Morgunblaðið - 23.10.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.10.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 3^- eins og sagt er, enda áhrifamaður í tískuheiminum í áraraðir. Hann var mikill fagurkeri, unni listum. HeimOi Hrefnu og hans var með þeim glæsOegustu í bænum. Lengi vel á Hagamelnum og nú í Gnitanesi. Húsið í Gnitanesi var hannað í samvinnu við þau hjónin af tengdasyninum Ingimundi Sveins- syni. Er það hús svo vel útfært við þeirra þarfir, að leitun er að öðru eins. Allt hnitmiðað, hagkvæmt og afburða smekklegt. Fræg voru jólaboðin og veislurn- ar sem þau hjónin héldu. Jólatréð náði upp í loft, fagurlega ski-eytt, veisluborðið bungaði út og allir leystir út með gjöfum. Þetta var eins og hjá kóngafólki. Okkur langar að þakka Arnbirai fyrir þá einstöku hjálpsemi og elsku í garð móður Axels, Sigrúnar í hennar þrengingum, er hún stóð ein með fjórar dætur sínar. Þá var gott að eiga góða að. Að leiðarlokum vdjum við þakka honum og Hrefnu áralanga vináttu. Innilegar samúðarkveðjur sendum við Hrefnu, börnum þeirra, tengda- bömum og afkomendum. Hann hvfli í friði. Sigurbjörg Axelsdóttir, Axel Ó. Lárusson. Fyrir áratugum kynntumst við hjónin Ambirni Óskarssyni og konu hans, Hrefnu Karlsdóttur, og var það allt að þakka skólabróður mín- um og æskuvini, Ólafi Hallgríms- son, syni Guðmunds Hallgrímsson- ar, læknis á Siglufirði. Sá góði drengur kvaddi þennan heim fyrir aldur fram. Blessuð sé minning hans. Við andlát góðs vinar sækja óhjá- kvæmilega á mann margar ólíkar og ljúfar minningar frá liðnum ár- um, já, minningar sem era í raun og vera fjársjóður, sem aldrei getur glatast. Seint mun mér t.d. líða úr minni heimsókn okkar í veiðikofann við ósa Hrófár í Steingrímsfirði endur fyrir löndu þegar mér algjör- um viðvaningnum var m.a. boðið að spreyta mig á að veiða lax á flugu. Eg stóð þarna einn á steini við árós- inn úti í kalsaveðri á meðan Arn- björn og gestir hans kneyfðu drykki í hlýjunni inni í veiðikofanum og hentu óspart gaman að klaufanum, sem var með allt færið úti í ánni. Loks sá einn gestanna, Sverrir Sig- urðsson úr Sjóklæðagerðinni, sá landskunni laxveiðimaður, aumur á mér, kom mér til bjargar og kenndi mér réttu tökin og endirinn var sá að ég krækti í tvo laxa og þar með lauk laxveiðiævintýri mínu. Ástæðan fyrir því að þessi gamla og ómerkOega veiðisaga mín er rifj- uð hérna upp er aðeins sú að sýna hvers konar mann Arbbjörn hafði að geyma. Hann var í sannleika sagt ávallt reiðubúinn að gera allt fyrir vini sína og gesti. Hann var með öðrum orðum gestgjafi af guðs náð, höfðingi í lund, einkar hlýr í viðmóti, kíminn í betra lagi og fag- urkeri fram í fingurgóma eins og heimili þeirra hjóna ber ótvírætt vitni um. Hann kom ár sinni vel fyrir borð á lífsleiðinni, enda gæddur óvenju- lega miklu fjármálaviti. Hann var sjálfstæður i öllum hugsunum sín- um og gjörðum. Ekkert var fjarri skapi hans en að koma sér í mjúk- inn hjá valdhöfum í von um fyrir- greiðslu eða fljótfenginn gróða eins og nú er sumra manna háttur. Vin- ur minn, Arnbjörn Óskarsson, var glaður á góðri stundu og góðu stundirnar munu ekki hafa verið fá- ar í hans lífi. Nú er Arnbjörn látinn eftir langa og erfiða legu. Síðast þegar ég heimsótti hann á Landakot ekki alls fyrir löngu, sagðist hann hafa farið þrisvar sinnum til himnaríkis, en alltaf verið sendur jafnharðan tU baka. Nú hefur hann loksins lagt upp í sína hinstu ferð, sem hann mun ekki eiga afturkvæmt úr. Hon- um er óskað fararheilla á leiðar- enda. Konan mín og ég vottum vinkonu okkar, Hrefnu Karlsdóttur, og börnum hennar samúð okkar. Halldór Þorsteinsson. SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR + Sigrún Ólafs- dóttir fæddist í Reykjavík 7. janúar 1955. Hún lést á heimili sínu Kvista- landi 1, fimmtudag- inn 15. