Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 20

Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 20
20 SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Hvaö er upplýst samþykki? Er sjálfræöi manna virt í frumvarpi um miólægan gagna- grunn? Gunnar Hersveinn beitir mælikvaröa siöfræöi rannsókna á sjálfræöi og upp- lýstu samþykki einstaklinga á frumvarp heilbrigðisráðherra. Hvaö leyfist ráöuneytinu og hver er réttur einstaklingsins? FLESTIR ganga að því gefnu að njóta friðhelgi um lífshætti sína og einkahagi. Þeir reikna einnig með að tilfmningalífið og sambandið við aðra menn fái að vera í friði. I sam- félaginu frábiðja einstaklingar sér iðulega íhlutun annarra í einkalífið eða að ráðskast sé með þá. Hinsvegar eru upplýsingar um fólk víða í samfélaginu. I sjúkra- skrám er t.a.m. að finna upplýsingar sem teljast persónulegar eins og um mataræði, lyfjanotkun, fjölskyldu- hagi, félagslegar aðstæður, sjúk- dóma, geðræn vandamál og annað, eftir því hvað viðkomandi hefur þurft að glíma við. Þar eru upplýs- ingar um flestallt sem á hefur bjátað á sál eða líkama og leitað hefur verið hjálpar við. Hver hefur ráðstöfunarrétt yfir þessum upplýsingum? Eigandi sjúkraskráa er ekki til- greindur í lögum, hins vegar er kveðið á um að þær eigi að vera í tryggri vörslu sjúkrastofnana, og að sjúklingai- hafi leyfi til að fá afrit af þeim og ritaðar í þær athugasemdir sínar. Kerfisbundin skráning per- sónuupplýsinga er aðeins heimil ef hún er eðlilegur þáttur í starfsemi skráningaraðila. Hverjum leyfist að ráðstafa upplýsingum? Skráning sjúkraskráa í dulkóðað- an miðlægan gagnagrunn á heil- brigðissviði hefur vakið spurningar um hver megi ráðstafa upplýsingun- um um einstaklingana því „umfang skráningarinnar er stærra í sniðum en áður hefur sést hér á landi, og hagnýting skráning- arinnar verður í öðr- um tilgangi en áður hefur tíðkast,“ eins og Hvernig stenst frumvarpið sjálfræðisrökin? UPPLYST SAMÞYKKi stendur í umsögn Tölvunefndar um frumvarp heilbrigðisráðherra. Til að skýra nánar hvað um er að ræða, segir Tölvunefnd á sama stað: „Til stendur að ski-á, samkeyra og varð- veita í slíkum upplýsingabanka upp- lýsingar sem flest- um mönnum eru viðkvæmari en aðr- ar upplýsingar, sem þá varða. Mál- ið snýst um skrán- ( ingu upplýsinga um sjúkdóma og orsak- ir þeirra, sjúk- dómsmeðferð og árangur hennar, lyfja-, áfengis- og vímuefnanotkun, og upplýsingar, sem lúta að ættfræði og sameindaerfða- fræði. Þá girðir frumvarpið ekki fyrir, að við slíkar upplýsingar séu tengdar aðrar við- kvæmar persónuupplýsingar, t.d. upplýsingar um félagsleg vandamál manna, skólagöngu, starfsferil, brotaferil o.s.frv.“ Þótt lögin kveði ekki á um eig- anda að þessum sjúkraskrám, það sé hvorki heilbrigðisstofnun né skjólstæðingar hennar, merkir það ekki að öðrum aðilanum leyfist að ráðstafa þeim án þess að spyrja hinn. Umhyggja fyi’ir velferð mann- eskjunar merkir ekki að svipta megi hana tækifærinu til að ráða hvað verður um upplýsingar um hana sjálfa. I reynd er það meginregla í sið- fræði að einstaklingur hafi ráðstöf- unarrétt yfir upplýsingum sem varða hann sjálfan. Hvað er upplýst sam- þykkl? í frumvarpinu stendur: „Sjúklingur getur óskað eftir því að upplýsingar um hann verði ekki fluttar í gagnagiunn á heilbrigðissviði." (8. grein) Framkvæmd þessa ákvæðis verð- ur þannig að fólki nægir að hafa samband við landlækni og óska þess að heilsufarsupplýsingar fari ekki í bankann. (Hann getur hins vegar ekki neitað því að tilteknar upplýs- ingar um hann fari í grunninn eins og nafn sjúkdóms til að heilbrigðis- skýrslur séu marktækar.) Sjúkling- urinn má m.ö.o. neita. Það er hins vegar meginregla í siðfræði læknisfræðilegra vísinda- rannsókna að leita samþykkis ein- staklinga bæði fyrir meðferð og ým- iskonar þátttöku í rannsóknum. Það er talin besta leiðin til að tryggja að einstaklingur njóti virðingar sem sjálfráður einstaklingur og til að verja hann fyrir blekkingum og mis- notkun á upplýsingum. En hvað er upplýst samþykki og hvers vegna er leitað eftir því? I upplýstu samþykki felst virðing fyrir einstakling- um og sjálfræði þeirra. Vilhjálmur Áma- son heimspeking- ur fjallar um upplýst samþykki í þriðja kafla í bók sinni Siðfræði lífs og dauða (Háskólaútgáfan, 1993) og nefnir þar skilyrðin sem lúta að for- sendum skilnings og sjálfræðis ein- staklinga sem samþykkja. Skilyrðin eru: 1. Að skjólstæðingi séu veittar nægilegar upplýsingar til að hann geti gert upp hug sinn. 2. Að gengið sé úr skugga um að skjólstæðingur hafi skilið upplýsing- arnar og geti tekið upplýsta ákvörð- un. 3. Að samþykki skjólstæðings sé óþvingað og sjálfviljugt. 4. Að skjólstæðingur sé sjálfur hæfur til að gefa samþykki. Hvernig er upplýstu samþykki framfylgt? Hvemig er þessu framfylgt í vís- indasamfélaginu? Hér er dæmi. Þegar einstaklingur gefur blóð (samanburðarsýni) til erfðarann- sókna í Nóatúni 17 í Reykjavík und- irritar hann samþykkisyfirlýsingu um að honum sé ljós tilgangur rann- sóknarinnar og ýmislegt annað eins og: 1. Að hann hafi rétt til að hætta þátttöku í rannsókninni án eftir- mála. 2. Að hann viti hversu mikið blóð er tekið og að einangra eigi erfðaefnið til að bera saman breyti- leika í því hjá heilbrigðum einstak- lingum og sjúklingum. 3. Að stund- um komi það fyrir í svona rannsókn- um að rangfeðrun verði ljós, og að rannsóknaraðilar skuldbindi sig til að grennslast ekki fyrir um rétt fað- erni og gefandi verði ekki upplýstur um þetta né neitt annað sem erfða- efnið segi. 4. Að nafn og kennitala verði tölvuskráð. 5. Að framlagið felist í að stuðla að aukinni þekkingu á orsakaþáttum ýmissa sjúkdóma. Hann hefur með und- irskrift sinni ráðstaf- ( ■' I, I I I; tíJ U .(f I i i u o m u u u u u u u u u u é 6 iiíö' dTöJé ÖB i57j i é i Öjb iö ú é 6 é?j Wéooo <>Q<>é é. öéó é o<> v í.é i!í i!i 6 é öTi ö i'ió

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.