Morgunblaðið - 11.10.1998, Page 37

Morgunblaðið - 11.10.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 37 FASTEIGNASALA FRÉTTIR Haukalind 7—15. Opið hús milli 14 og 16 í dag. Fasteignasalan Hóll hefur fengið þessi stórglæsilegu raðhús á 2 hæðum með sérstæðum bílskúr í sölu, á þessum frábæra útsýnisstað. Um er að ræða fjögur hús, ca 144 fm íbúð og ca 30 fm bílskúr. Þrjú verul. rúmgóð svefnh. Húsin verða afhent fullbúin að utan og fokheld að innan, lóð grófj. eða lengra komin eftir samkomul. Þrjú .hús eru tilb. til afh. strax. Komdu við í dag og skoðaðu eignina. Sölumenn verða með teikningar á staðnum. Heitt á könnunni. Sjáumst! Gjafir til end- urhæfingar- deildar SNEMMA þessa árs barst Styrkt- arfélagi krabbameinssjúkra barna ábending frá endurhæf- ingardeild Landspítalans um að sárlega vantaði sérhæfð tæki til endurhæfingar barna og ung- linga á Landspítalanum og þá einkum þeirra sem dvelja á Barnaspítala Hringsins. í samráði við starfsfólk endur- hæfingardeildarinnar ákvað stjórn félagsins að efna til söfn- unar á meðal fyrirtækja til að standa straum af kostnaði við kaup á því sem helst var talið vanta, en það voru eftirfarandi tæki: Hlaupabretti, nægjanlega meðfærilegt til að auðvelt sé að flytja þau og staðsetja inn á stof- Morgunblaðið/Kristinn PRÁ afhendingu tækjanna, f.v. Helga Bogadóttir, bamasjúkraþjálf- ari, Þorsteinn Ólafsson, framkvæmdastjóri SKB, og Steinunn Unn- steinsdóttir, bamasjúkraþjálfari. um þeirra sjúklinga sem mesta böm, púlsmælar og sérsmíðaðar þörf hafa, þrekhjól, sérhæfð fyrir kerrur fyrir yngstu börnin. Algjörlega endurnýjað hús á einni hæð með 2 innkeyrsludyrum, alls 425 fm ásamt millilofti að hluta. Lofthæð ca 3,5m. Má skipta í minni eining- ar. Iðnaðareldhús rekið þarna í dag, gæti fylgt. Gæti nýst undir ýmis konar matvælaframleiðslu. Athugasemd við athugasemd ERNA J. Sigmundsdóttir, markaðs- stjóri Pfizer, hefur beðið Morgun- blaðið að birta athugasemd vegna at- hugasemdar heilbrigðisráðuneytis- ins sem bii’tist í blaðinu sl. föstudag um Viagrafrétt í DV: „Fram kemur í athugasemdinni að læknar hafi sótt um undanþágu fyrir tíu einstaklinga til að fá lyfið afgreitt og fengið hana. Þetta er ekki rétt. Samþykktar undanþágur frá Lyfjanefnd eru 18 en ekki 10 en það er aukaatriði. í bréfinu er hins vegar haft eftir mér að fyrir liggi „bunki af undanþágum" um af- greiðslu Viagi-a og að það sé rangt. Þegar blaðamaður DV, Jóhanna S. Sigþórsdóttir, hafði samband við mig spurði hún hversu margar und- anþágur væru samþykktar. Ég sagði henni sem var að ég hefði ekki talið þær. Hún spurði hvort það væri einhver bunki og ég svaraði þvi til að það væri einhver smá bunki. Ekki er mér kunnugt um neinn ákveðinn fjölda eintaka sem þarf til að uppfylla orðið bunki. Þess er ekki getið í íslenskri orðabók Máls og menningar en verið getur að ráðuneytið kunni á því skil. Ráðuneytið dregur síðan eftirfar- andi ályktun: „Áhuginn á lyfinu er því hvorki almennur, né vel skil- gi-eindur, og þess utan í engu sam- ræmi við beinar og óbeinar auglýs- ingar á lyfinu." Eins og kunnugt er hefur lyfið Viagra fengið ótrúlega umfjöllun í öllum helstu fjölmiðlum heims. Tímarit eins og Spiegel og Times hafa tekið Viagra til ítarlegr- ar umfjöllunar án þess að litið hafi verið svo á að um auglýsingu lyfja- fyrirtækisins væri að ræða. Þetta hefur vart farið fram hjá þeim sem eitthvað fylgjast með. „Það kemur ekki á óvart, að sölu- menn beiti vafasömum aðferðum til að koma á framfæri auglýsingum um lyf og vonist til að eftirspurn aukist. Undrun vekur að lítt dul- búnar lyfjaauglýsingar skuli eiga greiða leið inn í fréttadálka, eða fréttatíma fjölmiðils og hann þannig verða „vamarlaust fórnai’dýr" þerra sem telja sig þurfa að auglýsa lyf.