Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuters BARBARA og George Bush samfagna syninum Jeb með sigurinn í rík- isstjórakosningunum í Flórída. Tvöfaldur sigur George og Jeb Bush Halda Bush- # nafninu á lofti Dallas, Austin. Reuters. ÞÓTT flestir repúblikanar séu held- ur ósáttir við útkomu flokksins í þing- og ríkisstjórakosningunum í á þriðjudag gat Bush-fjölskyldan verið ánægð með afrakstur dagsins enda náðu bræð- urnir George W. og Jeb Bush báðir kjöri, sá fyrri var endurkjörinn ríkis- stjóri í Texas en Jeb Bush tókst nú, í annarri tilraun, að vinna sigur í ríkis- stjórakosningunum í Flórída. Afí bræðranna var öldungadeild- arþingmaður fyrir Connecticut á sín- um tíma og George Bush, fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna, er faðir þeirra. Ræddu fréttaskýrendur um það í gær að með tvöföldum sigri í kosningunum væri nýtt ættarveldi sannarlega farið að setja mark sitt á bandarísk stjórnmál. Munu bræður nú sitja á sama tíma í ríkisstjórastóli í fyrsta skipti síðan á sjöunda ára- tugnum þegar Nelson Rockefeller var ríkisstjóri í New York og bróðir hans Winthrop réð ríkjum í Arkansas. Bæði George W. og Jeb sögðu lyk- ilinn að sigri vera nýja afstöðu þeirra í stjómmálum. Sagði George W. að hann hefði „slegið nýjan tón“ í Texas með því að haga störfum sínum óháð flokkslínum og benti á þann óvenju mikla stuðning sem hann naut í þess- um ríkisstjórakosningum meðal spænskumælandi fólks í ríkinu, kvenna og jafnvel skráðra flokksfé- laga í Demókrataflokknum. Aldrei lék vafi á að Bush yrði endurkjörinn enda naut hann góðs af miklum upp- gangi í Texas og fékk um 68% greiddra atkvæða. I Flórída bar Jeb Bush sigurorð af demókratanum Buddy McKay en ekki eru nema fjögur ár síðan Jeb þurfti að þola ósigur fyrir Lawton Chiles, fyrrverandi ríkisstjóra, í kosningunum. Jeb Bush hagaði kosningabaráttu sinni hins vegar öðruvísi í þetta sinn, tók upp hófsam- ari stefnumál og rétti út hönd sína til ýmissa minnihlutahópa sem venju- lega kjósa demókrata. En George W. Bush þakkaði góð- an árangur þeirra bræðra ekki síst foreldrum þeirra. „Það er ekki verra að eiga góða mömmu og góðan pabba,“ sagði hann í samtali við Reu ters-fréttastofuna. George á leið í Hvíta húsið? Ekki þykir ólíklegt að George W. Bush, sem er 52 ára, verði frambjóð- andi Repúblikanaflokksins í forseta- kosningunum árið 2000 og er talið að kosning Jebs, sem er 45 ára, í Flórída styrki enn frekar stöðu Ge- orge. Það var Jeb Bush sem varð fyrri til að hefja afskipti af stjórnmálum og það var reyndar mat George og Barböru Bush að yngri sonurinn væri líklegri til frama í stjórnmálum. Ósigurinn í ríkisstjórakosningunum í Flórída fyrir fjórum árum breytti hins vegar stöðunni og nú hefur Ge- orge W. Bush, eftir fjögur ár á ríkis- stjórastóli, vaxið ásmegin. Sýna skoðanakannanir að Bush hefur for- skot á A1 Gore, varaforseta Banda- ríkjanna, og líklegan frambjóðenda demókrata, hvað vinsældir meðal Bandaríkjamanna varðar. Bandaríkjunum George Bush yngri Osigur D’Amatos í New York Uppnefni og óvönduð meðul þóttu ein- kenna