Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 29
HESTAR
Niðurstöður ráðstefnu um lands-
mdtið árið 2000 munu nýtast vel
UNDIRBÚNINGUR undir næsta
landsmót, sem haldið verður í
Reykjavík árið 2000, er hafmn af
fullum krafti og komu ýmsir aðilar
sem tengjast landsmótinu saman á
ráðstefnu fyrir skömmu til skrafs
og ráðagerða. í fyrsta sinn frá upp-
hafi landsmótanna líða nú aðeins tvö
ár á milli móta, en hingað til hafa
þau verið haldin á fjögurra ára
fresti.
I sumar stofnuðu Landssamband
hestamannafélaga og 16 hesta-
mannafélög frá Lómagnúpi í Hval-
fjarðarbotn ásamt Hrossaræktar-
samtökum Suðurlands hlutafélag um
landsmótshaldið, Landsmót 2000
ehf. Stjórn félagsins boðaði til ráð-
stefnunnar og var tilefni hennar að
leita fanga hjá ýmsum aðilum sem
með einum eða öðrum hætti tengjast
mótinu og umhverfi þess.
Ráðstefnan hófst með því að Jón
Ólafur Sigfússon framkvæmdastjóri
Landsmóts 1998 á Melgerðismelum
gerði grein fyrir undirbúningi og
framkvæmdum vegna mótsins og
benti á ýmis atriði sem betur hefðu
mátt fara. Þátttakendum í ráðstefn-
unni var síðan skipt í hópa, markaðs-
og kynningarhóp, dómarahóp, kyn-
bótahóp, gæðingahóp, áhorfenda- og
fjölmiðlahóp og umhverfís- og svæð-
ishóp. Einnig átti að skipa í knapa-
hóp, en enginn þeirra knapa sem
boðaðir voru til ráðstefnunnar mætti.
Að sögn Haraldar Haraldssonar
formanns stjórnar Landsmóts 2000
ehf. varð hann fyrir miklum von-
brigðum að svo skyldi hafa farið, þar
sem knapar væru kröfuharðir og
gott hefði verið að heyra kröfur
þeirra og áherslur fyrirfram.
Annars sagðist Haraldur vera
mjög ánægður með hvað hóparnir
skiluðu skeleggum og jákvæðum
niðurstöðum sem síðan voru ræddar
ítarlega. Hann sagði það hafa verið
athyglisvert hvað þátttakendur
voru almennt sammála um það sem
betur mætti fara á mótum sem
þessum. Ymsar mikilvægar upplýs-
ingar hefðu komið fram í umræð-
unni, til dæmis að fjöldi keppnis-
valla á landinu er ekki í neinu sam-
ræmi við lög Um þá sem í gildi eru
og hafa verið samþykkt af lands-
þingi Landssambands hestamanna-
félaga. Þetta eigi eftir að hafa mikið
að segja fyrir hönnuði og lands-
mótshaldara vegna þess að enn á
eftir að byggja nýjan gæðinga-
keppnisvöll á Víðivöllum, félags-
svæði Hestamannafélagsins Fáks,
þar sem mótið fer fram.
Haraldur sagðist ekki vera í vafa
um að niðurstöður ráðstefnunar
ættu eftir að hafa mikið að segja við
undirbúning landsmótsins og hjálpa
þeim sem að því standa við að gera
sem flestum sem að því koma til
hæfís.
Þrátt fyrir að menn hafi misjafnar
skoðanir á því að halda landsmót í
Reykjavík en ekki úti í sveit segist
Haraldur fínna í auknum mæli hvað
fólk er að verða jákvæðara fyrir því.
Hann segir deginum ljósara að slíkt
mót verði með öðru sniði, en það geti
verið alveg jafn skemmtilegt og gott.
Aðstaðan á Víðivöllum er eins og
best verður á kosið og er sífellt að
batna. Reykjavíkurborg styður
Hestamannaífélagið Fák og leggur fé
í framkvæmdir fyrir landsmótið sem
á eftir að nýtast Fáksfélögum til
framtíðar.
Fulltrúar frá garðyrkjustjóra,
skipulagsstjóra og borgarverkfræð-
ingi mættu til ráðstefnunnar eftir
hádegi og tóku þátt í umræðum um
mótssvæðið og umhverfí þess. Þar
kynnti hönnuður svæðisins, Reynir
Vilhjálmsson, svæðið og fyrirhugað-
ar framkvæmdir. Haraldur sagði að
það hefði mikið að segja að fá þetta
fólk til umræðunnar þannig að ekki
ætti að fara á milli mála hvað þarf
að gera og hvernig á að standa að
því.
