Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fulltrúar Sjálfsbjargar ganga á fund forsætisráðherra
Segja kjör öryrkja
hafa verið skert
FULLTRÚAR Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, gengu í
gær á fund Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra og kynntu- honum
kröfur samtakanna í kjaramálum
fatlaðra. Fatlaðir telja að kjör
þeirra hafí verið skert til muna
þrátt fyrir almennt góðæri í land-
inu, en samkvæmt upplýsingum frá
Öryrkjabandalagi Islands hefur ör-
orkulífeyrir hækkað um 17,4% á síð-
ustu fimm árum á meðan lágmarks-
laun hafa hækkað um 52% og launa-
vísitala um 30%.
„Ástæða þess að við leituðum eft-
ir fundi forsætisráðherra var sú að
kjaramál öryrkja eru orðin þannig
að ef ekki verður tekið á þeim strax
er hætt við að fátækt og efnaleysi
öryrkja aukist enn svo mikið að
ástandið gæti á nýrri öld orðið svip-
að og í þriðja heiminum," sagði Arn-
ór Pétursson, formaður Sjálfsbjarg-
ar, á blaðamannafundi í gær.
í kjaramálaályktun Sjálfsbjargar,
sem samþykkt var á 29. þingi sam-
KARI Stefánsson, forstjóri ís-
lenskrar erfðagreiningar, segir að
skoða verði ummæli Ernis Snorra-
sonar geðlæknis um gagnagrunns-
frumvarpið í ljósi þess að honum
hafí ekki verið fundinn staður inn-
an fyrirtækisins þrátt fyrir að
vera einn af stofnendum þess.
Skoða verði ummæli einnig í ljósi
gífuryrða sem hann lét falla á að-
alfundi Læknafélagsins. Jafn-
framt verði að líta til þess að Ern-
ir eigi viðskiptahagsmuni undir
erlendu lyfjafyrirtæki sem sé í
samkeppni við Islenska erfða-
greiningu.
„Emir Snorrason var í hópi
þeirra manna sem ég hafði samráð
við þegar ég stofnsetti Islenska
erfðagreiningu. Það tókst hins veg-
ar ekki að finna honum hlutverk
innan fyrirtækisins og hann tók
það töluvert næri-i sér og hefur
upp á síðkastið rætt talsvert um að
við viljum ekki hafa hann innan
fyrirtækisins. Það er rangt að því
leyti að mér þykir vænt um Emi
og hefði gjaman viljað hafa hann
nálægt mér og nota óhefta orku
hans, en rétt að því leyti að við höf-
um ekki fundið pláss fyrir hann
innan þessa fyrirtækis. Það ber að
skoða ummæli Emis í ljósi þeirra
sárinda sem þetta hefur valdið,“
sagði Kári.
Kári sagði að einnig bæri að
skoða ummæli Emis um gagna-
takanna í sumar og kynnt var for-
sætisráðherra, er skorað á stjóm-
völd að setja reglugerð um hækkun
frítekjumarks, sem hækki í sam-
ræmi við launavísitölu, felldar verði
úr gildi reglugerðir, sem skerða eða
svipta öryrkja tekjutryggingu
vegna tekna maka, að atvinnuþátt-
taka fatlaðra leiði aldrei til þess að
ráðstöfunartekjur minnki vegna
skerðingarákvæða í lögum al-
mannatrygginga, lögum um félags-
lega aðstoð og lögum um félags-
þjónustu sveitarfélaga, að fótluðum
verði tryggt jafnrétti til náms og að
lokum að nægilegt framboð af hús-
næði verði tryggt fotluðum á viðun-
andi kjörum.
Amór Pétursson sagði að forsæt-
isráðherra hefði tekið fulltrúum
Sjálfsbjargar vel og bætti því við að
hann væri vongóður um að kjara-
mál fatlaðra yrðu leiðrétt í fram-
haldi af fundi með ráðherranum.
„Forsætisráðherra vitnaði í stefnu-
ræðu sína á Alþingi þar sem hann
grunnsfrumvarpið í tengslum við
önnur ummæli sem hann lét falla í
ræðu á aðalfundi Læknafélagsins.
Þar hefði hann haft uppi gífuryrði
um sig persónulega, forsætisráð-
herra og formann utanríkismála-
nefndar. Hann hefði á fundinum
einnig fullyrt að hjá íslenskri
erfðagreiningu störfuðu 200 líf-
fræðingar sem ekkert gætu og
ekkert kynnu til verka og að erfða-
fræðin væri gagnslaust fag.