baráttuna New York. Reuters. REPÚBLIKANINN Alfonse D’Amato tapaði sæti sínu í banda- rísku öldungadeildinni til demókratans Charles Schumers í kosningunum á þriðjudag og þykja úrslitin afar eftirtektarverð enda hefur D’Amato átt fast sæti í öld- ungadeildinni síðan árið 1980. Þótti kosningabarátta mannanna tveggja ein sú harðvítugasta að þessu sinni og voru þeir D’Amato og Schumer ekki alltaf vandir að meðulum sínum. Schumer þótti í kosningabarátt- unni hafa tileinkað sér ýmis vægð- arlaus brögð sem D’Amato er þekktur fyrir í gegnum tíðina til að tryggja sér sigur, m.a. lagði Schumer gífurlega áherslu á íjár- öflunarherferð sína og eyddi síðan miklum fjármunum í sjónvarpsaug- lýsingaherferð þar sem D’Amato voru ekki vandaðar kveðjurnar. Var slagorð Schumers „of margar lygar á of löngum tíma“ og svo virt- ist sem slagorðið næði eyrum kjós- enda því kannanir sýna að kjósend- ur drógu heiðarleika D’Amato í efa, auk þess sem þeir töldu að hann hefði einfaldlega setið of lengi í embættinu. Reyndi Schumer einnig að sýna fram á að D’Amato væri pólitiskur öfgamaður á meðan þeim síðamefnda gekk ekki eins vel að sannfæra kjósendur um að Schumer væri Iatur og hættulega fijálslyndur í skoðunum. D’Amato mun einnig hafa tapað miklu fylgi meðal gyðinga í New York-ríki þegar hann uppnefndi Schumer upp á jiddískan máta „ballarhaus”, en Schumer er gyð- ingur. Hefur D’Amato reyndar áð- ur vakið hneykslan manna með um- deildum ummælum sínum og þurfti t.a.m. að biðjast opinberlega afsök- unar eftir að hann gerði grín að japönskum uppruna Lance Ito, dómara f O.J. Simpson málinu víð- fræga, 1 útvarpsþætti fyrir þremur árum. Telja margir að útskýra megi ósigur D’Amatos nú með því að axarsköft hans hafi einfaldlega verið orðin of mörg. Kosningaúrslitin í Bandaríkjunum sigur fyrir demókrata Staðbundnu málin reyndust vega þyngst Mikill stuðningur kvenna og minni- hlutahópa við demókrata er repúblikönum áhyggjuefni Reuters GLEÐI Barböru Boxer, öldungadeildarþingmanns demókrata, með sigurinn yfir Matt Fong í Kaliforníu, var ósvikin. BANDARÍSKIR demókratar eru sigrihrósandi að loknum kosningun- um í fyiradag. Þvert ofan í allar spár lengst af bættu þeir stöðu sína, unnu eftirtektarverða sigra í mikilvægum ríkisstjórakosningum, héldu stöðu sinni í öldungadeildinni og bættu við sig sætum í full- trúadeildinni. Hef- ur það ekki gerst síðan 1934, að flokkur forsetans hafi unnið á í kosn- ingum á miðju kjörtímabili. Munu kosningaúrslitin óhjákvæmilega hafa sín áhrif á meðferð málsins gegn Bill Clinton forseta á þingi en samkvæmt skoð- anakönnun voru Clinton- og Lewin- sky-mál ekki efst í huga fólks þegar í kjörklefann var komið. Repúblikanar höfðu vonast til, að niðurstaða kosninganna yrði áskor- un um, að Clinton yrði dæmdur frá embætti en útkoman er allt önnur. Undir það síðasta, þegar menn voru farnir að átta sig á hvert stefndi, voru margir forystumenn repúblik- ana hættir að nefna Clinton-málin á nafn og Trent Lott, öldungadeildar- þingmaður repúblikana fyrir Miss- issippi, sagði er tölumar fóru að ber- ast, að þau hefðu