Morgunblaðið - 11.10.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.10.1998, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjárlagafrumvarp næsta árs lagt fram á þingi: Ástand gott en brothætt VIÐ verðum bara að vona að fjármálaráðherra kunni sér hóf í brennheitri góðærissólinni og endi ekki með sólsting og þriðja stigs bruna. p lí'l ■ þr"-4 mg fiá)i h i \ IffiH FJÖLDI gesta var við opnun rannsóknarstofunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný rannsóknarstofa í ljósefnafræði NÝ rannsóknarstofa á sviði ljós- efnafræði við efnafræðistofu Raun- vísindastofnunar Háskóla Islands var opnuð á föstudaginn. Ljósefna- fræði byggist á því að nýta ljós- geisla til þess að framkvæma efna- breytingar af ýmsu tagi eða til að kanna eiginleika efna með litrófs- greiningaraðger ðum. Rannsóknarstofan hefur yfir að ráða leysigeislatæki sem getur gefið frá sér allt að 20 megawatta leysigeislablossa, sem er hið afl- mesta hér á landi, svo vitað sé. Tækið, ásamt öðrum ljósbúnaði á stofunni, er nýtt í rannsóknar- verkefni stúdenta og kennara við Háskóla Islands, í samvinnu við erlenda aðila. Aðallega er um að ræða grunnrannsóknir í ljósefna- fræði sem þjóna mikilvægum til- gangi fyrir háskólann og samfé- lagið í heild, segir í fréttatilkynn- ingu frá Raunvísindastofnun há- skólans. Með opnun rannsóknarstofunnar gefst háskólanemum tækifæri til að takast á við flókin rannsóknar- verkefni, þar sem í senn þarf að beita fullkomnustu tækni, fræði- legri þekkingu og skilningi á við- fangsefninu, segir í fréttatilkynn- ingunni. ÚlsiliniaiJíDiJV Faxafeni 14, 2. hæð Gluyyatjöld, blúndur, borðdúkar, handklæði, rímlayardínur, sænyurverasett, IWjöy ódýrt. Verð trá kr. 100 á metra. Námstefna um þrávirk lífræn efni Áhrif efnanna meiri en áður var talið Magnús Jóhannesson Umhverfisráðuneytið gengst fyrir nám- stefnu um þrávirk lífræn efni í Borgartúni 6 á milli kl. 8.30 og 16.30 á mánudag. Námstefnan er einn liður í framlagi ráðu- neytisins á Ari hafsins. Námstefnustjóri er Magn- ús Jóhannesson, ráðuneyt- isstjóri í umhverfisráðu- neytinu. Hann segir að um- ræðan um þrávirk lífræn efni fari vaxandi enda hafi komið í ljós að áhrif efn- anna séu talsvert meiri en áður var talið. Magnús var beðinn um að útskýra hvað væru þrá- virk lífræn efni. „Venju- lega brýtur umhverfið nið- ur lífræn efni, t.d. olíu. Umhverfið nær hins vegar ekki að brjóta niður þrá- virk lífræn efni, þau safnast upp í lífríkinu og valda skaða. Þrávirku efnin ganga inn í fæðukeðjuna og enda oftast hjá manninum. Efnin valda auðvitað sama skaða hjá dýrum. Ég get nefnt spendýr í sjó og spendýr sem lifa á sjávar- fangi, t.d. ísbimi.“ - Hver eru þessi efni? „Efnin verða til og komast út í umhverfið með þrennum hætti. Stærsti hópurinn er skordýraeit- ur eins og DDT. Undir annan hópinn flokkast efni framleidd til að leysa ákveðin tæknileg vanda- mál svo sem PCB. Efnið var út- búið til einangrunar í rafmagns- iðnaði. Þriðji hópurinn verður til sem afleiðing af annarri fram- leiðslu, eða sorpbrennslu. Díoxín verður t.a.m. til við ýmsa efna- framleiðslu og ófullkominn bnma á sorpi.