Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 32

Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ 32 SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 MINNINGAR + Hólmfríður Þór- dís Ingimarsdótt- ir fæddist á Sauða- nesi á Langanesi hinn 26. júní 1913 og ólst upp á Þórshöfn. Hún lést í Vest- mannaeyjum 5. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ingimar Baldvins, bóndi og útgerðar- maður á Þórshöfn, f. 20.11. 1891, d. í febr- úar 1979 og Oddný F. Amardóttir, f. 16.7. 1893, d. í október 1977. Hólmfríður Þórdís var næstelst af ellefu systkinum. Eft- irlifandi systkini eru: Oddný, Hall- dóra, Ingimar og Jóhann. Látin eru: Soffía, Binna, Amþrúður, Jóna, Ámi, Helga og Aðalbjörg. Hólmfríður Þórdís var tvfgift. Fyrri maður hennar var Jakob V. Þorsteinsson, f. 1912, bóndi á Svalbarði. Foreldrar hans vom Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri á Akureyri, og kona hans, Sigur- jóna Jakobsdóttir. Dætur Hólm- fríðar Þórdísar og Jakobs em: 1) Hildur Kristín, f. 7.3. 1934, gift Gunnari Sigurðssyni, kaupfélags- sljóra á Hvammstanga. 2) Sigur- jóna, f. 4.2. 1937, gift Jóni Þóris- syni tónskáldi. 3) Oddný, f. 4.2. Móðir mín Þórdís Ingimarsdóttir lést á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyj- um mánudaginn 5. október sl. Það eru margar minningar sem hrann- ast upp við ástvinamissi. Móðir mín var ein af þessum lánsömu einstak- lingum sem þurfa ekki að fara á elli- heimili. Systurdóttir mín Þórdís Karla tók ömmu sína að sér og sá um hana síðustu æviárin og á hún þakkir skildar fyrir og öll hennar fjölskylda. Móðir mín fæddist 26. júní 1913 á Sauðanesi á Langanesi, dóttir Ingimars Baldvinssonar, póstmeistara á Þórshöfn, og Odd- nýjar Amadóttur, orgelleikara og söngstjóra. Þeim varð ellefu bama auðið og var móðir mín næstelst og eru sjö þeirra nú látin. Ég ætla ekki að rekja neina ættartölu í þessum * skrifum mínum heldur bara smá- minningar sem leita á hugann eftir lát hennar. Móðir mín var tvígift, 1937, gift Gretti Páls- syni og em þau bæði meðferðarfulltrúar. Árið 1940 giftist hún Karli Hjálmarssyni, f. 1900, kaupfélags- stjóra á Þórshöfn. Hann var ekkjumað- ur og átti þrjú böm: Ásgeir Karlsson, lát- inn, og Katrín Helga og Halldóra sem hún gekk í móðurstað. Tvo systursyni Hólm- fríðar Þórdísar tóku hún og Karl einnig í fóstur, þá Steingrím Vikar Björgvinsson og Karl Da- víðsson. Hólmfríður Þórdís ólst upp á Þórshöfn, var í stjóm Kvenfé- lagsins þar og söng í kirkjukóm- um. Hólmfríður Þórdís stundaði nám í Héraðsskólanum á Laugar- vatni 1932-1933. Ævistarf sitt helgaði hún börnum og heimili, en eftir að hún varð ekkja vann hún við símavörslu hjá SÍS. Síðastliðin fimm ár hefur hún bú- ið hjá barnabarni sínu, Þórdísi Körlu Grettisdóttur í Vestmanna- eyjum. Útför Hólmfríðar Þórdísar fer fram frá Dómkirkjunnni á morg- un, mánudaginn 12. október, og hefst athöfnin klukkan 10.30. fyrri maður hennar var Jakob V. Þorsteinsson, þau skildu. Seinni maður var Karl Hjálmarsson kaup- félagsstjóri. Þeir eru báðir látnir. Hún átti þrjár dætur með Jakobi, ól upp þrjú stjúpböm og tvo systra- syni sina. Hún var trúuð kona og trúði á líf eftir dauðann. Hún sagði oft: Það sem ég hef farið á mis við í jarðneska lífinu fæ ég uppfyllt á næsta tilverustigi. Ég heimsótti hana öll árin sem hún átti heima í Vestmannaeyjum og átti ég góðar stundir með henni og fjölskyldu. Ég var svo lánsöm að drífa mig til hennar í júní og hélt upp á 85 ára afmælisdag