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar eni Lilja Emilía Gunnlaugs- dóttir húsmóðir og Ólafur Gunnarsson málmsteypumeistari og sjómaður. Lengst af bjó Sigrún og fjöl- skylda hennar Kópavogi. Bræður hennar eru: Jón Þór, bifreiðastjóri Mosfellsbæ, maki Ólöf Högnadóttir. Gunnlaugur Dan, skólastjóri Grindavík, maki Stefanía Guðjónsdóttir. Kjartan, byggingaverkamaður Mosfellsbæ, maki Susanne Sig- Arni, bfl- sljóri Reykjavík ókvæntur. Árið 1986 giftist Sigrún Frið- geiri Sigtryggssyni, rafvirkja frá Breiðu- mýri í Reykjadal. Fóstursonur þeirra er Ólafur ísak. Þau slitu samvistum. Sambýlismaður Sig- rúnar er Einar Óskarsson, líffræð- ingur og kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð. Sigrún vann lengst af við sjálfstæðan verslunarrekstur og skrifstofu- störf, síðast hjá bóka- og blaða- útgáfunni Fróða hf. Utför Sigrúnar fer fram í dag frá Bústaöakirkju og hefst at- höfnin klukkan 15. Kveðja Hljóð og klökk og hlý er okkar lund, hugur ristur sárri hjartans und. Komin hinsta kveðjustundin er kallið hljómar, leiðir skiljast hér. Skilning sýndir umhyggju og ást, aldrei hjálp né fórnarvilji brást. Velferð okkar fyrir brjósti barst, bh'ð og trú og ráðholl jafnan varsh Dóttir og systir okkur afar kær, frá innstu rótum þakkarrósin grær. Lýsa mun um lífs ófarinn stíg ljúf og fógur minningin um þig. Hinsta kveðja frá foreldrum. í fáum orðum langar mig til að kveðja þig, elsku systir. Það þrek og sá lqarkur sem þú hef- ur sýnt undangengna mánuði lýsir best þinni persónu. Ekki skorti vilj- ann né kjarkinn til að brjóta á bak aftur þann skelfilega vágest sem skyndilega knúði dyra og náði síðan yfii-höndinni. Minningar streyma um hugann og með þeim fyrstu eru hversu ákveðnar skoðanir þú hafðir á því hvernig ég væri klæddur í það og það skiptið, hversu viðræðugóð þú varst, hversu gott var að leita til þín þegar eitthvað bjátaði á og þegar sest var niður yfir kaffibolla var ávallt komist að ákveð- inni niðurstöðu um framvindu mála og hvert næsta skref yrði. í gegnum tíðina hefur þú á ótrúleg- an hátt staðið af þér óveður og breytt því í andstæðu sína með ákveðni og þrautseigju. Ég þakka þær stundir er við höfum átt saman í gleði og sorg, þú ert og verður ávallt besta systir í heimi. Við þökkum samfylgd á lífsins leið, þar lýsandi stjömur skína. Og birtan himneska björt og heið, hún boðar náðina sína. En alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilifú minningu þína. Elsku Óli, megi algóður guð varð- veita þig og veita þér styrk í sorg þinni. Sigtryggur Árni. Við viljum minnast okkar kæru vin- konu. Nú er hennar baráttu lokið. Við kynntumst fyrir tæplega tuttugu ár- um er við unnum allar saman í Póst- gíró og höfum æ síðan haldið hópinn. Sigrúnar verður sárt saknað úr saumaklúbbnum okkar því það brást aldrei að hún væri hrókur alls fagnað- ar. Þvílíkum frásagnarhæfileika höf- um við aldrei kynnst, við fengum munnherkjm- og magakrampa af hlátri yfir lýsingum hennar á hinum ýmsu viðburðum - og þá var ekki hlegið að ófóram annarra, heldur ávallt að hennar