Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
Julia Roberts hæst launuð
kvennaíHollywood
Fær rúmlega
1,2 milljarða
í laun
►ÞÓTT Julia Roberts nái ekki að
skáka þeim 20 milljónum dollara
eða 1.450 milljónum króna sem
Tom Cruise, Mel Gibson, Harri-
son Ford og Bruce Willis hafa
fengið í launaumslaginu fyrir
kvikmyndir sínar, er hún ekki
langt undan.
Ðagblaðið Variety greinir frá
því að Roberts fái 17 milljónir
dollara eða 1.220 milljónir króna
fyrir að leika í myndinni „The
Runaway Bride“ á móti Richard
Gere, en þau léku áður saman í
myndinni vinsælu „Pretty Wom-
an“.
Áður hafði verið talið að hún
fengi „aðeins" 15 milljónir doll-
ara, en þessar tvær viðbótarmillj-
ónir fleyta henni í efsta sæti yfir
hæst launuðu leikkonur
Hollywood. Jodie Foster kemur
næst henni með 15 milljónir doll-
ara fyrir að leika á móti Chow
Youn-Fat í „Önnu og konungin-
um“.
MYNPBÖNP
Meira öskur
Öskur 2
(Scream 2)_________
Hrol I vekja
★ ★V!2
Framleiðendur: Cathy Konrad og
Marianne Maddalena. Leikstjóri: Wes
Craven. Handritshöfundur: Kevin
Williamson. Kvikinyndataka: Peter
Deming. Tónlist: Marco Beltrami. Að-
alhlutverk: Neve Campbell, Courtney
Cox, Jamie Kennedy og David
Arquette. (120 mín.) Bandarísk. Skíf-
an, október 1998. Bönnuð innan 16
ára.
í „Scream" lyftu Wes Craven og
Kevin Williams stöðluðum kviðrist-
arhrollvekjum 8. og 9. áratuganna á
hærra plan með
agaðri og sjálfs-
vísandi hryllings-
mynd sem naut
óvæntrar velgeng-
ni í bíóhúsum. Þeg-
ar „Scream 2“
sigldi í kjölfarið
sáu menn glitta í
dollaramerkin í
augum framleið-
enda sem lögðu gífurlegt fjármagn í
kynningu myndarinnar.
Hinn sjálfsvísandi leikur heldur
hér áfram fullum fetum og virðist
vera helsta haldreipi handritshöf-
undarins við að skapa áhugaverðan
framhaldssöguþráð. Unnið er
skemmtilega með lögmál hryllings-
geirans um framhaldsmyndir en
einnig vísað gífurlega mikið í frum-
myndina. Þannig verður „Scream 2“
eins konar sníkill á „Scream" og
nær með því móti að soga til sín
góðar birgðir af blóði. Þó svo að
þessi þáttur gangi ágætlega upp
verður hann of fyrirferðarmikill.
Heildina skortir fágun (sem gerði
gæfumuninn í „Scream") og þráður-
inn leiðist að lokum út í lágkúru
sem ef til vill á að vera paródísk, en
heppnast hreinlega ekki nógu vel.
Heiða Jóhannsdóttir
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 69
Lágmúla 4: sími 569 9300, grœnt númer: 800 6300.
Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
á mann m.v. hjón með 2 börn 2ja-llára
í 14 daga i Rauðri ferð 19. jan.
Gist i fallegum smáhýsum á Princess
FRÉTTIR Innlent • Erlent • Athafnallf • Tölvur og tækni • Veður og (ærð
FASTEIGNIR Eignaleit • Fasteignafréttir • Handbákin • Lánareiknir • Fasteignasalar • Gagnlegar slóðir
íþróttafréttir • Meistaradeild kvenna • Landsslmadeildin • Enski boltinn • Handbolti
DÆSRADVðl Dilbert • Stjðrnuspá • Fréttagetraun • Leikir
SÉRVEFIR Svipmyndir vikunnar • Laxness • HM '98 • Kosningar '98
UPPLÝSINGAR Morgunblaðifl • Auglýsingar • Aðsent efni • Samskipti • Blaðberinn
Þróunin heldur áfram.
Nú er mbl.is enn fjölbreyttari
og ríkari að innihaldi. A hverri
stundu er alltaf eitthvað nýtt að
gerast á mörgum sviðum og það
sérðu á mbl.is. Hraði, fjölbreytni,
vandað efni.
Komdu á mbl.is og upplifðu
augnablikið á Netinu.
mbl.is
^A.LL.TAf= en~rH\sA€) Nýnrj—