hennar, Þórdís Karla færði hana í fínustu fötin og leið hún um eins og lítill engill, alsæl og glöð með afmælisdaginn. Það var glamp- andi sól þennan dag, eins og yfir- leitt á afmælisdegi hennar. Afmæl- issöngurinn var sunginn, kveikt á kertum og allt gert til að hafa dag- inn sem ánægjulegastan. Allir fóra sælir að sofa þetta kvöld. Það var mjög kært á milli okkar. Ég hringdi í hana á hverjum laug- ardegi og spjölluðum við saman um allt milii himins og jarðar. Nú er komið haust, gróðurinn skartar sín- um fegurstu litum. Þó að mamma héldi mest upp á sumarið þá fannst henni haustið sjarmerandi út af litadýrðinni. Hún sagði oft að feg- urð og ilmur blómanna styrktu mann í þeirri trú að lifið hefði til- gang. Eins sagði hún að það að safna auði gæti verið gott ef honum væri vel varið og ekki of miklu fórn- að fyrir hann. Fórnfúsum huga nægir gjaman þakklætið. Sagan skilur alltaf eftir eitthvað sem læra má af, jafnvel þó að það sé ekki allt gott. Besti glaðningurinn sem þú getur gefið sjálfum þér er að gleðja aðra. Það er mín reynsla. Að hætta einhverju fyrir hamingjuna er eina leiðin til að öðlast hana. Fullkominn kærleikur fjarlægir efasemdir og gerir Guðdóminn nálægan. Ef akur mannlífsins væri ræktaður með sömu alúð og góður garðyrkjumað- ur ræktar blómin sín þá gætum við vænst góðra hluta. Þörfinni fyrir að hlúa að lífi getur þú fullnægt í þín- um eigin húsagarði. Góðum foreldr- um er það ekki fóm að annast börn- in sín heldur forréttindi lífsins. Þessi litla fallega kona hafði svo sannarlega stórt hjarta, það sýndi hún með kærleikanum. Það sem henni þótti erfiðast í þessu jarð- neska lífi var að láta eina dóttur sína frá sér, það skildi eftir ör í hjarta hennar sem greri aldrei og talaði hún um það nú síðast í júní. Lífið fer ekki alltaf mjúkum hönd- um um okkur en við reynum þó alltaf að sjá ljósið. Elsku mamma, hvíl þú í friði, ég veit að þú færð góðar móttökur því að fræið sem þú sáðir var svo gott og uppskeran eftir því. Ég segi að lokum góða nótt. Hildur Kristín Jakobsdótt- ir og íjölskylda. Elsku besta amma mín. Mig lang- ar að kveðja þig með þessum orð- um: Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. Og þótt ég hefði spádóms- gáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt. Og þótt ég deildi út öllum eigum mín- um, og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur, en hefði ekki kærleika, væri ég engu bættari. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst yfir öllu, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok. Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum. En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem er í molum. Þegar ég var bam, talaði ég eins og bam, hugsaði eins og bam og ályktaði eins og barn. En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður bamaskapinn. Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis. Nú er þekking mín í moium, en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn. En nú varir trú, von og kærleik- ur, þetta þrennt, en þeirra er kær- leikurinn mestur. (Korintubréf 13.1.) Húsið okkar er yfirfullt af yndis- legum minningum um bestu ömmu og langömmu í heimi. Þórdís Karla og Heimir. Elsku amma mín, nú ertu komin til Karls afa, én þar veit ég að þér líður vel. Þú varst alltaf svo góð við mig. Eg vil kveðja þig með orðum Sig- urðar Helga Guðmundssonar, Ást- arkveðja. Ég kveð ura ást og kveðju sendi ég þér og kvöldgolan flytur þér óminn frá hjarta mér. W varst mér