eigin glappaskotum og því sem hana hafði hent, nei, hún tók sjálfa sig svo sannarlega ekki of alvarlega. Við brölluðum mikið sam- an, jafnt innanlands sem utan á liðn- um árum, nú verður skai’ð fyrir skildi í ferðunum okkar. Sigrún var alltaf mikfl barnagæla og laðaði að sér bömin okkar. Því varð það mikil hamingjustund í lífi Sigrúnar og Friðgeirs þegar þau fengu Óla í fóstur, þá tæplega tveggja ára gamlan. Óli varð æ síðan sólar- geislinn í lífi Signínar. Líf hennar var sveiflukennt - skipt- ust á tímabil mikilla erfiðleika og ákafrar hamingju. Sigrún var glæsi- leg, hún hafði drottningarfas og heima hjá henni vai- alltaf allt svo fal- legt. Hún bjó sér yndisleg heimili hvort sem umgjörðin var víð eða þröng. Áinn með Einari voru hamingjurík. Mikið var um ævintýri og ferðalög. Hún ljómaði af gleði og kátínan ein- kenndi allt þeirra samband þar til baráttan við sjúkdóminn hófst fyrir tæpu ári. Lífsþrótturinn sem hafði ávallt einkennt allt hennar líf braust nú íram á nýjan hátt í baráttunni við hinn illvíga sjúkdóm. Hún gafst aldrei upp og barðist fyrir lífi sínu til hinstu stundar. Kjai-kur hennar var ótráleg- ur. Sigrán sá björtu hliðamar þar sem við gestkomandi sáum bara svartnætti - þá gat hún hughreyst okkur og jafnvel gert að gamni sínu. Við vottum ástvinum og aðstand- endum öllum okkai- dýpstu samúð. Megi minningin um yndislega konu veita okkur öllum styrk í sorginni. Nú ertu leidd, mín jjúfa lystígarð drottíns í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna fri; við guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (Hailgrímur Pétursson.) Vinkonur úr saumaklúbbnum. Það er komð að leiðarlokum, þótt vitað væri að hverju stefndi kom lát hennar mér í opna skjöldu. Af hetju- skap, dugnaði og ósérhlífni barðist hún fram á síðustu stundu gegn þeim alvarlega sjúkdómi sem er banamein alltof margra í dag. Minningarnar hafa streymt gegnum huga mér síð- ustu daga. Við Sigrán kynntumst fyrst fimmtán ára gamlar, fyrir tutt- ugu og sjö árum, í Kópavogi. Við náð- um strax vel saman og varð hennar heimili mér sem annað heimili. Ég kem úr stórri fjölskyldu en í gegnum Sigránu stækkaði hún enn frekar því hennar fjölskylda varð líka mín. Þetta voru árin þegar við voram að byrja að fara út á lífið og kannski ekkert of öruggar með okkur, stóð- um fyrir framan spegilinn, mátuðum fót og skiptum og skiptum svo aftur endalaust og Lilja, mamma hennar Sigránar, var ekki uppi að horfa á sjónvarpið heldur sat hjá okkur og skemmti sér yfir aðfórunum. En vin- átta okkar gekk ekki bara út á það að standa fyrir framan spegilinn og skipta um föt, ævintýraþráin blund- aði í okkur báðum. Við vorum ekki nema sextán og sautján ára þegar við vorum búnar að sannfæra Lára ömmu mína sem bjó í Silkiborg um að það væri gráupplagt að við mynd- um koma til hennar og vinna á sveitahótelinu sem hún vann á. Þar voram við í tæpt ár og héldum ömmu minni við efnið þegar við vorum að skríða inn um gluggann í morgunsár- ið eftir ævintýri næturinnar. Næstu árin snerast í kringum það að vinna sér inn fyrir næstu ævintýraferð, við fórum aftur til Silkiborgar og til Ital- íu. Okkur fannst svo spennandi að vera á Italíu að við réðum okkur í vinnu hjá Utsýn og vorum heilt sum- ar á Lignano. Sigrán fór líka til Spánar og vann þar eitt sumar sem bamfóstra. Þá var ævintýraþránni svalað í bili og við tók alvara lífsins. Við fengum okkur fasta vinnu hér heima, Sigrán