Morgunblaðið - 11.10.1998, Side 50
50 SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Kristinn
STÆNER í gildandi útgáfu; Magnús Leifur Sveinsson, söngvari og gítarleikari, Helgi Stephensen
gítarleikari, Kristjáu Hafsteinsson bassaleikari, situr, Kári Kolbeinsson trommari og Oddur
Snær Magnússon hljómborðsleikari.
Enga poppstjörnudrauma
Skyndilega birtist hljómsveitin Stæner á
síðdegistónleikum Hins hússins og Rásar
2, eftir að hafa látið sig hverfa eftir sigur-
inn í síðustu Músíktilraunum.
STÆNER lenti í öðru sæti hjá
dómnefnd, en salurinn var svo hrif-
inn að hann heimtaði að þeir yrðu í
því fyrsta. Sveitin leikur „rokkað
popp eða poppað rokk“ sem aðdá-
endur hafa ekki fengið að heyra síð-
an. „Eftir Músíktilraunir hófum við
almennilegar æfingar. Við tökum
þessu rólega og höfum gaman af.
Það er engin ástæða til að æsa sig
og eltast við poppstjörnudrauma,"
segir Kári trommuleikari.
Héðan og þaðan
Helgi gítarleikari er nýr meðlim-
ur í sveitinni og Oddur Snær sem
spilaði með þeim í keppninni varð
ekki meðlimur fyrr en mínútu áður
en úrslitin voru tilkynnt. „Ég var í
danstónlistarbandi í rúm tvö ár áð-
ur en ég byrjaði í Stæner, og er ör-
ugglega eini meðlimur Stæner sem
hlustar á þannig tónlist," segir Odd-
ur Snær. „Ég hlusta aðallega á
gamla rokkara," segir Kári. „Roll-
ing Stones, Led Zeppelin og á sem
flesta góða trommuleikara. Þetta er
tónlistin sem foreldrai- mínir hlust-
uðu á, og ég er að fylgja þeim inn í
djassinn, enda er ég að læra við
Tónlistarskóla FÍH.“ Helgi er dul-
arfulli maðurinn í hópnum og er
ekkert að láta uppi hverjir séu upp-
áhaldsgítarleikarar sínir. Hann
nefnir B.B. King, en hvort hann
meinar það eða ekki, með sinn
sposka svip, er hins vegar annað
mál.
Steiner eða ekki
- Um hvað syngja og spila 17 og
18 ára menn sem eru ekkert að flýta
sér?
„Magnús semur alla textana og
flest lögin líka, en nokkur verða þó
til á æfíngum. Þú verður að spyrja
hann að því hvað textarnir fjalla um
en það er áreiðanlega eitthvað
ósköp ljóðrænt, og ég býst við að
þeir fjalli um hvað lífið sé yndis-
legt,“ heldur Kári fram, „Ég held að
hann setjist niður á kaffíhús til að
semja textana, og í þeim eru per-
sónugervingar, stuðlar, höfuðstafir
og allur pakkinn.“
„Við erum ekki bókaðir langt
fram í tímann, en stefnum næst að
því að spila fyrir jól á Litla-Hrauni
fyrir Steiner. Hljómsveitin heitir
samt í höfuðið á Mark Steiner sem
var rosalega feitur klámmyndaleik-
ari,“ upplýsir Oddur okkur. „Það
var mjög erfítt að fínna þetta nafn,“
segir Kári. „Við vorum búnir að
velta okkur upp úr alls konar nöfn-
um, en þegar Stæner kom upp þá
sögðum við allir; „Já!“ „Svo ætluð-
um við reyndar aldrei að taka þátt í
þessum Músíktilraunum. Ég kom
með hugmyndina þegar nokkrir
dagar voru til stefnu og við vorum
bara búnir að starfa í nokkra daga.
Svo æfðum við bara fjögur lög fyrir
keppnina og unnum.“
Svona á að fara að þessu!
Fyrsta
myndin af
Lincoln?
► LJÓSMYND á silfurhúðaðri
málmplötu, sem talin er vera af
Abraham Lincoln, var til sölu hjá
Christie’s í New York 6. október
síðastliðinn. Myndin var ekki
seld, þar sem hæsta tilboðið, 150
þúsund dollarar, var ekki talið
nógu gott. Ekki eru allir sann-
færðir um að myndin sé af
Lincoln, en ef svo er mun hún
vera fyrsta þekkta ljósmyndin af
þessum fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, tekin árið 1843
þegar hann var 34 ára.
Iglesias vinsælastur
► SPÆNSKI söngvarinn Julio
Iglesias gat verið hreykinn af
tvöfaldri platínuplötu sinni í Ma-
drid í gær. Breiðskífan, sem
nefnist „Julio: mi vida“ eða
„Julio: Ævi mín“ seldist í 450
þúsund eintökum í heimalandi
hans og er það metsala á Spáni.
MEÐ LAUGARDAGSBLAÐI MORGUNBLAÐSINS 24. OKTÓBER
í blaðaukanum verður komið víða við og heimilinu gerð góð skil á líflegan og skemmtilegan hátt.
Farið verður m.a. í heimsókn til ungs fólks sem er nýbúið að gera upp íbúð og sýndar myndir fýrir
og eftir breytingar. Einnig verður rætt við arkitekt um tískuna í húsbúnaði, litavali og innréttingum.
0)
z
IL
LU
-J
<
0
UJ
I
* Eldhús
* Gólfefni
* Litir og litaval
Lýsing og Ijós
Húsgögn
og annar húsbúnaður
• Hirslur
•Tfskan á heimilinu
• Viðtöl o.m.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 mánudaginn 19. október.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á söludeild auglýsinga í síma 569 I 139.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Nelfang: augl@mbl.is