Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 53
Ný vín og nýtt
fyrirkomulag
Eftir
Steingrím Sigurgeirsson
ÁFRAM halda vín að streyma í
reynslusölu um hver mánaðamót,
en samkvæmt nýjustu verðskrá
ÁTVR virðist sem einhverjar
breytingar hafi verið gerðar á
reynslusölufyrirkomulaginu. I stað
þess að reynslusala nýrra tegunda
fari fram í verslununum í Kringlu,
Eiðistorgi, Stuðlahálsi og á Akur-
eyri, líkt og verið hefur undanfarin
ár, er nú búið að flokka sautján vín-
búðir um allt land í þrjá „reynslu-
hópa“ er hlotið hafa heitin A, B og
C. Vín úr öllum flokkunum verða
seld í Heiðrúnu á Stuðlahálsi, en í
öðrum tilvikum tilheyrir verslun
einungis einum flokki, nema gömlu
reynslusöluverslanirnar er tilheyra
tveimur flokkum hvor. I verðskrá
eru reynsluvín síðan auðkennd með
bókstaf þess reynsluhóps er þau til-
heyra og síðan verða viðskiptavinir
að reyna að átta sig á því hvaða vín-
búðir tilheyra viðkomandi flokki.
Listi yfir búðirnar er að finna á bls.
90 í verðskránni.
Chianti og Barolo
En svo vikið sé að nýlegum
reynsluvínum ber fyrst að nefna
nokkur ágæt ný ítölsk vín. Vínið
Rémole 1996 er Chianti frá hinum
ágæta fi-amleiðanda Marchesi di
Frescobaldi. Léttur, þurr og
kryddaður ilmur einkennir vinið.
Það er fremur létt í uppbyggingu
en þægilegur, hreinn og þurr berja-
ávöxtur einkennir bragð í munni.
Rémole kostar 970 krónur og er um
ágætiskaup að ræða ef leitað er að
víni með til dæmis einfóldum pasta-
réttum.
Castello di Nippozzano Chianti
Classico 1994 frá sama framleið-
anda er vín í klassa þar fyrir ofan,
þótt verðmunurinn sé ekki ýkja
mikill, en það kostar 1.150 krónur.
Vínið er farið að sýna þó nokkurn
þroska og mýkt. Þetta er fágað vín
með þykkum keim er einkennist af
soðnum rauðum ávöxtum, tei og
kryddjurtum. Fín uppbygging og
gott jafnvægi spillir ekki íýrir. Vín
sem hentar með öllum góðum
ítölskum mat en einnig lambakjöti.
Þriðji Italinn er Mirafiore Barolo
1992 frá Gancia (1.860 kr.). Milt,
nokkuð sýrumikið og milliþungt
vín. Krækiberjasafi í byrjun og fer
síðan út í hrátt nautakjöt og soðna
ávexti í nefi. Vínið er tiltölulega létt
og mjúkt í munni þrátt fyrir að
greina megi augljós tannín og sýru.
Vín með villisvepparisotto, nauta-
kjöti og jafnvel villibráð.
Rioja
Spænsk Rioja-vín hafa notið
stöðugra og mikilla vinsælda á Is-
landi. Frá framleiðandanum Fred-
erico Paternina er nú í reynslusölu
Gran Reserva 1989. Mildur, sætur
og þroskaður ilmur einkennir vínið.
Sultukenndur og kryddaður. Fágað
og þétt í munni. Laglegur Rioja
sem ætti ekki að valda neinum Ri-
oja-unnanda vonbrigðum. Gott
samspil af þroskuðum, heitum
Ch;
unnem a
sældur í
þrúgur
slík ©
suður-
1996
ion)
Chardíji
krónur
lýsir sér í
rennur sa
Stílhreint
Suður-afrískur
Chardonnay
Rétt eins og Rioja-vín hafa
notið íylli íslenskra rauðvíns-
virðist lítið lát á vin-
Nýjaheimsvína úr
ni Chardonnay. Nokkur
ii nú í reynslusölu. Hið
i ifríska Cathedral Cellars
ardonnay (Coastal Reg-
ír þykkt og mjúkt
nnay-vín og kostar 1.060
Eikin gefur tóninn, og
þykkri, sætri vanillu er
nan við suðræna ávexti.
rg þægilegt. Góð kaup.
ávexti
eik í m
Mar j
anza-n
ur þu:
rakur.
vm, oj
lokin.
andi,
nema
1.080
og mildri vanillukenndri
mni. Verðið er 1.320 kr.
ues de Grinon 1996, Cri-
erki eru greinanleg. Ilm-
r, jarðvegskenndur og
Haustskógur. Milliþungt
stamt og sýrumikið í
(Jlrinon er góður framleið-
þetta vín nær þó ekki
meðaleinkunn. Kostar
ngu:
'tn
en
Nederburg Chardonnay 1997
(Westem Cape) er einnig frá Suð-
ur-Afríku þótt stíllinn sé gjörólíkur.
Ávextir yfirgnæfa bragðið í stað
eikar og vínið er milt og sýruríkt.
Milliþungt með sítrus og lychée í
nefi.
Chateauneuf-de-Pape
Loks sígilt og gott rauðvín frá
Frakklandi, nánar tiltekið Rhone-
dalnum. Frá Chapoutier, einum
viitasta framleiðanda þess héraðs,
kemur vínið Chateauneuf de Pape
„la Bernardine" 1994. Lakkrís,
lakkrís og aftur lakkrís er það
fyrsta sem kemur í hugann jafnt í
ilm sem bragði í þessu víni, sem
ólíkt flestum Chateauneuf-vínum
byggist einungis á einni þrúgu,
Grenache, en ekki þrúgnakokkteil.
Þykkt, mikið og sýruríkt. Það er
farið að sýna smáþroska en veitir
ekki af nokkram áram í viðbót. Af-
bragðsvín til að njóta nú þegar
degi tekur að halla og villibráðin
nálgast.
STERKUR LEIKUR
í BETRUNARHÚSINU
Nú er kamin stæxri og sterkari líkamsræktarstöð í Betrunarhúsinu með fleiri
leiðbeinendum og í stærra húsnæði. Betrunarhúsið býður nú sérstakt tilboð
á árskorti. Þess vegna er það sterkur leikur að tryggja sér kort fyrir
18. september nk. Kynntu þér málið!
GARÐATQHGl 1 GARÐABÆ SÍMI 5G5 BB98
Meðal þess sem Betrunarhúsið býður:
Eróhikk, Spinning, Yoga, Kickhoxing, Jiu Jitsu námskeið, Body
Pump, fitubrennslunáinskeið, leikfimi fyrir hakveika og glæsilegur
tækjasalur með hinum heimsþekktu Hammer Strength tækjum.
Leiðbeinendur ávallt til staðar og sjúkraþjálfari 4 sinnum í viku.
Ljósastofan verður opnuð i næsta mánuði.
Jiu Jitsu námskeið hefst 7. sept. Verð: 12.990 kr. í 4 mánuði.
Fitufarennslunámskeið hefjast 7. sept. Verð: 9.990 kr. í 8 vikur.
Skráning er hafin.
16.990kr
fyrir árskort. Tilboðib gildir til 18. september nk.