Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 28

Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRÓUN í verðmæti fiskiskipaflotans og aflans 1945-1997 (vísitala= 100 árið 1945). Heimild: Þjóðhagsstofnun. Er kvótakerf- ið hagkvæmt? I FYRSTU grein minni af þremur fjall- aði ég um hvemig hag- kvæmni veiða í upp- sjávarfiski hefur aukist undir núverandi fisk- veiðistjómunarkerfi. I þessari grein og þeirri þriðju mun ég hins veg- ar fjalla um botnfisk- veiðamar. Fyrst skul- um við snúa okkur að stærð fískisldpaflotans. Verðgildi flotans hefur aukist Brúttórúmlestafjöldi fslenska fiskiskipa- stólsins hefur frá árinu 1945 vaxið um rúm 300%. Samhliða því hafa gífurlegar tækninýjungar verið í iðnaðinum og verðgildi flot- ans hefur á sama tíma aukist um 1.600%. Þrátt fyrir þessa aukningu fiskiskipaflotans hefur aflinn ekki vaxið jafn hratt eða um tæp 400%. Af þessu leiðir að fiskveiðar á Is- landi hafa með tímanum orðið dýr- ari. Þetta má sjá út úr mynd 2.1. Stærri skip bætast við flotann Myndin sýnir einnig að undir lok níunda áratugarins stöðvaðist fjár- Ágúst Sæmundsson magnsaukningin og eft- ir það fór fjármagn í geiranum að dragast saman. Þetta kemur til vegna þess að með nýju fískveiðistjómunarkerfi var ekki hægt að koma með nýtt skip í útveg nema annað skip væri tekið úr umferð. A móti kemur sú aukning sem á sér stað í fjármuna- eign á fískiskipum á ár- unum 1984 til 1988 til af þeirri tilhneigingu að endumýja eldri gerðir togara með stórum vinnsluskipum þar sem veiðar og vinnsla eiga sér stað um borð. Að auki nota þessi nýju skip nýjustu og afkastamestu tækni sem völ er á í iðnaðinum. Vandamál við mat á hagkvæmni Það er að mörgu að hyggja þegar botnfiskveiðamar era rannsakaðar með hliðsjón af hagkvæmni. Nokkr- ir þættir koma inn sem skekkju- valdar og hindra það að við höfum „hreint“ kerfi eins og í uppsjávar- fiskveiðunum. Til að reyna að ná þessum skekkjuvaldandi þáttum út úr kerfinu verður að draga frá skip á sóknarmarki árin 1984 til 1991, afla og sókn smábáta og síðan hlut- fall það sem er í vinnslu um borð í íyrstitogurum. Þessir þættir era skekkjuvaldandi fyrir þær sakir að ef þeir eru teknir með fæst ekki virkni kerfisins eins og hún ætti að vera. Þama er verið að tala um afla skipa á sóknardögum íyrir 1991 og máttu veiða óheft ákveðna daga á árinu. Veiðar smá- báta undir 10 tonnum milli 1984 og 1991 síðan eftir það era bátar undir Sóknarkvótar leiða til > þess, segir Agúst Sæ- mundsson í þessari annarri grein af þrem- ur, að útgerðir fjölgi skipunum í stað þess að fækka þeim. 6 tonnum ekki innan kerfisins. Að lokum verður að taka tillit til þess að ekki er öll fjármunamyndunin komin til vegna veiðanna heldur er varlega metið að um 30% af brúttórúmlesta- fjölda frystitogaranna í kerfinu sé sá hluti sem fer í vinnslu um borð. Fjöldi frystitogara hefur aukist á undanfömum áram en árið 1983 vora þeir aðeins þrír, 1990 vora þeir 28 og 1997 voru þeir 54. Sóknarmarkið skekkir myndina Fjárfesting í smábátum stendur undir nærri því 