Morgunblaðið - 05.11.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Sýknaður af
ákæru um
skattsvik
Bankamenn gagnrýna uppsögn starfsmanna Veðdeildarinnar
Samningi við Veðdeildina
sagt upp fyrir 18 mánuðum
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra
segir að það ætti ekki að þurfa að
koma neinum á óvart þó Ibúðalána-
sjóður hafi kosið að gera ekki samn-
ing við Veðdeild Landsbankans. Hús-
næðisstofnun hefði sagt samningi sín-
um við Veðdeildina upp eftir að Ríkis-
endurskoðun gagnrýndi samninginn
íyrir að vera of kostnaðarsaman fyrir
Húsnæðisstofnun. Stjóm Sambands
íslenskra bankamanna gangrýnir
uppsögn starfsmanna Veðdeildarinn-
ar og krefst þess að ráðherra endur-
skoði ákvörðun um flutning verkefna
hennar til Sauðárki'óks.
„Fyrir 18 mánuðum sagði Hús-
næðisstofun upp samningi við Veð-
deild Landsbanka íslands m.a.
vegna framkvæðis Ríkisendurskoð-
unar sem hafði fundið mjög að þeim
samningi í stjórnsýsluúttekt sem
gerð var fyrir mig á Húsnæðisstofn-
un. Rök Ríkisendurskoðunar voru
að samningurinn væri alltof kostn-
aðarsamur miðað við þá þjónustu
sem Veðdeildin veitti," sagði Páll.
„Þegar við fórum að kanna hvort
hægt væri að breyta samningnum
við Veðdeildina var þess enginn
kostur. Landsbankinn bauð upp á
óbreyttan samning til eins árs gegn
frekari viðræðum um kostnaðartöl-
ur á næsta ári. I framhaldinu létum
við kanna hvort Ibúðalánasjóður
gæti annast þessi verkefni sem Veð-
deildin hefur annast. Til þess að það
væri hægt þurftum við að ná samn-
ingum við Reiknistofu bankanna.
Reiknistofan hafnaði því algerlega
og sagðist aðeins vinna fyrir eigend-
ur sína, þ.e. banka og sparisjóði.
A Sauðárkróki er hugbúnaðarfyr-
irtækið Element, sem er í örri þró-
un. Þeir á Sauðárkróki fóru að vinna
heimavinnu sína í ljósi þess að ég
hafði bent á að ég vildi koma störfum
út á land sem íbúðalánasjóður þyrfti
að vinna. Þeir gáfu sig fram og komu
með hugmyndir um hvernig mætti
leysa þetta. Niðurstaðan af viðræð-
unum var að innheimtusvið Ibúða-
lánasjóðs verður með undmdeild sem
verður staðsett á Sauðárkróki, meðal
annars vegna tengslanna við Elem-
ent, sem gerir það mögulegt að sam-
skiptin verða jafngreið og ef starf-
semin hefði verið staðsett á höfuð-
borgarsvæðinu. Samið hefur verið
við Búnaðarbankann um að útibú
bankans á Sauðárlo-óki taki að sér
ákveðna umsýslu. í gegnum Búnað-
arbankann getum við notið þjónustu
Reiknistofu bankanna," sagði Páll.
Húsvíkingar óhressir
Bæjarráð Húsavíkur sendi félags-
málaráðherra bréf um miðjan sept-
embermánuð þar sem óskað var eftir
viðræðum við hann um að íbúðalána-
sjóði yrði fundinn staður á Húsavík.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á
Húsavík, sagði að þessar viðræður
hefðu aldrei farið fram og ekkert
svar hefði borist frá ráðherra.
