Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNB LAÐIÐ
Utandagskrárumræða um úrræði fyrir ungmenni í vímuefnaneyslu
Akveðin verkaskipting og
samræming' er nauðsynleg
Neysla svokallaðra harðra og hættulegra
vímuefna fer vaxandi hér á landi og ekki
síst meðal unglinga undir sextán ára aldri.
Þetta var rætt í utandagskrárumræðu á
Alþingi í gær og voru þingmenn sammála
um að þessa þróun bæri að stöðva.
Morgunblaðið/Ásdís
ÞINGMENNIRNIR Kristín Ástgeirsdóttir og Rannveig Guðmundsdótt-
ir fylgjast með utandagskrárumræðu um ungmenni í fíkniefnavanda á
Alþingi í gær. Rannveig hóf umræðuna og benti á að vandinn færi vax-
andi, jafnvel meðal yngstu unglinganna.
RANNVEIG Guðmundsdóttir, þing-
flokki jafnaðarmanna, hóf umræð-
una á Alþingi í gær og benti á að
neysla áfengis, hass og harðra vímu-
efna eins og amfetamíns hefði farið
vaxandi hér á landi meðal unglinga,
jafnvel meðal yngsta aldurshópsins.
„Þetta er baksviðið á velferðar-
kerfinu íslandi," sagði hún og full-
yrti að stjómvöld hefðu ekki fylgt
eftir áætluninni um ísland án eitur-
lyfja með nauðsynlegu fjánnagni.
„Mér fínnst mark-
mið ríkisstjórnar-
innar um fíkni-
efnalaust ísland
vera að snúast
upp í andhverfu
sína miðað við það
ástand sem blasir
við í dag.“ Rann-
veig benti auk
þess á að átta
mánaða bið væri
eftir greiningar-
meðferð fyrir böm og unglinga og
tólf mánaða bið eftir langtímameð-
ferð.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra sagði það rétt að vímuefna-
vandinn væri alvarlegasta vanda-
málið sem við væri að etja í félags-
og heilbrigðismálum hér á landi.
Hún fullyrti hins vegar að engin rík-
isstjórn hefði lagt jafn mikið fé til
forvarna og úrræða vegna fórnar-
lamba vímuefna og sú sem nú væri
við völd. „Aukningin er á þriðja
hundrað milljóna króna á tveimur
árum. Aðgerðirnar staðfesta stefn-
una. Starfsemi tollgæslu og lögi-eglu
hefur verið samhæfð. Fjölskyldu-
miðstöð hefur verið komið á fót í
Reykjavík. Félagasamtök njóta
stuðnings umfram það sem áður var
og samtök foreldra og nemenda hafa
verið virkjuð,“ sagði hún meðal ann-
ars og sagði síðar að þessi stefna
skilaði sér hægt og bítandi.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra benti einnig á að í mennta-
málaráðuneytinu hefði fjölmargt
verið gert á undanförnum árum til
að stuðla að aukinni fræðslu um
vímuefni og afleiðingar þeirra.
„Einnig hefur verið lögð áhersla á
forvarnarstarf almennt í samvinnu
ólíkra aðila innan skólakerfisins. Bú-
ast má við að á næstu árum muni
þessi fræðsla styrkjast til muna
vegna áherslna í nýrri skólastefnu,"
sagði hann meðal annars.
Mikilvægt að efla
barnaverndamefndir
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
fullyrti að ríkisstjórnin væri að
reyna að bregðast við aukinni vímu-
efnaneyslu í þjóðfélaginu og að verið
væri að kanna ýmsar leiðir til að
mæta vímuefnavandanum. Hann
benti m.a. á að það væri vandamál
hve greining ung-
mennanna tæki
langan tíma eða
um þrjá til fjóra
mánuði og sagði
að ef greiningar-
tíminn væri stytt-
ur mætti stytta
biðlistana eftir
meðferð. „Ég tel
að það ætti að
vera hægt að sjá á
styttri tíma hvaða
ungmenni þarfnast langtímameð-
ferðar," sagði hann og bætti við: „Og
við ættum að reyna að leggja
áherslu á að fjölga langtímameð-
ferðarúrræðunum svo sem frekast
er kostur," sagði hann. í máli ráð-
herra kom einnig fram að hann teldi
það mikilvægt að efla barnaverndar-
nefndir og reyna að láta þær starfa
með „sem allra faglegustum hætti“.