haft lítil sem engin áhrif á kjósendur. Landsmálin, stað- bundin málefni og frambjóðendurnir sjálfir hefðu vegið þyngst. Undh- það taka margir en þó þykir Ijóst, að hamagangur repúblikana gegn Clinton hafi komið þeim sjálfum verst að lokum. Áfram með meirihluta en minni en áður Repúblikanar hafa eftir sem áður meirihluta í báðum deildum Banda- ríkjaþings og staðan í öldungadeild- inni er óbreytt, 55 repúblikanar á móti 45 demókrötum. Vegna þess, að venjan er sú, að flokkur forsetans tapi í kosningum á miðju kjörtíma- bili, svo ekki sé talað um kosningar á sjötta ári stjórnartíðar hans, þá líta demókratar á útkomuna sem sigui-. Þótt fulltrúadeildin samþykkti að höfða mál á hendur Clinton myndi það trúlega stranda í öldungadeild- inni því að þar þarf aukinn meiri- hluta fyrir því eða 67 atkvæði. Repúblikanar unnu þrjú öldunga- deildarsæti af demókrötum, í Illino- is, Ohio og Kentucky, og demókratar tóku sama sætafjölda af repúblikön- um, í Norður-Karólínu, Indiana og New York. Var síðastnefndi sigurinn sætastur en þar féll hinn litríki Al- fonse D’Amato fyrir demókratanum Charles Schumer. Hafa demókratar gert mjög harða hríð að þessu sæti í 18 ár en árangurs fyrr en nú. Ekki skipti síðan minna máli, að þeir öld- ungadeildarþingmenn demókratar, sem taldir voru tæpir, unnu sæti sín aftur. Ljúkið Monicu-málum Richard Gephardt, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, sagði í fyrrakvöld, að kosningaúrslitin væru sögulegur sigur, „sögulegur viðsnún- ingur“, og skilaboð til þingsins um að klára sig af Clinton- og Monicu-mál- um sem fyrst. „Bandarískir kjósendur lýstu því yfir í dag, að við ættum að einbeita okkur að heilbrigðis-, mennta- og fé- lagsmálum en ekki að Lewinsky- hneykslinu," sagði Gephardt. Kosninqaúrslitin í Bandaríkjunum kosningar FULLTRÚADEILDIN 206 demókratar 211 228 repúblikanar 223 1 óháðir 1 ÖLDUNGADEILDIN 45 (kosið um 18) dem. 45 55 (kosið um 16) rep. 55 RÍKISSTJÓRAR 17 (kosiðum 11) dem. 17 32 (kosið um 24) rep. 31 1 (kosið um 1) óháðir 2 Kosið var um öll 435 sætin í full- trúadeildinni og staðan var þannig, að repúblikanar höfðu 228 á móti 206 sætum demókrata. Fyrir aðeins fá- um vikum spáðu repúblikanar því, að þeir myndu bæta við sig 30 þingsæt- um í fulltrúadeildinni en niðurstaðan er sú, að 22 sæta meirihluti þeirra fer í 12. Um 90% blökkumanna studdu demókrata Það voru ekki síst konur, blökku- menn og fólk af mið- og suður-amer- ískum ættum, sem slógu skjaldborg um Clinton í þessum kosningum. 55% kvenna kusu demókrata, kosninga- þátttaka blökkumanna tvöfaldaðist miðað við kosningarnar 1994 og 89% þeirra studdu demókrata. Kosninga- þátttaka síðastnefnda hópsins tvöfald- aðist einnig og þar voru hlutfóllin 65% á móti 31% demókrötum í vil. Flokkur sitjandi forseta hefur ekki bætt við sig í kosningum á miðju kjörtímabili síðan 1934 og úr- slitin komu því stjórnmálaskýrend- um og öðrum á óvart. Orrin Hatch, öldungadeildarþingmaður repúblik- ana fyrir Utah, sagði er úrslitin lágu fyrir, að ljóst væri, að flokkur sinn þyrfti að taka sér tak. Hann hefði ekki lengur efni