„Það liggur fyrir að félagsmála-
ráðherra var spurður um þetta mál á
Alþingi um miðjan mánuðinn. Inni-
hald í hans svörum var að þetta væri
seint fram komið og að vilyrði hefðu
verið gefin um að núverandi starfs-
menn Húsnæðisstofnunar gætu
fengið störf hjá stofnuninni. Svörin
voru því þess eðlis að ekki stæði ann-
að til en að öll þessi starfsemi yrði á
höfuðborgarsvæðinu. Engu að síður
hlýtur þessi flutningur að hafa verið
í undirbúningi þegar þetta svar var
gefið því að þegar fréttir koma af
þessu er búið að taka ákvörðun um
flutning til Sauðárkróks. Það er því
hægur vandi að segja mönnum að
það sé of seint í rassinn gripið eins
og ráðherrann orðaði það í þinginu
þegar mál eru unnin svona. Við ósk-
um hins vegar Sauðkræklingum til
hamingju að fá þessa innspýtingu í
atvinnulífið," sagði Reinhard.
Páll sagðist hafa svarað bréfi
Húsvíkinga óbeint í umræðum á Al-
þingi við fyrirspurn frá Svanfríði
Jónasdóttur alþingismanni. Það
væri rétt að hann hefði ekki sent
þeim formlegt svar, en sagðist gera
ráð fyrir að þeir hefðu heyrt svör sín
á Alþingi. I svarinu á Alþingi hefði
hann bent á að óskir Húsvíkinga
væru seint fram komnar. Núverandi
starfsmönnum Húsnæðisstofnunar
hefði verið lofað að ganga fyrir með
störf hjá Ibúðalánasjóði. Hann sagð-
ist hins vegar hafa sagst ætla að
beita sér fyrir að koma fyrir úti á
landi þeim verkefnum sem Ibúða-
lánasjóður þyrfti að láta vinna.
Með vísan til orða Páls um að
Sauðkræklingar hefðu unnið heima-
vinnu sína var hann spurður hvort
Húsvíkingar hefðu ekki unnið sína
heimavinnu.
„Húsvíkingar báðu um allan sjóð-
inn og vildu^ að hann yrði fluttur til
Húsavíkur. I lögum um sjóðinn seg-
ir að hann skuli taka við eignum og
skuldbindingum Húsnæðisstofnunar
og þær eru í Reykjavík. Það var því
ekki hægt að verða við óskum um að
flytja þessa starfsemi til Húsavíkur,
sem vissulega hefði verið áhuga-
vert.“
Bankamenn mótmæla
Stjórn Sambands íslenskra banka-
manna sendi í gær frá sér ályktun
þar sem harðlega er mótmælt þeim
fyrirætlunum félagsmálaráðherra að
flytja með stjórnvaldsaðgerðum
störf bankastarfsmanna í Reykjavík
til fyrirtækis í kjördæmi ráðherrans,
eins og komist er að orði.
„Stjórnin telur einsýnt að starfs-
menn Veðdeildar Landsbanka Is-
lands séu hér fórnarlömb í pólitísk-
um leik ráðherrans. Ef skipta á um
þjónustufyrirtæki er eðlilegast og í
samræmi við reglur ríkisins að
bjóða verkefnið út. Athygli er vakin
á að þessum ráðagerðum er hrint í
framkvæmd án þess að samband sé
haft við SIB, sem er stéttarfélag
starfsmanna Veðdeildar Lands-
bankans og ber að standa vörð um
hagsmuni þeirra."
VEITINGAMAÐUR, sem rak
veitingastaðina Apríl í Hafnar-
stræti 5, Glætuna og „Tongs Take
Away í Hafnastræti 9 og Blúsbar-
inn á Laugavegi 73 var á mánudag,
í Hérðaðsdómi Reykjavíkur, sýkn-
aður af ákæru um stórfellt brot á
lögum um virðisaukaskatt. Ákærða
var gefið að sök að hafa vantalið
skattskylda veltu á árunum 1992-
1994 við rekstur veitingastaðanna
fyrrgreindu um rúmar 15 milljónir
og þannig komist hjá því að greiða
rúmar 3 milljónir í virðisauka-
skatt.
