Morgunblaðið - 05.11.1998, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurnýjaður Mannréttindadóm-
stóll Evrópu
Hraðari og
skilvirkari
máismeðferð
Strassborg. Morgunblaðið.
ENDURNYJAÐUR Mannrétt-
indadómstóll Evrópu tók til starfa
á þriðjudag í Strassborg í Frakk-
landi. Viðstaddir hátíðlega vígslu-
athöfn í samkomusal ráðgjafar-
þings Evrópuráðsins voru, auk
nýju dómaranna 40 frá jafnmörg-
um Evrópuríkjum, meðal annars
fráfarandi dómarar og ráðamenn
frá aðildarríkjunum, þar á meðal
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra og Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðheira.
Breytingarnar á eftirlitskerfinu
með Mannréttindasáttmála Evr-
ópu eiga rætur að rekja til viðauka
11 við samninginn, sem gekk í gildi
1. nóvember síðastliðinn. Sam-
kvæmt honum hafa Mannréttinda-
nefnd Evrópu og Mannréttinda-
dómstóllinn verið sameinuð í eina
stofnun. Dómarar verða í fullu
starfi en ekki hlutastarfi eins og
áður. Islenski dómarinn er dr.
Gaukur Jörundsson, en hann hefur
verið umboðsmaður Alþingis frá
stofnun embættisins árið 1988 auk
þess að sitja í Mannréttindanefnd
Evrópu frá árinu 1974. Fráfarandi
dómari af Islands hálfu og jafn-
framt varaforseti gamla dómstóls-
ins er Þór Vilhjálmsson, fyrrver-
andi hæstaréttardómari, nú dóm-
ari við EFTA-dómstólinn í Lúxem-
borg.
Hraðari afgreiðsla
Tilgangurinn með endurnýjun
eftirlitskerfisins í Strassborg er
fyrst og fremst sá að hraða af-
greiðslu mála. Málafjöldinn hefur
vaxið jafnt og þétt á síðustu árum
og var svo komið á síðasta ári að
nefndinni bárust tæplega 12.500
mál. A síðustu árum hefur tekið
fimm til sex ár að fá dómsúrlausn
eftir að kæra er send til Strass-
borgar. Bætist sá tími við þann
sem það hefur tekið fyrir kærand-
ann að fá endanlega úrlausn heima
fyrir. Markmiðið er að afgreiðslu-
hraðinn verði tvö til tvö og hálft ár
eins og fram kom hjá Svisslend-
ingnum Luzius Wildhaber, forseta
nýja dómstólsins, á fréttamanna-
fundi á þriðjudag.
Risavaxið verkefni
Nýi dómstóllinn stendur
frammi fyrir risavöxnu verkefni
sem er að tryggja 800 milljón íbú-
um Evrópuríkja frá Atlantshafi til
Kyrrahafs þau mannréttindi sem
skráð eru í Mannrétt.indasáttmála
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL Evrópu í Strassborg.
Evrópu. Meðal þessara réttinda
má nefna bann við pyntingum og
annarri vanvirðandi meðferð, tján-
ingarfrelsi, rétt til réttlátrar máls-
meðferðar fyrir dómi, friðhelgi
einkalífs og rétt ýmissa þjóðfé-
lagshópa sem eiga undir högg að
sækja eins og fanga, samkyn-
hneigðra og innflytjenda. Fram
kom á fréttamannafundinum að
markmið breytinganna nú um
hraðari og skilvirkari málsmeð-
ferð næðust ekki nema aðildarrík-
in öxluðu þá ábyrgð sína að
tryggja réttindin heima fyrir.
Annars gæti holskefla mála, eink-
um frá nýju aðildarríkjunum í
Austur-Evrópu, stefnt ávinningn-
um af einfaldara eftirlitskerfi í
hættu. Þegar hafa borist 1.800
kærumál frá Rússlandi eftir að
Rússar fullgiltu mannréttindasátt-
málann og viðurkenndu lögsögu
eftirlitsstofnananna í maí síðast-
liðnum. Rétt er þó að geta þess að
væntanlega verður einungis brot
af þessum kærum tekið til alvar-
legrar skoðunar og flestum vísað
frá án þess að hljóta formlega
skráningu, enda varða margar
efnahagsástandið í landinu en ekki
þau borgaralegu og stjórnmála-
legu réttindi sem mannréttinda-
sáttmálinn stendur vörð um.