Framkvæmdir í fullum gangi
Framkvæmdir við breytingar á
svæðinu er þegar hafnar og hefur 70
mUljónum króna þegar verið varið í
þær. Hafíst verður handa við að gera
nýjan gæðingakeppnisvöll strax
næsta vor, en 100 mUþónir króna eru
inni á framkvæmdaáætlun fyrir
næsta ár. Einnig verður lokið við
bUastæði bæði við Reiðhöllina og
annars staðar. Svæðið verður snyrt
og þökulagt og tré gróðursett.
Miklar framkvæmdir standa
einnig yfir í Reiðhöllinni, sem í raun-
inni hefur aldrei verið lokið við. Nú
er verið að flísaleggja anddyri og
breyta snyrtiaðstöðu og lokið er við
að klæða húsið að innan. Ymislegt
fleira þarf að gera og verða 50 millj-
ónir króna veittar til verkefnisins
auk 5 milljóna til viðhalds.
Tólf fyrirtæki með Reykjavíkur-
borg eru stuðningsaðUar landsmóts-
ins og hafa lofað fjárframlögum.
Haraldur sagði að þetta gerði það að
verkum að hægt væri að setja kraft í
ýmsan undirbúning svo sem mark-
aðssetningu og fleira.
Hluti af dagskrá menningar-
borgar Evrópu árið 2000
Landsmótið árið 2000 verður hluti
af dagskrá Reykjavíkur menningar-
borgar Evrópu árið 2000 og verður
því hluti af markaðssetningu þess
verkefnis einnig. Þórunn Sigurðar-
dóttir framkvæmdastjóri Reykjavík-
ur menningarborgar Evrópu lýsti á
ráðstefnunni ánægju sinni með að
Reykjavík skyldi fyrst menningar-
borga Evrópu geta boðið upp á
hestamót sem haldið væri innan
borgarmarkanna. Hún sagði að
reynt yrði að tengja landsmótið við
ýmsa menningarviðburði sem boðið
yrði upp á og komu fram hugmyndir
um að tengja saman landsmótið og
sýningu í Arbæjarsafni.
Haraldur sagði að stjóm Lands-
móts 2000 ehf. væri bjartsýn og teldi
að allt að 15.000 manns kæmi á mót-
ið á hverjum degi. Venjulega hefur
þurft að borga aðgangseyri fyrir alla
landsmótsdagana, en nú hefur verið
ákveðið að greitt verði fyrir einn dag
í einu, en mótið mun standa yfir í 6
daga. Hann sagði að þetta ætti eftir
að hafa mikið að segja fyrir aðsókn-
ina að mótinu.
Fyrirhugað er að halda aðra ráð-
stefnu á vordögum árið 2000 áður en
lokaundirbúningur íyrir landsmótið
hefst.
Asdís Haraldsdóttir
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
OFT HAFA þau sjónarmið komið fram að tíu hestar í úrslitum hafi þótt of mikið fyrir dómara að vinna úr svo
vel fari og eru nú konmar fram tvær tillögur sem báðar gera ráð fyrir fækkun. Myndin er af tíu verðlauna-
höfum í barnaflokki á landsmótinu á Melgerðismelum í sumar.
49. ársþing LH
* ------------
A fímmta tug til-
lagna lagðar fram
TILLÖGUR sem lagðar verða fyrir
ársþing Landsambands hestamanna-
félaga sem haldið verður á Akureyri
um aðra helgi hafa nú verið sendar
út. Nýjar tillögur eru 39 talsins, þar
af koma átta tillögur frá Dómarafé-
lagi LH en einnig verða lagðar fyrir
þingið sjö gamlar tillögur sem ekki
tókst að afgreiða á síðasta þingi. Alls
verða þetta fjörutíu og sex tillögur
sem að langstærstum hluta fjalla um
breytingar keppnisreglum og má
ætla að þingfulltrúar hafi ærinn
starfa þá tvo daga sem þingið stend-
ur yfir. Að vísu má gera ráð fyrir að
nokkrar tillagnanna sem fjalla um
sama eða svipað efni verði sameinað-
ar. Áð öllum líkindum er hér um met
í fjölda mála að ræða á einu þingi.