fór að vinna hjá Sam- bandinu og ég hjá Sjónvarpinu. Sigrán var jafnan stór hluti af lífi mínu. Hún var viðstödd fæðingu yngsta sonar míns og var ógurlega montinn af því að fá að vera fyrst til þess að baða hann. Sigrán var ein- staklega bamelsk og nutu bræðra- böm hennar og börnin mín kærleika hennar og að sjálfsögðu hennar eigin sonur Ólafui- ísak. Það var mikil gleðistund þegar Sigrán eignaðist hann. Það er ekki auðvelt fyrir hann að horfa á eftir mömmu sinni svona ungur en Sigrán hlúði svo vel að hon- um og hafði svo mikið að gefa að ég trái því, elsku Óli minn, að þú getir sótt í kærleik hennar og styrk, kraft til að takast á við lífið. Elsku Einar og Óli ísak, guð gefi ykkur, foreldr- um Sigránar, bræðrum og öðrum ástvinum styrk til að takst á við sorg- ina. Elsku Sigrán mín, ég þakka þér fyrir samfylgdina og vináttuna sem var mér og fjölskyldu minni mikils virði. Takk fyrir allt. Guð geymi þig. Hildur Björnsdóttir. Elsku Didda okkar, núna ert þú loksins orðin heil aftur og farin á veg nýrra ævintýra í öðrum og betri heimi. Við vitum að þú ert hjá Jesú, laus við byrði líkamans og að þótt ástæðan sé okkur óskfljanleg, þá er hún verðug og mikilvæg. Við eigum eftir að sakna þín svo sárt, þakka þér fyrir allar frábæra stundimar okkar, minningamar um þig eru margar og bjai-tar. Það vora forréttindi að fá að vera þér samferða í gegnum áinn. Kæra amma, afi, Einar og Óli ísak, Guð veri með ykkur. Lilja og Högni. Elskuleg frænka mín og vinkona er látin. Þjáningum hennar er lokið og hefur hún hafið göngu sína á leið sinni til ljóssins. Sigrán Ólafsdóttir var einstök kona. Hún var vfljasterk, heiðarleg, afar glaðlynd og hlý persóna. Þegar hún kom í heimsókn fylgdi henni hressflegur andblær og fersklefld. Hún hreif fólk með sér. Hlátur henn- ar hijómaði um húsið, hún tók bömin, knúsaði þau og kyssti og umvafði þau kærleika. Áhugi hennar og umhyggja fyrir fólki, þó sérstaklega bömum, var mjög áberandi í fari hennar. Velferð samferðafólksins skipti hana miklu máli. Hún ræktaði vináttuna. Á sinn smekkvísa hátt skapaði hún það nota- lega umhverfi sem laðaði fólk að heimili hennar. Hún kunni þá list gestgjafans að hlusta á gesti sína og láta þeim líða vel. Heimili Sigránar og Einars stóð ætíð opið fyrir fjöl- skyldunni og vinunum, sem nýttu sér þann kost og nutu vel. í minningunni vora það mér hátíð- arstundir þegar Sigrán kom norður til Akureyrar með mömmu sinni og bræðram á sumrin. Uppáhaldsleikur- inn okkar vai- búðarleikur. Þá vai- handavinnukistillinn hennar mömmu dreginn fram og notaður sem búðar- kassi og tölur af ýmsum stærðum og gerðum og afrif af dagatali notað sem peningar. Það var okkar æðsta tak- mark að verða búðarkonur þegar við yrðum stórar. Þetta voru sælustundir bemskunnar. Eitt sinn sagði Sigrán við mig. „Þú ert stóra systir mín og ég er litla syst- ir þín.“ Vertu sæl „litla systir“. Guð veri með þér á leið þinni til ljóssins. Guðrún. Hver hefði tráað því í janúarmán- uði sl. er sjúkdómur þinn var greind- ur að slík væri þörfin fyrir gleðigjafa á himnum að við fengjum aðeins að hafa þig fram á haust. Leiðir okkar lágu fyrst saman hjá Hagvirki-Kletti árið 1991. Heillandi bros þitt, hrífandi kraftur þinn og dugnaður hreif alla. Ég sá strax að þama fór einstök manneskja. Lífsglaðari manneskju hef ég ekki kynnst og þú kenndir mér að líta alltaf á það jákvæða í fari sérhvers einstaklings. Með orðum Heiðreks Guðmundssonar