari.
Markaðurinn hefur mikið breyst og
Albert orðar það svo að menn séu í
raun og veru æ betur að gera sér
grein fyrir því að málið snúist um að
hafa góð tengsl við ýmsa aðila. „Allt
snýst um viðskiptamanninn; að þarfa-
greina og reyna að veita þá þjónustu
sem hann óskar eftir. Samkeppnin
hefur ýtt okkur út í að búa til þá ver-
öld sem viðskiptavinurinn vill.“
Tvö mál eru mikið í brennidepli
hérlendis um þessar mundir: Varð-
andi einkavæðingu ríkisbankanna, og
reyndar einkavæðingu almennt, telur
Albert ríkið ætti að auglýsa eignimar
til sölu, leyfa öllum að bjóða og selja
hæstbjóðanda. „Það ætti síðan að
verða meginhlutverk ríkisins að setja
rammalöggjöf utan um markaðinn
sem slíkan." Og þetta segir hann um
íslenska erfðagreiningu: „Fyrirtækið
er eitthvert mesta frumkvæði sem
um getur. Það sem Kári Stefánsson
er að reyna að koma upp er fyrirtæki
sem er mjög mikilvægt af mörgum
ástæðum; starfsemi þess gæti hugs-
anlega náð verulegum spamaði í heil-
brigðiskerfinu, verið er að búa til
stóran vinnustað, fyrirtæki sem skil-
að getur þjóðfélaginu miklum skatt-
tekjum, það laðar marga íslendinga
aftur heim, hámenntað fólk, ryður
brautina fyrir frumkvöðla á öðram
sviðum, sem geta látið drauminn ræt-
ast og ég tel að með þessari starf-
semi sé hugsanlega lika verið að
halda komandi kynslóðum í landinu.
Ef þessi lóð em ekki þyngri á vogar-
skálunum en hagsmunir ýmissa
minnihlutahópa hlýtur að vera mjög
erfitt að sjá Island sem mjög áhug-
vert land til að stunda atvinnurekst-
ur í,“ segir Albert Jónsson.
Heiðar Guðjónsson
Þarf áhuga
og keppnis-
skap
„ÞETTA er eins og í efstu deildinni í
fótbolta; menn tala auðvitað við
starfsbræður í öðmm fyrirtækjum en
allir vilja vinna.
Til að standa sig
vel þarf áhuga og
keppnisskap,"
segir Heiðar Guð-
jónsson hjá ís-
landsbanka
spurður um starf
verðbréfamiðlar-
ans. Heiðar er 26
ára hagfræðingur
frá Háskóla íslands, sem starfað
hefur í faginu í tvö ár.
„í þessum bransa fer mjög mikl-
um sögum af löngum vinnudegi, til
dæmis í Bandaríkjunum, en þar er
mest rætt um hve lengi menn vinna,
ekki hverju þeir afkasta á þeim tíma.
í Evrópu skiptir meira máli hvað
gert er.“
Heiðar segir að eftir að fullt fjár-
magnsfrelsi komst á þurfi að fylgjast
með öllum mörkuðum, því þeir hafi
allir áhrif hver á annan. Hann bendir
á að sekúndan geti skipt miklu máli;
að taka rétta ákvörðun og sjá hvaða
áhrif það hefur. „Slíkt lærist ekki
einn, tveir og þrír heldur með
reynslunni og því er talað um að
tíma taki að komast á þann stall að
ná yfirsýn yfir alla markaðina. Þótt
Island sé lítið land veit ég að stærstu
fjárfestarnir eru að fjárfesta erlend-
is og ef eitthvað gerist þar þarf að
fylgjast mjög vel með. Til að greina
innlenda markaðinn skipta efnahags-
málin öllu máli, við þurfum að greina
hann sjálf en varðandi erlenda mark-
aði treystum við á greiningu þaðan.“
Þótt Heiðar hafi ekki starfað á
markaðnum nema i tvö ár hefur
hann fylgst lengi með gangi mála.
„Skuldabréfamarkaðsveltan marg-
faldast á hverju ári og fjöldi fyrir-
tækja á hlutabréfamarkaði hefúr
aukist rosalega. Nítján bættust til
dæmis við í fyrra. Markaðurinn er
ungur og tekur smátíma fyrir hann
að þroskast. Það var ekki fyrr en Is-
land komst upp úr efnahagskrepp-
unni 1993 að alvara kom í markaðinn
og þá var fyrst hægt að fara að þjóna
honum. Síðan hefur hann vaxið mjög
hratt og á eftir að gera áfram.“
Heiðar nefnir að mjög vel þurfti
að fylgjast með og setja sig inn í lög-
mál markaðarins. „Konan mín er
flugfreyja og því hef ég nægan tíma
til að stússast í þessu(!) Ég les bara
bækur og tímarit um þessi mál þeg-
ar heim er komið en er ekki með
tölvu þar. Það er „prinsip". En það
hjálpar mikið að lesa það sem aðrir
segja; hinn hyggni lærir af reynslu
annarra en hinn heimski af eigin,
segir í rússneskum málshætti.“
Arnar Loufdol
Samkeppnin
að aukast
ARNAR Laufdal er 28 ára og starfar
á Viðskiptastofu Landsbankans.