í viðræðum vegna einka
leyfís á lyfi
„í þriðja lagi ber að skoða um-
mæli Ernis í ljósi þess að hann
hefur upp á síðkastið átt í tölu-
verðum viðræðum við lyfjafyrir-
tæki víða um heim út af lyfi sem
hann hefur einkaleyfi fyrir. Eitt af
þeim fyrirtækjum sem mér skilst á
Erni að hann hafi verið að ræða
við er fyrirtæki sem hefur eytt
miklum kröftum í að reyna að
grafa undan íslenskri erfðagrein-
ingu bæði hér á íslandi og erlendis
vegna þess að það lítur svo á að
það sé í samkeppni við okkur. Ég
held að það sé þess virði að athuga
hvort ummæli hans um fyrirtæki
okkar eigi ekki rætur í því að hann
líti svo á að hann eigi meiri hags-
muna að gæta við að hjálpa þessu
fyrirtæki við að grafa undan okkur
en hann eigi innan þessa fyrirtæk-
is.“
tók á málefnum varðandi tekju-
trygginguna," sagði Arnór. „Hann
virtist vera sér þess mjög vel með-
vitandi hvernig tekjutryggingin
virkar og hafði á hraðbergi dæmi
sem hann þekkti til persónulega."
Þótt Arnór segðist vera mjög von-
góður um að kjaramál fatlaðra yrðu
leiðrétt, benti hann hins vegar á að
ríkisstjórnin, ýmsir stjómmála-
menn og -flokkar hefðu komið fram
með yfirlýsingar um bætt kjör fatl-
aðra, en enginn hefði sagt nákvæm-
lega hvernig ætti að bæta og leið-
rétta kjör fatlaðra. „Margt, ef ekki
flest, höfum við heyrt áður, en oft-
ast hefur verið minna um efndir,"
sagði hann.
Fatlaðir fái ekki minna en 90
þúsund á mánuði
Samkvæmt því sem forsætisráð-
herra nefndi við fulltrúa Sjálfs-
bjargar var að samkvæmt lögum
ættu bætur að hækka um áramót í
samræmi við kjarasamninga, sem
Búnaðar-
bankinn
hlítir Hér-
aðsdómi
STJÓRN Búnaðarbanka ís-
lands mun ekki áfrýja úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur um
aðgang að upplýsingum um
gesti í íbúð bankans í London.
Bankinn hefur þegar farið eftir
úrskurðinum og afhenti Hauki
Hólm, fréttamanni Stöðvar tvö,
umbeðin gögn í gær.
Gögnin sem Haukur Hólm
fékk voru afrit af minnisbókum,
sem í eru skráðir þeir sem gistu
í íbúðinni til 31. desember 1997,
þ.e. til þess tíma sem bankanum
var breytt í hlutafélag.
Tveir piltar
handteknir
fyrir innbrot
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
gómaði tvo átján ára pilta í
Garðabæ aðfaranótt miðviku-
dags þar sem þeir voru að
brjótast inn í bifreiðir. Við
handtökuna fannst meira þýfi
sem piltamir höfðu komist yfir
með innbrotum í bifreiðir á
þessu ári. Aðallega var um að
ræða hljómflutningstæki og
geisladiska. Piltarnir hafa ver-
ið kærðir fyrir athæfið og telst
málið upplýst af hálfu rann-
sóknardeildar lögreglunnar í
Hafnarfirði.
Kári Stefánsson um ummæli
Ernis Snorrasonar
Skoða ummælin í ljósi
sárinda í samskiptum
Morgunblaðið/Arnaldur
ARNÓR Pétursson, formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra,
fyrir miðju og Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri samtakanna, á
fundi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í gær.