“ Ja héma! Pfizer hefur lagt metn- að í að vanda markaðssetningu og kynningu lyfja og mun ekki sætta sig við áburð af þessu tagi frá opin- bemm aðilum. Ef hinn ónafngreindi penni ráðuneytisins hefði vandað vinnubrögð sín hefði hann haft sam- band við hið „vamarlausa fómar- dýr“ DV sem í þessu tilviki er Jó- hanna S. Sigþórsdóttir og fengið að vita að það var hún sem hafði sam- band við mig en ekki öfugt og hjá mér hefði hún eingöngu fengið svör við spurningum eins og hvenær er von á fyrstu sendingunni, og í fram- haldi af því gerði ég henni grein fyr- ir því að lyfið væri ekki skráð og því eingöngu afgreitt samkvæmt þeim undanþágubeiðnum sem Lyfjanefnd hefur samþykkt. Ég sagði henni að skráningarferlið tæki u.þ.b. eitt ár og þegar kom að spurningum sem tengdust lyfinu sjálfu, vildi ég ekki tjá mig neitt um það. í lokin benda þeir á að Lyfjaeftir- lit í-íkisins hafi daginn áður hafnað beiðni Phai-maco um heimild til að senda öllum læknum auglýsingu um lyfið. Það er miður að Morgunblaðið hafi ekki birt bréf mitt til Lyfjaeft- irlitsins og svai- þeirra, þó undar- legt megi teljast að fjölmiðlar hafi undir höndum bréf frá mér til Lyfjaeftirlitsins. Oheimilt er að senda út upplýs- ingar um óskráð lyf til lækna nema þeir biðji sjálfir um þær. Ef gera á undanþágu frá þessu þarf samþykki yfirvalda að liggja fyrir. I þessu til- viki bað ég um heimild til að senda læknum upplýsingar þar sem varað er við samhliða notkun Viagra og nítratlyfja. Lyfjaeftirlitið hafnaði beiðninni en benti mér á að ræða við Lyfjanefnd sem ég og gerði. Eftir að hafa rætt málið við Rann- veigu Gunnarsdóttur hjá Lyfja- nefnd kom okkur saman um að ég léti útbúa þessar upplýsingar og að hún myndi dreifa þeim til þeiira lækna sem hafa sótt um undanþágu fyrir sína skjólstæðinga og fengið hana samþykkta. Það sem ráðu- neytið kallar auglýsingu, verður því dreift af Lyfjanefnd til þeirra lækna sem ávísa lyfinu. Ástæða þess að ég vildi dreifa þessu til allra er að ég hef heyrt hjá læknum að talsvert sé um að lyfið hafi verið keypt erlendis og sé því í notkun hér á landi nú þegar. Þar sem stór hópur þeirra sem þurfa á lyfinu að halda .eru hjartasjúklingar á nítratlyfjum, taldi ég mikilvægt að sem flestir læknar væni vakandi fyrir þeirri hættu sem skapast af milliverkun Viagra og nítratlyfja. Ef einhverntíma hefur komið lyf á markað sem óþarft er að auglýsa í beinni merkingu þess orðs þá er það Viagra. Hins vegar á það við um þetta lyf sem önnur lyf að mikil- vægt er að læknum sé kunnugt um alla kosti þess og galla. Þegar þar að kemur mun starfsfólk Pfizer vanda til þeirrar kynningar eins og gert hefur verið við önnur lyf. Það vekur undrun mína að virðu- leg stofnun eins og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið skuli láta jafn fordómafulla og illa ígrundaða athugasemd frá sér fara.“ Fjarðargata 17 Reykjavíkurvegur, Hafnarfirði Sími 565-2790 Fax 565-0790 Miðbær, Hafnarfirði Höfum verið beðnir að útvega leigjendur eða kaupendur að húsnæð- inu þarf sem áður var Tónlistarskóli Hafnar- fjarðar (Alþýðuhúsið). Um er að ræða 2. og 3. hæð í steinhúsi ásamt geymslurisi, alls 495 fm. Húsnæðið hentar undir ýmiss konar kennslustarfsemi, með ágætum samkomusal sem skipta má niður eða skrif- stofur. Húsnæðið þarfnast aðhlynningar. Til greina kemur að selja allt húsið sem eru 858 fm. Nánari uppl. hjá fast- eignasölunni Ási, Fjarðargötu 17, Hfj., sími 520 2600. Melabraut, Hafnarfirði Atvinnuhúsnæði á jarð- hæð með ágætri lofthæð og 2 stórum innkeyrslu- dyrum, alls 1.087 fm. Góð skrifstofu- og starfs- mannaaðstaða. Bygging- aréttur á viðbót. Gott lóðarpláss á malbikuðu plani. Mögulegt að skipta upp í 2 hluta. Ath. áhvílandi lán ca 21,5 millj. til 25 ára upphaflega frá SPH. Nánari uppl. hjá fasteignasölunni Ási, Fjarðargötu 17, Hfj., sími 520 2600. Glæsihús á Selfossi Vorum að fá í einkasölu eitt glæsil. einbýlish. á selfossi. Húsið er 171 fm að stærð ásamt 34 fm bílskúr. Byggt 1993. Glæsileg hönnun. Vandaðar innrétting. Innfeild lýsing í loftum. Glæsil. parket og vönduð gólfefni. Stór aflokuð timbur verönd. Eign í sérflokki. Verð: tilboð. Nánari uppl. veitir Bárður Tryggvason, sölustjóri. Valhöll, sími 588 4477. Opið ídag 12-15 Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks I fasteignaleit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.