Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 ■k— SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 MINNINGAR KIRKJUSTARF JÓN JÓNASSON V + Jón Jónasson fæddist á Þverá í Láxárdal í Þingeyj- arsýslu 29. október 1935. Hann lést á Landspítalanum 1. októ- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Þverárkirkju í Laxárdal 9. október. Jón Jónasson var einn frammá- manna bænda og náttúruverndar- sinna sem gerðu samkomulag um endalok Laxárdeilna 1973.1 kjölfar þeirra voru lögin um vemdun Mý- >vatns og Laxár sett, þar sem komið var á laggimar Náttúmrannsókna- stöð við Mývatn. Jón átti sæti í stjórn stöðvarinnar frá upphafi til dauðadags. Hann var einlægur náttúmverndarmaður, sem tók af- stöðu að vel athuguðu máli. Skoð- anir hans voru vel rökstuddar og byggðar á staðreyndum og hann dró ályktanir óháð persónulegum hagsmunum. Hans verður saknað í stjóm Rannsóknastöðvarinnar, og era störf hans þökkuð. F.h. stjórnar Náttúmrannsókna- stöðvarinnar við Mývatn Gísli Már Gíslason, formaður stjórnar. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A- 4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt tii þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. mmmmmmw t I Fersk blóm og skreytingar við öll tœkifœri I Opið til kl.10 öll kvöld Persónuieg þjónusta Fákafeni i I, sími 568 9120 UTFARARSTOFA OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRLNGINN AÐALSTRÆ11 4B • 101 RLYKJAVÍK K l'. 480896-2469 • FAX 551 3645 LÍKKISITJVlNNUSrOFA EYVINDAR ÁRNASONAR J..;;.. SFOFNUD 1899 t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma, ÓLAFÍA BOGADÓTTIR BREIÐFJÖRÐ Laugateigi 27 lést á Landakoti, föstudaginn 9. október. Eiður Breíðfjörð Guðmundur Bogi Breiðfjörð Bertha R. Langedal Leifur Breiðfjörð Sigríður Jóhannsdóttir Gunnar Breiðfjörð Elín Aune barnabörn og barnabarnabarn. -4 % t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma HÓLMFRÍÐUR ÞÓRDÍS INGIMARSDÓTTIR Dverghamar 34, Vestmannaeyjum, lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 5. október og verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík 12. október kl. 10.30. Hildur Kr. Jakobsdóttir, Oddný Jakobsdóttir, Sigurjóna Jakobsdóttir, Halldóra Karlsdóttir, Karl Davíðsson, Steingrímur V. Björgvinsson, Gunnar Sigurðsson, Grettir Pálsson, Jón Þórarinsson, Katrín Helga Karlsdóttir, Margrét Eyfells, Edda Jónsdóttir. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr- aðra 13. október. Elísabet sér um þáttinn milli „súpu og sælu“. Val- gerður Gísladóttir frá Ellimála- ráði hefur hugleiðingu. Hjónin Sigfríður og Halldór 0. Jónsson flytja bókmenntakynningu um Þorstein Valdimarsson skáld. TTT-starf 10-12 ára kl. 17 á mánu- dögum. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9- 10 ára drengi á mánudögum kl. 17.30. Bænastund og fjmirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bæn- arefnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánu- dögum. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um- sjón dr. Sigurjón Ami Eyjólfsson. Kópavogskirkja. Samvera Æsku- lýðsfélagsins kl. 20 í safnaðarheimil- inu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs- starf yngri deilda kl. 20.30-22 í Há- sölum. Akraneskirkja. Kirkjuskóli eidri barna, 7-9 ára, mánudag kl. 17.30. Æskulýðsfélag kirkjunnar í sam- starfi við KFUM og K kl. 20. Keflavíkurkirkja. A morgun, mánudag: Sorgarhópur á vegum Bjarma, samtaka um sorg og sorg- arferli á Suðurnesjum, í efri saln- um í Kirkjulundi (2. skipti af 5). Fjallað verður m.a. um bók Viktors Frankl: Leitin að tilgangi lífsins. Hópurinn er ætlaður þeim sem eru að takast á við ástvinamissi og sorg. