Morgunblaðið - 11.10.1998, Page 4
4 SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 7/6 -13/6
Hp INNLENT
►DAVÍÐ Oddsson
forsætisráðherra sagði það
mikil vonbrigði í umræðum á
Alþingi í vikunni að
Hæstiréttur skyldi ekki hafa
haft lagaskilyrði til að taka
Guðmundar- og
Geirfinnsmálið upp á nýjan
leik. Ráðherra sagði að ekki
aðeins eitt dómsmorð hefði
verið framið í
Geirfínssmálinu heidur mörg
og gat þess að þdtt það hefði
verið sársaukafullt fyrir
íslenska ddmstdla hefði það
verið gdð og nauðsynleg
„hundahreinsun“.
Orkuveita Reykjavík-
ur stofnuð um
næstuáramót
AUGLÝST verður eftir forstjóra Orku-
veitu Reykjavíkur á næstunni, en til-
laga um að sameina Hitaveitu Reykja-
víkur og Rafinagnsveitu Reykjavíkur í
nýtt fyrirtæki undir vinnuheitinu Orku-
veita Reykjavíkur var lögð fram í borg-
arráði. Borgarstjóm gerir ráð fyrir að
afgreiða tillöguna á borgarráðsfundi 15.
október nk., og að sögn borgarstjóra er
gert ráð fyrir að fyrirtækið taki til
starfa um næstu áramót.
►STJÓRNARFLOKKARNIR
hafa samanlagt 80% fylgi
meðal ungra kjdsenda
samkvæmt könnun
Félagsvísjndastofnunar
Háskdla íslands á
stjórnmálaflokkum sem
bjdða fram til næstu
Alþingiskosninga.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
fylgi 50% kjdsenda á
aldrinum 18-24 ára og
Framsdknarflokkurinn 30%
fylgi.
►IÐNAÐARRÁÐHERRA og
sjávarútvegsráðherra hafa
ákveðið að fullnýta strax í
fyrsta áfanga heimildir
núgildandi laga til sölu á
eignarhlut ríkissjóðs f
Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins eða 49%
hlutafjár.
►SKIPSFLAK sem fannst
um 50 sjdmílur norðaustur
af Glettingi er talið vera
rússneskur kapalbátur sem
tilheyrt hafi rússneska
sjdhernum. Flakið er 13
metra langt og 4,5 metra
breitt.
►METVIÐSKIPTI urðu með
þorsk á Kvdtaþingi íslands f
vikunni, frá því að þingið tdk
til starfa. Samtals voru seld
262,5 tonn af þorski og
viðskiptaverð dagsins var 88
kr. fyrir kfldið. Einnig urðu
metviðskipti með ufsa, þegar
seld voru samtals 124.863
tonn.
Deila verkalýðsfélaga
við Technoprom-
export leyst
RÚSSNESKA fyrirtækið Technoprom-
export féllst á allar kröfur Félags járn-
iðnaðarmanna og Rafiðnaðarsambands-
ins um leiðréttingu launa útlendra
starfsmanna sinna. Guðmundur Gunn-
arsson, formaður Rafiðnaðarsambands-
ins, áætlar að Technopromexport muni
þurfa að leggja út hátt í 20 milljónir ís-
lenskra króna í aukagreiðslur vegna
endurskoðunar á fjölda yfirvinnutíma
og breyttrar röðunar í launaflokka.
Ríkissljórnin sam-
þykkir breytt gagna-
gru nnsfru m varp
FRUMVARP um gagnagrunn á heil-
brigðissviði var samþykkt á ríkisstjóm-
arfundi á fóstudag. Meðal helstu breyt-
inga á frumvarpinu er að það gerir ráð
fyrir einum miðlægum gagnagrunni og
að einum aðila verði veitt tímabundið
rekstrarleyfi, mest til 12 ára í senn.
Persónueinkenni verða dulkóðuð í eina
átt þannig að ekki verður unnt að rekja
upplýsingamar til baka með greining-
arlykli. Einnig er kveðið á um að starfs-
menn heilbrigðisstofnana skuli annast
dulkóðun heilbrigðisupplýsinga og per-
sónueinkenna fyrir flutning þeirra í
gagnagmnninn.
Fulltrúadeildin
samþykkir rannsókn
FULLTRÚADEILD
Bandaríkjaþings sam-
þykkti á fimmtudag
að hafin yrði formleg
rannsókn á því hvort
grundvöllur væri fyrir
málshöfðun tii emb-
ættismissis á hendur
Bill Clinton forseta.
Tillagan var sam-
þykkt með 258 atkvæðum gegn 176, og
var 31 þingmaður Demókrataflokksins
henni fylgjandi. Dómsmálanefnd full-
trúadeildarinnar, þar sem repúblikanar
em í meirihluta, mun hefja rannsóknina
innan skamms. Formaður nefndarinnar
sagðist myndu beita sér fyrir því að
henni lyki fyrir áramót, og ákveður
nefndin þá hvort leggja eigi til að full-
trúadeildin samþykki formlega ákæm til
embættismissis á hendur forsetanum.
