Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 11

Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 11 Bandaríkjamenn kynnast takmörkum valdsins því að einangra sig frá alþjóðlegu viðskiptaum- hverfí, koma sér upp varnarmúr með gjaldeyr- ishöftum, innflutningshömlum og niðurgreiðsl- um á innlendri framleiðslu eins og gert var víða í heimskreppunni. Sumir sérfræðingar hafa hvatt til þess að markaðsöflunum verði treyst og sem minnst gert til að rétta fram hjálparhönd, hvort sem höndin sé IMF eða stjómvalda í hverju landi. Ekki megi trufla huldu höndina sem á endan- um sjái til þess að skynsamlegur rekstur hljóti eðlilega umbun en trassamir refsingu. Aðrir og þeirra á meðal era heimsþekktir hagfræðingar á borð við Jeffrey Sachs, hafa ráðlagt einhvers konai- alþjóðlegar aðgerðir til að draga úr hættunni. Sachs hefur auk þess gagnrýnt IMF harkalega fyrir að mæla með aðhaldsaðgerðum í Tælandi og fleiri Asíuríkj- um í fyrra þegar að hans mati hefði ekki átt að nota hefðbundnar aðferðir heldur slaka á í pen- inga- og vaxtamálum. Afleiðingin af aðhaldinu hafl orðið enn dýpri kreppa en ella. IMF hvatti uppranalega rfldsstjórnir Tælands og fleiri As- íulanda tfl að draga úr ríkisútgjöldum og halda vöxtum háum en forsendan sem stofnunin gaf sér var að aðeins yrði um að ræða væga sveiflu niður á við í búskap landanna. Niðurstaðan varð að lægðin dýpkaði enn frekar vegna þess að minna peningamagn dró mátt úr athafnalíf- inu, segja gagnrýnendur. Einnig hefur mjög verið gagnrýnt að IMF skyldi ekki vilja aðstoða mikflvæga banka og stórfyrirtæki í Asíulöndunum tfl að losna við skuldir sem ljóst er að þau munu aldrei geta greitt. Þau fengu aðeins þau skflaboð að þau ættu að reyna að semja við lánardrottna sína. IMF hefur hins vegar lengi haft þá stefnu að forðast afskipti af skuldum einkafyrirtækja. Hugmyndafræðin að baki þessari stefnu er aug- Ijós. Sé farið út á þá hálu braut að „redda“ einkafyrirtækjum er hugsanlega verið að opna fyrir flóðbylgju sem enginn sér fyrir endann á. Ög verða skflaboðin sem varfærnari fyrirtæki fengju að það sé allt í lagi að stofna tfl mikilla skulda vegna þess að stóri bróðir, ef ekki stjóm- völd þá IMF, muni koma og kippa öllu í lag ef í harðbakkann slái? Jafnvægislistin í þessum efn- um er mjög vandasöm, flestum finnst að eitt> hvað verði að gera tfl að draga úr áfóllunum, þó ekki væri nema af mannúðarástæðum. En allt of auðfengin hjálp getur orðið vanabindandi og slævt ábyrgðartflfmninguna hjá viðtakanda. Þess má geta að harðir frjálshyggjumenn nota sömu röksemdir gegn starfsemi IMF yfir- leitt og fullyrða að afskipti sjóðsins valdi þegar upp sé staðið meira tjóni en gagni með því að grípa stöðugt inn í eðlilega hundahreinsun markaðskerfisins. Rfld í þriðja heiminum sem hafi góða stjórn á sínum málum fái ekkert nema hlý orð en skussarnir peninga sem oft séu misnotaðir. Nefnt er sem dæmi að Kenýa hafi þrisvar fengið mikla aðstoð, Daniel Arap- moi forseti hafi jafnoft heitið því að hlíta skil- málum sem fylgja áttu lánunum en aldrei stað- ið við loforðin. Yflrleitt era þó hagfræðingar sammála um að mestu skipti að stjórnvöld í hverju ríki reyni að fylgja varfærinni stefnu í útgjöldum og seðlaprentun og lykilatriði sé að markaðurinn hafí sem mest