.. —'
næmi rúmlega 3%. „Ég gerði hon-
um grein fyrir því að ég teldi það
vera of lítið og að það þyrfti að
hækka gmnninn mun meira,“ sagði
Arnór. í dag kemst fatlaður ein-
staklingur með 75% örorku ekki
upp fyrir 62 þúsund krónur frá
Tryggingastofnun og sagði Arnór
að sú tala þyrfti að hækka upp í
a.m.k. 90 þúsund krónur. „Velflestir
öryrkjar þurfa að mæta verulegum
útgjöldum vegna örorku sinnar í
lyfjum, þjálfun og fieira. Þá vil ég
einnig að felld sé niður sú regla að
öryrkjar gangi með skírteini sem
veita þeim afslátt víða. Mörgum ör-
yrkjum þykir minnkun að þvi að
sýna örorkuskírteinin til að fá af-
slátt á vöram og þjónustu, því þeir
vilja taka þátt í þjóðfélaginu af jafn
miklum ki-afti og aðrir.“
Arnór sagðist hafa heyrt að af
hálfu heilbrigðisráðuneytisins yrði
unnið að breytingum á kjömm fatl-
aðra í áföngum, en sagðist ekki
myndu sætta sig þá aðferð.
Andlát
MAGNÚS TORFI
ÓLAFSSON
MAGNÚS Torfi Ólafs-
son, fyrrverandi al-
þingismaður og ráð-
herra, lést á heimili
sínu 3. nóvember sl.
Hann var 75 ára að
aldri.
Magnús Torfi fædd-
ist 5. maí 1923 á
Lambavatni á Rauða-
sandi í Vestur-Barða-
strandarsýslu. For-
eldrar hans voru hjónin
Ólafur Sveinsson bóndi
og Halldóra Guðbjört
Torfadóttir húsmóðir.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1944 og var blaðamaður á
Þjóðviljanum frá árinu 1945-1962,
lengst af fréttastjóri erlendra
frétta, og ritstjóri frá árinu
1959-1962. Hann var deildarstjóri í
Bókabúð Máls og menningar á ár-
unum 1963-1971 en vorið 1971 var
hann kjörinn alþingismaður
Reykvíkinga fyrir Samtök frjáls-
lyndra og vinstrimanna og sat á Al-
þingi til ársins 1978. Hann var
landskjörinn þingmaður árið 1974
og sat á átta þingum alls.
Magnús Torfi var menntamála-
ráðherra á árunum 1971-1974 og
jafnframt félagsmála- og sam-
gönguráðherra í nokkra mánuði
sumarið 1974. Hann var 1. varafor-
seti neðri deildar á árunum
1974-1978. Eftir það var hann
blaðafulltrúi ríkisstjómarinnar frá
1978-1989.
Magnús Torfi var formaður Al-
þýðubandalagsins í
Reykjavík 1966-1967
og formaður Samtaka
frjálslyndra og vinstri-
manna á ámnum
1974-1982. Hann átti
sæti í menntamálaráði
frá árinu 1967-1971,
var skipaður í stjórnar-
skrárnefnd árið 1986
og var formaður
stjórnar Þjóðhátíðar-
sjóðs frá árinu
1986-1994. Hann var
formaður sendinefndar
fslands á umhverfis-
málaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna árið 1972 og var í
sendinefnd íslands á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna frá
1976 til 1978.
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, minntist Magnúsar Torfa við
upphaf þingfundar í gær og sagði
hann hafa verið víðlesinn frá unga
aldri, minnugan með afbrigðum og
hann hefði fljótt gerst fjölfróður um
heimsviðburði fyrr og síðar. Þeir
kosth’ hefðu notið sín vel í starfi
blaðamanns. Hann hefði verið um
fimmtugt þegar hann kom á Alþingi
og settist í ráðherrastól og sagði
Ólafur að hann hefði verið vel búinn
undir störf sín þar. Hann hefði unn-
ið að framgangi mála af hógværð og
festu. Hvarvetna sem hann kom að
störfum hefði hann verið vandvirk-
ur og hreinskiptinn.
Eftirlifandi eiginkona Magnúsar
er Hinrika Kristjánsdóttir. Þau
eignuðust þrjú börn.
Sérblöð í dag
istsmm
VIÐSiaPTI MVINNULÍF
HLUTABREF
KEAá
markað
Nýtt líf
/B6
GLÓBUS VÉLAVER
25% veltu-
aukning
Góð sala á árinu
/B4
AUGLÝSING
f dag fylgir 8
síðna auglýsinga-
bæklingur frá
Fjárfestingar-
banka atvinnu-
lífsins, „Kynning
á útboði Fjárfest-
ingarbanka at-
vinnulífsins hf.“
Norrköping gerir Þórði
Þórðarsyni tilboð / C1
Tap Rússa í Reykjavík kallar
á uppstokkun / C1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is