Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
www.mbl.is
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýs-
ingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld aö meðaltali
rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík •
þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Þjóðleikhúsið sýnir á Bing Dao
Renniverkstæðinu á Akureyri
helgina 23., 24. og 25. október
L I $ T A V E R K I 0
Matur og miði
Glæsilegt hlaðborð
föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld
STRANDGÖTU 49
SÍMI 4611617
Pantið tímanlega
Miðar óskast sóttir 3 dögum fyrir sýningu
STRANDGÖTU 49
SÍMI 4611617
vantar í Háagerði/Stóragerði.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
► Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600
Mjólkur- og kjötvörur frá KEA hlutu verðlaun í Danmörku
Grunn-
skólakenn-
arar stofna
félag-
FÉLAG gi’unnskólakennara var
stofnað á Akureyi’i nýlega og á
fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar í
gær var Sigurjón Magnússon,
kennari í Glerárskóla, kjörinn for-
maður félagsins. Að félaginu
standa kennarar í öllum sex grunn-
skólum bæjarins og eiga þeir allir
fulltrúa í stjórn þess. Alls era um
150 grunnskólakennarar á Akur-
eyri.
Að sögn Sigurjóns foi-manns var
félagið stofnað í framhaldi af sam-
komulagi sem gert var við bæjaryf-
irvöld í vor um starfskjör grunn-
skólakennara. „Þar kom fram að
bæjarstjórn ákvað að gera kennur-
um tímabundið tilboð, gegn því að
þeir stofnuðu kennarafélag í
síðasta lagi 15. október. Og nú er-
um við búin að uppfylla það skil-
yrði.“
Tilgangur félgasins er í fyrsta
lagi að vera málsvari félaga sinna
og vinna að bættum kjörum þeirra
og starfsskilyrðum. í öðra lagi að
efla kynni og samstarf félags-
manna.
Fulltrúi Brekkuskóla í stjórn
félagsins er Páll Ingvarsson, frá
Síðuskóla Ólöf Inga Andrésdóttir,
frá Lundaskóla Hólmfríður Sigurð-
ardóttir, frá Giljaskóla Astrid Haf-
steinsdóttir, frá Oddeyrarskóla
Fjóla Helgadóttir og Sigurjón for-
maður frá Glerárskóla.
------------
Sjálfstæðisfélag
Akureyrar
Ingibjörg
Sólrún
formaður
INGIBJÖRG Sólrún Ingimundar-
dóttir hefur tekið við formennsku í
Sjálfstæðisfélagi Akureyrar og er
þetta í fyrsta sinn í sögu félagsins
sem kona gegnir þessu embætti.
Með Ingibjörgu Sólrúnu era í
stjórn Sigurður Harðarson vara-
formaður, Helgi Vilberg ritari,
Knútur Karlsson gjaldkeri og
Hilmar Þór Óskarsson meðstjórn-
andi. Stjórnin hefur hafið undir-
búning vetrarstarfsins og hyggst
standa fyrir þróttmiklu félags-
starfí. Fyrirhugaðir era fundir um
sértæk viðfangsefni með þátttöku
þingmanna og fleiri gesta.
KJÖTIÐNAÐARMENN KEA, með Kjötmeistara íslands, Elvar Óskarsson, í broddi
fylkingar, uppskáru 17 verðlaun á Interfair í Danmörku.
Heim
með 25
verðlaun
MJÓLKUR- og kjötvörur frá KEA
náðu frábærum árangri í Dan-
mörku fyrr í haust, annars vegar á
fagsýningu matvælaiðnaðarins á
Norðurlöndum og hins vegar
dönsku landskeppninni um gæði
mjólkurafurða. Vörurnar frá ís-
landi sópuðu að sér verðlaunum.
Fagsýning matvælaiðnaðarins á
Norðurlöndum, Interfair ‘98, var
haldin í Danmörku í byijun
október, en þessi sýning er haldin
annað livert ár og samhliða henni
er haldin fagkeppni kjötiðnaðar-
manna á Norðurlöndum. í ár var
keppnin einskorðuð við tvo kjöt-
flokka: Hrákjöt, svo sem reykt,
þurrkað og grafíð kjöt, og hins veg-
ar hrávörur svo sem spægipylsur,
pepperoni og aðrar reyktar eða
verkaðar hrápylsur.