15% af heildarfjár- magnsaukningu fiskiflotans síðan 1984. Þrátt fyrir þetta vora það skip á sóknarmarki, sem margir útgerð- armenn kusu í stað aflamarks milli áranna 1984-90, sem ollu mestu traflununum á fiskveiðistjórnunar- kerfinu. Þetta kemur til af því að sóknarkvótar leiða til þess að út- gerðir fjölgi skipunum í stað þess að fækka þeim. Sterkt samband sókn- armarks og fjármagnsaukningar í útgerð má glöggt sjá í mynd 2.1. er fjármunaeign í fiskiskipum vex gíf- urlega miðað við aflaverðmæti. I næstu grein mun ég fjalla um niðurstöður hagkvæmnirannsókn- arinnar í botnfiskveiðunum. Höfundur er stjórnmálafræðingur. Um sparnað og leiðir til að örva hann ÞÓTT flest sé nú bjart og vænlegt í ís- lensku efnahagslífi, hafa menn af því nokkrar áhyggjur að þrátt fyrir góðærið halda skuldir heimil- anna áfram að aukast og talsverður halli er á viðskiptum við útlönd. Með batnandi hag hins opinbera beinist at- hyglin að litlum sparn- aði heimilanna. Spakar nefndir hafa leitað langtímum að spamað- arhvata og fundið sitt- hvað, en hætt er við að meira þurfi. Bætt aðgengi að lánsfé Skorturinn á spamaði er vand- skýrður. Nokkra veldur bætt að- gengi almennings að lánsfé. Áður fluttu menn inn á steininn en nú kaupir fólk tilbúið og tekur lán. Því fylgja kostir. Það er skynsamlegt að húsasmiðir byggi hús og trúlega er ódýrara að kaupa tilbúið ef reiknað er með þreytu, sliti og álagi á heimil- islíf. Svo er hreint ekki bannað að byggja með gamla laginu. Fólk vill það einfaldlega ekki, og frjálst val ber að virða nema til vandræða horfi. Hvatinn til að skulda Hins vegar má benda á tvö opin- ber lánakerfi sem beinlínis hvetja fólk til að skulda. Hið fyrra er námslánakerfið, sem veitir löng lán á lágum kjöram með löngum af- borgunartíma. Vaxta- niðurgreiðslur eru nú minni en áður, en mikið er útistandandi af verð- tryggðum en vaxta- lausum lánum. Svo eru þau lán sem menn vita að ekki verða greidd til baka. Freistingin til að draga endurgreiðslur er enn meiri þar eð skuldir lækka eigna- skatta. Hitt er vaxtabóta- hlutinn af húsnæðis- kerflnu. Þar er skuld- setningin beinlínis skilyrði fyrir því að fólk fái aðstoð við að afla húsnæð- is og eignaskattsáhrifm era eins og í námslánadæminu. Framtíðarbyrðar og kynslóðasamningar Bæði kerfin og þó einkum vaxta- bótakerfið, era með þeim ósköpum gerð, að þar hafa stjómvöld skrifað ávísanir fram í tímann um aðstoð og niðurgreiðslur og varpað ábyrgðinni á skattgreiðendur fram- tíðarinnar. Engu að síður felst í þessum kerfum eins konar kyn- slóðasamningur. Það er ekki auð- velt mál að tilkynna að þau niður- greiðslukjör sem fyrri kynslóðir hafa notið, standi ekki til boða, en hins vegar sitji skattgreiðendur Það er aldrei að vita nema fólk sé til í að spara, segir Markús Möller, ef því er ekki refsað fyrir það. framtíðarinnar uppi með bakreikn- inga. Það kæmi hins vegar til greina að fjölga þeim kostum sem fólki standa til boða í þessum kerfum. Eftirfarandi hugmyndir eru langt í frá útfærðar en sennilega athugun- ar virði. Hugsum