Morgunblaðið - 05.11.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913
252. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skammt
í matar-
þurrð í
Rússlandi
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKA stjórnin kynnti í
gær fyrirhugaðar aðgerðir gegn
efnahagskreppunni og viðurkenndi
jafnframt í fyrsta sinn að Rússar
myndu eiga í erfiðleikum með að
greiða af erlendum lánum. Pá var-
aði Júrí Masljúkov, fyrsti aðstoðar-
forsætisráðherra, við því að matar-
birgðir í landinu væru hættulega
litlar, aðeins til tveggja eða þriggja
vikna.
Masljúkov sagði í gær nauðsyn-
legt að Rússar semdu að nýju um
endurgreiðslur erlendra lána. Þeim
ber að greiða 3,5 milijarða dala af
erlendum lánum fram að áramótum
og 17,5 milljarða dala á næsta ári.
Nú þegar eru 685 milljónir dala
gjaldfallnar.
Vegna gengishruns rúblunnar í
ágúst sl. hefur dregið svo úr inn-
flutningi matvæla, að matarbirgðir
landsmanna eru ríflega sexfalt
minni en á sama tíma 1 fyrra, að
sögn Masljúkovs.
Vilja skýrslu um
heilsu Jeltsíns
Dúman, neðri deild þingsins,
samþykkti í gær að krefjast skýrslu
um heilsufar Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta, sem hefur dvalist á
heilsuhæji við Svartahaf frá því íyr-
ir helgi. I dag mun þingið ennfrem-
ur taka fyrir frumvarp um að komið
verði á reglulegu eftirliti með heilsu
forsetans. Ekki eru þó neinar líkur
á að frumvarpið nái fram að ganga
þar sem hann verður sjálfur að
staðfesta það.
„Mitch“ genginn yfír Mið-Ameríku og orðinn að hitabeltislægð yfír Mexíkóflóa
Milljón manns heimilislaus
og hætta á hungursneyð
Managua. Reuters.
DAUÐSFÖLL af völdum fellibyljar-
ins „Mitch“, sem nú er hitabeltis-
lægð á hægri ferð yfir Mexíkóflóa,
voru í gær komin í að minnsta kosti
níu þúsund, og örlög enn fleiri Mið-
Ameríkubúa eru óljós.
A að gizka þrettán þúsund manns,
aðallega í Hondúras og Níkai-agva,
var enn saknað í afskekktari héruð-
um sem höfðu orðið harðast úti í
fimm daga sleitulausu úrhellinu sem
fylgdi einu mesta fárviðri aldarinnar
í þessum heimshluta. Um það bil ein
milljón manna missti heimili sín,
flestir í Hondúras og Níkaragva, en
líka í nágrannaríkjunum Gvatemala
og E1 Salvador.
Mexíkósk stjómvöld stóðu fyrir
umfangsmestu loftbrú í sögu sinni til
að reyna að koma hjálpargögnum á
hamfarasvæðin og Evrópusamband-
ið sagðist ætla að senda neyðarað-
stoð fyi’ir 560 milljónir króna, sem
bættist við þær 245 milljónir sem
Bandaríkin hefðu þegar lofað.
Samgöngur í rúst
En það er miklum erfiðleikum
bundið að koma mörgum fórnar-
lömbum hamfaranna til hjálpar, þar
sem vegir og brýr eru meira eða
minna í rúst. „Samgöngukerfið er
ónýtt að mestu leyti og margir staðir
sem við náum ekki til neyðarhjálpar
þurfi,“ sagði Carlos Flores, forseti
Hondúras, í viðtali við sjónvarps-
stöðina CNN. Hann sagði fellibylinn
hafa rústað 70% allra brúa í landinu,
60% vatnsveitna og 70% landbúnað-
arins.
Reuters
VERKAMENN að störfum við Ieifarnar af hruninni brú í Gvatemala, sem flóð af völdum „Mitch“ skolaði burt.
Flóð og aurskriður eyddu um 70%
akurlendisuppskerunnar, bæði í
Hondúras og Níkaragva, en auk
hennar eyðilagðist útsæði næsta árs
að miklu leyti, auk þess sem bændui'
misstu mikið af tækjum sínum og
tólum. Þannig er fyrirsjáanlegur
skortur á matvælum til lengii tíma.
Heilbrigðisstarfsmenn óttast að
kólerufaraldur brjótist út á flóða-
svæðunum, þar sem lík rotna í hrönn-
um í flóðvatninu. Einnig er talin
hætta á útbreiðslu malaríu og bein-
brunasótt þar sem moskítóflugur,
sem eru smitberar þessai'a sjúkdóma,
fjölga sér gífurlega í flóðvatninu.
í Níkaragva bætti eldgos í fjallinu
Cerro Negro gráu ofan á svart.
Gjóska og hraun runnu úr fjallinu í
um 30 km fjarlægð ft'á Casita-eld-
fjallinu, þar sem allt að 2.000 manns
fórust í aurskriðu fyrir helgina.
■ Verstu náttúruhamfarir/26
Deilan um vopnaeftirlit SÞ í Irak
Urslit þing- og rikisstjórakosninga í Bandarikjunum
Samkomulag um
öryggisráðsályktun
New York, Doha, Bagdad. Reuters.
