Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 48

Morgunblaðið - 23.08.1998, Page 48
SUNNUDAGUR 23. AGUST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Y0U KN0W WHAT I AM, CHARLE5? l'M A "REMINDER^ ( c h S| m ’.vri /: '•*■ ^ ' ' ~ ' U)E HAVE A BOOK REPOKT PUE TOMORKOW.. 7r fl KNOU)! I N KMOWIST0? .B066IN6 ME! Veistu hvað ég er, Kalli? Ég er „áminn- Við eigum að skila ritgerð á morg- Enginn er hrifinn af „áminnanda". andi“. un___ÉG VEIT! ÉG VEIT! HÆTTU AÐ ANGRA MIG! BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Bréf til andlegra leitenda á Islandi Frá Guðjóni Eyjólfssyni: í ÖLLUM frjálsum samfélögum er að finna trúarbrögð. Astæða þess er að fjöldi fólks getur ekki fundið lífsfyllingu án þess að lifa trúrarlífi. Hin ýmsu trúfélög gefa fólki tæki- færi til þess að sinna trú sinni. Þetta kallar á spuringuna hvort eitt trúfélag sé betra en önnur. Trúaðir menn og aðrir hafa mjög ólíkar skoðanir á því máli og það er sennilega vonlaust að komast að einhverri sameiginlegri niðurstöðu um það mál. Þeir sem hafa trúar- legan áhuga geta hins vegnar fund- ið svar fyrir sjálfa sig, með því að kynna sér kenningar hinna ýmsu trúfélaga. Sjálfur tel ég að bestu trúarkenningar heimsins sé að finna í bahá’í trú. Nú er það ekki á mínu valdi að geta sýnt fram það í einn blaðagrein að þess fullyrðing sé rétt. Til þess að ganga úr skugga um réttmæti hennar verða þeir sem áhuga hafa að kynna sér trúna af fullri alvöru, en ég ætla að fjalla í stutt máli um kenningar trúarinnar. Meginkenning Bahá’í trúarinnar er sú að öll helstu trúarbrögð mannkyns séu komin frá Guði og að á hverjum tíma sendi Guð boðbera til þess að leiðbeina mannkyni. Nýjasti boðberinn heitir Bahá’ulláh og hann boðar að nú sé kominn tími til þess að ■ sameina mannkyn og koma á varanlegum friði í heimin- um. Sú hugmynd að öll helstu trú- arbrögð mannkyns séu runnin af sömu rót er að sjálfsögðu afar um- deild, en þegar betur er að gáð kemur í ljós að það er alls ekki óskynsamlegt að líta svo á að öll trúarbrögð séu af sama tagi eða séu sams konar fyrirbæri. Styrkur bahá’í trúarinnar er einmitt sá að í henni er að finna áframhald af öllum öðrum trúar- brögðum- Hún býður t.d. kristnum mönnum uppá fyllri skilning á kristna trú og búddatrúarmannin- um uppá fyllri skilning á Búddatrú. Það er auðvitað raunverulegur munur á mismunandi trúarkenn- ingu og þess vegna enginn vandi að loka sig af í kenningum sem útiloka allt og alla, en reynsla bahá’ía sýnir að fólk með ólíkan trúarlegan grunn getur starfað saman og lært hvert af öðru. Gyðingurinn, hindúinn, músliminn og kristinn maður geta starfað hlið við hlið og lært hver af öðrum ef menn nálg- ast slíkt samstarf með réttu hugar- fari. Reynsla milljóna bahá’ía um allan heim er gleðilegur vitnisburð- ur um að það sem sameinar trúar- brögðin getur vel orðið sterkara en það sem greinir þau að. Tilgangur þessa bréfs er að vekja athygli á Bahá’í trúnni sem valkosti fyrir andlega leitand fólk á Islandi. Bahá’í trúin hér á Islandi er að mínum dómi mjög misskilin. Eg held að fólk flokki hana með sértrúarflokkunum, s.s. vottum , mormónum og aðventistum, en hún er af allt öðru tagi. Kenning flestra sértrúarflokka snýst um endur- komu Krists, en það gerir bahá’í trúin ekki. Hún heldur því fram að hann sé þegar kominn aftur. Ef þú lesandi góður ert í fullri al- vöru að velta fyrir þér trúmálum skaltu endilega kynna þér bahá’í trú. Heimasíða íslenska bahá’í samfélagsins er: www.itn.is/bahai GUÐJÓN EYJÓLFSSON Vörðugil 5, 603 Akureyri. Ekki kínverskur Frá Þráni Stefánssyni: ÉG FINN mig knúinn til að taka undir óánægjuraddir sem uppi hafa verið út af veitingastaðnum BingDao á Akureyri. í fyrsta lagi er þetta ekki kínverskur staður eins og hann gefur sig út fyrir að vera, þetta er bara Akureyrskt Múlakaffi. Til að geta verið kín- verskur þarf kokkurinn að vera kínverskur en á BingDao er engan slíkan að finna. Réttimir em ís- lenskt gúllas með kínverskum nöfnum. Til að matreiða kínversk- an mat þarf viðkomandi að kunna að hafa tilfinningu fyrir austur- lenskri matargerð. Það hefur kokkurinn á BingDao ekki, hann er örugglega góður kokkur uppá ís- lenskan mat að gera en er greini- lega á rangri hillu eins og er. Verð- lagið á matnum er náttúrulega al- gerlega á skjön við gæðin og tilefn- ið, því í staðinn fyi-ir að fá austur- lenskan mat fær maður örugglega eitt dýrasta gúllas í Islandssög- unni. Það er lágmarkskrafa þegar maður fer á austurlenskan stað að kokkurinn sé austurlenskur, annað er svik við kúnnann, þú ert að selja falsaða vöru. Svo ætti vertinn á BingDao að senda staffið sitt á námskeið í mannlegum samskipt- um og sjálfan sig. Ég vona að þeg- ar því námskeiðshaldi verður lokið verði andrúmsloftið allt afslapp- aðra og kúnninn fái þá þjónustu sem hann á skilið. ÞRÁINN STEFÁNSSON, Glaðheimum 14,104 Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt ti! að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.