Hann er viðskiptamenntaður frá
N orður-Kaliforn-
íu í Bandaríkjun-
um. Hann sér um
lánamál, ávöxtun,
gjaldeyrismál, af-
leiðuviðskipti og
aðra þjónustu. „Á
Viðskiptastof-
unni erum við
með á skrá 300
stærstu fyrirtæki á landinu miðað
við veltu. Sum þeirra eru í viðskipt-
um við okkur en önnur ekki, en þau
eru markhópur okkar.“
Mikill hraði er oft á verðbréfa-
markaði en á könnu Amars eru mál
sem taka oft langan tíma í undirbún-
ingi. „Ef einhver biður um lán þarf
að meta fyrirtækið og slíkt getur
tekið nokkurn tíma. Ætli hins vegar
einhver að selja gjaldeyri getur það
gengið hratt fyrir sig. Eitthvert
þessara 300 fyrirtækja getur þá
hringt og ég reyni að ná sem hag-
stæðustum viðskiptum.“
Hann segir Landsbankann ekki
hafa sótt mikið út til að fá fyrirtæki í
viðskipti, en breyting sé að verða á.
„Fyrirtæki eru fastheldin á að vera í
„sínurn" banka, en samkeppni eykst
með stofnun Viðskiptastofu í Lands-
banka. Við aukna samkeppni fá fyr-
irtæki hagstæðari kjör þannig að
þetta ætti að vera til góðs fyrir ís-
lenskt atvinnulíf.“
Arnar segir meira farið að huga
að rekstri fyrirtækja en áður þegar
lán séu veitt; „ekki bara einblínt á
steypu sem hægt er að setja að veði
eins og áður. Nú er skoðað hverjar
framtíðarhorfur fyrirtækja eru og
farið að lána meira út á það.“ Hann
segir að þegar samkeppni eykst
verði arður bankanna minni en áður
og þeir þurfi því að endurskipu-
leggja starfsemi sína. „Það þarf að
fara að reka þá eins og fyrirtæki,
ekki stofnanir. Þegar minni álagn-
ing verður á þær vörur sem bankinn
er að selja nýtist það þannig að
meira hagræði verður í landinu og
það ætti að verða fyrirtækjum til
góðs.“
Friðrik Magnússon
Viðskipti
aukast
mjög
FRIÐRIK Magnússon er tæplega 28
ára, sjóðSstjóri hjá Verðbréfamark-
aði Islandsbanka, VIB. Hann er við-
skiptafræðingur
frá HÍ og hefiir
starfað hjá VÍB
síðan hann lauk
námi, í fjögur og
hálft ár.
Friðrik er jafn
sannfærður um
og aðrir, sem
Morgunblaðið
ræddi við, að við-
skipti með verðbréf eigi eftir að
aukast mjög á næstunni, fleiri ein-
staklingar muni leita inn á verðbréfa-
markaðinn og þar af muni margir
leita yfir í hlutabréf vegna góðrar
ávöxtunar, en ávöxtun skuldabréfa
hefur farið lækkandi undanfarin ár.
„Einstaklingai- eiga eftir að verða
betur upplýstir um innlendan hluta-
bréfamarkað og það sem einnig mun
breytast á allra næstu árum er að
stjómendur fyrirtækja á hlutabréfa-
markaði fara að hugsa meira um hag
hluthafanna en áður. Meiri kröfur
verða líka gerðar til stjómenda; að
þeir standi sig og átti sig á að það
em hluthafamir sem eiga fyrirtæk-
in.“
Friðrik segir að mikið álag geti
verið á starfsfólki á alþjóðlegum
verðbréfamörkuðum. „Menn fara
ekki frá tölvunni í hádeginu; einn er
sendur út til að kaupa mat handa fé-
lögunum. Áreitið er mjög mikið allan
daginn, menn em í símanum, horf-
andi á sjónvarp, á markaðinn í tölv-
unni og þurfa að meðtaka mikið af
fréttum. Þetta gæti einhvem tíma
orðið svona hér, en hasarinn er lítill
miðað við erlendis.“
Friðrik segir laun fyrir þessi störf
á íslandi „alveg þokkaleg. Laun
sumra em árangurstengd og ef
menn era mjög duglegir geta þeir
haft það gott. En launin eru mun
lægri en úti; þar er um miklu hærri
fjárhæðir að ræða“.
Hvaða hæfileikar em nauðsynleg-
ir, að mati Friðriks, til að menn
standi sig í þessu starfi?
„Hagnýtt er að menn hafi mennt-
un í fjármálafræðum en það er þó
ekki skilyrði og margir sem vinna á
þessum markaði em með próf úr
verkfræði og raungreinum. Menn
verða að vera skarpir og duglegir og
svo skipta mannleg samskipti miklu,
eins og reyndar alls staðar."