í tveimur tillögum er lagt til að
tekin verði upp einkunnagjöf í úrslit-
um gæðingakeppninnar og ein til-
laga gerir ráð fyrir að felldar verði
út hæsta og lægsta einkunn þar sem
fimm dómarar dæma eins og tíðkast
hefur lengst af í íþróttakeppni. Blæ-
brigðamunur er á tillögunum um
einkunnagjöf í úrslitum, í annarri er
gert ráð fyrir að einkunnir verði
gefnar eftir hverja gangtegund en í
hinni að einungis verði gefnar upp
einkunnir í lok keppninnar eins og
gert er nú með röðunina.
í einni tillögu er lagt til að fækkað
verði úr tíu í átta hesta í úrslitum
landsmóta en í annarri tillögu er lagt
til að keppt verði í A- og B-úrslitum
og sigurvegari B-úrslitanna vinni sér
sæti í A-úrslitum eins og tíðkast í
hringvallargreinum íþróttakeppn-
innar. Verði þá fimm keppendur í B-
úrslitum en sex í A-úrslitum.
Þá leggur stjórn samtakanna til
að tímarit samtakanna Hesturinn
okkar verði sameinaður tímaritinu
Eiðfaxa. Reyndar verður samningur
þar um undirritaður í dag á skrif-
stofu LH en hann er með þeim fyrir-
vara að þingið samþykki tillögu
stjórnarinnar. í tillögu stjórnarinn-
ar er gert ráð fyrir að LH eignist
hlut í Eiðfaxa ehf. að markaðsvirði
700 þúsund krónur. LH hafi rétt á
16 síðum í blaðinu árlega þ.m.t.
ensku og þýsku útgáfunni fyrir efni
frá samtökunum. Þá fái LH tvær
auglýsingasíður á ári til auglýsinga
á starsemi sinni en um leið afsali LH
sér útgáfurétti, nafni og áskriftar-
skrá Hestsins okkar.
Þá leggur stjórnin til að LH haldi
landsþing á tveggja ára fresti og
stungið upp á formannafundum árin
á milli. Þetta er gömul tillaga sem
margsinnis er búið leggja fyrir þing
undanfarinna ára en alltaf verið
felld. Ef tillagan verður samþykkt
gerir hún ráð fyrir að síðasta ársþing
verði haldið 1999 en næsta þing þar
á eftir sem þá kallast landsþing verði
haldið árið 2001. Fleiri tillögur verða
kynntar í hestaþætti á þriðjudag.
Valdimar Kristinsson
Auglýsing um starfsleyfistillögur
Dagana 23. október til 20. nóvember næstkomandi munu
starfsleyfistillögur neðangreindra fyrirtækja í Reykjavík, skv.
gr. 70 í mengunarvamareglugerð nr. 48/1994, með síðari
breytingum liggja frammi hjá Upplýsingaþjónustunni í Ráð-
húsi Reykjavíkur.
Fyrirtæki/gildistími starfsleyfís í árum
Bílaleiga Flugleiða/Hertz, bifreiðaverkstæði/8
Efnalaug Árbæjar, efnalaug/8
Efnalaugin Grímsbær, efnalaug/8
Haghús ehf., einingaverksmiðja/10
Hringrás ehf., endurvinnsla brotamálms/5
Kjörverk ehf., trésmíðaverkstæði/8
Landsbanki íslands hf., prentsmiðja/8
Sjóklæðagerðin hf., silkiprentun/8
Snögg ehf., efnalaug/8
Heimilisfang
Við Flugvallarveg, 101 Rvík
Hraunbæ 102, 110 Rvík
Efstalandi 26, 108 Rvík
Esjumelum 9, 270 Mos.
Klettagörðum 9, 104 Rvík
Borgartúni 25, 105 Rvík
Höfðatúni 6, 105 Rvík
Skúlagötu 51, 101 Rvík
Stigahlíð 45—47, 105 Rvík
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og
starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum
vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, 105 Reykjavík, fyrir
4. desember nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Fosshótel Lind
Reykjavík
I tilefni af opnun nýrrar
skrifstofu og bókunar-
miðstöðvar Fosshótels að
Skipholti 50c bjóðum við
sérstakt opnunartilboð á
Fosshótel Lind i Reykjavík,
Verð tra kr. 2.5UU.- a mann
í 2ja manna herbergi.
liorgunverðarhlaðborð
innifalið.
15% afsláttur fyrir hótelgesti
á Carpe Diem Bistro.
X/erið velkomin
Afþreying þín - okkar ánægja
FOSSHOIEL Skipholti 50c
Sími:562 4000 • Fax: 562 4001