Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 6

Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Olafur Ragnar Grímsson um sjávarútveg í ávarpi hjá FAO Islendingar vilja hlutverk í alþjóðlegri stefnumótun Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti íslands, heimsótti Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Róm í gær og bauð þar fram reynslu og þekk- ---------------------- ingu Islendinga til al- þjóðlegarar stefnumót- unar í sjávarútvegi á næstu öld. Guðmundur Sv. Hermannsson er í fylgd með forset- anum á Italíu. „SAGA íslands á síðari hluta 20. aldar er fordæmi um það hvemig hægt er að breyta fátækri þjóð bænda og fiskimanna í eitt ríkasta og tæknivæddasta þjóðfélag í heimi, hvemig skynsamleg og hag- kvæm nýting afurða sjávarútvegs og landbúnaðar getur verið gmnd- völlur velferðar og hagsældar," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, þegar hann ávarp- aði fastafulltrúa hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, í Róm i dag. Ólafur Ragnar var þar í boði Jacques Dioufs, framkvæmda- stjóra stofnunarinnar, en í fyldar- liði Ólafs Ragnars voru m.a. Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra, Ami Kolbeinsson, ráðu- neytisstjóri sjávarútvegsráðu- neytis, og Sverrir Haukur Gunn- laugsson, sendiherra og fastafull- trúi íslands hjá FAO. Ólafur Ragnar sagði í ræðu sinni að sjávarafurðir yrðu stöðugt mik- ilvægari í fæðuframleiðslu jarðar og viðhald fiskistofnanna væri því ein helsta undirstaða stefnumörk- unar um hvemig ætti að tryggja fæðu fyrir jarðarbúa á næstu öld. í þeirri umræðu hefðu íslendingar margt fram að færa. Sagði Ólafur Ragnar að fjögur skilyrði væru sérstaklega mikil- væg þegar rætt væri um alþjóð- legan sjávarútveg og samvinnu um fiskveiðistjórnun. I fyrsta lagi yrði að ná samningum um vernd- un þeirra fiskistofna sem færu út fyrir 200 mílna lögsögur landa og mjög mikilvægt væri að byggja upp stofna sem fæm um alþjóðleg hafsvæði. í öðm lagi sagði Ólafur Ragnar að afnema yrði ríkisstyrki til sjáv- arútvegs, sem væra við lýði bæði í þróunarlöndum og þróuðum lönd- um. Beint samband væri á milli of mikillar afkastagetu fiskveiðiflota ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra, Guðrún Tinna Ólafsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Jacques Dioufs, framkvæmdastjóri FAO, og Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra ræðast við í hðfuðstöðvum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. --------------—_________________ ÓLAFUR Ragnar Grímsson for- seti ávarpar fastafulltrúa FAO í Róm á Ítalíu í gær. og ríkisstyrkja. Því ætti að ræða slíka styrki sérstaklega í næstu lotu samninga innan Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar, WTÖ. I þriðja lagði yrði að koma á al- þjóðlegu kerfi fríverslunar með fisk og sjávarafurðir og afnema innflutningskvóta, tolla og tækni- legar viðskiptahindranir með fisk. Þetta væri einnig mikilvægt verk; efni fyrir næstu WTO-viðræður. í fjórða lagi yrði að koma á alþjóð- legu gæðaeftirlitskerfi til að tryggja hagsmuni neytenda. Stórt hlutverk Islendinga I lok ræðu sinnar sagði Ólafur Ragnar að íslendingar teldu að styrkja þyrfti FAO til að stofnunin gæti sinnt betur því starfi að afla upplýsinga og koma þeim á fram- Morgunblaðið/Emilía ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti og Jacques Dioufs, framkvæmda- stjóri FAO, slá á lótta strengi í höfuðstöðvum stofnunarinnar í gær. færi, samræma aðgerðir og vinna að fleiri aþjóðasamningum og siða- reglum um umgengni við höfin. „Það er tilgangur heimsóknar minnar hingað, með sendinefnd sem sjávarútvegsráðherra Islands er í, að leggja áherslu á vilja okkar tfi að takast á hendur stórt hlut- verk í árangursríkri og ábyrgri al- þjóðlegri stefnumótun í sjávarút- vegi á 21. öldinni og hvetja FAO til að takast á hendur djarflegt leið- togahlutverk í því starfi,“ sagði Ólafur Ragnar í ræðunni. Við íslenska blaðamenn á eftir sagðist hann telja það mjög mikil- vægt fyrir íslendinga að átta sig á því, að þótt þeir deildu mikið um sjávarútveg væri árangur þeima mjög markverður þegar hann væri skoðaður frá alþjóðlegu sjónar- homi. Kosningafundur Gijjjj-jsirs Sjjgks&rjai í kvöld kl. 20:30. Hlégarði Mosfellsbæ. Það vantar kraft í kjördæmið! „Okkur hefur tekist að leysa mörg þau vandamál sem þjóðir heims glíma nú við, og kannski með því að reiða okkar reynslu fram og vera reiðubúnir að lýsa henni fyrir öðram eram við að leggja meira fram til alþjóðlegrar þróunai- en talið væri í tugmilljón- um dala. Mannkynið stendur frammi fyrir því að stjórn á auð- lindum hafsins er eitt stærsta verkefni nýrrar aldar og það eru fáir í betri stöðu en við til að koma með góð ráð.