Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 48

Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Ert þú EINMANA? Við erum til staðar! VINALÍNAN vinur í raun [BDaoog® yj Negro ■»- Skólavörðustíg 21 a • 101 Reykjavík Sími / Fax: 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is Kringlukast Blússur frá Steilmann verð kr. 3.900 áður kr.jw90O Buxur frá Steilmann verð kr. 4.400 áður kr. 5*900 Pils frá Lindon verð kr. 3.900 áður kr. 5t90Ú Skyrtur frá Lindon verð kr. 4.900 áður kr. &Æ0 íþróttagallar frá lceblue 25% afsláttur verð frá kr. 6.900 Tískuverslun«Kringlunni 8—12«Sfmi 5533300 Kringluh t20% as 20% afsláttur afTriumph- naerfatnaði á Kringlukasti. á Haust ‘08 -tDlym|=)ts VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Kona í fyrsta sæti ÞAÐ hefur gengið erfið- lega fyrir konur að komast í fyrstu sætin á framboðs- listum stjórnmálaflokk- anna í Islandi, þrátt fyrir öfluga jafnréttisbaráttu síðustu ára. Ef til vill er það að einhverju leyti kon- um sjálfum að kenna, eða formið henti betur körlum, en einnig er sterk hefð fyrir forystu karla. Nú þegar fyrsta sætið er laust á lista Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi er hins vegar gott tækifæri fyrir sjálf- stæðismenn að bijóta þessa hefð. Varaþingmaður Sunn- lendinga Drífa Hjartar- dóttir er afar sterkur kost- ur. Hún hefur mjög mikla félagsmálareynslu m.a. sem formaður Kvenfélaga- sambands íslands og Sí- menntar. Eftir að hafa starfað með Drífu innan- lands og erlendis er það skoðun mín að það væri mikill fengur fyrir Alþingi að fá jafnreynslumikinn, víðsýnan, duglegan og heiUandi einstakling tU starfa. Nú er rétti tíminn til að gefa konu tækifæri. Sigurður Þorsteinsson. Um ídýfingar við altarisgöngur 23. JLJLI sl. var á þessum stað beint fyrirspurn til biskupsembættisins um of- anritað. Þegar svar hafði ekki borist 23. september sl. var fyrirspurnin árétt- uð. 27. september sl. birt- ist hér óbeint svar biskups. Fyrirspurnin var því árétt- uð hér 1. okt. sl. og er henni enn ósvarað. Enn er því freistað að árétta spurningarnar: 1. Hvenær leyfði biskup ídýfingar-at- ferlið? 2. Hver var sá bisk- up? 3. Hverjir sátu þá í helgisiðanefnd kirkjunnar? 4. Er þetta atferli (ídýfing) tíðkað almennt í evang,- lúth. kirkjum nágranna- landa? Jesús bauð, skv. ritning- unni: „Gjörið þetta svo oft sem þér drekkið í mína minningu." Jafnvel við fá- mennustu altarisgöngur hér er nú ídýfingarformið viðhaft. Er hér um vin- sældir og tísku að ræða? Einn úr söfnuðinum. Orðsending til Klassík FM 100,7 EG þakka fyrir margar ánægjustundir við að hlusta á hina ágætu tónlist ykkar en eitt finnst mér vanta. Það er örstutt kynn- ing tónverkanna. Væri ekki hægt að kynna jafnan heiti verksins og nafn höf- undar? Því þetta veit ég ekki nærri alltaf eða man, þótt ég kannist oft við verkið. Slík kynning væri því mikill ávinningur. Með kveðju og þökk. Kristinn Björnsson, Espigerði 4. Tapað/fundið Þríhjól týndist frá Reyrengi BLÁTT og ljóst þríhjól týndist fyrir nokkrum vik- um síðan frá Reyrengi 41. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið hafi samband í síma 567 5343. Lyklar i óskilum LYKLAR fundust við sjoppuna við Ofanleiti. Upp- lýsingar í síma 553 1152. Hálsfesti týndist HÁLSFESTI, úr hömruð- um perlum, týndist laugar- daginn 26. september ann- aðhvort á Hótel Loftleið- um eða á Flugvallarvegi frá hótelinu. Hálsfestar- innar er sárt saknað því hún var lánsgripur og er úr skartgripasetti. Skilvis finnandi hafi samband í síma 566 8193. Fundar- laun. Dýrahald Bröndótt Iæða týnd BRÖNDÓTT 4ra mánaða læða er búin að vera týnd í hálfan mánuð frá Stórateig í Mosfellsbæ. Þeir sem hafa orðið hennar varir eða vita hvar hún er, hafi vin- samlega samband í síma 566 6465. Fundarlaun. SKAK Um.sjón Margeir Pélursson STAÐAN kom upji í síð- ustu umferð á Ólympíu- skákmótinu í Elista. A. Fedorov (2.600), Hvíta- Rússlandi, hafði hvítt og átti leik gegn Miguel II- Iescas-Cor- doba (2.605), Spáni. 