okkur að skuldar- ar gætu látið meta inneign sína hjá framtíðinni í gegnum vaxtabætur og námslán, m.a. með hliðsjón af skattalegu hagræði. Setjum sem svo að þeim væri gefinn kostur á að breyta skuldum sínum við húsnæð- is- og námslánakerfið í lægri lán á markaðsvöxtum, sem þó væru jafn- verðmæt fyrir ríkið og lánasjóðina samanlagt og núverandi niður- greiðsluskuldir. Ef rétt væri reikn- að - og það er verkurinn - græddi enginn beinlínis og enginn tapaði, en hvatningin til að skulda hyrfi eða snarminnkaði. Með hæfílegri viðbót af fræðslu og upplýsingum, er aldrei að vita nema fólk sé til í að spara ef því er ekki refsað fyrir það. Höfundur er hagfræðingur. Markús Möller Hellir og TR í Evr- ópukeppni taflfélaga um helgina SKÁK Narva, Eistiandi EVRÓPUKEPPNI TAFLFÉLAGA I fyrsta skipti taka tvö íslensk lið þátt í Evrópukeppni taflfélaga í skák. Taflfélagið Hellir og Taflfé- lag Reykjavíkur taka um helgina þátt í sama riðli í undankeppninni. TAFLFÉLAGIÐ Hellir og Taflfélag Reykjavíkur taka nú um helgina þátt í Evrópukeppni taflfélaga í skák. Keppt er í átta liða riðlum og svo óheppilega vill til að Hellir og TR tefla í sama riðli. Einungis sigurlið riðilsins kemst áfram í úrslitakeppnina. Teflt er í Narva í Eistlandi. Taflfélagið Hellir tók þátt í keppninni í fyrra og sigraði alla andstæðinga sína og komst þar með í úrslitakeppnina. Vegna fjárskorts gat félagið hins vegar ekki sent lið til að keppa í úrslit- unum. Lið Hellis er þannig skip- að: 1 Hannes Hlífar Stefánsson SM 2 Jón L. Árnason SM 3 Helgi Áss Grétarsson SM 4 Karl Þorsteins AM 5 Bragi Halldórsson 6 Kristján Eðvarðsson Liðsstjóri: Hrannar Arnarsson Helgi Ólafsson, stórmeistari, gat ekki tekið þátt í keppninni að þessu sinni þar sem hann verður fararstjóri í heimsmeist- arakeppni bama og unglinga, sem fram fer á sama tíma. I fyrstu umferð átti Hellir að tefla við lið frá Portúgal, en nú er orðið ljóst að það mun ekki mæta til leiks. Hellir er þar með kominn í undanúrslit riðils- ins. Taflfélag Reykjavíkur hefur ekki nýtt sér rétt sinn til að taka þátt í Evrópukeppninni síðustu ár, en að þessu sinni sendir félagið mjög sterkt lið. Það er styrkt af tveimur erlend- um stórmeisturam, en þannig hefur TR einnig kosið að styrkja lið sitt í Deildakeppn- inni undanfarin ár: 1 Margeir Pétursson SM 2 Igors Rausis SM 3 Þröstur Þórhailsson SM 4 Mikhail Ivanov SM 5 Jón Viktor Gunnarsson 6 Björgvin Jónsson Liðsstjóri: Ámi Á. Ámason TR mætir enski-i sveit í fyrstu umferð. Haustmót TK 1998 hefst í dag Haustmót Taflfélags Kópa- vogs hefst fóstudaginn 23. októ- ber kl. 19:30 og lýkur laugardag- inn 24. október. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími er 30 mínútur. Veitt era verðlaun fyi-ir efstu sæti auk unglingaverðlauna. Keppt er um titilinn Skákmeist- ari TK 1998. Teflt verður sem hér segir: Föstudagur 23.10. kl. 19:30 1.-3. umf. Laugardagur 24.10. kl. 14 4.