á því að sniðganga stóra minnihlutahópa eins og hann hefði gert. Ríkisstjórakosningarnar voru ekki síður spennandi en kosningamar til þingsins. Demókratar unnu Suður- Karólínu, Alabama, Iowa og Kali- fomíu af repúblikönum og þeir unnu svo aftur Florida, Nebraska og Nevada af demókrötum. Fyrir demókrata er sigurinn í Kaliforníu mjög mikilvægur en þar hafa repúblikanar ráðið ríkjum í 16 ár. Nú vann demókratinn Gray Dav- is öraggan sigur á repúblikanum Dan Lundgren. Árið 2000 verður al- mennt manntal í Bandaríkjunum og í kjölfarið má búast við töluverðum breytingum á kjördæmaskipan inn- an ríkjanna. Munu ríkisstjóramir ráða miklu um það og til dæmis í Kalifomíu og víðar mun það líklega verða til að fjölga þingmönnum demókrata og gera repúblikönum erfiðara en áður að halda meirihluta í fulltrúadeildinni. Af öðram merkilegum tíðindum úr ríkisstjórakosningunum má nefna, að tveir synir George Bush, fyrrver- andi forseta, eru nú ríkisstjórnai’. George W. Bush var endurkjörinn í Texas með um 70% atkvæða og Jeb, yngri bróðir hans, sigraði í Florida. Stendur George W. Bush nú mjög vel að vígi sem hugsanlegur fram- bjóðandi síns flokks í forsetakosn- ingunum árið 2000. I Minnesota var sigurvegarinn Jesse „skrokkur” Ventura, fyrrver- andi glímukappi og lífvörður Rolling Stones um tíma. Bauð hann sig fram sem óháður og sigraði tvo kunnustu stjórnmálamenn í ríkinu, demókratann Hubert Humphrey III og repúblikann Norm Coleman, borgarstjóra í St. Paul. Þróuninni í Suðurríkjunum snúið við „Flokkurinn er í sókn um allt landið," sagði Steve Grossman, for- maður landsnefndar Demókrata- flokksins, er úrslitin lágu nokkurn veginn fyrir og þá átti hann ekki síst við árangurinn í Suðurríkjunum. Þar hafa repúblikanar stöðugt verið að styrlga stöðu sína sl. tuttugu ár en nú hafa demókratar blásið þar til sóknar á ný, a.m.k. í svipinn. Þeir endurheimtu ríkisstjóra í Alabama og Suður-Karólínu, stóðust atlögu repúblikana í Georgíu, tóku öldunga- deildarþingsæti af repúblikönum í Norður-Karólínu og héldu sínu í Suður-Karólínu. Alls staðar þar sem mjótt var á mununum sigruðu demókratar. í kosningunum í Suðurríkjunum var raunar margt, sem lagðist á sveif með demókrötum, ekki síst heldur misheppnaðir frambjóðendur repúblikana. Demókratar högnuðust líka á tillögum um ríkislottó, sem yrði aðallega rekið til að kosta um- bætur í menntamálum, og mikil kosningaþátttaka blökkumanna kom þeim vel. Ánægð þjóð með áhuga á menntamálum „Þessi þjóð er almennt sátt við hlutskipti sitt. Engin sérstök óá- nægja, engin sérstök ósk um breyt- ingar,“ sagði einn helsti kosninga- stjóri Repúblikanaflokksins um síð- ustu helgi. Niðurstöður kosninganna virðast staðfesta það. í skoðana- könnunum kemur fram, að 10% kjós- enda hafi farið á kjörstað til að styðja Clinton og önnur 10% til að kjósa gegn honum. Rúmlega þrír fjórðu nefndu félagsmál, heilbrigðis- mál, atvinnu- og skattamál en það vora menntamálin, sem voru efst á baugi hjá flestum. Heimildir: Reuters, The New York Times Jesse Ventura
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.