Kjötiðnaðarmenn KEA, með
Kjötmeistara íslands, Elvar Óskars-
HÓLMGEIR Karlsson, framkvæmdastjóri Mjólkuriðnaðarsviðs KEA,
og Oddgeir Siguijónsson, ostameistari Mjólkursamlags KEA, hlaðnir
blómum eftir dönsku landskeppnina um gæði mjólkurafurða.
son, í broddi fylkingar sendu ýmsar
vörur í keppnina og uppskáru
hvorki meira né minna en 17 verð-
laun eða um lielming þeirra verð-
Iauna sem ísland fékk. Af þeim
voru tvenn gullverðlaun, fímm silf-
urverðlaun og tíu bronsverðlaun.
Af einstökum vörutegundum má
nefna að Pedersen-salami og Krá-
arpepperoni hlutu gullverðlaun og
KEA-spægipylsa silfurverðlaun.
I dönsku landskeppninni um
gæði mjólkurafurða slógu KEA-
vörurnar líka í gegn, en allar vörur
sem ná ákveðnum fjölda stiga fá
verðlaun; gull, silfur eða brons.
Atta vörutegundir frá Mjólkursam-
Iagi KEA náðu þessu marki og
besta útkomu fékk mysingur, en
fyrir hann fékk KEA gull- og heið-
ursverðlaun.
Rjómamysuostur fékk gull- og
aukaheiðursverðlaun og skyr í 200
g dósum gullverðlaun. Gouda
(17%), AB-mjólk og skyr með
vanillu fengu silfurverðlaun og ost-
urinn Isbúi og skyr með ferskjum
bronsverðlaun.
Hagyrðingakvöld
og söngskemmtun
LIONSKLÚBBUR Akureyrar
stendur fyrir hagjirðingakvöldi og
söngskemmtun í Freyvangi í Eyja-
fjarðarsveit á morgun, fóstudaginn
23. október, kl. 21.00. Allur ágóði af
skemmtuninni rennur til byggingar
sundlaugar við Rristnesspítala.
I Freyvangi koma fram nokkrir af
fremstu hagyrðingum landsins, þeir
Björn Ingólfsson, Hákon Aðalsteins-
son, Hjálmar Freysteinsson, Hjálm-
ar Jónsson, Pétur Pétursson og
Stefán Vilhjálmsson. Stjórnandi
verður Birgir Sveinbjörnsson.
Þá munu hinir margi’ómuðu Alfta-
gerðisbræður taka lagið.
Blaðbera
Endurmenntunar-
stofnun HI
Tvö nám-
skeið
UM ÞESSAR mundir heldur
Endumienntunarstofnun
Háskóla Islands tvö námskeið á
Akureyri.
Námskeiðið „Nýskipan raf-
magnsöryggismála“ verður
haldið á fóstudag, 23. október,
frá kl. 13 til 17. Það er einkum
ætlað verk- og tæknifræðingum
en er opið öllum sem vilja kynna
sér málið. Fjallað verður um
breytingar á rafmagnsöi’yggis-
málum en um áramótin 96/97
tóku gildi lög um öryggi raf-
orkuvirkja, neysluveitna og raf-
fanga. Samkvæmt þeim hefur
Löggildingarstofa yfireftirlit
með öryggi raforkuvirkja,
neysluveitna og raffanga en
óháðar faggiltar skoðunarstofur
annast framkvæmd rafmagns-
eftirlits. Rafveitum og raf-
verktökum ber að koma sér upp
innri öryggisstjórnum til að
tryggja öryggi virkja og neyslu-
veitna. Kennarar á námskeiðinu
verða Jóhann Ólafsson frá Lög-
gildingarstofu og Þorleifur
Finnsson frá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Námskeiðið „Gerð kostnaðar-
og verkáætlana" verður haldið
30. október næstkomandi í sam-
stai’fí við Norðurlandsdeildir
félaga verk- og tæknifræðinga.
Það er ætlað tæknimönnum og
öðrum sem fást við áætlana-
gerð. Fjallað verður á almennan
hátt um gerð kostnaðar- og
framkvæmdaáætlana. Kennari
verður Örn Steinar Sigurðsson
verkfræðingur hjá VST hf.