29. Hxg6+! - Kxg6 30. Dg3+ - Kh7 31. Hf4 - Be3 32. Hh4+ - Bh6 33. Dd3+ - Kg7 34. Bf4 - Hh8 35. Dg3+ - Kf8 36. Bd6+ og svartur gafst upp. Skákþing Kópavogs fer fram um helgina í félags- heimili TK, Hamraborg 5, 3. hæð. Teflt er með atskák- sniði. Mótið hefst í kvöld og verður fram haldið á morg- un kl. 14. Verðlaun: 10 þús., 6 þús. og 4 þús. I dag hefst í Narva í Eist- landi undanrásariðiil í Evr- ópukeppni taflfélaga. Tvö íslensk lið keppa í Narva, Islandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur og Hellir. og vinnur. HVÍTUR leikur HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... A IGREIN í Morgunblaðinu á sunnudag var fjallað um olíuleit við Grænland og Færeyjar og jafn- vel sagt að olíuævintýri kynni að vera handan við homið. Vissulega myndi olíuvinnsla hafa mikil áhrif á atvinnuppbyggingu í Færeyjum og Grænlandi og báðar þjóðirnar vantar trúlega fleiri undirstöður í atvinnulífíð. I báðum tilvikum eru samfélögin þó lítil og viðkvæm og fínni olíu- risamir vinnanlegar ohulindir mun það hafa gífurleg áhrif á menningu og mannlíf hjá grönnum okkar. Víkverji vonar innilega að ráða- menn í þessum löndum beri gæfu til að fara að öllu með gát og glati ekki uppmna sínum í ævintýra- mennsku olíunnar. xxx JAPANIR hafa lengi verið miklir áhugamenn um golfíþróttina og þar í landi hefur lengi tíðkast að menn í viðskiptalífi „taki einn hring“ og ræði málin, en áður var gjaman farið sömu erinda í hádeg- isverð. Nýlega rakst skrifari á grein í erlendu tímariti um að for- ystumenn fyrirtækja í Japan teldu þetta háttalag komið út í öfgar enda tekur góður golfhringur varla undir fímm klukkustundum með tilheyrandi veitingum og spjalli að leik loknum. Ekki er talinn með sá tími sem fer í að komast til og frá golfvelli og er vinnudagurinn þá í raun liðinn. Á sama tíma og Japönum fínnst nóg komið af golfi í vinnutímanum virðist eins og Evrópubúar séu að auka þennan hátt viðskiptatengsla og Islendingar íylgja að sjálfsögðu með. xxx FÁHEYRÐ vinnubrögð verk- taka í tækjaleit á vegum Ríkis- útvarpsins hafa valdið hneykslan meðal fólks eftir fréttir síðustu daga. Að villa á sér heimildir með því að kynna sig sem starfsmenn Félagsvísindadeildar Háskóla ís- lands og reyna að smygla sér inn fyrir þröskuldinn hjá fólki undir fölsku flaggi eru vinnubrögð sem ekki eru sæmandi. Reyndar telur innheimtustjóri RÚV að þau varði við lög og haft var eftir honum í Morgunblaðinu á miðvikudag að aðferðir við leit að óskráðum tækj- um væru til endurskoðunar. At- burður eins og Morgunblaðið hafði lýst deginum áður ætti ekki að geta endurtekið sig. Lesandi hafði samband við blað- ið á miðvikudag og sagði að sér fyndist allur málatilbúnaður út- varpsins vægast sagt einkennileg- ur. Fyrir um fjórum árum hefði hún lent í svipuðu atviki, menn á vegum RÚV hefðu villt á sér heim- ildir og hún hefði brugðist við með því að skrifa Ríkisútvarpinu form- legt kvörtunarbréf. Það skyti því skökku við að starfsmenn þessarar ríkisstofnunar létu eins og þetta væri einsdæmi, kæmu af fjöllum og töluðu um að þetta mætti nú ekki endurtaka sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.