frelsi tfl að finna sínar eigin leið- ir út úr erfiðleikunum. Tillögur Fischers Stanley Fischer, bandarískur aðstoðarfram- kvæmdastjóri IMF, ritaði nýlega grein í The Economist þar sem hann varði stefnu stofnun- arinnar en hún hefur sætt þungu ámæli síðustu árin. Hann segir þar m.a. að áætlanir stofnun- arinnar sem fylgt hafi aðstoðinni við Asíulönd- in Tæland, Suður-Kóreu og Indónesíu hafi ekki tekist sem skyldi af tveim ástæðum. Annars vegar hafi í fyrstu gengið illa að fá rfldsstjómir landanna til að hrinda nauðsynlegum umbótum í framkvæmd. Hins vegar hafi efnahagsað- stæður á svæðinu öllu versnað, einkum hafi efnahagslægðin í Japan haft slæm áhrif. Um Rússland segir Fischer að veik staða ríkis- stjórna þar í landi síðustu árin hafi komið í veg fyrir að þær gætu fylgt eftir stefnu sinni. Rétt hafi verið hjá IMF að reyna að styðja umbætur og þær muni ná fram að ganga þótt nú hafi syrt í álinn um skeið. Fischer varar ennfremur við því að takist ekki að draga úr boðaföllunum í efnahagsmál- um heimsins muni æ fleiri ríki freistast til að einangra sig frá alþjóðaviðskiptum í von um að halda sínum hlut eins og Malasía reynir nú. Hann hvetur að lokum til þess að iðnríkin sameinist um að lækka vexti. Japanir verði einnig að gera gangskör að því að endurbæta bankakerfi sitt og efla hagvöxt. Stöðva þurfi frekari útbreiðslu efnahagslægðarinnar í Asíu með því að koma ríkjum Rómönsku Ameriku og þá fyrst og fremst Brasilíu til hjálpar enda eigi þessi ríki það skilið vegna ábyrgrar stefnu sinnar síðustu árin. Fischer lýkur grein sinni á því að hvetja aðildarríki IMF til að láta sjóðinn hafa meira fé, þá verði hann fær um að hjálpa ríkjum heims að laga sig að breyttum aðstæðum og komast megi hjá mis- tökunum sem urðu í upphafi heimskreppunn- ar um 1930 þegar hver þjóð reyndi að bjarga eigin skinni. • Helstu heimildir: The Wall Street Journal, Fin- ancial Times, The Economist, Business Week, The Spectator. VÍ fer fjarri að ekkert sé gert til að reyna að sporna við vaxandi efna- hagslægð. Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal fjallaði nýlega um misheppnaðar tilraunir stjómar Bills Clintons forseta til að stemma stigu við vand- anum í Asíu og heimskreppu sem margir ótt- ast að sé yfirvofandi. Segir þar að niðurstaðan sýni vel að þótt Bandaríkin séu nú í yfirburða- stöðu á alþjóðavettvangi sé máttur þeirra til að stýra viðburðarásinni í efnahagsmálum heimsins takmarkaðri en margir hafi haldið. Blaðið segir að skilningur ráðamanna og sérfræðinga vestanhafs á efnahagsmálum hafi auk þess reynst miklu meiri en þekkingin á stjórnmálum í löndum eins og Indónesíu, Jap- an og Rússlandi. „Vegna hroka, pólitísks klaufaskapar og ófyrirsjáanlegra afleiðinga velmeintrar stefnu sinnar hefur stjóm Clintons og bandamönn- um hennar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum mistekist að halda í skefjum því sem Clinton forseti kallar nú verstu fjármálakreppu í hálfa öld,“ segir blaðið. Bent er á að þótt vextir hafi lækkað í Tælandi og Suður-Kóreu og gjald- miðlarnir eflst sé það ekki nóg. Efnahags- hranið í Rússlandi, hættumerki í Rómönsku Ameríku og áhyggjur vegna hættunnar á heimskreppu séu ofar í huga manna. Blaðið segir að Clinton hafi í byrjun sept- ember kallað saman