Morgunblaðið - 11.10.1998, Qupperneq 35
4
SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 35
MORGUNBLAÐIÐ_____________________________________
MINNINGAR
nýrri endurskapaðri jörð, þar sem
enginn sjúkdómur er til, og dauðinn
verður ekki til framar.
Trausti þekkti boðskap Biblíunn-
ar mjög vel. Hann lærði að treysta
Frelsara sínum fyrir velferð sinni
bæði hér og í eilífðinni. Hann gat
leyft sér að hlakka til sælla endur-
funda og það meira segja, skv. fyrir-
heitum Drottins, áður en langt um
líður.
Af kynnum mínum af Trausta, tel
ég mig vita um eina spurningu sem
hann mundi vilja leggja fyrir alla.
Hún er þessi: „Hefur þú hugleitt
stöðu þína gagnvart Guði og eilífð-
inni?“ Sjálfur hafði hann fyrir löngu
meðtekið náð Guðs og fyrirgefningu
í Jesú Kristi. Drottinn Jesús var
honum allt. Og hans einlæga þrá
var, að aðrir kæmu auga á Jesú
Ki-ist, enda er hann eina leiðin til ei-
lífs lífs.
Með því að feta í hans fótspor og
tileinka sér kærleika Guðs og náð
Jesú Krists, getum við fullkomnað
gleði hans á morgni lífsins er við
tökum fagnandi á móti Frelsaran-
um, þegar hann býður fólk sitt vel-
komið inn í dýrlegt eilífðarríki sitt.
Þá mun fögnuður Trausta eiga sér
engin takmörk.
Orð Guðs lýsir því svo skemmti-
lega hvernig við getum varið tíman-
um í ríki Guðs. Jesaja spámaður
segir: „Þeir munu reisa hús og búa í
þeim, og þeir munu planta vingarða
og eta ávöxtu þeirra.“ (Jes. 65,21.)
Við Trausti áttum góða samvinnu
með öðrum undanfarin ár í bygg-
ingaframkvæmdum við að koma
upp samkomuhúsi fyrir málefni
Guðs. Og aftur síðustu mánuðina
var hugur hans fullur af hugmynd-
um fyrir enn eitt húsið Guði til
dýrðar.
Þótt tíminn leyfði ekki að hann
sæi það fullbúið, munum við skv. of-
angreindu loforði, einfaldlega geta
tekið upp þráðinn á ný við bygg-
ingaframkvæmdir í ríki Guðs.
I hnotskurn er þetta trúarsann-
færing Trausta varðandi dauðann
og upprisuna. Eg hlakka til endur-
fundanna. Fyrir hönd Boðunar-
kirkjunnar vil ég þakka fyrir áhuga
Trausta á málefnum safnaðarins og
mikilvægt framlag hans alla tíð. Við
kveðjum hann með virðingu og
hlökkum til endurfunda síðar meir.
Steinþór Þórðarson.
„Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar
köld.“ (Bólu-Hjálmar)
Með dauða vinar míns, Trausta
Sveinssonar, hefur sú „kalda feigð“
enn brugðið brandi og höggvið
skarð í raðir ástvina, ættingja og
góðvina.
Að baki liggja margi'a ára kynni,
vinfengi og samstarf, þar sem aldrei
fór misjafnt orð okkar á milli. Eig-
inlegt er mér því að minnast vinar
míns og bróður nokkrum orðum.
Trausti var hugumstór, atorku-
samur og drífandi í öllu, sem hann
tók sér fyrir hendur. Hann vildi sjá
hlutina gerast. Samtímis tilfinn-
inganæmur, viðkvæmm-, glöggur,
hagsýnn, búinn mikilli verksnilli og
listrænn. Já, listrænn, enda var allt
1 kringum hann innan húss sem utan
; ofið fagum, listrænni smekkvísi og
; : hugkvæmni. Um það ber heimilið
™ órækt vitni þar sem getur að líta
handverk hans. Höfðinglundaður
var hann, og einkenndi mikil gest-
risni heimili þeirra hjóna. Trausti
var vinfastur, hreinskiptinn, fastur
fyrir í sjónarmiðum. Hann var trú-
maður mikill, og samkvæmt orði
Guðs sannfærður um endurfundina
á landi lifenda. í þeirri trúarvissu
bar hann því sem hetja þann skæða
sjúkdóm, er að lokum hneppti hann
í „feigðar fjötra". En með augum
■ trúarinnar leit hann „fjötralaust
frelsi" og fegurð eilífðarinnar.