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 11 barnasamvera. Mikill söng- ur, fræðsla, lofgjörð og bæn. Kl. 14 guðsþjónusta. Molasopi. Stuttur fundur með fermingarbörnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra í safnaðarheimilinu eftir guðsþjón- ustuna. Kl. 20.30 æskulýðsfundur. Nýir félagar velkomnir. Var sá stóri stærstur? Því hefur verið fleygt að lax einn sem Alan Bercovic veiddi í Búbót í Vatnsdalsá sé stærsti lax sem veiddist í íslenskri laxveiðiá í sum- ar. Hann er bókaður í veiðibók ár- innar sem 28 punda, en Pétur Pét- ursson, annar leigutaka árinnar, sem var viðstaddur er iaxinn var dreginn, segir að vigt sem inn- byggð var í háfskaftið hafi vegið laxinn 30 pund. Það hefur verið talað um aðra laxa í sumar, 26 punda fiska sem voru dregnir og vegnir úr Laxá í Aðaldal og jafnvel þann fræga lax Sverris Hermannssonar úr Hrúta- fjarðará, þann sem hvarf, og að hæpið sé að slá fram að lax sem var sleppt hafi verið stærstur þeirra allra. Pétur segir engan vafajeika á því. „Ég get sagt ykkur að þetta var engin spurning. Vigtin í háfnum sagði 30 pund og laxinn var tæp- lega 113 sentímetrar. Hann stóð upp úr háfnum þegar lesið var á vigtina, þess vegna er möguleiki á því að vigtunin hafi verið eitthvað skökk, en það hefur ekki verið mikið, en einmitt þess vegna kus- um við að miða þyngdina frekar við þumalputtaregluna sem NASF hefur gefið út, en samkvæmt henni em líkindin mest að 113 sentímetra fiskur sé 28 pund. Við eram alveg sáttir við það. Laxinn var fyrst bókaður 30 pund, en við ALAN Bercovic með þann stóra og dæmi nú hver fyrir sig... breyttum því,“ sagði Pétur í sam- tali við Morgunblaðið. Bercovic þessum gekk mjög vel og það var mikil „stórlaxaveisla" í ánni þá daga sem hann var í ánni. Þónokkrir um og yfir 20 punda voru þá dregnir og sjálfur veiddi Bercovic annan lax, daginn eftir, sem var bókaður 22 pund. Þann fisk veiddi hann í Hólakvörn. Lengdin segir oft ekki aila söguna Til samanburðar má geta þess að lax sá er Sverrir Hermannsson veiddi í Hrútafjarðará og var síðar stolið lifandi úr klakkistu, sem frægt er orðið, áður en ráðrúm gafst til að vigta hann, var mældur 107-108 sentímetrar. Sverrir sagði laxinn hafa verið mikinn kappa, „ekkert farinn að slakna" og gríðarlega þykkan. Hann giskaði á að laxinn væri á bilinu 26 til 28 pund. ÁRMANN Sigmarsson, 16 ára, veiddi sinn fyrsta lax í Hóia- kvörn í Vatnsdalsá í sumar, það var 18 punda fiskur sem tók Blue Charm númer 12. Alkunna er, að lengd segir oft ekki alla söguna, þannig veiddust íyrir nokkmm árum tveir laxar, annar í Vatnsdalsá og hinn í Víði- dalsá, báðir 111 sentímetrar, en sá úr Vatnsdalnum var 29 pund á meðan Víðidælingurinn var 32 punda. Allt fer þetta eftir holda- farinu og því æskilegt að vigta þessa laxa ef möguleiki er, áður en þeim er sleppt, séu menn á kafi í sleppingum á annað borð. Það er hins vegar ekki gert nema af og til. Þótt menn gangi um bakka Vatnsdalsár vopnaðir háfum með innbyggðum reislum, þá eru háfamir sjaldnast notaðir, því menn kappkosta að ná laxinum þægum upp að