ORYGGISRAÐ Sameinuðu þjóð-
anna náði seint í gærkvöldi víðtæku
samkomulagi um drög að ályktun,
þar sem fordæmd er ákvörðun
Iraksstjómar að hætta samstarfí
við vopnaeftirlitsnefnd SÞ,
UNSCOM, og þess krafist að
ákvörðunin verði tekin til baka skil-
Bretadrottn-
ing til írlands?
Dublin. Reuters.
MARY McAleese, forseti ír-
lands, segir að landar sínir séu
reiðubúnir til að bjóða Elísa-
betu Englandsdrottningu vel-
komna í opinbera heimsókn,
fyrstu heimsókn bresks þjóð-
höfðingja til þessarar fyrrver-
andi nýlendu Bretaveldis síðan
írland fékk fullveldi árið 1920.
Er haft eftir McAleese að sú
ákvörðun Elísabetar að vera
viðstödd minningarathöfn í
Belgíu um írska hermenn sem
létust í fyrri heimsstyrjöld í
næstu viku auki líkur á opin-
berri heimsókn hennar.
yrðislaust. Þetta hafði Reuters-
fréttastofan eftir ónafngreindum
embættismönnum.
Bretar hyggjast leggja ályktunina
fram formlega á fundi öryggisráðs-
ins í dag, fímmtudag. En ráðamenn í
hinum fimmtán aðildarríkjum ráðs-
ins eiga eftir að fara yfir ályktunar-
drögin og því gæti það dregist eitt-
hvað.
Cohen heimsækir arabaríki
William Cohen, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, heimsótti í
gær löndin á Ai-abíuskaga til að
reyna að tryggja stuðning landanna
þar við þær kröfur að írakar endur-
skoði ákvörðun sína um að slíta sam-
starfinu við vopnaeftirlitsnefndina.
Hafa Bandaríkjamenn og Bretar áð-
ur lýst því yfir að beiting hervalds
gegn Irak sé alls ekki útilokuð.
Heimsótti Cohen Kúveit, Bahrain
og Qatar eftir að hafa komið fyrst
við í Saudi-Arabíu þar sem hann
sagðist sannfærður um að Banda-
ríkin myndu hljóta þann stuðning
sem þau þyrftu. Mun Cohen í dag
fara til Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna og Oman og á morgun
heimsækir hann Tyrkland.
Demókratar lýsa yfír
góðum vamarsigri
Clinton segir kjós-
endur hafa tekið
„framfarir fram
yfir flokkadrætti“
Washington. Reuters.
BANDARÍSKI Demóki-ataflokkur-
inn lýsti því yfir í gær að varnarsigur
hans í þing- og ríkisstjórakosningun-
um sýndi að demókratar ættu í fullu
tré við pólitíska mótherja sína og að
bandarískir kjósendur vildu að öllu
tali yrði hætt um málshöfðun til
embættismissis á hendur Bill Clint-
on forseta.
Repúblikanar viðurkenndu að þeir
hefðu farið halloka í kosningunum
miðað við það sem þeir hefðu gert
sér vonir um, en minntu á að þrátt
fyrir allt hefðu þeir ennþá meii'ihluta
í báðum þingdeildum. Að þessu sinni
var kosið í 435 sæti fulltrúadeildar-
innar, 34 sæti öldungadeildarinnar
og embætti 36 ríkisstjóra, auk ým-
issa annarra embætta í stjórnsýslu
hinna einstöku ríkja.
Fyrstu ummæli Clintons forseta
um úrslitin voru á þá leið, að kjós-
endur hefðu tekið
„framfarir fram yftr
flokkadrætti“, og „fólk
fram yfir stjórnmál".
Clinton vildi ekki tjá
sig opinberlega um
áhrif kosningaúrslit-
anna á rannsóknina til
embættismissis á hend-
ur honum að öðru leyti
en því að nú væru lyktir
þess máls í höndum
þingsins og þjóðarinn-
ar.
Demókrötum íjölgaði
um fimm í fulltrúadeild-
inni en þetta er í fyrsta
sinn sem flokkur sitj-
andi forseta vinnur á í
kosningum sem fara
fram á miðju kjörtímabili forsetans
frá því 1934. Demókratar héldu sínu
í öldungadeildinni og heildarfjöldi
ríkisstjóra úr röðum demókrata
hélzt einnig óbreyttur.
Repúblikanar halda meirihluta
sínum í fulltrúadeildinni með 223
sætum á móti 211 sætum demókrata
og einum óháðum þingmanni. I öld-
ungadeildinni héldust hlutfóllin
óbreytt, 55 repúblikanar
gegn 45 demókrötum.
Aherzla
á stefnumið
Talsmenn beggja
flokka settu upp ábyrgð-
arsvip i fjölmiðlum í gær
- demókratar til að láta
ekki líta út fyrir að þeir
sæju ástæðu til að
hreykja sér og
repúblikanar til að láta
ekki bera á vonbrigðum
yfir úrslitunum - og
lögðu áherzlu á
stefnumið sín og þörfina
á að fulltrúar hennar
tækju allir höndum sam-
an í þágu þjóðarinnar.
Demókratar, með A1 Gore vara-
forseta fremstan í flokki, sögðust
setja á oddinn að tryggja fjármögn-
un opinbera lífeyi-istryggingakerfis-
ins en repúblikanar, með Newt
Gingrich í broddi fylkingar, hétu
skattalækkunum þegar þingið kem-
ur aftur saman í janúar.
■ Staðbundnu málin/22
Ánægja Bills Clintons
forseta með úrslitin
leyndi sér ekki í gær.