-7. umf. Verðlaun: 1. verðlaun: kr. 10.000 2. verðlaun: kr. 6.000 3. verðlaun: kr. 4.000 Þátttökugjald er 800 kr. (1.000 kr. fyrir utanfélagsmenn) fyrir fullorðna og 500 kr. (700 kr. fyrir utanfélagsmenn) fyrir 16 ára og yngri. Hausthraðskákmót TK 1998 verður síðan haldið sunnudaginn 25. október kl. 14. Tefldar verða 5 mínútna skákir og góð verð- laun era í boði. Atkvöld á mánudag Atkvöld verðrn- haldið hjá Taflfélaginu Helli mánudaginn 26. október. Fyrst verða tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor kepp- andi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með tuttugu mínútna umhugs- un. Mótið fer fram í Hellisheimil- inu í Þönglabakka 1 í Mjódd, efstu hæð. Mótið hefst kl. 20. Þátttökugjald er 300 kr. fýrir félagsmenn Hellis (200 kr. fyrir 15 ára og yngri), en 500 kr. fyrir aðra (300 kr. fyrir 15 ára og yngri). Sigurvegarinn fær mál- tíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þá hefur einnig verið tekinn upp sá siður að draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fær máltíð fyrir tvo hjá Pizza- húsinu. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Á síðasta atkvöldi, sem haldið var í júlí sigraðu þeir Veturliði Stefánsson og Kristján Eðvarðs- son, hlutu 5V6 vinning af 6 mögu- legum. Keppni í landsliðsflokki hefst á þriðjudag Islandsmótið mun að þessu sinni fara fram í Árborg dagana 27. október til 8. nóvember. Mótið er í 4. styrkleikaflokki og þarf því 7Vá vinning til að ná áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli. Keppendalistinn lítur út sem hér segir: 1 Hannes Hlífar Stefánsson SM 2535 Hellir 2 Þröstur Þórhallsson SM 2495 T.R. 3 Helgi Áss Grétarsson SM 2480 Hellir 4 Jón Viktor Gunnarsson AM 2445 TR 5 Jón Garðar Viðarsson FM 2375 S.A. 6 Róbert Harðarson FM 2325 Grand 7 Þorsteinn Þorsteinsson FM 2310 TR 8 Sævar Bjamason AM 2295 T.G. 9 Bragi Þorfmnsson 2235 Hellir 10 Bergsteinn Einarsson 2210 T.R. 11 Amar Gunnarsson 2180 T.R. 12 Davíð Kjartansson 2130 Hellir Meistaramót Hellis hefst á þriðjudag Meistaramót Hellis 1998 hefst miðvikudaginn 28. októ- ber klukkan 19:30. Mótið verð- ur 7 umferða opið kappskák- mót. Þetta er í 7. sinn sem mót- ið fer fram, en núverandi skák- meistari Hellis er Björn Þorfinnsson. Umhugsunartíminn verður U/2 klst. á 36 leiki og 30 mínútur til að ljúka skákinni. Mótið er öllum opið. Umferðir hefjast alltaf klukk- an 19:30. Nánari grein verður gerð fyrir mótinu í næsta skák- þætti. Daði Orn Jónsson Margeir Pétursson Tónlist og skákmót á Grandrokk GLEÐISVEITIN Geirfuglarnir leikur á Grandrokk við Klapparstíg föstudagskvöldið og á laugardegin- um verður haldið skákmót. Hljómsveitin Geirfuglarnir gaf í sumar út sinn fyrsta geisladisk, Drit. Hljómsveitin leikur bæði sína eigin tónlist og annarra en sérhæf- ir sig í rokki og gleðipoppi. Á laugardag kl. 15 verður skák- mót á Grandrokk en nýverið var stofnað skákfélag á staðnum sem hefur sótt um aðild að Skáksam- bandi Islands og mun keppa í deild- inni í vetur. Næstkomandi miðvikudag verð- ur svo þriðja skáldakvöldið á þessu hausti þar sem kunnir rit- höfundar lesa úr væntanlegum bókum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.