Steingrímur Þormóðsson héraðs-
dómslögmaður og verjandi ákærða
krafðist frávísunar málsins og
byggði kröfu sína m.a. á því að
ákvörðun opinberra gjalda ákærða,
þar á meðal ákvörðun virðisauka-
skatts, fyrir tímabil það sem ákært
var vegna, hefði í raun ekki farið
fram þar sem úrskurður frá 15.
september sl. byggðist á áætlun og
yrði kærður.
Dómurinn taldi ekki þá leið færa,
að byggja mat sitt á áætlunum og
mati á svipaðan hátt og gert er í
skýrslu skattrannsóknarstjóra rík-
isins og þar með að áætla andlag
brotsins. Dóminum þótti ekki að
fullnægjandi sönnun hefði komið
fram um að ákærði hefði vantalið
virðisaukaskattskylda veltu í einka-
rekstri sínum og þess vegna varð að
sýkna ákærða.
Hjördís Hákonardóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn og með-
dómarar voru Guðjón St. Mar-
teinsson héraðsdómari og Stefán
D. Franklín löggiltur endurskoð-
andi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarráð
Kanna áhuga á
heilsurækt í
Laugardal
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu um að kannað verði hvort
áhugi sé enn til staðar hjá þeim,
sem lýst hafa áhuga á rekstri
heilsuræktarstöðvar við sundlaug-
arnar í Laugardal. Lagt er til að í
framhaldi fari fram forval, þar sem
auglýst yrði eftir þeim sem áhuga
kunna að hafa á að semja við borg-
aryfii-völd.
Gert er ráð fyrir að í forvali verði
tilgreint hvers konar starfsemi og
hve umfangsmikla þeir hafi áhuga á
að reka, hversu stórt hús þeir hafi
áhuga á að reisa, hvaða þjónusta
verði í boði og hvort þeir samþykki
setta skilmála. Að auki skal gefa upp
upplýsingar um umsvif og rekstur
fyrirtækisins og veita upplýsingar
um fjárhagslega stöðu þess.
Kjördæmisþing sjálfstæðismanna
á Norðurlandi vestra
Norðurland sameinist
í öflugt kjördæmi
KJÖRDÆMISÞING sjálfstæðis-
manna á Norðurlandi vestra telm-
að sameina eigi Norðurlandskjör-
dæmi vestra og eystra og þar með
mynda öflugt Norðurlandskjördæmi
sem hafi mikla burði til sóknar fram
á við. Hins vegar bókuðu fulltrúar
sjálfstæðisfélaganna í Vestur-Húna-
vatnssýslu að þeir tækju ekki af-
stöðu til þess hvort kjördæmið sam-
einaðist Norðurlandi eystra eða
Verfurlandi og Vestfjörðum.
I ályktun kjördæmisþingsins
vegna fyrirhugaðra breytinga á kjör-
dæmaskipan og kosningalögum, seg-
ir ennfremur að forsenda breytinga
til jöfnunai- atkvæðavægis sé að
raunhæfar aðgerðir séu gerðar til að
stuðla að jafnvægi í byggð landsins,
fjölgun íbúa og uppbyggingu at-
vinnulífs á landsbyggðinni. Nauðsyn-
legar fjárveitingai- til slíkra verkefna
verði að koma samhliða því að at-
kvæðavægi sé breytt. Þá telja sjálf-
stæðismenn á Norðurlandi vestra
æskilegt að núverandi kjördæmi
skiptist ekki upp við breytinguna,
þar sem slíkt gæti rofíð þau tengsl
sem hafi myndast milli byggðalag-
anna í kjördæminu og stefnt í hættu
margvíslegri uppbyggingu og sam-
starfi sem þar sé nú.
Þungar áhyggjur af
atvinnuástandi
I ályktun um atvinnumál segir að
sjálfstæðismenn á Norðurlandi
vestra hafi þungar áhyggjur af at-
vinnuástandi í kjördæminu og þeirri
þróun sem eigi sér stað í búferla-
flutningi til höfuðborgarsvæðisins.