Um þriðjungur þingmanna tók til
máls í umræðunum í gær og voru
allir sammála um alvöru þeirrar
þróunar sem ætti sér stað hér á
landi varðandi neyslu vímuefna.
Hins vegar töldu sumir að bregðast
mætti betur við þein-i þróun en nú
væri gert. Bryndís Kristjánsdóttir,
þingmaður Kvennalista, sagði m.a.:
„Stjórnvöld verða að marka heildar-
stefnu í málefnum ungra vímuefna-
neytenda. Byggja þarf upp mark-
visst meðferðarkerfi þar sem for-
eldrum er jafnframt auðveldað að-
gengi að ráðgjöf og stuðningi og
slíkt gerist ekki nema til þess sé
ætlað nægilegt fjármagn. Akveðin
verkaskipting og samræming er
nauðsynleg milli þeirra aðila og
stofnana sem koma að vanda þessa
hóps. Það er ekki vænlegt til árang-
urs að margir séu að bítast um sömu
kökuna og allra síst ef lítið eða tak-
markað er til skiptanna."
Sigríður Jóhannesdóttir, þing-
maður Alþýðubandalags, kvaðst
þess fullviss að með sameinuðu átaki
væri hægt að finna lausn á vandan-
um og Sólveig Pétursdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og formað-
ur allsherjamefndar Aiþingis, benti
á að allsherjarnefnd hefði fullan hug
á því að halda sameiginlegan fund
með félagsmálanefnd og heilbrigðis-
og tryggingamálanefnd Alþingis til
þess að fara betur yfir stöðu þessara
mála. „Við þurfum samstillt átak í
þessum efnum,“ sagði hún.
Áfengfisauglýsingar
þvei’sögn
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
flokki jafnaðarmanna, sagði m.a. að
efla þyrfti áróður og fræðslu meðal
unglinga um skaðsemi vímuefna.
Hafði hún eftir ónefndum fulltrúa í
nefnd sem ynni að aðgerðum í fíkni-
efnamálum að unglingar í dag stæðu
í þeirri meiningu að hassneysla væri
með öllu hættulaus.
Fleiri þingmenn töluðu um mikil-
vægi þess að efla forvarnir í landinu.
Á þeim nótum töluðu meðal annarra
Isólfur Gylfi Pálmason, þingmaður
Framsóknai-flokks, og Gísli S. Ein-
arsson, þingflokki jafnaðarmanna.
Þuríður Backman, þingflokki
óháðra, sagði m.a. að ekki mætti
gleyma því að neysla ólöglegra efna
hæfist á neyslu löglegi-a efna, þ.e.
tóbaki og áfengi. „Er það ekki þver-
sögn að horfa upp á það hvert stefn-
ir í neyslu sterkra fíkniefna á sama
tíma og það er talin skerðing á per-
sónulegu tjáningarfrelsi að mega
elcki auglýsa áfengi eins og hverja
aðra neysluvöru. Og að öllum líkínd-
um munu tóbaksauglýsingar fylgja í
kjölfarið."