er vel lýst þínu lífs- viðhorfi. Aldrei skaltu að leiðum lesti leita í fari annars manns. Aðeins grafa ennþá dýpra eftír bestu kostum hans. Geymdu ekki gjafir þínar góðum vini í dánarkrans. Hjá okkur var ekki talað um þig í eintölu heldur alltaf Sigránu og Óla. Óli var stolt þitt og líf þitt gekk út á að þið værað saman, að þú næðir a<þ>~ gefa honum hlýju, öryggi og vera honum góð fyrirmynd, enda hafðir þú af svo miklu að gefa. Þrátt fyrir að kynni okkar hafi ekki staðið nema í sjö ár finnst mér eins og þú og Óli hafið ávallt verið partur af minni fjöl- skyldu. Ófárra göngutúra, sumarbústaða- og skíðaferða minnumst við með ykk- ur Óla þar sem við nutum saman blíð- viðris náttúrunnar. Ekki skipti máli hversu brattar brekkumar vora held- ur hitt að vera úti öll saman. Að lok- um endaði gjaman „klessufjölskyld- an“ eins og Óli kallaði okkur í kvöld- verði í Suðurgötunni. Vomótt eina 1995 hittum við Einar og með honum fannst þú hamingjuna, Þið áttuð saman yndislegt heimiÍT sem var öllum opið. Þið fenguð bai'a alltof stuttan tíma saman. Einar hef- ur staðið við hlið þér eins og klettur í þessari erfiðu baráttu allt þetta ár. Við Anna Kristín gátum ekki verið hjá þér á þeirri stundu er þú skildir við, en með þér voram við í anda, í kirkju á Florída og báðum Guð um að breiða faðm sinn á móti þér. Elsku Óli, þú áttir einstaka móður og varst augasteinninn hennar. Mamma vfldi hlífa þér fyrir veikind- unum en þú fórst aldrei úr hug<x_ hennar og hún mun fylgja þér í gegn- umallt lífið. Ég bið Guð að styrkja Einar, Óla, Lilju, Ólaf, bræður Sigránar og alla aðra ástvini. Megi minningin um ftmá- bæra unnustu, móður, dóttur, systur og einstaka vinkonu verða sorginni yfirsterkari. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt GekkstþúmeðGuði Guð þér nú fylgi hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (Vald.Briem) Sigrún Traustadóttir. r Þótt starfsferill Sigránar Ólafs- dóttur hjá Fróða hf. yrði ekki langur skilur hún eftir dýrmætar minningar hjá okkur öllum er henni kynntumst og með henni störfuðum. Allt frá því að hún kom fyrst til starfa auðgaði hún umhverfi sitt með hlýju og glað- legu viðmóti sem varð tfl þess að hún varð fljót að eignast allt samstarfs- fólkið að vinum. Trámennska og samviskusemi var henni í blóð borin og því vart hægt að hugsa sér betri starfsmann til þeirra vandasömu verka, sem henni voru falin hjá Fróða hf„ en í þeim þurfti hún að hafa samband og eiga samskipti við Qölda fólks víða um land. Og svo vel var Sigránu borin sagan að viö^. skiptavinir höfðu oftsinnis að fyrra bragði samband við fyrirtækið tfl þess að þakka störf hennar og lofa fallega framkomu. Það var okkur öllum, samstarfs- fólki og vinum, mikið áfall er spurðist að Sigrún hefði greinst með Ulvígan sjúkdóm. Við fylgdumst með hetju- legri baráttu hennar og þrá eftir að vinna sigur í þeirri baráttu. En smátt og smátt varð bæði henni og okkur ljóst að baráttan myndi tapast. Það er sárt þegar fólk í blóma lífsins, eins og Sigrán var, fellur frá en huggun okkar allra, sem áttum hana að vini og samstarfsmanni, er hin góða minning, sem hún skilur eftir með okkur. Við færam manni hennar, Einari Óskarssyni, syni, Ólafi ísak Frið- geirssyni, foreldram hennar og öðr- um nánum innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð veita þeim styrk og líkn í sorg þeirra. Magnús Hreggviðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.