Morgunblaðið - 05.11.1998, Síða 15

Morgunblaðið - 05.11.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 15 Morgunblaðið/Silli PÉTUR Jónasson ljósmyndari ásamt starfsmönnunum, Fríði H. Kristjánsdóttur og Emelíu Aðalsteinsdóttur. Fullkomin ljósmynda- þjónusta á Húsavík Húsavík - Ljósmyndastofa Péturs á Húsavík hefur nú fengið nýja og fullkomna framköllunai-vél svo hún býður upp á framköllunarþjónustu eins og hún gerist best hér á landi og munu aðeins Akureyri og Reykjavík geta boðið sams konar þjónustu. Pétur Jónasson hefur starfað sem ljósmyndari á Húsavík í 36 ár og er þekktur meðal ljósmyndara fyrir þekkingu sína í tölvutækni og hvað hann fylgist vel með öllum nýjung- um og er fljótur að tileinka sér þær þó að vélakostur sé ávallt dýr. Hin nýja framköllunarvél Péturs er byggð á nýjustu skannatækni þar sem hægt er að skoða hverja mynd á skjá þegar filmunni er rennt í gegnum vélina. Par með er hægt að tryggja hámarksgæði í framkölluninni. Einnig getur vélin unnið úr nýju APS-filmugerðinni. I vélinni er hægt að stækka myndir í 30x40 en til þessa hefur Pétur þurft að handstækka þessa stærð. Þetta mun stytta afgreiðslu- tíma á stækkunum verulega frá því sem áður var og að sögn Péturs er jafnvel hægt að fá stækkaða mynd samdægurs ef mikið liggur við. Hægt er að tengja við framköll- unarvélina háupplausnartölvuskrif- ara þannig að Pétur er vel undirbú- inn til að mæta framtíðarþróuninni í ljósmyndavinnslu. Pétur ljósmyndari hefur oft með tækni sinni sent myndir frá Húsa- vík til Morgunblaðsins og þær hafa verið komnar suður á skammri stund. Grunnskóli Grindavíkur með í alþióðlesfu skólaverkefni __________________________JL_tz_ö____________ Höfðar til smárra byggðarlaga Grindavík - Gestir frá Hollandi, Irlandi og Danmörku eru að vinna með skólamönnum frá Gr- indavík í svoköliuðu Comeníusar- verkefni. Þetta verkefni er á veg- um Evrópusambandsins en það hefur skapað farveg fyrir víð- tækt samstarf Evrópuþjóða undir samheitinu Sókrates. Comeníusar-verkefnið tekur til leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og er heitið á þessu tiltekna verkefni „Small is beautiful“. Það eru skólarnir í Thyberon á Jótlandi í Dan- mörku, Loreto Secondary School frá Balbriggan á írlandi, Jóhannes Brands-skólinn frá Burgun í Hollandi og síðast en ekki síst Grunnskóli Grindavík- ur sem vinna saman að þessu verkefni. Heitið á verkefninu er til komið vegna smæðar þeirra bæja sem eru með í því. Þetta er þriðja árið sem þessir skólar eru að vinna saman og gengur verk- efnið út á það að nemendur við- komandi skóla kynna bæinn sinn, náttúruna og nánasta um- hverfi. I vetur er áherslan lögð á skapandi starf barna og ung- linga í bæjunum. Kennarar frá þátttökuskólun- um voru í Grindavík síðustu daga október til að skipuleggja vetur- inn og í leiðinni kynnast erlendu Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson ÞÁTTTAKENDUR á Comeníusar-verkefninu. gestirnir ýmsu sem suðvestur- horn landsins hefur uppá að bjóða. Þrátt fyrir stranga dag- skrá gáfu þeir sér tíma til að stilla sér upp fyrir fréttaritara Morgunblaðsins. Slökkviliðsæfing á Flúðum Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson Reykholtsdal - Brunamálastofnun ríkisins hélt slökkviliðsæfíngu á Flúðum í vikunni fyrir slökkvilið Flúða, Grímsness og Búrfells. Æfíngin fór fram í gám Bruna- málastofnunar þar sem líkt er eft- ir eld í herbergi. Æfíngin felst í því að slökkva eldinn með litlu vatni til að valda sem minnstu vatnstjóni og reyklosun með vatni. Æfíngin gekk vel og voru þátttakendur ánægðir með þessa þjálfun sem Brunamálastofnun veitir. Á myndinni eru þátttakendur slökkviliðsæfíngarinnar. LLINIQUt 100% ilmefnoloust SENN munu þessir raflínustaurar verða teknir niður. Raflínur lagðar í jörð á utanverðu Snæfellsnesi Hellissandi - Undanfarnar vikur hefur flokkur raflínumanna unnið að því að leggja raflínu í jörð milli Rifs og Hellissands og jafnframt innan Hellissands. A næstu vikum verða loftlínurnar teknar niður. Það gleður augað að sjá þessar loftlínur hverfa en mestu skiptir þó að með þessu munu rafmagns- truílanir minnka verulega því lín- an milli Rifs og Hellissands var verulega slæm, oft á tíðum vegna seltu og særoks. Gerði línan íbúum og starfsmönnum Rarik lífið leitt í vetrarveðrum. Þessi kafli sem um ræðir er 2,5 km á lengd og var hann plægður í jörð af Rarik með aðstoð Tómas- ar Sigurðssonar verktaka í Olafs- vík. Að sögn Snorra Böðvarsson- ar rafveitustjóra er nú aðeins einn slæmur kafli eftir sem þarf að koma í jörð en hann er á milli flugvallarins í Rifi og Gufuskála. Snorri kvaðst bjartsýnn á að það myndi ekki dragast lengi að koma honum í jörð líka. Ibúar hér munu því væntanlega búa við aukið rafmagnsöryggi í framtíð- inni. Við uppfyllum sérhverja þörf Ciinique-andlitsfaröar. 6 gerðir. 40 litir. Clinique hefur farða sem hentar öllum húðgerðum, hvorf sem húðin er feit, þurr eða eðlileg. Dökk eða Ijós, ung eða þroskuð eða allt þar ó milli. Það sem er mikilvægast er a5 við getum fundið rétta farðann fyrir þig. Komdu og fóðu ókeypis húðgreiningu og við finnum fullkominn farða fyrir þig. Komdu eða hringdu og pantaðu tíma í ókeypis húðgreiningu og róðgjöf. Róðgjafi fró Clinique verður í Lyfju, Lógmúla fimmtudag, föstudag og laugardag. LYFJA Lágmúla, simi 533 2308 - lake the day off augnhreinsir 30 ml. - Rakakrem 15 ml. - Varalitur ■ Creamy Nute Fylgja með ef keypt er farði og púður frú Clinique

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.