Kæru, elskulegu vinir, Dúdú,
Birkir, Hafdís, tengda- og barna-
börnin. Við sendum ykkur öllum
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um Guð að styrkja ykkur. Látið
ljúfu minningarnar ásamt vissunni
um endurfundina hefja ykkur ofar
harmi og trega. Hér er góður
j drengur genginn. Blessuð sé minn-
i ing hans.
Sólveig og Jón Hjörleifur
Jónsson og fjölskylda.
I
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSDÍS SIGURÐARDÓTTIR,
Holtsgötu 39,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 13. október og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Ragnar Jónsson,
Guðni Kolbeinsson, Lilja Bergsteinsdóttir,
Ingveldur Ragnarsdóttir, Guðmundur Ægir Theodórsson,
Hilmar Á. Ragnarsson, Guðrún Langfeldt,
Stefanía K. Ragnarsdóttir, Bernd Beutel,
Sigurður Ragnarsson, Júlíana Grigorova,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐFINNU GÍSLADÓTTUR
frá Krossgerði,
Berufjarðarströnd.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Droplaugar-
stöðum fyrir góða umönnun.
Valborg Eiríksdóttir, Haraldur Lúðvíksson,
Þóra Eiríksdóttir, Tryggvi Sveinsson,
Elsa Eiríksdóttir Bird, Samúel F. Bird,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGVALDA ÞORSTEINSSONAR
lögfræðings,
Hólmgarði 41.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á A7, Sjúkra-
húsi Reykjavíkur, fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Elísabet Sigvaldadóttir, Guðlaugur K. Karlsson,
Erla Sigvaldadóttir, Sæmundur K. B. Gíslason,
Sigrún Sigvaldadóttir, Kristján G. Jóakimsson,
Þorsteinn Sigvaldason, Kristín Þórmundsdóttir,
Bogi Sigvaldason, Ingunn Pálsdóttir,
Dagbjört Sigvaldadóttir
og barnabörn.
+
Elskulegur frændi minn,
EIRÍKUR BREIÐFJÖRÐ KRISTVALDSSON,
Gránufélagsgötu 35,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu á
morgun, mánudaginn 12. október kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónína Kristín Jóhannesdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
GARÐARS GUÐMUNDSSONAR,
Geitlandi 4,
Reykjavlk.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki A-4
Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir góða umönnun.
Jónina Ásmundsdóttir,
Elín Garðarsdóttir, Már Steinsen,
Þorkell Garðarsson, Anna Garðarsdóttir,
Garðar Þór, Helena, Agnar Freyr og Vilborg.
+
Þökkum af alhug öllum þeim sem veittu okkur
samúð og stuðning við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, sonar
og bróður,
JÓNS HANNIBALSSONAR,
Bergholti 8,
Mosfellsbæ.
Ragnhildur Þorleifsdóttir,
Þórunn Stefanía Jónsdóttir, Benedikt Halldór Halldórsson,
Þorsteinn Jónsson,
Berglind Hanna Jónsdóttir,
Þorsteina Kristjana Jónsdóttir
og systkini hins látna.
i
I
l
l
<
+
Þökkum innilega öllum þeim, sem vottuðu okkur
samúð og hafa styrkt okkur með hluttekningu
sinni við andlát og útför,
PÉTURS O. NIKULÁSSONAR,
Laugarásvegi 23,
Reykjavík.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Ásta Pétursdóttir, Þorsteinn Bergsson,
Gróa Þóra Pétursdóttir, Heimir Sigurðsson,
Pjetur Nikulás Pjetursson, Elsa Magnúsdóttir,
Þóra Óiafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu
vegna andláts og jarðarfarar ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa,
sonar og tengdasonar,
ÓLAFS SIGURÐAR GÚSTAFSSONAR,
Hringbraut 15,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
11-E á Landspítalanum fyrir hlýju og góða
umönnun.
Áslaug Kristín Pálsdóttir, Ágústa Guðrún Ólafsdóttir,
Sigurður Arnar Ólafsson, Heiða Guðrún Einarsdóttir,
Andri Már Sigurðsson, Arnar Páll Sigurðsson,
Jóhanna Guðrún Bjarnadóttir, Páll Oddsson
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Sviðugörðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Suðurlands, Heimahjúkrunar og Kumbaravogs.
Sigurður Guðmundsson,
Selma Katrín Albertsdóttir, Davíð Axelsson
og fjölskyldur.
*
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför fósturmóður minnar,
systur og móðursystur,
HILDAR ÞORSTEINSDÓTTUR
kaupmanns.
'V
Sigríður Sigurðardóttir,
Valgerður Þorsteinsdóttir,
Þóra, Laufey og Sigrún Steingrímsdætur.
y