sólin er vermdi hinn veika reyr vaktir það allt sem án hennar birtu deyr. Sem svalalindin veiku veitir fró. Hvar sem ég reika og hvar sem ég fer er hvarvetna eitthvað dapurlegt að þreyja. Hvergi ég fann hvemig sem ég leita vildi það sem ég ann það sem ég eftir skildi. Ég kveð um ást og kveðju sendi ég þér og kvöldgolan flytur þér óminn frá hjarta mér. (Sigurður Helgi Guðmundsson.) Elsku besta amma, ég þakka þér fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman. Einnig fylgir kveðja frá Benedikt og Söra til þín. Þín dótturdóttir, Þórdís Gunnarsdóttir. Þau munu hafa verið glæsileg, ungu hjónin Oddný Friðrikka Áma- dóttir og Ingimar Baldvinsson, sem hófu búskap á Þórshöfn á Langa- nesi í ársbyrjun 1912, hann tvítugur að aldri, hún tveimur áram yngri. Sá sem þetta ritar kynntist þeim ekki fyrr en fimmtíu árum síðar, en þá bára þau enn með sér sjaldgæfa persónutöfra, og enn þá stafaði af þeim þeirri hlýju birtu sem einatt geislar af ásthrifnum ungmennum. Þau höfðu mikið bamalán, ungu hjónin. Á áranum 1912-1923 fædd- ust þeim átta dætur, sem vora hver annarri betur gefin, og urðu hver annarri glæsilegri þegar þær uxu úr grasi. Síðar bættust þrír mannvæn- legir synir í hópinn með þriggja ára millibili. Hinn yngsti þeirra dó í bernsku, en öll hin börnin komust til fullorðinsára, gengu í hjónaband og er mikih ættbogi af þeim kom- inn. Næstelst í þessum stóra systk- inahópi var Hólmfríður Þórdís, venjulega aðeins nefnd síðara nafn- inu. Hún var heitin eftir ömmum sínum báðum. Móðir Ingimars var Hólmfríður Stefánsdóttir umboðs- manns á Snartarstöðum, Jónssonar, móðursystir Þorsteins Gíslasonar ritstjóra og skálds. Móðir Oddnýjar Friðrikku var Þórdís Benedikts- dóttir bónda á Brunnum í Suður- sveit, og var Benedikt þessi ömmu- bróðir Þórbergs Þórðarsonar. í móðurætt var Þórdís Benedikts- dóttir komin í beinan kvenlegg af Sigríði dóttur Jóns eldprests Stein- grímssonar. Sjálf bar Oddný Frið- rikka nafn ömmu sinnar í föðurætt, Oddnýjar Friðrikku, dóttur Páls prófasts í Sandfelli Thorarensen og konu hans Önnu Benediktsdóttur, en Anna var föðursystir Benedikts Sveinssonar sýslumanns. Af þessu má ráða að hér komu saman miklar og merkar ættir, og er þó fátt eitt rakið. Þórshöfn á Langanesi var ekki í alfaraleið á fyrri hluta aldar- innar fremur en nú, en flestir sem þangað komu munu hafa haft ein- hver kynni af Ingimar Baldvinssyni og heimili hans. Systurnar í Ingi- marshúsi vöktu sérstaka athygli fyrir fegurð, glæsileik og góðar gáf- ur, og fór orðspor þeirra víða um landið. Gamlir menn sem þekktu þær Ingimarsdætur meðan þær vora enn ógefnar í foreldrahúsum fá enn blik í auga þegar á þær er minnst. Þórdís Ingimarsdóttir giftist ung Jakobi Þorsteinssyni frá Akureyri. Hann var sonur Þorsteins M. Jóns- sonar, skólastjóra og bókaútgef- anda, og konu hans Sigurjónu Jak- obsdóttur. Þau eignuðust þrjár dæt- ur: Hildi Kristínu og tvíburana Oddnýju og Sigurjónu. En hjóna- band þeirra varð stutt. Eftir að leiðir þeirra skildu giftist Þórdís Karli Hjálmarssyni sem þá var kaupfélagsstjóri á Þórshöfn og síðar á Hvammstanga. Hann var sonur Hjálmars bónda á Ljótsstöð- um í Laxárdal, Jónssonar, og konu hans Áslaugar Torfadóttur frá Ólafsdal. Karl var bróðir Ragnars H. Ragnar skólastjóra og tónlistar- frömuðar á ísafirði. Það var ýmis- legt líkt með þeim bræðrum. Álþjóð era kunn afrek Ragnars við upp- byggingu tónlistarlífs á ísafirði. Með svipuðum áhuga byggði Karl upp þau fyrirtæki sem hann veitti