Morgunblaðið - 22.10.1998, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 59
- LÍKAM5RÆKTARSTÖD
FROSTASKJÓLI 6
Sérlega vandaðar og þægilegar
úlpur fylltar með 70% gæsadún og 30% fiðri. RR
Stillanleg stormhetta sem hægt
er að renna af. í öllum stærðum.
Ytra byrgði úr 100% vatnsvöru gerfiefni.
íslensk hönnun við íslenskar aðstæður.
Gott verð.
Söluaðilar
NÝJA VETRARLÍNAN
FRÁ MfaíngO KOMIN
l iwí'Rai
EVEREST
Skátabúðin
66°N Höldur, Akureyri
SEQLAGEHÐIN
Ægir
11 I
Eyjaslóö 7 Reykjavík sími 511 2200
FRÉTTIR
Þátttaka íslendinga á Heimsmeistaramóti barnaískák
Tvaer ný|ar
Debbie Mumm’s
aektir komnar, ásamt
snnars feék®,
Yfir 1000
nýjar tegundir
bútasaums efna,
Mörkin 3 - S: 568-7477
>pið iau.10-16 til 20 des.
mm m m m m *» m ,
Útlit fyrir að bæði
kyn verði send
FRAMKVÆMDASTJÓRI Skák-
sambands íslands segir útlit fyrir
að átta börn, fimm drengir og
þrjár stúlkur, taki þátt í Heims-
meistaramóti barna í skák fyrir ís-
lands hönd, sem hefst á Spáni á
laugardag.
„Akveðið var á stjórnarfundi
Skáksambandsins í síðustu viku að
senda fimm stráka á heimsmeist-
aramótið. Einnig var ákveðið að
athuga með þátttöku stúlknanna,
eftir því hvernig fjársöfnun myndi
ganga. Drengirnir höfðu forgang í
fyrstu vegna þess að 99% þátttak-
enda í skák eru drengir, þeir era
virkari og tefla meira. A okkar
vegum era tugir stráka að tefla til
þess að fá þátttökurétt á mótinu,
en segja má að allar stúlkur sem
stunda skák fái að fara. Það má
segja að það vanti stúlkur í skák-
íþróttina," segir Ásdís Bragadóttir
framkvæmdastjóri Skáksambands
Islands.
Nægu fé safnað
Ásdís segir útlit vera fyrir að
nægu fé verði safnað til þess að
hægt verði að senda átta börn á
mótið. „Við erum ánægð með að
þetta sé að leysast, og bókaðir hafa
verið farseðlar fyrir öll börnin
átta. Söfnun stendur yfir í fyrir-
tækjum, og hafa aðilar úr Taflfé-
lagi Reykjavíkur lagt okkur lið í
söfnuninni," segú’ Ásdís.
Helgi Ólafsson stórmeistari
verður fararstjóri, mótið hefst 24.
október og áætluð heimkoma er 7.
nóvember. Þátttakendur era á
aldrinum 9-18 ára. Ásdís segir að
langt sé síðan ísland sendi síðast
keppendur á heimsmeistaramót
barna í skák, en í síðasta Evrópu-
móti sem sent var á og haldið var í
Frakklandi árið 1995 hefðu bæði
drengir og stúlkur tekið þátt fyrir
íslands hönd.
Grundvallarsjónannið
ekki virt
Á fundi Jafnréttisráðs 19. október
s.l. var fjallað um þetta mál. í frétt
Jafnréttisráðs segir:
„I stjórnarskrá íslenska lýðveld-
isins er kveðið á um að konur og
karlar skuli njóta jafns réttar í
hvítvetna. Tilgangur jafnréttislaga
er að jafna stöðu kynjanna á öllum
sviðum samfélagsins. Skýrslur
hafa sýnt að tækifæri stúlkna í
íþróttum era ekki þau sömu og
drengja. Við þessu hefur verið
reynt að bregðast með margvísleg-
um hætti. Það verða því að teljast
mikil vonbrigði að Skáksamband
íslands skuli ekki taka þátt í þeim
aðgerðum. Með því að styrkja ekki
sterkustu skákmennina í hvoram
Bakarar kynna
„skólabakarí“
NÚ STENDUR yfir kynningar
átak í bakaríuum um land allt sem
nefnist Skólabakarí. Bakarí og
verslanir sem taka þátt í átakinu
kynna almenningi holl brauð sem
góðan valkost í nesti fyrir nem-
endur í skólum landsins. Átakið
er á vegum Landssambands bak-
arameistara og Samtaka iðnaðar-
ins og stendur til 2. nóvember nk.
