Morgunblaðið - 11.10.1998, Blaðsíða 45
!
MORGUNBLAÐIÐ
Dagbók frá Damaskus
Fúta og fúta er sitthvað og vatnsnudd-
tæki reyndist vera þvottavél heimilisins
Fyrstu dagana ætlaði ég að
nota til að athuga hvernig
áttaskynið væri á vegi
statt því ég hef aldrei verið hér
nema sem ferða/blaðamaður og
ekki þurft að reyna mikið á
praktísku þættina. A örpínulitla
gistihúsinu mínu vafðist fyrir
mér og strákunum þar að skilja
hvert annað; ég gerði því skóna
að það hlyti að vera eitthvað
bogið við báða. Eins og þegar
ég bað kurteislega um hand-
klæði:
- Fúta, min fadlak, sagði ég.
- Fúta? sögðu þeir og höfðu
aldrei heyrt annan eins brand-
ara.
Þetta endurtókum við nokkr-
um sinnum og loks gi’eip ég til
leikrænna tilburða og þá var
ekld að sökum að spyrja. Þeir
hrópuðu í kór: - Aaaah, FÚTA!
Vitaskuld fékk ég handklæðið
með það sama en samt er ég enn
að bræða með mér hvaða munur
var á framburðinum sem hljóm-
aði nákvæmlega eins í mínum
eyrum.
Svo hófst íbúðaskoðun rétt án
þess ég eiginlega vissi. Eg skoð-
aði íbúð á 7. hæð í gömlu húsi,
ansi lúin húsakynni og dálítið
sjabbí og þar sat digur ættmóðir
og úrskurðaði mig hæfa til bú-
setu._
Ég sló samt fostu að nú
skyldi ekki flanað að neinu eins
og í Kaíró um árið þegar ég var
orðin svo langeyg eftir að eign-
ast heimili að ég tók það fyrsta
sem bauðst. Því skoðaði ég fleiri
íbúðir. Það var sumar og sól og
Það leika blíðir haust-
vindar um Damaskus í
Sýrlandi þar sem
Jóhanna Kristjóns-
dóttir hefur nú hreiðr-
að um sig til að ráðast
til atlögu við arabísku
á ný. Hún hugðist nota
fyrstu dagana til að
skyggnast um í þess-
ari fornu borg, sem er
talin með þeim elstu
sem enn eru í byggð
á sama stað. En þá
kallaði skólinn og
engin miskunn.
mér lá ekkert á nema þegar ég
skáskaut mér framhjá foggunum
í litla herberginu á gistiheimil-
inu. Að ég ekki tali um að ég var
í léttri lífshættu í hvert sinn sem
ég brá mér á salemið því hurðin
var ekki nema um 120 sentímetr-
ar og eru þó Sýrlendingar góðir
meðalmenn vexti.
Ég var því í mestu makindum
að skoða íbúðir þegar ég varð
þess vísari að skólinn er að hefj-
ast, næstu sjö mánuðir, nám í
klassískri arabísku, 3 klst., fimm
daga í viku. Engin miskunn eða
letilíf hér. Get líka byrjað í tím-
um í íslömskum fræðum a.m.k.
vikulega og er orðin félagi í aðal
Bókasafnsklúbbnum í Dama-
skus.
Ég sá að mér var ekki til set-
unnar boðið. Ibúð var tekin á
leigu til þriggja mánaða. Hin
þekkilegasta stofa, svefnher-
bergi, skikkanlegt eldhús. Mér
fannst verra að fátt var um
innstungur fyrir tölvu og prent-
ara og ívíð meiri ókostur að það
skorti þvottavél á heimilið. Aftur
á móti var gæðalegt og gamalt
vatnsnuddtæki á baðinu sem ég
var vitanlega himinlifandi yfir.
Ég tók íbúðina þó berangursleg
væri, það hlyti að vera hægt að
pena dulítið upp á hana næstu
þrjá mánuði.
Því var ráð að kaupa stílabæk-
ur og ydda blýantana. Og upp-
götvaði svo mér til óblandinnar
kæti að vatnsnuddtækið var
hvorki meira né minna en
þvottavél. Biluð að vísu en þá er
að finna píparann.
Meðan rafvirkinn er líka
ófundinn hef ég fundið leið til að
prenta út, ég slökkvi á viftunni
og eldavéhnni og leysi málið
snöfurlega.
SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998 45
Tveir fyrir
einn
til
London
26. okt. 09 2. nóv.
frá kr. 14.550
fyrir manninn
Bókaðu á mánudag eða briðjudag
og tryggðu bér jþetta ótrúlega til-
boð til London
Gildir 26. okt. og 2. nóv. frá mánudegi til fimmtudags.
London-ferðir Heims-
ferða hafa fengið ótrú-
leg viðbrögð og nú er
uppselt í fjölda brott-
fara í vetur. Heimsferð-
ir kynna nú fjórða árið
í röð, beint leiguflug
sitt til London, þessarar
vinsælu höfuðborgar
Evrópu, og aldrei fyrr
höfum við boðið jafn hagstætt verð og jafn gott úrval hótela.
Nú getur þú tryggt þér 2 sæti á verði eins til London og einnig
valið um gott úrval hótela á frábærum kjömm.
Glæsileg ný hótel í boði.
Plaza-hótelíð, rétt við Oxford-stræti.
Flugsæti til London
Verð kr. 14.550
Flugsæti fyrir fullorðinn með skött-
um m.v. 2 fyrir 1.
Ferð frá mánudegi til fimmtudags,
26. okt., 2. nóv.
Flug alla
fhnmtudaga
og mánudaga
í október og
nóvember.
Tveggja stjörnu hótel
Verð kr. 3.700
Verð á mann á nótt á Bultins hótel-
inu með morgunmat í tveggja
manna herbergi.
Þriggja stjörnu +
Verð kr. 4.500
Verð á mann á nótt í tveggja manna
herbergi á Plaza, okkar vinsælasta
hóteli.
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is