► HUNDRUÐ þúsunda
manna tdku þátt í mdtmælum
um allt Rússlaud á miðviku-
dag til að krefjast greiðslu
vangoldinna launa og afsagn-
ar Borís Jeltsins, forseta
landsins. Þátttakan var þd
minni en talsmenn verkalýðs-
félaganna og kommúnista
höfðu búist við. Jeltsín aftdk
á fimmtudag að hann myndi
láta af embætti áður en kjör-
tímabilinu lyki árið 2000.
► TIL átaka kom á landa-
mærum írans og Afganistans
á fimmtudagsmorgun. Iranar
sögðu talebana, er ráða yfir
stærstum hluta Afganistans,
hafa átt upptökin, en tals-
maður talebanastjdrnarinnar
í Kabúl sagði því öfugt farið.
Herir NATO
í viðbragðsstöðu
MADELEINE Al-
bright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna,
sagðist á fimmtudag
reikna með að Atl-
antshafsbandaiagið
(NATO) myndi brátt
samþykkja að setja
herlið sitt í viðbragðs-
stöðu vegna deilunnar
í Kosovo. Samningafundir Richards
Holbrookes, sendimanns Bandaríkja-
stjórnar, og Slobodans Milosevic, for-
seta Júgóslavíu, í vikunni reyndust ár-
angurslausir. Vestrænar þjóðir hófu
brottflutning sendiráðsstarfsmanna frá
Júgóslavíu á fimmtudag, þar sem líkur
þóttu hafa aukist á að til loftárása
NATO kæmi.
► SÆNSKA akademían til-
kynnti á fimmtudag að portú-
galski rithöfundurinn José
Saramago hlyti bdkmennta-
verðlaun Ndbels í ár. Sara-
mago er 76 ára að aldri og
öðlaðist ekki frægð fyrir
skáldverk sín fyrr en seint á
ferlinum. Hann er fyrsti
Portúgalinn sem hlýtur verð-
launin.
► ROMANO Prodi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, sagði af sér á
föstudag, eftir að þingið sam-
þykkti vantrauststillögu á
ríkisstjdrnina. Einu atkvæði
munaði að stjdrnin héldi
velli. Kommúnistaflokkurinn
lét af stuðningi sinum við
sljdrnina í síðustu viku vegna
dánægju með fjárlagafrum-
varp næsta árs.
FRÉTTIR
Umhverfísráðherra leyfír ótakmarkaðar rjúpnaveiðar
Otímabært að banna
rjúpnaveiðar í ár
RJÚPNAVEIÐITÍMABILIÐ
hefst 15. október næstkomandi og
hefur umhverfisráðherra tekið þá
ákvörðun að leyfa veiðamar á Suð-
vestur- og Vesturlandi ótakmarkað
með sama hætti og undanfarin ár,
en líkur eru til þess að þær verði
takmarkaðar á næsta ári.
Rannsóknir Náttúrufræðistofn-
unar hafa bent til þess að ofveiði sé
stunduð á umræddu svæði, en ljóst
er að stofninn er þó ekki í útrým-
ingarhættu. „Skotveiðar hafa til-
tölulega lítil áhrif á rjúpnastofninn
ef þær eru innan hóflegra marka,“
segir Jón Gunnar Ottósson, for-
stjóri Náttúrufræðistofnunar. „Við
höfum sagt að stofninn þoli 35-40%
veiði, en þegar 70-80% staðbund-
ins fuglastofns er skotinn, eins og
reyndin er á þessu svæði, þá hættir
sveiflan í stofninum og þar eru
fyrstu hættumörkin. Sveiflunnar
gætir ekki hér eins og annarsstað-
ar á landinu með slíkum veiðum,“
segir Jón Gunnar. Hann segir að
það sem við hafi blasað síðastliðin
þrjú ár sé að 70-80% af fuglunumn
séu drepin á fyrstu 2-3 vikunum af
veiðitímanum og það þoli stofninn
ekki.
Mikilvægt að vinna
skotveiðimenn á sitt band
Umhverfisráðuneytið óskaði eft-
ir áliti ráðgjafarnefndar um villt
dýr á greinargerð Náttúrufræði-
stofnunar og vakti athygli á því að í
ljósi greinargerðarinnar kynni að
vera nauðsynlegt að grípa til ráð-
stafana til að draga úr veiðiálagi á
rjúpum á umræddu svæði. Niður-
staða ráðgjafamefndar var sú að
nauðsynlegt væri að draga úr veið-
um á rjúpum a.m.k. sums staðar á
Suðvestur- og Vesturlandi.