Kristján Pálsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, velti því m.a. fyrir
sér hvernig bæta mætti eftirlit með
sölu eiturlyfja á götunni. Taldi hann
að lausnin fælist m.a. í því að fjölga
lögreglumönnum á götunni sem
væru skipulega að leita að eiturlyfj-
um. Jón Kristjánsson, þingmaður
Framsóknarflokks, tók því næst til
máls og sagði að ef til vill væri tísk-
an, tíðarandinn og sýndarveruleik-
inn í þjóðfélaginu hættulegasti
áhrifavaldurinn í allri þessari þróun
og jafnframt sá þáttur sem erfiðast
væri að meta og berjast gegn.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, benti á að í ágúst
sl. hefði birst í tímaritinu The
European úttekt á því hversu um-
fangsmikil vímuefnasala og fíkni-
efnasala væri í Bretlandi og að nið-
urstaðan hefði verið sú að umfangið
svaraði til hálfs prósents af vergri
landsframleiðslu þar. „Ef við heim-
færum þessar tölur upp á ísland er
niðurstaðan sú að verg landsfram-
leiðsla hér á landi er röskir 580
milljarðar króna. Hálft prósent þýð-
ir það að sams konar tala á Islandi
er 2,9 milljarðar króna, sem gæti þá
verið velta í ólöglegri eiturlyfjasölu
hér á landi,“ sagði hann m.a.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, gerði þá niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að
umtalsefni sem sýknaði fram-
kvæmdastjóra Ölgerðarinnar af því
að hafa auglýst áfengi. „Þetta þykir
mér mjög alvarlegt. Ég tel að ef
Hæstiréttur staðfestir þessa niður-
stöðu fari okkar forvarnir fyrir ansi
lítið,“ sagði hún. „Meðan þessum
héraðsdómi er ekki hnekkt telur
lögreglan sér ekki fært að grípa í
taumana á auglýsingum á áfengi og
það er mjög alvarlegt."
j:_
uiii- ;£li mm ItÉiÉ:
■ ■/,' ‘ ý', r,']
D' i’ ’þ- * ijj-v:
ALÞINGI
Heilbrigðisráðherra um afnám skerðingar bóta til öryrkja vegna tekna maka
skrefín tekin um
Fyrstu
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra kvaðst í fyrir-
spurnartíma á Alþingi í gær
myndu standa við fyrri yfírlýs-
ingu sína um að fyrstu skrefin
yrðu tekin á þessu þingi til þess
að afnema skerðingu bóta til ör-
yrkja vegna tekna maka. „Nú er
verið að ljúka útfærslu þessara
breytinga í ráðuneytinu og ég
vonast til þess að þær geti tekið
gildi um áramót.“
Fyrirspyrjandinn, Steingrímur
J. Sigfússon, þingflokki óháðra,
spurði hana m.a. um áætlaðan
kostnað vegna breytinganna og
sagði hún að hann lægi ekki end-
anlega fyrir. Líklega væri hann þó
á bilinu 200 til 250 milljónir, eins
og áður hefði komið fram. „Ekki
er gert ráð fyrir fjárveitingu til
þessara breytinga í ffumvarpi til
fjárlaga næsta árs eins og það
liggur fyrir nú, enda var ekki ljóst
við frágang þess hvað breytingin
myndi kosta eða hvernig unnt
væri að útfæra hana til þess að
tryggja að hún kæmi þeim til góða
sem mest þyrftu á henni að halda.
Ég mun hins vegar beita mér fyrir
því að nauðsynlegt fjármagn verði
ætlað til verkefnisins við af-
greiðslu fjárlaga." Nokkrir þing-
menn stjórnarandstöðu voru ekki
ánægðir með þessi svör heilbrigð-
isráðherra. Þar á meðal Ásta R.
Jóhannesdóttir og Jóhanna Sig-
urðardóttir, þingflokki jafnaðar-
mana. Þá sagði Ögmundur Jónas-
son, þingflokki óháðra, m.a. að
ekki ætti að afnema mannrétt-
indabrot í mörgum skrefum held-
ur í einu skrefí.
Heilbrigðisráðherra benti á í lok
umræðunnar að þau lög sem hér
um ræddi hefðu verið í gildi síðan
1936 og að Jóhanna Sigurðardóttir
hefði ekki séð ástæðu til að afnema
áramót
þau þegar hún var félagsmálaráð-
herra.