kvöldfund í Hvíta hús- inu með helstu ráðgjöfum sínum til að ræða viðbrögð vegna teikna um að Asíukreppan væri að breiðast út um allan heim. Einnig hafi forsetinn rætt við Breta hugmyndir um bráðafund heimsleiðtoga vegna málsins. í Bandaríkjunum, Frakklandi og víðar hafa menn ennfremur velt fyrir sér nýrri ráðstefnu á borð við þá sem haldin var í Bretton Woods í Bandaríkjun- um 1944 en þar var lagður grundvöllur að skipulagi heimsviðskipta ríkja utan kommúnistablokkarinnar. Þetta skipulag var við lýði í öll- um meginatriðum þar til Bandaríkjamenn afnámu gull- fót dollarans á áttunda ára- tugnum. Clinton vildi fá djarfar lausn- ir í samræmi við umfang vand- ans. En Robert Rubin fjármála- ráðherra mælti með varfærni og taldi meðal annars að bráða- fundur leiðtoga stórveldanna gæti skapað óraunhæfar vænt- ingar. Nýafstaðinn fundur fjármálaráðherra aðildarríkja Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, í Washington, þar sem ekki náðist samstaða um neinar aðgerðir, bendir reyndar til þess að varkámi Rubins hafi verið á rökum reist. Svo fór að Lawrence Summers aðstoðar- fjármálaráðherra var fenginn til að leggja fram tillögur að lausnum sem forsetinn gæti varpað fram í ræðu en Clinton fannst þær ekki nægilega sannfærandi og ákvað að fresta málinu. Samfélagsgallar í Asíuríkjum Rubin og Summers hafa verið helstu full- trúar Bandaríkjastjórnar í viðræðum við ráðamenn Asíulanda um efnahagsvandann og umbætur sem öllum er nú orðið Ijóst að þarf að gera á stjórnarháttum í þessum ríkjum. Þeir hafa ásamt Stanley Fischer, aðstoðar- framkvæmdastjóra IMF, rekið öflugan áróð- ur fyrir því að Japanar, Suður-Kóreumenn og fleiri Asíuþjóðir komi á auknu frelsi í fjár- málaviðskiptum, hætti að hygla innlendum stórfyrirtækjum og láti markaðsöflin en ekki rfldsvaldið ráða ferðinni. Efnahagsundrið í mörgum Asíulöndum síð- ustu áratugina olli því að ekki var gefinn mik- il gaumur að göllunum á samfélagsskipan í löndunum, göllum sem sums staðar virðist ætla að reynast erfitt að bæta úr. Aðstæður eru að sjálfsögðu mismunandi en rauður þráð- ur virðist vera að valdastéttin kemst upp með að misnota aðstöðu sína í miklu meiri mæli en gerist í vestrænum ríkjum. Hagsmunir póli- tískra ráðamanna og stórfyrirtækja eru flétt- aðir saman í vef sem rekja þarf upp og það verður ekki sársaukalaust. Einnig er stjóm- arfarið annaðhvort einræðiskennt eða lýðræð- ið og flokkakerfið með þeim hætti að það hamlar öllum framföram, heildarhagsmunir víkja undantekningalítið fyrir sérhagsmun- um. Niðurstaðan er pattstaða þegar grípa þarf til róttækra umbóta. Japan er gott dæmi um þennan vanda. Itrekaðar tilraunir sem Bandaríkjamenn hafa Stjórn Clintons Bandaríkjafor- seta hefur komist að því að andspænis efnahagsvandanum í Asíu dugar yfirburðastaða eina risaveldisins ekki til. gert til að fá ráðamenn landsins til að opna hagkerfið, treysta undirstöður lánastofnana með því að efla ábyrgari útlánastefnu og draga úr beinni og óbeinni fyrirgreiðslu við risafyrirtækin hafa lítinn árangur borið. Og ástandið er ekki gæfulegt, landsframleiðsla mun sennilega minnka um 2% á þessu ári og 1% á næsta ári. Margir af stærstu bönkunum eru við það að verða gjaldþrota og önnur fyr- irtæki berjast í bökkum. Hagnaður á utanrík- isverslun