Ekki slakað
á kröfum
Wildhaber lagði áherslu á að nýi
dómstóllinn myndi byggja á göml-
um grunni, þ.e. þeirri markverðu
dómaframkvæmd sem skapast
hefði frá því mannréttindasáttmál-
inn gekk í gildi árið 1953. Ekki
yrði undir nokkrum kringumstæð-
um slakað á kröfum gagnvart nýju
aðildarríkjunum í austri. Það
gengi ekki að hafa mismunandi
mælikvarða í Evrópu á mannrétt-
indasviðinu, einn fyrir gömlu aðild-
arríkin 24 og annan fyrir nýju rík-
in 16.
Borgarráð hefur samþykkt nýtt skipulag stjórnsýslunnar í Ráðhúsinu
Fjórum stjórn-
sviðum verð-
ur komið á
BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu
stjórnkerfisnefndar um nýtt skipulag
stjórnsýslunnar í Ráðhúsinu, þar sem gert
er ráð fyrir að komið verði á fjórum sviðum.
I bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðis-
fiokks er bent á að tillagan geri ráð fyrir
veigamiklum breytingum án augljósra efnis-
legra raka, t.d. sé ætlunin að leggja niður
embætti borgarhagfræðings og starfs-
mannastjóra. í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlista segir að unnið hafi verið að
því að draga úr miðstýringu Ráðhússins og
auka sjálfstæði og ábyrgð stofnana. Bent er
á að flutningur verkefna úr Ráðhúsinu hafi
áhrif á starfsemi hagdeildar og starfs-
mannahald.
Stjórnsviðin fjögur eru: Stjórnsýslu- og
fjármálasvið, undir stjórn borgarritara,
sem fara mun með fjármálastjórn, borgar-
bókhald, kjaraþróunarmál, rekstur og sam-
eiginlega þjónustu Ráðhússins, fram-
kvæmd og eftirfylgni með jafnréttisstefnu
borgarinnar, yfirumsjón með undirbúningi
stefnumótunar og ráðgjöf í tölvumálum,
samhæfingu á starfsemi og ábyrgð á boð-
skiptum við veitustofnanir, Reykjavíkur-
höfn, Innkaupastofnun, slökkviliðið og
SVR.
Þróunar- og fjölskyldusvið
Sérstakt þróunar- og fjölskyldusvið verð-
ur undir stjórn framkvæmdastjóra menn-
ingar-, uppeldis- og félagsmála og mun það
fara með undirbúning að framtíðarsýn og
langtímastefnu borgarinnar, mótun fram-
kvæmda- og gagnaöflunarstefnu hennar,
undirbúning að og framkvæmd á upplýs-
ingastefnu innan og utan borgarkerfisins,
fræðslu- og starfsmannaþróun og samhæf-
ingu á starfsemi. Þróunar- og fjölskyldusvið
ber einnig ábyrgð á boðskiptum við stofnan-
ir á sviði menningarmála, skóla- og fræðslu-
mála, dagvistarmála, félagsþjónustu og öldr-
unarmála, húsnæðismála, heilbrigðismála,
atvinnu- og ferðamála og íþrótta- og tóm-
stundamála.
Fylgir eftir ákvörðunum
Þriðja sviðið er skrifstofa borgarstjóra,
undir stjóm skrifstofustjóra, og mun sjá um
starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa, undirbúning
og umsjón með fundum borgarstjómar og
borgarráðs og fylgja eftir ákvörðunum sem
þar eru teknar. Jafnframt sér hún um þjón-
ustu við borgarfulltrúa og nefndir og ráð,
hefur yfirumsjón með skipulagðri fræðslu
fyrir kjörna fulltrúa, sér um erlend sam-
skipti borgarstjórnar og samskipti við önnur
sveitarfélög, gestamóttökur borgarstjórnar,
kynningu til borgarfulltrúa á lagafrumvörp-
um og undirbúning og framkvæmd kosninga
í Reykjavík.
Fjórða sviðið er skrifstofa borgarlög-
manns, undir stjórn hans, sem sjá mun um
málflutningsstörf fyrir borgina, stofnanir
hennar og fyrirtæki, lögfræðilegar álitsgerð-
ir fyrir borgarstjóm, borgarráð, borgar-
stjóra, stofnanir og íyrirtæki. Þá hefur þetta
fjórða svið á sinni könnu ráðgjöf varðandi úr-
lausn lögfræðilegra álitaefna til annarra lög-
fræðinga borgarsjóðs, stofnana og fyrir-
tækja borgarinnar, samningsgerð og frá-
gang samninga m.a. um kaup og sölu og
leigu eigna, yfirumsjón með lögfræðilegri
innheimtu og að fylgjast með löggjafastarfi
Alþingis og kynna frumvörp og lög sem
snerta borgina fyrir forstöðumönnum við-
komandi sviða.