Heilbrigðisráðherra sagði síðan:
„Mig langar að segja ykkur það að
ef við myndum samþykkja á morg-
un frumvarp sem liggur fyrir AI-
þingi frá Ástu R. Jóhannesdóttur
myndu 70 öryrkjar missa sitt frí-
tekjumark. Þess vegna eru fulltrú-
ar Öryrkjabandalagsins að vinna
með heilbrigðisráðuneytinu að því
að engir verði fyrir skerðingu
vegna þessara breytinga. Þetta er
sannleikur málsins. Við erum að
vinna að því að breyta áralöngu
óréttlæti."
Brýtur norski
húsbankinn
samkeppnis-
reg*lur?
DEILT er um norska húsnæðis-
lánakerfið í máli sem var flutt
munnlega í gær fyrir EFTA-dóm-
stólnum í Lúxemborg. íslenska rík-
ið notaði rétt sinn til að skýra sjón-
armið sín og flutti Einar Gunnars-
son í utanríkisráðuneytinu málið.
Með honum í réttinum var Ingi Val-
ur Jóhannesson í félagsmálaráðu-
neytinu.
Samband norskra viðskiptabanka
sendi kæru til Eftirlitsstofnunar
EFTA og taldi norska húsbankann
njóta forréttinda sem útilokuðu að
viðskiptabankar gætu keppt við
hann og væri þetta andstætt sam-
keppnisreglum Evrópuréttar.
Eftirlitsstofnunin vísaði kærunni
frá en bankasambandið áfrýjaði til
EFTA-dómstólsins. Eftirlitsstofn-
unin, norska ríkið, Island og stjórn-
arnefnd Evrópusambandsins töldu
frávísunina fá staðist en bankasam-
bandið eitt hélt öðru fram. Niður-
stöðu EFTA-dómstólsins er senni-
lega að vænta í desember.
-----------------
Guðlaugur
Þór kjörinn
varaformaður
IYDU
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson
borgarfulltníi Sjálfstæðisflokksins
var kjörinn varaformaður alþjóða-
samtaka ungra hægrimanna,
IYDU, á aðalfundi samtakanna í
London á föstudaginn var.
Þetta er í fyrsta skipti sem Is-
lendingur er kjörinn í stjóm sam-
takanna. IYDU era dóttursamtök
alþjóðasamtaka hægrimanna, IDU,
þar sem William Hague og Carl
Bildt eru á meðal stjómannanna.
„Þetta er viðurkenning á því öfl-
uga starfi sem Samband ungra
sjálfstæðismanna hefur staðið fyrir
á alþjóðavettvangi," segir Guðlaug-
ur Þór af þessu tilefni. „Ekki síst
með það í huga að kosningabarátt-
an var hörð.“
I stjórninni eru fulltrúar frá
Bretlandi, Bandaríkjunum, Nýja-
Sjálandi, Ástralíu, Argentínu, Pól-
landi, Grikklandi, Svíþjóð og
Frakklandi „og það var mjög
ánægjulegt að sjá Island efst á
blaði í varaformannskjöri í þessum
hópi,“ segir Guðlaugur Þór. „Þetta
er gott tækifæri til að fylgjast með
því sem er efst á baugi í alþjóða-
stjórnmálum."
Michael Howard, fyn-v. innanrík-
isráðherra Bretlands, stýrði fund-
inum.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis
hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfar-
andi mál eru á dagskrá:
1. Kosning sérnefndar um
stjómarskrármál.
2. Kosning fimm manna og
jafnmargra varamanna í
bankaráð Seðlabanka Islands
til fjögurra ára.
3. Skýrsla utanríkisráð-
herra um utanríkismál.
4. Brottför hersins og yfír-
taka Islendinga á rekstri
Keflavíkurflugvallar. Fyrri
umr.
5. Friðlýsing íslands fyrir
kjamorkuvopnum. 1. umr.
6. Endurskoðun viðskipta-
banns á Irak. Fyri'i umr.
7. Eftirlitsstarfsemi á veg-
um hins opinbera. 1. umr.
8. Náttúrufræðistofnun ís-
lands. 1. umr.