hefur að vísu enn aukist en ástæðan er fyrst og fremst minnkandi innflutningur. Sé beitt vestrænum reikniaðferðum er raun- veralegt atvinnuleysi sennilega 8-10%, að sögn The Economist. Ritið segir að Japanir hafi sýnt „undra- verðan hæfileika til að valda vonbrigðum“. En þrátt fyrir allt virðist nú vera von til þess að úr muni rætast á næstunni, þrýstingur í þá átt að viðurkenna að harkalegar og rót- tækar aðgerðir séu eina leiðin út úr vandan- um sé nú orðinn mikill innan forystuliðs Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem ráðið hefur ferðinni undanfarna áratugi. Áætlanir séu um að veita gríðarmiklu fé til að koma í veg fyrir hrun bankakerfisins en jafnframt verði þess gætt að nota féð þannig að hags- munir einstakra flokksbrodda í lánastofnun- um verði ekki ofan á. Sjái almenningur um- merki um raunverulegan umbótavilja hljóti að verða auðveldara að fá hann til að sætta sig við að skattfé verði notað til að treysta undirstöðurnar. Tæland og Mexíkó Stjórn Clintons hugðist á sínum tíma að- stoða Tælandsstjóm þegar hún lenti í þreng- ingum 1997, erlendur gjaldeyrisforði var á þrotum og gengið að hrynja. Vandinn var sá að í þetta sinn var ekki mikið fé til ráðstöfun- ar. Clinton hafði á sínum tíma gjömýtt alla möguleika sem hann hafði sem forseti til að veita Mexíkóum fjárhagsaðstoð þrem áram fyrr og repúblikanar voru ekkert á því að styðja við bakið á honum. Fjárveitingar Bandaríkjamanna til aðstoðar við erlend ríki hafa ekki verið lægri í 25 ár og Clinton varð því að leita til IMF. Það gerði hann en von- brigði manna með árangurinn í Tælandi hafa verið mikil, aðferðin sem dugði í Mexíkó virð- ist ekki vera uppskrift sem alltaf stendur und- ir væntingum. Haft er eftir William Cohen, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, að mikilvægt hefði verið að Bandaríkin hefðu a.m.k. lánað Tælandi málamyndafjárhæð til að sýna sam- hug og vilja í verki. Er ljóst að óeining ríkir um afstöðuna í þessum efnum milli fjármála- ráðuneytisins annars vegar og ráðuneyta vamarmála og utanríkismála hins vegar. Hin- ir síðarnefndu geta á hinn bóginn ekki fylgt skoðunum sínum eftir, hafa ekki pyngjuna í sinni vörslu eins og Rubin og hans menn. Rubin fjármálaráðherra segir að ástæðan fyrir lélegum árangri hafi verið að ráðamenn í Tælandi hafi látið hjá líða að grípa til nauð- synlegra efnhagsráðstafana jafnframt því að fá fjárhagsaðstoðina en The Wall Street Jo- umal fullyrðir að Tælendingamir hafi misst móðinn þegar þeir sáu að Bandaríkjastjóm ætlaði ekki að styrkja þá heldur láta IMF annast málið. Mexíkó hafi notið nálægðarinnar við blóm- strandi efnahag Bandaríkjanna, sem hafi bók- staflega togað ríkið upp úr díkinu. Helsti markaður Tælendinga er hins vegar Japan og þar herjar stöðnun og kreppa. Suður-Kórea var einnig að tæma gjaldeyr- issjóði sína og þá var hlaupið undir bagga. IMF veitti ábyrgðir sem námu rúmlega tvö- falt hærri fjárhæð en Tælendingar fengu, alls 58 milljörðum dollara. Þrátt fyrir þetta og enda þótt nýir valdhafar í Suður-Kóreu jafnt sem Tælandi hafi samþykkt öll skilyrði sjóðs- ins um bætta efnahags- og fjármálastjóm hef- ur gengið illa að komast upp úr lægðinni. Ru- bin og hans menn benda þó á að ekki sé öll von úti og merki séu um