Samhliða kynningu á hollu
skólanesti fyrir nemendur hafa
bakarameistarar sameinast um
útgáfu á 50 króna brauðpeningi
sem gildir sem afsláttur á þeirri
vöru sem bakaríin kynna af þessu
tilefni. Heildai-verðmæti útgef-
inna brauðpeninga er að andvirði
um 60 milljónir króa og fást þeir í
viðkomandi Skólabakaríum.
Brauðpeningar eiga sér langa
sögu á Islandi og vora gefnir út af
bökurum frá því fyrir síðustu
aldamót og allt til ársins 1930. Á
þeim tíma tóku bakarar við mjöl-
sekkjum og afhentu brauðpeninga
á móti. Einn brauðpeningur gilti
þá til kaupa á einu brauði og er
svipuð í-egla viðhöfð að þessu
sinni, segir í fréttatilkynningu.
Á bakhlið brauðpeningsins eru
fróðleiksmolar um brauð og bak-
arastéttina auk þess sem við-
skiptavinum er boðið að taka þátt
í verðlaunaleik. Að átaki loknu
verður dregið úr öllum innkomn-
um brauðpeningum og hljóta um
fimmtíu nemendur vinninga frá
Skátabúðinni, Mjólkursamsöl-
unni, Sól-Víkingi og bakarameist-
urum.
Þeir sem hafa áhuga á sögu
brauðpeninga á Islandi geta lesið
sérstaka grein um hana á upplýs-
ingavef Samtaka iðnaðarins,
www.si.is.
flokki fyrir sig virðir Skáksam-
band Islands ekki þau grandvall-
arsjónannið sem jafnréttislög
byggja á.
Jafnréttisráð harmar þessa nið-
urstöðu stjórnar Skáksambands
Islands og hvetur það til að endur-
skoða fyrri ákvörðum sína“.
m ’mmmm.
• Breyta líkamsástandi þínu?
• Komast í betra form?
• Auka fitubrennslu?
• Styrkjast og grennast?
DYPUMP
OG SPINNINO
ER LAUSNIN!
6 vikna námskeió meó mjög miklu aóhaldi.
Námskeióió hefst þriójudaginn 27. október.
SKfáning er
haím í síma
561 3535
Ak Málþing um kvikmyndaiðnaðinn
: á íslandi á vegum Afivaka hf.
og Kvikmyndasjóðs íslands
AFLVAKIf föstudaginn 23. október á Kornhlöðuloftinu,
Lækjarbrekku, frá kl. 13:00 -16:00
Dagskrá:
13:00 Setning málþings, Helga Jónsdóttir, formaður stjómar Aflvaka hf.
13:10 Skýrsla um stöðu kvikmyndaiðnaðarins á Islandi - helstu niðurstöður,
Kristján Jóhannsson, Viðskiptafræðistofnun Háskóla íslands.
13:30 Kvikmyndagerð í Bretland og á íslandi, samanburður,
Andy Paterson, kvikmyndaframleiðandi í Bretlandi.
14:15 Að búa til kvikmynd á Islandi,
Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndagerðarmaður.
14:30 Aðkoma fjárfestingaraðila í ísienskum kvikmyndaiðnaði,
Gylfi Amhjömsson, Eignarhaldsfélagi Alþýðubankans.
14:45 Kaffihié.
15:00 Paliborðsumræður - stjóm Þorfínnur Ómarsson.
16:00 Lok málþings.
Fundarstióri: Helga Jónsdóttir.
Skráning fer fram á skrifstofu Aflvaka hf. í síma 551 6600, einnig er hægt
að senda skráningu í töivupósti, aflvaki@aflvaki.is