Sjónarmið veiðistjóra og meiri-
hluta ráðgjafarnefndar urðu öðr-
um sjónarmiðum ofar þegar tekin
var ákvörðun um málið í gær.
Sjónarmið veiðistjóra lutu að því
að stutt væri uns veiðitíminn hæf-
ist og að fresta ætti aðgerðum um
Morgunb]aðið/Árni Sæberg
eitt ár þannig að meiri tími gæfist
til að kynna veiðitakmarkanir fyr-
ir veiðimönnum, auk þess sem að
eitt talningarár til viðbótar kæmi
mönnum til góða við rannsóknir á
stofnstærð. Meirihluti ráðgjafar-
nefndar vildi að málið yrði kynnt
betur og undirbúið, en í áliti
nefndarinnar segir m.a. að mikil-
vægt sé að vinna skotveiðimenn
og samtök þeirra á sitt band
þannig að þeir komi flestir til að
styðja hugsanlegar aðgerðir.
Prófkjör sjálfstæðis-
manna í Reykjanesi
Tveir nýir
frambjóð-
endur
HÓLMFRÍÐUR Skarphéðinsdóttir
og Helga Guðrún Jónasdóttir hafa
ákveðið að gefa kost á sér í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykja-
nesi til næstu Aiþingiskosninga.
Hólmfríður segir að hún stefni að
5.-6. sæti. Hún hefur ekki áður tekið
þátt í landsmálapólitík en hefur ver-
ið á hsta sjálfstæðismanna í Sand-
gerði undanfarin tvö kjörtímabil.
Hún hefur verið varamaður í bæjar-
stjórn sl. sex ár. „Ég er að þreifa
mig áfram í landsmálapólitíkinni og
ekki veitir af því að fleiri konur taki
þátt í slagnum. Ég geri þetta af
áhuga en þau mál sem mér eru
helst hugleikin eru vímuvamamál.
Einnig legg ég áherslu á að samfé-
lagið standi betur að málum gagn-
vart fötluðum," segir Hólmfríður.
Helga Guðrún Jónasdóttir kveðst
stefna á 5. sæti í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í Reykjanesi. Helga Guð-
rún er stjórnmálafræðingur og
kveðst hafa verið alla tíð mjög póli-
tísk. Hún starfaði sem upplýsinga-
fulltrúi Bændasamtakanna 1990-
1995 og starfaði síðan hjá Verslun-
arráði Islands og Alþjóðaverslunar-
ráðinu. Frá síðustu áramótum hefur
hún starfað á Skrifstofu jafnréttis-
mála.
Hún segir að þau mál sem helst
séu sér hugleikin séu staða fjöl-
skyldunnar í þjóðfélaginu og staða
kynjanna. „Kynbundinn launamun-
ur er á bilinu 10-15%. Ég sætti mig
ekki við að konur séu annars flokks
vinnuafl á vinnumarkaðnum í laun-
um og metorðum talið,“ segir Helga
Guðrún.
Valin efnilegasta
söngkonan
HANNA Dóra Sturlu-
dóttir sópransöngkona
var nýlega valin efni-
legasta söngkonan af
einum tónlistargagn-
rýnanda tímaritsins
Opemwelt, sem er
stærsta tímarit sinnar
tegundar í Þýskalandi.
Tímaritið fékk tón-
listargagnrýnendur til
að tilnefna það eftir-
minnilegasta frá síð-
asta sýningarári, allt
frá bestu óperuupp-
setningu til bestu
söngvara, og einn þess-
ara gagnrýnenda,
—-i.
HANNA Dóra
Sturludóttir
Elenore Buning frá
Frankfurter All-
gemeine Zeitung, til-
nefndi Hönnu Dóru
sem efnilegasta söngv-
arann. Verkefnið sem
vakti athygli á Hönnu
Dóru var kammeróper-
an Triest, sem frum-
flutt var í mars sl.
Hanna Dóra starfar
nú við óperuhúsið í
Neustrelitz í Þýska-
landi og á þessu sýn-
ingarári einnig sem
gestasöngvari við
Komische Oper í
Berlín.
:
I
íú,.
UÁÐD ÞEIM EYRA
.
/ Þjóðbikhúskjallaranum
4 morgun
Listaklúbbur Þjóðleikhússins,
Mál og menning/Forlagið
bjóða upp á Ijáð ogjazz
Hallgrímur Helgason, Haraldur Jónsson, Kristín Ómarsdóttir,
Sjón og Sveinbjöm I. Baldvinsson lesa ný Ijóð.
Tómas R. Einarsson kontrabassa, Arni Heiðar Karlsson
píanó og Matthías M. D. Hemstock trommur,
FORLAGIÐ
leika jazz af fingrum fram
Hefst kl U
li
Mál @i mtnniRf
Mál og menning • Laugavegl 18 • Síml 515 2500