batnandi tíð í báðum löndunum en margir draga þá staðhæfingu í efa. Nú er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem margir Asíumenn líta orðið á sem peð í valda- tafli Bandaríkjamanna, að verða uppiskroppa með peninga vegna þess að repúblikanar á bandaríska þinginu neita að samþykkja hug- myndir forsetans um aukið framlag í sjóðinn. Svigrúm Clintons hefur því enn minnkað. Lítill skilningur á pólitiskri stöðu Fyrrverandi starfsmaður þjóðaröryggis- ráðsins bandaríska á þessum tíma, Sandra Kristoff, er hvassyrt þegar hún fjallar um af- skipti stjórnvalda af málefnum Indónesíu. Hún bendir á að lýðræðisrétt- indi hafi verið fótum troðin í landinu og þess vegna hafí fólk neitað að taka á sig nýjar byrð- ar eins og hækkanir á lífsnauð- synjum. „Ef örfáir era undan- skildir fór þetta fram hjá ráða- mönnum [í Hvíta húsinuj," segir hún. Atburðarásin í Indónesíu endaði sem kunnugt er með falli einræðisherrans Suhartos sem naut stuðnings Bandaríkja- stjómar vegna þess að hann hafði komið á markaðshagkerfi og ekki virtist traustur eftir- maður vera í augsýn. En hund- rað manna týndu lífi í átökun- um, efnahagurinn er hruninn og almenningur sveltur. Rússland er annað dæmi sem nefnt er um misheppnaða stefnu IMF og Bandaríkja- stjómar. Fyrst var reynt að dæla fé í efnahag landsins, pen- ingum sem hurfu í botnlausa hít og í mörgum tilvikum eru sagðir hafa endað á erlendum bankareikningum spilltra embættismanna og mafíuforingja. Ætlunin var að styrkja rúbluna með aðstoðinni en að sjálfsögðu hafði hún engin áhrif í þá vera. Næst var ákveðið að neita Rússum alger- lega um aðstoð og ekki er ljóst hver afleiðing- in af þeirri hunsun verður. En líklega er það upplýsandi að The Wall Street Journal hefur eftir helsta hagfræðingi IMF, Michael Moussa, nokkram mánuðum eftir að fjár- austrinum lauk með ósigri að ríldsstjóm Rússlands væri ekkert annað en „glæpa- hyski“. Stórveldahagsmunir Bandaríkjanna eru sagðir hafa átt sinn þátt í að flækja málin og gert erfiðara að draga úr vandanum í Asíu. Japanir vildu í fyrra að stofnaður yrði sér- stakur Asíugjaldeyrissjóður og lögðu fram fremur óljóst orðaða tillögu í þá veru. Var hugmyndin að Asíuríkin legðu fram alls 100 milljarða dollara. Þessu var Lawrence Sum- mers andvígur og tókst að drepa tillöguna, niðurlæging Japana var mikil. Þeir urðu að viðurkenna að sjálfir hefðu þeir ekki nema fáeina milljarða dollara reiðubúna í sjóðinn og þá fór mesti ljóminn af hugmyndinni. Hins vegar era ekki allir vissir um að skyn- samlegt hafi verið af hálfu Bandaríkjastjómar að auðmýkja mikilvægasta bandamann sinn í Asíu með þessum hætti í von um að treysta enn yfirburðastöðu eina risaveldisins sem eft- ir er. Og það sem verra er, stjómvöld í Washing- ton hafa með þessu gert Asíukreppuna og lausn hennar að sínu máli, á sama hátt og reynt var að leysa vandann í Víetnam á sínum tíma með bandarísku herliði. Að þessu sinni era ekki einu sinni til nauðsynleg áhöld, fjár- munir, til að hlaupa undir bagga. Eftir er að- eins vonin um að sannfæringarmáttur og góð ráð nægi til að vinna bug á vandanum, ekki verður það að þessu sinni bandarískt skattfé eða herlið. ÓRÓLEIKINN á fiármálamörkuðunum getur tekið á taugamar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.