landi, þar sem los- uð er varlega úr þeim flugan og þeim síðan strokið um kviðinn áð- ur en veiðimenn allt því kyssa þá bless. Safnaðarstarf Kirkjuhátíð í Arbæjarkirkju í SUMAR hafa farið fram gagnger- ar breytingar og endurbætur á Ár- bæjarkirkju og hefur kirkjan verið lokuð um nærfellt 5 mánaða skeið af þeim sökum. Söngloft kirkjunnar þar sem orgel og kirkjukór voru staðsett, hefur verið tekið niður, en orgeli og kór ætlað nýtt lými niðri í kirkjunni. Einnig hefur verið sett upp listaverkið „Ljósstafir" eftir listakonuna Rúrí á altarisvegg kirkjunnar. Verður kirkjan tekin á ný í notkun og altarislistaverkið helgað við hátíðarmessu í Árbæjar- kirkju í dag, sunnudaginn 11. októ- ber, kl. 15.30. Við hátíðarmessuna helgar hr. Karl Sigurbjörnsson listaverkið „Ljósstafir" og prédikar, en prestar Árbæjarsafnaðar annast altaris- þjónustu. Organleikari er Pavel Smid og kór Arbæjarkirkju syngur. Alda Ingibergsdóttir syngur stól- vers. Einnig syngur í guðsþjónust- unni kvennasextett skipaður Sig- rúnu Pálmadóttur, Kristínu R. Sig- urðardóttur, Sigurlaugu Knudsen, Bryndísi Jónsdóttur, Soffiu Stef- ánsdóttur og Þómnni Díu Stein- þórsdóttur. Ilka Petróva flytur tón- list ásamt Violetu Smid á undan guðsþjónustunni. Þess skal loks getið að Árbæjarsöfnuður er 30 ára á þessu ári. Ferð eldri borgara í Grensáskirkju SAMVERUSTUNDIR eldri borg- ara í Grensáskirkju era hafnar á ný að loknu sumarhléi. Þær eru sem fyrr á miðvikudögum kl. 14 og byggjast upp á biblíulestri, bæna- stund og kaffiveitingum. Næstkomandi miðvikudag, 14. október, er fyrirhuguð haustferð starfs eldri borgara í Grensáskirkju. Ferðinni er heitið um Þingvelli að Nesjavöllum. Þar verður starfsemi orkuversins kynnt og kaffi dmkkið. Brottför er frá Grensáskirkju kl. 12.15 og heimkoma áætluð kl. 17.15. Ferðin kostar 1.000 kr. og er kaffið innifalið í því verði. Til að auðvelda undirbúning er mælst til þess að væntanlegir þátt- takendur skrái sig hjá sóknarpresti í síma 553 2950 á morgun eða þriðjudag milli kl. 11 og 12 árdegis. Áskirkja. Fundur safnaðarfélags Áskirkju verður þriðjudaginn 13. október kl. 20.30 í safnaðarheimil- inu. Dagskrá: Kolbrún Karlsdóttir kynnir hin ýmsu námskeið á eigin vegum. Vaxskreytingar á kerti, kransa- og konfektgerð. Allir vel- komnir. Bústaðakirkja. Starf TTT mánudag kl. 17. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há- degi á morgun, mánudag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Allar mæður velkomnar með lítil börn sín. Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk (eldri deild) mánudag kl. 20 í kórkjallara. Langholtskirkja. Fundur Kvenfé- lagsins í Langholtskirkju þriðjud. 6. okt. kl. 20. Venjuleg fundarstörf. Erindi Guðrún K. Þórsdóttir, fram- kv.stj. Altzheimer-samtakanna. Fé- lagar taki með sér gesti. Neskirkja. Fótsnyrting á vegum Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16. Uppl. í síma 551 1079. TTT 10-12 ára starf kl. 16.30. Æskulýðs- félag Neskirkju kl. 20. Mömmumorgunn miðvikudag kl. 10-12. Fræðsla: Þroski barna og örvun. Ungar mæður og feður vel- komin. Árbæjarkirkja. Æskulýðsfundur yngri deildar, 8. bekkur, kl. 20-22 í kvöld. Starf fyrir 7-9 ára (STN) mánudag kl. 16-17. TTT starf fyrir 10-12 ára mánudag kl. 17-18. Æsku- lýðsfundur eldri deildar, 9. bekkur, kl. 20-22 mánudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.