Morgunblaðið - 11.10.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913
231. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Undirbúningi loftárása gegn Serbum að fullu lokið
Líklegt að NATO láti til
skarar skríða á mánudag
Brussel. Reuters.
JAVIER Solana, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO), sagði í gær að sendiherr-
ar aðildarríkja bandalagsins hefðu
lokið nauðsynlegum undirbúningi
fyrir hugsanlegar loftárásir gegn
Serbum vegna Kosovo-deilunnar.
Þó þykir líklegt að ekki verði látið
til skarar skríða fyrr en á mánu-
dag.
Solana sagði að ástandið væri
mjög alvarlegt og ítrekaði viðvar-
anir bandalagsins til Slobodans
Milosevic, forseta Júgóslavíu, um
að tíminn sem hann hefði til um-
þóttunar væri að renna út.
Richard Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjómar, sagði að lokn-
um fundi með leiðtogum Kosovo-
Albana í gærmorgun að ekkert
hefði þokast í samkomulagsátt.
Holbrooke þrýsti á þá að fallast á
friðarsamkomulag, sem gerir ráð
fyrir að héraðið fái aukna sjálfs-
stjóm, en útilokar að það fái algert
sjálfstæði frá Júgóslavíu. Hann
ráðgerði að fljúga til Belgrad í eft-
irmiðdaginn og halda áfram við-
ræðum við Milosevic.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að ef Milos-
evic færi ekki eftir ályktunum Sam-
einuðu þjóðanna kæmi til hernað-
aríhlutunar af hálfu NATO. Varn-
armálaráðherra Italíu, Beniamino
Andreatta, sagði í gær að ítalskar
hersveitir væru reiðubúnar að
taka þátt í loftárásum um leið og
heimild þingsins lægi fyrir. Hann
gaf til kynna að stjórnarkreppan í
landinu kæmi ekki í veg fyrir að
ítalir stæðu við skuldbindingar
sínar á alþjóðavettvangi, en ríkis-
stjórn Romanos Prodis féll á
föstudag. Hemaðarsérfræðingar
NATO fylgjast nú grannt með
þróun mála á Italíu, þar sem her-
stöðvar bandalagsins þar myndu
gegna lykilhlutverki ef til árása
kæmi.
Sameinuðu þjóðimar krefjast
þess að Serbar hætti árásum á
óbreytta borgara í Kosovo, dragi
herlið sitt til baka frá héraðinu,
geri flóttamönnum kleift að snúa
heim, veiti hjálparstofnunum
greiðari aðgang og hefji samninga-
viðræður við aðskilnaðarsinna.
ALBÖNSK móðir geng^ur ásamt börnum sínum framhjá serbneskum
öryggislögreglumönnum í Kosovo í gær.
Glenn
fer út
í geim
BANDARÍSKI öldungadeild-
arþingmaðurinn John Glenn
fær aðstoð við að klæðast
geimbúningi sínum á æfingu
fyrir fyrirhugað geimskot
geimskutlunnar Discovery á
föstudag.
Glenn varð fyrstur Banda-
ríkjamanna til að fara á braut
um jörðu í geimfari árið 1962,
og fimmti maðurinn í heimin-
um til að fara út í geim. Hann
verður senn elsti maðurinn til
að fara í geimferð, þegar
Discovery verður skotið á loft
29. október næstkomandi.
Sjö menn verða í áhöfn
geimskutlunnar. A föstudag
æfðu þeir niðurtalningu og
hvernig bregðast ætti við
eldsvoða eða sprengingu um
borð.
Geimskotið hefur vakið
meiri athygli en ella vegna
þátttöku Glenns. Geimferða-
stofnun Bandaríkjanna
(NASA) hefur verið vænd um
að velja hann í áhöfnina á
stjórnmálalegum forsendum,
en ekki í þágu geimrann-
sókna.
Snati slær í gegn
í Hong Kong
LITLAR plastbrúður af Snata,
sem gert hefur garðinn frægan í
myndasögum Morgunblaðsins,
hafa nú leyst hin hefðbundnu
stöðutákn, Rolex-úr og Rolls
Royce-eðalvagna, af hólmi í Hong
Kong. Borgarbúar eru þekktir
fyrir að fá „æði“ fyrir állskyns
hlutum, en sjaldan hefur það
valdiðeins miklu uppnámi og nú.
McDonald’s-skyndibitakeðj an
hefur kynnt nýja gerð af Snata-
brúðum á hverjum degi síðan 11.
september, og langar raðir hafa
myndast fyrir utan staðina. Eft-
irspurnin eftir Snata er slík að
lögregla þurfti í síðustu viku að
stilla til friðar eftir að til átaka
kom milli tugþúsunda manna
sem biðu í ofvæni eftir því að
geta fest kaup á nýjustu brúð-
unni. Margir hafa lagt það á sig
að standa í biðröð næturlangt, og
svartamarkaðsbrask með Snata
blómstrar.
„Fólk er gjörsamlega gengið
af göflunum," sagði virðuleg
kona sem beið óróleg fyrir utan
skyndibitastað. Prófessor í sál-
fræði við Kínverska háskólann í
Hong Kong kveðst vera gáttaður
á æðinu, því plastbrúðan sé ekki
einu sinni sérlega glæsileg að sjá.
Hann segir að orsökina megi ef
til vill rekja til efnahagskrepp-
unnar í Asíu, því Snati sé stöðu-
tákn sem kosti ekki nema 50
krónur.
Reuters
Með kreppuna
á heilanum
Hvað er
upplýst
samþykki?
Er sjólfræð-
ið virt?
LITRÓF BREYST
ÍALHLIÐA
PRENTSMIÐJU
Mína ben pá mildar pen
Magdalena Thoroddsen