Stuðla beri að eflingu atvinnullfs í
kjördæminu strax. Auka þurfi fjöl-
breytni í atvinnustarfsemi og
treysta þær greinar sem fyrir séu.
Telja sjálfstæðismenn meðal annars
biýnt að nýta fjármagn Framtaks-
sjóðs Nýsköpunarsjóðs til að setja á
stofn fjárfestingarsjóð í kjördæm-
inu, en sjóðnum beri að stuðla að
auknum fjárfestingum á svæðinu.
Fram kemur að við leit að fjár-
festingarkostum í iðnaði beri að
hafa að leiðarljósi að fyiTÍrtækin nýti
sem mest það hráefni sem sé til
staðar á einstaka svæðum í kjör-
dæminu og skili launum yfír meðal-
lagi. Þá telja sjálfstæðismenn á
Norðurlandi vestra að standa þurfi
vörð um að fiskveiðistefna stjórn-
valda verði ekki til þess að sjávarút-
vegur dragist saman í kjördæminu.
„Til mótvægis við að störf í fisk-
vinnslu hafa í ríkari mæli færst á
haf út, þarf að finna leiðir til að
stuðla að uppgangi bátaútgerðar í
kjördæminu og tryggja með því
hráefni til starfa í landi. I fisk-
vinnslu ber einnig að stefna að frek-
ari fullvinnslu sjávarafurða úr sjó-
frystu hráefni," segir ennfremur.
í stjórnmálaályktun þingsins seg-
ir meðal annars að uppbygging op-
inberrar þjónustu á landsbyggðinni
sé ein af forsendum þess að hún
vaxi til jafns við höfuðborgarsvæðið.
Því verði að treysta núverandi
starfsemi í mennta- og heilbrigðis-
kerfinu á landsbyggðinni og leggja
kapp á að hvers kyns opinber starf-
semi á sviði rannsókna og þjónustu
við atvinnulífið eflist þar einnig.
Þá segir að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi verið í forystu fyrir ríkisstjóm
frá 1991 og glímt hafi verið við margs
konar viðfangsefni á þessu tímabili.
Með góðærinu komi ný viðfangsefni
og ný markmið og eitt þeirra sé að
tryggja að landsbyggðin fái notið
góðærisins til jafns við höfuðborgar-
svæðið. „Sjálfstæðisflokkurinn er það
stjórnmálaafl sem hefur mesta burði
til þess að ná árangri á þessu sviði og
sjálfstæðismenn á Norðurlandi
vestra treysta því að ekki verði hvik-
að frá settu marld,“ segir að lokum.
FRAMKVÆMDASTJÓRNIN kom sarnan í fyrsta skipti í gær eftir að
konur komust þar í meirihluta. F.v. eru Friðrik Sophusson, Ásdís
Halla Bragadóttir, Davíð Oddsson, Sigríður Anna Þórðardóttir og
Ellen Ingvadóttir.
Framkvæmdastjórn
Sjálfstæðisflokksins
Konur í meirihluta
í fyrsta skipti
KONUR eru nú í fyrsta skipti í
meirihluta í framkvæmdastjórn
Sjálfstæðisflokksins. Konur
náðu meirihluta í framkvæmda-
stjórninni þcgar Sigríður Anna
Þórðardóttir var kjörin formað-
ur þingflokksins. Fram-
kvæmdastjórnin kom saman í
gær, miðvikudag, í fyrsta skipt-
ið eftir þessa breytingu.
í framkvæmdastjórn Sjálf-
stæðisflokksins sitja formaður
og varaformaður flokksins, Da-
víð Oddsson og Friðrik Sophus-
son, Sigríður Anna Þórðardótt-
ir, formaður þingflokksins, og
tveir fulltníar kosnir af mið-
stjórn, Ásdís Halla Bragadóttir,
formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna, og Ellen
Ingvadóttir, formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna.
Fundi framkvæmdasljórnar
sitja einnig Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdasljóri flokks-
ins, og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, framkvæmdastjóri þing-
flokksins.