“ Ólafur sagði að innan Samein- uðu þjóðanna væri vaxandi viður- kenning á þessu mikilvæga hlut- verki Islands og vísaði hann í því sambandi m.a. í viðræður sínar við Kofi Annan, framkvæmdastjóra SÞ, fyrr á þessu ári. „Ég held þess vegna að það sé mikilvægt að við á íslandi, stjórnvöld, almenningur, samtök og fyrirtæki í sjávarút- vegi, átti sig á því að það þjónar hagsmunum íslands að efla þetta hlutverk. Það þjónar markaðsað- stöðu okkar í sjávarútvegi, það styrkir alþjóðlegt álit okkar og það gerir okkur einnig auðveldara um vik að ná samkomulagi við aðr- ar þjóðir um að stýra fiskistofn- um,“ sagði Ólafur Ragnar. Alþjóðleg ráðstefna á íslandi á vegum FAO? Ólafur Ragnar sagði greinilegt af fundum sínum með yfirmönnum FAO í gær að hlustað væri á Is- lendinga og menn vildu virkja krafta þeirra meira. „Það kom fram hjá framkvæmdastjóra FAO að hann hefur mikinn áhuga á að innan eins til tveggja ára verði boðað til fundar á Islandi í nafni FAO þar sem stefnumótandi full- trúar, ráðherrar og aðrir úr stjórnsýslu aðildarlandanna kæmu til Islands til að ræða stjórn sjávarauðlinda á nýrri öld. Og þessir menn fengju einnig tækifæri, til hliðar við þessa ráð- stefnu, til að heimsækja íslensk sjávarþorp og fyrirtæki, ræða við sjómenn, framleiðendur, sérfræð- inga hjá Hafrannsóknastofnun og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Þetta væri eins konar sýnikennsla fyrir þetta áhrifafólk frá aðildar- ríkjum FAO sem á að móta sjáv- arútvegsstefnuna í sínum heima- löndum.“ Ólafur sagði að utanríkisstefna nýrrar aldar væri annarrar ættar en sú sem hefur ríkt á þessari öld. „Þjóðir verða meira dæmdar af hugmyndum sínum, árangri, fram- lagi til efnislegrar umræðu og reyndar einnig því siðferði og þroska sem þær sýna við varð- veislu auðlinda af ýmsu tagi. Þess vegna mun framlag Islands á sviði sjávarútvegsmála og ábyrgrar nýtingar sjávarauðlinda hafa ríku- leg áhrif á það hver verður sess Islands í alþjóðlegu samfélagi. Við verðum að byggja upp orðstír okkar á margvíslegan hátt; bók- menntirnar og menningin hafa þjónað því um aldir, en ég held að árangur vísindamanna, vísindasið- fræði og verndun lífríkisins muni ráða miklu um hver sess Islands verður í alþjóðlegu samfélagi á næstu öld. Þar er árangur okkar í sjávarútvegi mjög mikilvægur þáttur og því er mikilvægt fyrir utanríkisstefnu íslands að við ræktum þetta hlutverk." Ábyrgar þorskveiðar Eftir að Ólafur Ragnar hélt ræðu sína var haldinn stuttur upp- lýsingafundur fyrir íslensku sendinefndina þar sem M. Hayas- hi, aðstoðarframkvæmdastjóri FAO, og fjórir deildarstjórar stofnunarinnar héldu stutt erindi um það starf sem þar fer fram. Meðal þeirra var Grímur Valdi- marsson, sem fjallaði um alþjóðleg viðskipti með sjávarafurðir. Þorsteinn Pálsson gaf þar einnig stutt yfirlit yfir íslenskan sjávarút- veg og þann árangur sem náðst hefur á undanfórnum áram. Hann notaði tækifærið og gerði athuga- semdir við að í fréttatilkynningu, sem FAO gaf út í síðustu viku, er hvatt til þess að dregið verði veru- lega úr veiðigetu fiskveiðiflota heimsins svo hægt verði að byggja upp fiskistofna sem eru á undan- haldi. Eru þar sérstaklega nefndh- þorskstofninn í Atlantshafi, ýsa og túnfiskur á úthöfunum. Þorsteinn sagði að íslenski þorskstofninn væri sérstakur stofn sem Islend- ingar teldu sig hafa stjómað veið- um úr með ábyrgum hætti og stofninn væri vel á vegi staddur nú. Þorsteinn afhenti Hayashi ýms- ar upplýsingar um íslenskan sjáv- arútveg og fiskveiðistjórnunarkerf- ið. Sagði Ölafur Ragnar í lok fund- arins að því væra takmörk sett hvað íslendingar gætu lagt fram af fé til alþjóðlegs samstarfs, en þeir gætu boðið fram reynslu, hug- myndir og ráð. Og hugmyndir og góð ráð kynnu að vera verðmætari en peningar, þegar fjallað væri um nýtingu sjávarauðlinda. Opinber heimsókn hefst formlega í dag Dagskrá opinberrar heimsókn- ar forseta íslands til Ítalíu hefst formlega í dag og verður móttöku- athöfn í Quirinale-höll, þar sem Oscar Luigi Scalfaro, forseti ítal- íu, tekur á móti Ólafi Ragnari. Að því loknu heimsækir forsetinn há- tæknifyrirtæki rétt utan við Róm, og eftir það ræðir hann við forseta neðri deildar ítalska þingsins. í kvöld verður hátíðarkvöldverður fyrir Ólaf Ragnar og fylgdarlið hans í boði Scalfaros.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.