“ - Hvers vegna var ákveðið að efna til ráðstefnunnar nú? „Kveikjan að námstefnunni er að sérfræðingahópur á vegum norðurskautsráðsins um heilsu manna á norðurslóðum heldur ár- legan fund sinn hér á landi í vik- unni. Okkur fannst því tilvalið að stefna saman erlendu sérfræð- ingunum og innlendum sérfræð- ingunum til að upplýsa almenn- ing um þrávirku lífrænuefnin. Umræðan fer vaxandi enda hafa rannsóknir verið að leiða í ljós að áhrif þrávirku lífrænu efnanna eru mun meiri en áður var talið. Efnin voru þekkt og grunuð um að hafa áhrif á tíðni krabbameins og frjósemi fýrir 10 árum. Núna hefur verið aflað sterkra vísbend- inga um að efnin geti í mjög litlu magni haft áhrif á alla hormóna- starfsemi líkamans, þar með á taugakerfið og einstök líffæri." - Hafa Islendingar verið virkir í umræð- unni um þrávirk lífræn á alþjóða vettvangi? „Islendingar hófu umræðuna á alþjóða- vettvangi í aðdraganda Ríó-ráðstefnunnar. I framhaldi af því hefur verið mynduð samn- inganefnd til að vinna að alþjóð- legum samningum um takmark- aða notkun og losun þessara efna. Stefnt er að því að samningurinn verði tilbúinn til undirritunar árið 2000. íslensk stjómvöld lögðu áherslu á að samningurinn yrði alþjóðlegur enda geta þrávirk líf- ræn efni auðveldlega borist lang- ar leiðir frá upprunastaðnum og þannig borist t.d. á íslensk fiski- mið. Vissar vísbendingar eru svo ► Magnús Jóhannesson er fæddur 23. mars árið 1949 í Reykjavík. Magnús varð stúd- ent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969 og efna- verkfræðingur frá háskólanum í Manchester í Englandi árið 1975. Hann var siglingamálastjóri á árabilinu 1985 til 1991, að- stoðarmaður umhverfisráð- herra frá 1991 til 1992 og ráðuneytisstjóri í ráðuneytinu frá 1992. Eiginkona Magnúsar er Ragnheiður Hermannsdóttir kennari og eiga þau tvö börn. um að efnin hafi tilhneigingu til að setjast frekar að á köldum slóðum en hlýjum. Ég get nefnt að komið hefur í ljós að PCB- mengun í ísbjörnum á norður- slóðum er sums staðar orðin mjög alvarleg. Uppmni efnanna er auðvitað mun sunnar.“ - Hvar hófst umræðan? „Umræðan um þrávirk lífræn efni byrjaði í Bandaríkjunum og tengdist stóm vötnunum á landa- mæram Kanada og Bandaríkj- anna. Þar hafa flestar rannsóknir verið gerðar og oftast í tengslum við neyslu sjávarfangs úr vötnun- um. Efnin hafa nefnilega mjög mikla tilhneigingu til að safnast upp í vefjum lifandi dýra og fiska og berast þannig til okkar.“ - Hvert verður skipulag nám- stefnunnar? „Fyrir hádegið skýra íslenskir sérfræðingar frá viðfangsefnum sínum á þessu sviði. Eftir hádegið taka erlendu sérfræðingarnir við og segja frá því hvað þeir hafa verið að gera. Ég get nefnt að Lynn Goldman starfs- maður Umhverfis- stofnunar Bandaríkj- anna, talar um hvaða vinna fer fram innan stofnunarinnar við endurskoðun á lögum, reglum og viðmiðum um losun þrávirkra líf- rænna efna út í umhverfið. Annar góður gestur er dr. Pál Weihe frá sjúkrahúsinu í Færeyjum. Hann ætlar að segja okkur frá því hvemig Færeyingar telja að neysla grindhvalakjöts í Færeyj- um hafi haft áhrif á fóstur- þroska.“ - Fyrir hverja er námstefnan ? „Námstefnan er öllum opin, ekki þarf að huga sérstaklega að skráningu og aðgangur er ókeyp- is.“ „fslendingar hófu umræð- una á alþjóða- vettvangi“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.