Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 11

Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 11 FRÉTTIR Sendiherra fslands svarar lesandabréfí bandarísks fræðimanns í Washington Post Leifur heppni Kólumbus Jón Baldvin Leifur heppni en ekki Kólumbus PETER H. Gibbon, sem vinnur við rannsóknastörf við Harvard- háskóla, skrifaði 12. október sl. grein í bandaríska dagblaðið The Washington Post þar sem hann fjallar um Kristófer Kólumbus og reynir að svara þeirri spurningu hvers vegna rétt sé að dást að þessum manni, sem þrátt fyrir alla sína miklu galla hafl fundið „land, sem enginn Evrópumaður vissi um“. Jón Baldvin Hannibaisson, sendiherra íslands í Washington, svaraði þessu í sama blaði 21. þ.m. og segir, að engin ástæða sé til að dást að Kólumbusi fyrir að hafa orðið fyrstur Evrópumanna til að finna Ameríku því að það hafi hann ekki gert, heldur Is- lendingurinn Leifur Eiríksson. Kólumbusardagurinn er haldinn hátíðlegur ár hvert í Ameríku en á síðustu árum hafa indíánar, frumbyggjar álfunnar, notað hann til að minna á til hvers landafundirnir leiddu, þræia- halds, Qöldamorða og menning- arlegrar upplausnar meðal þess fólks, sem fyrir var í landinu. Er þessi nýja söguskoðun til- efni greinarinnar hjá Gibbon, sem dregur vissulega enga fjöð- ur yfir glæpaverk spænsku ný- lenduherranna og nefnir meðal annars, að það, sem fyrir Kól- umbusi hafi vakað, hafi verið að afla sér frægðar og frama. Hann hafi viljað fá 10% ágóðans í sinn hlut og aðalstitil að auki. Samt hafi hann gert það, sem aðrir töl- uðu bara um, siglt í vestur og fundið nýtt land. Gibbon segir, að það hafi kraf- ist mikilla hæfíleika og þekking- ar að voga sér út á Atlantshafíð á þeim skipum, sem notuð voru á tíma Kólumbusar, skömmu fyrir 1500, en það hafi hann gert og fundið land, sem enginn Evrópu- maður hafi vitað um. Vegna þess sé engin ástæða til að biðjast af- sökunar fyrir hans hönd. Skráðar heimildir og fornleifar Jón Baldvin segir í bréfi sínu, að Gibbon geti sparað sér þann rökstuðning, að rétt sé að dást að Kólumbusi fyrir að hafa orðið fyrstur Evrópumanna til að finna Ameríku því að það hafi hann einfaldlega ekki gert, heldur ís- lenski landkönnuðurinn Leifur Eiríkssons, sem hafi komið að ströndum Norður-Ameríku 500 árum á undan Kólumbusi. Frá ferð Leifs árið 1000 og annarra Islendinga síðar sé sagt í „Grænlendinga sögu“ og „Eiríks sögu rauða“ og með fornleifa- rannsóknum í L’Anse aux Mea- dows hafi verið sýnt fram á sann- leiksgildi frásagnanna. Jón Baldvin minnir á, að 1964 hafi Bandaríkjaþing staðfest þennan sannleika með því að gera 9. október að „Degi Leifs Eiríkssonar" og einnig, að stjórn- völd í Bandaríkjunum og íslandi ætli að standa saman að því að minnast fundar Ameríku með margvíslegum hætti árið 2000. Það verði einnig gert á Nýfundnalandi og þá hafi Kanadíska menningarsafnið í Ottawa ákveðið að reisa styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur, lík- lega frægustu konu í hópi land- könnuða fyrr og síðar og móður fyrsta barnsins af evrópskum uppruna, sem fæddist á megin- landi Ameríku. Jón Baldvin lýkur síðan bréfi sínu með þessum orðum: „Að þessi sagnfræðilegu sannindi skuli vera hulin fræðimanni við Harvard er meira en ég fæ skil- ið.“ Kirkjuþing ákveður fasta fjárveitingu til prestsþjónustu erlendis Drag’a þarf úr kostnaði eða auka sértekjur Samstarf Hvítasunnu- kirkju og lögreglu Forvarna- herferð meðal nema HAFIN er forvarnaherferð gegn eiturlyfjavandanum á vegum Hvíta- sunnukirkjunnar í Reykjavík í sam- vinnu við lögregluna. Hefur þegar verið ákveðið samstarf með lögregl- unni í Reykjavík og Kópavogi og segir Vörður Traustason, forstöðu- maður Hvítasunnukirkjunnar, að ætlunin sé að heimsækja þrjá efstu bekki grunnskóla með fræðslu í þessu skyni. Ætlunin er að lögreglumaður og fulltrúi Hvítasunnukirkjunnar, pilt- ur sem ánetjaðist eiturlyfjum en losnaði undan þeim, heimsæki nem- endur og sýnd verður mynd sem norska Hvítasunnukirkjan hefur gert um eiturlyfjavandann. Rætt verður \rið unglingana og þeim bent á skaðsemi eiturlyfjanotkunar. Vörður Traustason segir að ástæðan fyrir herferðinni nú sé m.a. að Hvítasunnukirkjan komist oft í snertingu við eiturlyfjaneytendur, m.a. vegna starfs meðferðarheimilis Samhjálpar sem Hvítasunnukirkjan rekur, og hann hafi kynnst þessum vanda vel bæði þegar hann starfaði sem lögreglumaður og þegar hann og kona hans unnu á meðferðar- heimili í Noregi. Segir hann hug- myndina um sérstaka forvarnaher- ferð sprottna úr þessum jarðvegi. Auk þess sem nemendur eru heim- sóttir