forstöðu, en í tómstundum þjónaði hann tónlistinni. Meðal annars var hann kirkjuorganisti og kórstjóri í nærfellt 35 ár, fyrst norður á Langanesi, síðan á Hvammstanga. Heimili þeirra Þórdísai- var lengi fjölmennt. Karl var ekkjumaður þegar þau giftust og börn hans þrjú ólust upp á heimili þeirra, auk tveggja af dætram Þórdísar. Auk þess ólu þau upp tvo systursyni Þórdísar, Steingrím, son Helgu og Björgvins Sigurjónssonar, og Karl, son Jónu og Davíðs Sigurðssonar. Margir aðrir ættingjar munu hafa átt þar gott skjól um lengri eða skemmri tíma. Það var farið að hægjast um þeg- ar ég kom fyrst á heimili þeirra á Hvammstanga iaust eftir 1960. Börn Karls vora flogin úr hreiðrinu. Hildur Kristín Jakobsdóttir var gift Gunnari Sigurðssyni verslunar- manni sem síðar varð eftirmaður Karls í starfi kaupfélagsstjóra. Odd- ný Jakobsdóttir giftist um þetta leyti Gretti Pálssyni. Þau hafa bæði orðið kunn fyrir mikilsverð nytja- störf á vegum SÁÁ og veit ég að margir telja sig standa í ævilangri þakkarskuld við þau. Sjálfur sótti ég Sigurjónu Jakobsdóttur á heimili afa hennar og ömmu, Þorsteins M. Jónssonar og Sigurjónu eldri, sem þá vora flutt til Reykjavíkur, en hún hafði alist upp hjá þeim. En þegar við Sigurjóna höfðum ákveðið að ragla saman reytum okkar varð hennar fyrsta verk að fara með mig í heimsókn norður á Hvammstanga. Þar kom ég á mikið myndarheimili sem Þórdís hús- freyja stjórnaði af hæglátri reisn, en Karl sinnti erilsömum störfum sínum langan vinnudag. Samtaka voru þau um að taka vel og rausn- arlega á móti gestum, og gest- kvæmt mun hafa verið hjá þeim alla tíð. Þessi heimsókn varð mér afar ánægjuleg. Eftir að Karl féll frá bjó Þórdís lengst af ein í lítilli íbúð á Fálkagötu í Reykjavík. Þar tók hún á móti börnum sínum og stjúpbörnum, fósturbörnum, tengdabörnum og barnabörnum sem hún lét sér mjög annt um, og einatt kom hún líka í heimsóknir til þeirra. Hún bar svip hefðarkonu í fasi, klæðaburði og framkomu, var hæglát og fremur hlédræg, en þó ekki ómannblendin og kunni vel að umgangast fólk. Þegar heilsu Þórdísar hrakaði endurgalt nafna hennar, dóttir Oddnýjar og Grettis, þá umhyggju sem hún hafði notið hjá ömmu sinni þegar henni reið mest á. Hún tók hana til sín á heimili þeirra Heimis Jónssonar í Vestmannaeyjum. Þar bjó Þórdís síðustu árin við hið besta atlæti, og undi hag sínum eins vel og orðið gat. Fjölskyldan öll stendur í þakkarskuld við Þór- dísi Grettisdóttur fyrir þetta drengskaparbragð. Þórdís Ingi- marsdóttir hafði lifað langan dag. Þar höfðu skipst á skin og skúrir. Hún mun hafa verið södd lífdaga, sátt við Guð og menn, og hún fékk hægt andlát. Blessuð sé minning hennar. Jón Þórarinsson. t Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS JÓNSSON frá Norður-Hvammi, Mýrdal, fyrrum bátsmaður á Karlsefni, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, á morg- un, mánudaginn 12. októberkl. 15.00. Þórunn Tómasdóttir, Þórunn Jónsdóttir, Tómas Jónsson, R. Hilmar Júlíusson, Jónfna Steinunn Jónsdóttir, Karen Júlía Júlfusdóttir, Ásta Ragnheiður Júlíusdóttir, Þórunn Brynja Júlíusdóttir og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTÍN E.H. SKÚLADÓTTIR, Frostafold 135, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 13. október kl. 13.30. Jónas Björnsson, Birna Jónasdóttir, Pétur Gunnarsson, Jónas Pétursson, Guðrún E. Pétursdóttir, Grétar Jónsson, Sandra Jónsdóttir. HÓLMFRÍÐUR ÞÓRDÍS INGIMARSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.