Embætti lögð niður
í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðis-
manna segir að tillagan um skipan stjórn-
sýslu í Ráðhúsinu staðfesti að breytingar
sem gerðar voru á stjómskipuriti borgarinn-
ar árið 1995 hafi í megindráttum ekki heppn-
ast og leitt til meiri óskilvirkni en áður.
Reynslan hafi sýnt að gagnrýni sjálfstæðis-
manna hafi verið á rökum reist, t.d. sé emb-
ætti borgarlögmanns gert sjálfstætt á ný.
Fram kemur að tillögurnar séu ekki til þess
fallnar að skýra verkaskiptingu, einfalda
boðleiðir eða gera stjórnkerííð skilvirkara.
Þvert á móti virðist sem tillögurnar auki
upplausnarástand sem ríki í stjórnsýslunni.
Bent er á að veigamiklar breytingar séu
gerðar án augljósra efnislegi-a röksemda
eins og t.d. eigi við um embætti borgarhag-
fræðings sem ætlunin sé að leggja niður svo
og embætti starfsmannastjóra.
Borgarverkfræðingur og
borgarskipulag ekki með
Þá segir: „Vinnubrögð meirihlutans í
þessu máli eru með ólíkindum. Tillögumar
eru unnar eftir forskrift borgamtara og
borgarstjóra. Nánast ekkert samráð er haft
við starfsmenn borgarinnar og er virðingar-
leysi stjórnenda við starfsmenn með ein-
dæmum. Stjómkerfisnefnd var greinilega
aldrei ætlað að hafa neitt um tillögurnar að
segja.“
Bent er á að veigamikill þáttur í stjórn-
skipulagi borgarinnar, embætti borgar-
verkfræðings og borgarskipulagsstjóra sé
ekki hluti af heildartillögunum nú og hafi
ekki heldur verið við síðustu breytingar ár-
ið 1995. Öllum ætti að vera ljóst að ekki
gangi að breyta stjórnsýslu og skipuriti á
þriggja ára fresti með þessum hætti. Loks
segir: „Það eykur á óvissu meðal borgar-
starfsmanna um starfsumhverfí og starfs-
öryggi og eykur á óvissu meðal borgarbúa
varðandi hið flókna skipulag Ráðhúss
Reykjavíkur og hvernig ber að nálgast
stofnanir borgarinnar."
Lagað að breyttum aðstæðum
I bókun borgarstjóra segir að starfsum-
hverfi opinberrar stjórnsýslu sé stöðugt að
breytast og að mildlvægt sé að þeir sem
sinna henni og beri ábyrgð á framkvæmd
hennar geti lagað sig að breyttum aðstæð-
um. Stjórnsýslan í Ráðhúsinu hafi verið bæði
stöðnuð og miðstýrð allt til ársins 1994 en frá
þeim tíma hafi verið gerðar umtalsverðar
breytingar. I framhaldi þeirra breytinga hafi
mikil vinna verið lögð í að draga úr miðstýr-
ingu Ráðhússins og auka sjálfstæði og
ábyrgð stofnana. Þannig hafi veruleg breyt-
ing orðið við vinnu að fjárhagsáætlun borg-
arinnar, sem hafi áhrif á starfsemi hagdeild-
ar, verkefni hafi verið flutt frá bókhaldi og
starfsmannahaldi til stofnana, nýtt bókhalds-
og upplýsingakerfi verið tekið í notkun og
unnið hefur verið að verulegum breytingum
á skjalastjórnun. Þá segir: „En breytingar á
stjórnsýslu verða hins vegar aldrei gerðar í
eitt skipti fyrir öll. Sífellt verða til nýjar
þarfir og nýjar kröfur eru gerðar til stjórn-
sýslunnar sem Reykjavíkurborg verður að
svara ef hún ætlar að standa undir nafni sem
þjónustufyrirtæki í eigu og þágu borgar-
búa.“
Ekki fylgst með nýjungum
Síðan segir að tillögumar séu vissulega sett-
ar fram að fmmkvæði borgarstjóra og borgar-
ritara enda beri þeir ábyrgð á stjómsýslu
borgarinnar. Tillögumar miði fyrst og fremst
að því að styrkja þá þætti sem forstöðumenn
stofnana og Rekstur og ráðgjöf töldu að finna
þyrfti stað í stjómsýslunni. í lokin segir að
bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
beri því dapurlegt vitni að hann hefur ekki
fylgst með þeim nýju hugmyndum sem þróast
hafa um opinbera stjómsýslu á undaniomum
ámm, né heldur virðist hann gera sér grein
fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á starfs-
umhverfi Ráðhúss Reykjavíkur og þar af leið-
andi á stjómsýslu þess.