verður boðið uppá fundi með foreldrum í skólunum á kvöldin. Auk lögreglunnar hafa félags- málayfir'völd sýnt málinu áhuga og Vörður segir Hvítasunnukirkjuna reiðubúna til samstarfs við lögi-eglu og skóla sem víðast á landinu. -------------------- Iðnaðarráðherra um möguleika á olíu BREYTINGAR kunna að vera framundan á tilhögun prestsþjón- ustu meðal íslendinga erlendis, en á nýafstöðnu kirkjuþingi var bisk- upi falið að ákveða hvar veita skuli prestsþjónustu meðal íslendinga erlendis. Hún má ekki kosta meira en sem svarar þremur prestsemb- ættum á íslandi, en kostnaður við embætti íslensku prestanna í Kaupmannahöfn og London er hærri. Verður vart unnt að halda þeim úti nema til komi frekari fjár- veiting. Til að kosta prestsembætti kirkjunnar erlendis er biskupi heimilað að nýta sértekjur og and- virði þriggja prestsembætta af þeim 138 sem ríkið greiðir laun fyr- ir að meðtöldum embættiskostnaði við þrjú prestsembætti á íslandi. Heildarkostnaður við prests- embætti á Islandi er 4-4,5 milljónir króna en embættin erlendis kosta talsvert meira. Er því ljóst að með fjárveitingunni sem kirkjuþing heimilar verður ekki unnt að greiða fyrir nema hálft annað til tvö embætti á erlendri grund nema til komi sértekjur. Bent er á að ná mætti slíkum sértekjum með samningum til dæmis við Trygg- ingastofnun, ráðuneyti, erlend kirkjuleg stjómvöld og íslenska söfnuði erlendis. Tvö prestsembætti eru nú starf- rækt erlendis, þ.e. í Kaupmanna- höfn, sem séra Birgir Asgeirsson gegnir og hefur samning til fimm ára, og í London, en þar situr séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson í ótímabundinni stöðu. Þá starfar ís- lenskur prestur í Osló, séra Sigrún Oskarsdóttir, en það embætti er kostað af íslenska söfnuðinum og norsku kirkjunni, og séra Flóki Kristinsson gegnir svo prestsstarfi á meginlandinu. Sérstök tímabund- in fjárveiting til þess verður upp urin í septemberlok á næsta ári. Samningum sagt upp Eins og iyrr segir fól kirkjuþing biskupi að ákveða hvar veita skuli prestsþjónustu meðal íslendinga erlendis með áðurgreindum skil- yrðum um fjárveitingu. Þá var sam- þykkt að gildandi samningum og samkomulagi við íslenska presta erlendis, sem þiggja laun frá þjóð- kirkjunni, þ.e. prestunum í Kaup- mannahöfn og London, skuli sagt upp með löglegum fyrirvara og gengið til nýrra samninga. I starfsreglum fyrir íslensku þjóðkirkjuna erlendis er gert ráð fyrir að biskupsstofa hafí með höndum umsjón með þjónustu, starfrækslu og fjárreiðum þeirra embætta sem biskup semur um og aðstoði við öflun fjár til starfsem- innar og undirbúning samninga þar að lútandi. Séra Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari segir ljóst að ekki verði unnt að halda úti þeim þremur embættum sem verið hafa síðustu árin, þ.e. í Kaupmannahöfn, London og á meginlandinu, hvað þá að auka þjónustu kirkjunnar er- lendis, nema með meiri sértekjum. Við umræður á kirkjuþingi um tillögu á prestakallaskipan í ísa- fjarðarprófastsdæmi og tillögu um að sameina Desjarmýrarprestakall og Eiðaprestakall var samþykkt að vísa báðum málunum til umsagnar viðkomandi héraðsfunda. Var einnig samþykkt að Eiðaprestakall verði auglýst með fyrirvara um breytingu á prestakallinu þegar það verður auglýst, en enginn prestur situr hins vegar í Desjar- mýrarprestakalli um þessar mund- ir. Þá var tillögu um störf biskupa og breytingar á biskupsdæmum vísað til löggjafarnefndar og henni falið að fjalla áfram um málið og leggja í samráði við biskup tillögur um málið fyrir næsta kirkjuþing. Biskup íslands, Karl Sigur- björnsson, mun á sunnudag setja séra Birgi Ásgeirsson í embætti prests í Kaupmannahöfn, sem hann var nýlega ráðinn til í fimm ár. Jafnframt mun biskup sitja nor- rænan biskupafund í Uppsölum eft- ir helgina. Framhald ákveðið fljótlega FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð- herra segir að hann muni á næstu dögum gera grein fyrir hvernig staðið verður að framhaldi á vinnu starfshóps sem rannsakað hefur möguleika á vinnslu olíu hér við land. í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að sérfræðingur norska olíu- félagsins Statoil teldi að minnsta kosti 12% líkur á að olía eða gas fyndist í vinnanlegu magni í setlög- unum fyrir norðan land. Finnm- sagði að starfshópurinn hefði skilað af sér skýrslu til hans og hann myndi á næstu dögum gera niðurstöðu hennar opinbera og þá um leið með hvaða hætti staðið yrði að framhaldinu. Bjóðum enn betur 20% afsláttur Clf' armbands- úrum til 31. október

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.